Morgunblaðið - 13.09.2016, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2016
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Kunnuglegumræða erhafin eftir
prófkjör flokka og
framboða. Ríkis-
útvarpið einbeitir
sér að Sjálfstæðis-
flokknum og geng-
ur í þeim efnum ekki gott til
fremur en endranær. En stofn-
unin er þess á milli í önnum við
að koma illu til leiðar innan
Framsóknarflokksins og ein-
hver teikn eru um að hún sé að
hafa nokkuð upp úr krafsinu.
Er undrunarefni að liðsmenn
þessarar ríkisfréttastofu skynji
aldrei neitt skrítið í þessari
framgöngu sinni.
Forystufólk í Sjálfstæðis-
flokki virðist hafa nokkrar
áhyggjur af því hversu dræm
þátttaka var í prófkjörum hans.
Þróunin helst í hendur við
minni áhuga almennings á að
hafa stjórnmálaleg áhrif. Það
birtist, bæði nær og fjær, í
hnignandi þátttöku í almennum
kosningum. Hitt hefur ekki
breyst að Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur yfirburði í þessum
efnum hér á landi. Samfylk-
ingin, sem um hríð gerði kröfu
til að vera talin annar af „tveim
turnum“ íslenskra stjórnmála
hélt prófkjör í Reykjavík. Öss-
ur Skarphéðinsson vann leið-
togasæti í öðru kjördæminu
með 664 atkvæðum í fyrsta sæti
í sameiginlegu prófkjöri kjör-
dæmanna. Ólöf Nordal hlaut
2090 atkvæði í sambærilegt
sæti. Sigríður Ingibjörg Inga-
dóttir hlaut 772 atkvæði í annað
sætið og því leiðtogasæti í hinu
kjördæminu. Guðlaugur Þór
Þórðarson hlaut 2783 atkvæði í
annað sæti sitt. Þarna munar
miklu.
Sé horft til Pírata, sem í
augnablikinu teljast til stjórn-
málalegs turns, er varla við
hæfi að blanda lýðræðinu í lýs-
ingu á aðferðum þeirra við val á
frambjóðendum. Einstök ný
framboð hafa fjölbreyttar að-
ferðir í þessum efnum. Ein
lýsir sér t.d. í þessari frétt:
„Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir, fyrrverandi varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins og
ráðherra, hefur tilkynnt um
framboð sitt fyrir Viðreisn.
Þetta kemur fram í tísti hjá
henni á Twitter. Tekur hún
einnig fram að Þorsteinn Páls-
son, fyrrverandi formaður
Sjálfstæðisflokksins, ætli að
ganga til liðs við Viðreisn.“
Nú má einfaldlega tísta sig í
framboð í fyrsta sæti á lista og
virðist ekki nokkur annar þurfa
að samþykkja tístið.
Það þótti veruleg lýðræðis-
leg breyting að koma á próf-
kjörum við val á frambjóðend-
um.Valdið í framboðsmálum
var að verulegu leyti fært frá
flokksforystu til
flokksfólks. Sjálf-
stæðisflokkurinn
hafði forystu um
það.
Vafalítið er að
prófkjör voru í
meginatriðum holl
flokknum, þótt þau séu ekki
gallalaus. Þau ýta iðulega undir
innanflokksbaráttu, sem getur
leiðst út í illindi og jafnvel hat-
ur á milli manna. Þá reynir á
samheldni manna í baráttu við
raunverulega andstæðinga.
Það mætti og telja til galla á
prófkjörsaðferð, að fæstir kjós-
enda í prófkjöri eru meðvitaðir
um að raða þurfi saman lista
sem höfði almennt til stuðn-
ingsmanna flokksins og þeirra
sem gætu hugsað sér að kjósa
hann að þessu sinni. Kjósendur
eru oft aðeins mættir til að
kjósa sinn mann og tryggja
honum „öruggt sæti“ eða
stökkpall til áhrifa síðar. Takist
að þessu leyti ekki vel til í próf-
kjöri að mati tiltekins hóps og
jafnvel verulegs fjölda, vakna
gjarnan kröfur um að flokks-
valdið grípi í taumana. Það hef-
ur oft verið reynt, en sjaldan
gefist vel.
Það er auðvitað þannig, að
trúnaðartitill, svo sem ráð-
herra, þingmanns eða forystu-
sveitar er fallinn til þess að
gefa frambjóðendum í prófkjöri
forskot. Dugi það ekki til og
jafnvel þó að æskilegt þætti að
hafa önnur blæbrigði á lista en
þau sem prófkjör skilaði er
hæpið að bregðast við með
valdi. Síðustu prófkjör Sjálf-
stæðisflokksins tryggja ákveð-
inn stöðugleika og nokkra
endurnýjun umfram það sem
orðið var með ákvörðun margra
þingmanna um að verða ekki í
framboði. Árangur Páls Magn-
ússonar í Suðurkjördæmi er
mjög eftirtektarverður og lík-
legur til að styrkja stöðu
flokksins í kjördæminu.
Formaður flokksins fær
trausta útkomu í sínu kjördæmi
og varaformaðurinn má einnig
vel við una. Sama má segja um
Harald Benediktsson og Krist-
ján Þór Júlíusson í sínum kjör-
dæmum. Óli Björn Kárason er
hástökkvarinn í Suðvestur-
kjördæmi. Hann hefur, umfram
marga, tileinkað sér skarpa
hugsjónatengda og gagnsæja
hugmyndalega baráttu.
Vissulega mun mörgum
þykja að hlutur ýmissa hæfi-
leikakvenna og -karla hefði
mátt vera betri. En ákvörðun
um prófkjör felur í sér, að
flokksfólkið á hverjum stað
hefur talið að á þessum tíma
henti það flokknum best. Því er
mjög hæpið að tilraun til að
hræra í úrslitunum reynist
farsæl.
Um prófkjör og
eftirleik.
Best að stíga
varlega til jarðar}
Kostir og gallar
prófkjörs
E
rt þú gamla konan í hópnum?“
spurði sonur minn eftir að ég
hafði haldið matarboð fyrir sam-
nemendur mína úr mastersnám-
inu. Já, ekki gat ég víst neitað
því og enn á ný er ég minnt á aldurinn. Sem
færist hratt yfir, verð ég að segja, með öllu því
sem fylgir. Líklega myndi ég teljast miðaldra
þótt mig hrylli við því orði.
Það styttist óðfluga í hálfrar aldar afmælið
og þótt ég sé ákaflega þakklát fyrir líf mitt
verð ég samt að viðurkenna að mér finnst ég
ekki vera svona gömul. Ég er haldin aldurs-
komplexum sem ég reyni að breiða yfir með
því að sýnast yngri og reyni eftir fremsta
megni að dylja fáfræði mína þegar ég er innan
um yngra fólk. Kinka bara viturlega kolli þeg-
ar rætt er um áhugamál þess sem ég hef ekk-
ert vit á. Þykist þekkja hina og þessa tónlistarmennina.
Eða hvar heitasti skemmtistaðurinn er.
Ég fór um daginn á Bieberinn ásamt sonum mínum
tveimur og sátum við í stúku. Það var nú bara af því að
gamla gat ekki hugsað sér að standa upp á endann í
marga klukkutíma eftir langa vinnuviku. Eldri sonurinn
var fljótur að láta sig hverfa niður á gólf til unglingsvina
sinna, enda ekki kúl að sitja þarna með aldraðri móður.
Í stúkunni var gott útsýni og þægilegt að vera. Þar til
tónleikarnir byrjuðu. Hávaðinn var yfirgengilegur og
bassinn stilltur þannig að bringan á mér var að springa og
mér leið eins og ég væri með dúndrandi kökk í hálsinum.
Unglingsstúlkan fyrir aftan mig öskraði þannig að hún
hefði getað sprengt nokkur kristalsglös.
Hljóðið smaug í gegnum merg og bein. Ég
sendi skilaboð á systur mína sem sat hinum
megin í stúkunni. „Voðalega er þetta hátt. Mér
er svo illt í bringunni!“ Hún svaraði, „Já, mér
er illt í hjartanu. Og mér líður eins og það sé
verið að kyrkja mig.“ „Já, þetta er rosalegt,
geturðu ekki beðið þá um að lækka aðeins?“
spurði ég hana í gríni þó mér væri í raun full
alvara.
Við systur þraukuðum í gegnum tónleikana
en ákváðum að þetta yrðu okkar síðustu stór-
tónleikar. Héðan í frá verða það bara huggu-
legheit í Hörpunni eða á Rosenberg.
Ég berst með kjafti og klóm gegn öldr-
uninni. Hamast eldsnemma á morgnana í
ræktinni. Held mig frá tóbaki og áfengi. Forð-
ast mikið sykurát. Mæti reglulega á snyrti-
stofur. Fel gráu hárin undir ljósum strípum. Það nefni-
lega klæðir afar fáar konur að vera gráhærðar. Annað
virðist gilda um karla; um leið og þeir fá grátt í vanga er
rætt um það í saumaklúbbum. „Þvílíkur silfurrefur er
hann orðinn, löðrandi af kynþokka!“ Aldrei held ég að
karlar tali svona um konur. Frekar gæti heyrst í karla-
klefum: „Já, hún er farin að grána. Minnir á ömmu mína.“
Það er sem sagt full vinna að halda sér unglegum en
auðvitað er aðalmálið að halda sér hraustum. Hvað með
það þó ég viti ekki hver Sturla Atlas er? Og nokkrar
hrukkur í kringum augun eru jú bara sjarmerandi. Smá
lærapokar eru í lagi. Á öðrum konum. Bara ekki á mér.
asdis@mbl.is
Ásdís
Ásgeirsdóttir
Pistill
Komplexar miðaldra konu
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Um 82% kjósenda í Rúss-landi styðja VladimírPútín forseta þrátt fyrirmikinn efnahags-
samdrátt í landinu en kannanir
benda til þess að fylgi bandamanna
hans í stjórnarflokknum Sameinuðu
Rússlandi hafi minnkað síðustu mán-
uði. Talið er þó ólíklegt að staða
flokksins veikist í Dúmunni, neðri
deild þingsins, í þingkosningum sem
fara fram á sunnudaginn kemur.
Starfsmenn stjórnarflokksins
eru farnir að hringja í kjósendur til
að tryggja að vinsældir forsetans
verði bandamönnum hans til fram-
dráttar í þingkosningunum. „Gott
kvöld! Þetta er frá starfsliði Samein-
aðs Rússlands,“ segir röddin í sím-
anum, að því er fram kemur í frétta-
skýringu norska daglaðsins
Aftenposten. „Allir vita að Vladimír
Pútín forseti leggur hart að sér fyrir
Rússland. Vilt þú líka styðja Pútín
með því að kjósa flokkinn Sameinað
Rússland í kosningunum?“
Í skoðanakönnun, sem gerð var
í ágúst, sagðist 31% Rússa ætla að
kjósa Sameinað Rússland, um átta
prósentustigum færri en í júlí. Í apríl
mældist fylgi flokksins 42% og í síð-
ustu þingkosningum fékk flokkurinn
tæpan helming atkvæðanna.
Þetta fylgistap hefur þó ekki
orðið til þess að aðrir flokkar hafi
aukið fylgi sitt, heldur hefur óá-
kveðnum kjósendum og þeim sem
ætla ekki að kjósa fjölgað. Í síðustu
könnuninni mældist Kommúnista-
flokkurinn, sem hefur stutt ráða-
mennina í Kreml, með sama fylgi og
í júlí, eða um 10%. Flokkur þjóð-
ernissinnans Vladimírs Zhírínovskí
mældist með 9% fylgi, prósentustigi
minna en í júlí.
Ef aðeins er tekið mið af þeim
sem hafa gert upp hug sinn og ætla
að kjósa er fylgi Sameinaðs Rúss-
lands um 50%, 15 prósentustigum
minna en í janúar. Fylgi flokksins er
núna svipað og í kosningunum 2011
þegar hann fékk 49,3% atkvæðanna
og tæp 53% sætanna í Dúmunni.
Efnahagssamdrátturinn virðist
einkum hafa bitnað á forsætisráð-
herranum Dmítrí Medvedev því að
hundruð þúsunda Rússa hafa skrifað
undir áskorun um að hann láti af
embætti. Pútín hefur þó lýst yfir
stuðningi við Medvedev og ríkis-
stjórn hans.
Þótt forsetinn hafi verið gagn-
rýndur fyrir ýmsar ráðstafanir til að
hindra mótmæli og andstöðu við
hann hefur stjórnmálaflokkum
landsins fjölgað frá síðustu þing-
kosningum úr sjö í 74. Aðeins fjór-
tán þeirra geta tekið þátt í kosning-
unum á sunnudag vegna reglna sem
kveða m.a. á um að flokkarnir þurfi
að safna 200.000 undirskriftum
stuðningsmanna í a.m.k. 29 lýðveld-
um og héruðum, eða undirskriftum
3% kjósenda í hverju héraði.
Stjórnarflokkurinn gæti
styrkt stöðu sína
Af þessum fjórtán flokkum eru
aðeins fjórir taldir eiga möguleika á
því að fá nógu mikið fylgi, eða minnst
5%, til að fá fulltrúa í Dúmunni.
Þessir flokkar eru Sameinað Rúss-
land, Kommúnistaflokkurinn,
þjóðernisflokkur Zhírínovskís og
vinstriflokkurinn Réttlátt Rússland.
Rússneski stjórnmálaskýrand-
inn Níkolaj Petrov telur að litlar
breytingar verði á Dúmunni í kosn-
ingunum. Hann segir í grein á vef
hugveitunnar European Council of
Foreign Relations að líklegt sé að
Sameinað Rússland styrki stöðu
sína í þingdeildinni á kostnað flokks
Zhírínovskís og Réttláts Rússlands.
„Viltu styðja Pútín með
því að kjósa flokkinn?“
AFP
Vinsæll Vladimír Pútín með kjósendum á Rauða torginu í Moskvu á
laugardaginn var þegar haldið var upp á 869 ára afmæli borgarinnar.
Vladimír Pútín hefur valið
nokkra af fyrrverandi lífvörðum
sínum í áhrifamikil héraðsstjóra-
embætti, að því er fram kemur í
grein í The New York Times eftir
rússneska blaðamanninn og rit-
höfundinn Oleg Kashin. Hann
segir að þótt íbúar héraðanna
kjósi héraðsstjórana formlega
ráði forsetinn því í raun sjálfur
hverjir verði fyrir valinu vegna
þess að hann tilnefnir þá og kjör-
nefndirnar í héruðunum lúta
stjórn hans. Kashin nefnir sem
dæmi Aleksei Diumin sem var líf-
vörður Pútíns í 15 ár áður en
hann var gerður að héraðsstjóra
í Tula-héraði fyrr á árinu. Annar
fyrrverandi lífvörður hans, Jev-
gení Zinitsev, var gerður að hér-
aðsstjóra í Kalíníngrad í júlí.
„Þegar Pútín verður uppiskroppa
með lífverði getur hann ef til vill
byrjað á að velja matreiðslu-
mennina sína og vinnukonurnar í
embættin,“ segir Kashin.
Koma kokk-
arnir næst?
LÍFVERÐIR GERÐIR AÐ
HÉRAÐSSTJÓRUM