Morgunblaðið - 13.09.2016, Page 20

Morgunblaðið - 13.09.2016, Page 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2016 Þótt kosningar séu jafnvel á næsta leiti og fólk og flokkar kunni að takast á um menn og málefni heldur fólk áfram að fá óvænt tíð- indi, takast á við von- brigði, særast og meið- ast, missa og syrgja, upplifa og njóta, gleðj- ast og fagna. Til þeirra sem hafa misst Það er svo þungt að missa. Til- veran er skekin á yfirþyrmandi hátt. Angistin fyllir hugann, örvæntingin og umkomuleysið getur verið svo al- gjört. Tómarúmið hellist yfir og til- gangsleysið virðist blasa við. Það er svo sárt að sakna en það er gott að gráta. Tárin eru dýrmætar daggir, perlur úr lind minninganna. Minninga sem tjá kærleika og ást, væntumþykju og þakklæti fyrir liðna tíma. Minninga sem þú einn átt og enginn getur afmáð eða frá þér tekið. Tárin mýkja og tárin styrkja. Í þeim speglast fegurð minninganna. Gráttu því að sælir eru sorgbitnir því að þeir munu huggaðir verða. Sælir eru þeir sem eiga von á Kristi í hjarta því að þeir munu lífið erfa og eignast framtíð bjarta. Öxl og hjarta Þegar áfall og angist, sorg og ótti sækja að er nauðsynlegt að eiga að hjarta sem skilur og öxl til að gráta á. Þá er ómetanlegt að eiga góða vini eða einhvern að sem maður treystir, til að tala við. Einhvern sem kann að hlusta, veita umhyggju og sýna skilning. Traustir vinir eru ekki sjálfgefnir. Þeir eru þakkarverð Guðs gjöf. Jarðneskir englar sem létta undir og geta skipt sköpum um líðan fólks. Einkum í hremmingum, þegar heilsan svíkur eða á efri árum þegar fjaðrirnar taka að reitast af hver af annarri. Því þá fyrst kemur í ljós hverjir eru sannir vinir í raun. Djúp og varanleg vinátta er dýrmætari en veraldlegar við- urkenningar og allt heimsins gull og silfur. Henni þarf ekki endi- lega alltaf að fylgja svo mörg orð heldur gagnkvæmt traust og raun- veruleg umhyggja. Kærleikur sem ekki yfirgefur. Bæn, söngur og tónlist Svo er bænin náttúrulega, söngur og tónlist eitthvað það dásamlegasta sem til er, að ógleymdum fallegum ljóðum sem snerta strengi að ekki sé nú talað um fyrirheit, huggunar- og hvatningarorð frelsarans sjálfs sem vill taka okkur að sér og hefur heitið því að yfirgefa okkur aldrei. Hvort sem þú ert sorgbitinn eða glaður, dapur eða kátur þá skaltu syngja og biðja. Söngur og tónlist ásamt ljóðum og orðum frelsarans Jesú mýkja nefni- lega hjartað, styrkja andann, gleðja geðið og næra sálina. Og með bæn- inni kemst jafnvægi á hugann og friður færist í hjartað. Fyrir mér er bænin besta áfalla- hjálpin. Hún er kvíðastillandi og steitulosandi. Hún styrkir fjöl- skyldubönd og er eitthvað svo nær- andi, líknandi og læknandi andlega og jafnvel líkamlega. Áhyggjurnar líða á braut og friðurinn tekur að flæða inn. Bænin er sem græðandi smyrsl. Hún græðir sár, líknar og læknar, laðar og leiðir, uppörvar, styður og hvetur. Það er einhvern veginn ekkert sem sameinað getur fólk betur en ómetanleg samstaða í bæn. Það ein- faldlega bara gerist eitthvað óút- skýranlegt. Ég verð þó að viðurkenna að ekki veit ég nákvæmlega alltaf almenni- lega og kannski sjaldnast hvað bæn- in er eða hvernig hún virkar. En hitt veit ég af því að ég hef svo margoft og iðulega upplifað það sjálfur að mér finnst svo ósegjanlega gott að hvíla í henni. Fá að meðtaka fyr- irgefninguna og friðinn sem henni fylgir. Þar sem fegurðin býr Það er mín sannfæring að feg- urðin og friðurinn komi með bæn- inni. Þegar við köfum inn í okkar innsta kjarna. Bænin er nefnilega uppspretta bættra samskipta, virð- ingar og samstöðu sé hún beðin af einlægni hjartans og í auðmýkt. Fegurðin býr þar sem fyrirgefn- ing, réttlæti og friður faðmast. Og fegurðin er fingrafar Guðs í þessum heimi, og þú þar með talið. Takk óskiljanlegi Guð fyrir að mega þiggja þann leyndardóm að gjöf sem lífið er og ég skil ekki. Takk fyrir að mega meðtaka það, lifa því og njóta þess, þrátt fyrir allt. Lifi lífið! Besta áfallahjálpin Eftir Sigurbjörn Þorkelsson » Traustir vinir eru ekki sjálfgefnir. Þeir eru þakkarverð Guðs gjöf. Jarðneskir englar sem létta undir og geta skipt sköpum um líðan fólks. Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins. Við hjónin ákváðum að taka þátt í Menning- arnótt í Reykjavík og hjóluðum stíginn sem liggur frá Skarfa- bryggju niður að Lækj- argötu. Þegar við hjól- um fram hjá Laugarnestanga sé ég nokkra ferðamenn úti í móa. Ég hugsaði með mér, flott þeir eru komnir í berjamó og fór að gefa þeim gaum, en þegar ég sá hvernig í öllu lá var bleik brugðið! Þeir voru ekki í berjamó, þeir voru að gera þarfir sín- ar inni í miðri Reykjavík um hábjart- an dag. Ég fékk vægt áfall og menn- ingardagurinn fór í andhverfu sína á augabragði. Ég hélt að ég yrði ekki eldri, á dauða mínum átti ég von en ekki þessu í höfuðborg Reykjavíkur. Engin salernisaðstaða á þessari leið. Er þetta í lagi árið 2016? Í allt sumar hefur rignt yfir frétt- um af ófullnægjandi aðstöðu við helstu náttúruperlur landsins, fyrir skömmu voru fréttir frá Reykjadal í Hveragerði. Þangað koma 500 manns á dag, í ár var áætlað að setja 20 milljónir í að laga svæðið en nú eru peningar búnir. Fleiri staðir hafa verið í umræðunni: Geysir, Selja- landsfoss, Jökulárlón, Dyrhólaey og svona mætti lengi telja. Ef hver ferðamaður greiddi 5 doll- ara í aðgangseyri í Reykjadal kæmu inn 2500 dollarar á dag, það eru 300.000 þúsund kr. Til samanburðar kostar 25 dollarar inn í þjóðgarða í Bandaríkjunum. Hvers vegna er ekki innheimtur aðgangs- eyrir og þessu vand- ræðaástandi kippt í lag? Nú eru þrjú ár síðan ríkisstjórnin tók við. Drottning ferðamála steig fram með miklum gassagangi í upphafi tímabilsins, lofaði nátt- úrupassa og mörgu fleiru, maður gerði sér miklar vonir um að nú yrði gengið vasklega fram og veru- legar úrbætur gerðar á vinsælustu ferðamannastöðum landsins. Ráð- herrann stakk sér í djúpu laugina og nú átti að láta verkin tala, en þegar á reyndi kom í ljós að hann var ósynd- ur og er búinn að busla þarna í þrjú ár. Ekki ætla ég að kenna ráðherran- um einum um getuleysið, ég veit ekki til þess að svo mikið sem einn þing- maður hafi kastað kút út í laugina til þess að draga ráðherrann að landi. Ég heyrði ráðherrann segja við Ingva Hrafn þegar hann spurði hann hvort ekki væri í lagi að innheimta aðgangseyri við Dettifoss; nei, Ingvi við fáum svo lítið, ráðuneytið er búið að reikna það út, aðeins 70 milljónir. Það hefði þótt miklir peningar í minni sveit. Það eru 700 miljónir á tíu árum. Ráðherrann bætti svo í að kortavelta erlendra ferðamanna væri svo mikil að þangað ætlaði hann að sækja peningana. Þarna stendur hnífurinn í kúnni, ég er alls ekki sam- mála ráðherra um að það eigi að taka peninga úr ríkissjóði. Undirritaður hefur ekið yfir 30.000 km um þver og endilöng Bandaríkin og Kanada, 25.000 km um Evrópu og er gjörkunnugur því hvernig erlend- ar þjóðir taka á móti fólki. Á öllum ferðamannastöðum í Bandaríkjunum eru þjónustu- miðstöðar. Þangað verða allir að fara, skráð er kyn, aldur og þjóðerni, og gestir fá upplýsingabækling með teikningum af svæðinu og fá þá um leið að vita hvar salerni eru. Að- gangseyririnn er notaður til að byggja upp gott aðgengi um svæðið, enda allar aðstæður fyrir ferðamenn frábærar. Bláa lónið er dæmi um svona vinnubrögð hér. Í Austurríki verða allir að greiða vegatoll. Gjaldið er greitt á bens- ínstöðvum áður en ekið er yfir landa- mærin, greitt fyrir einn dag, eina viku, tvær vikur o.s.frv. Gjaldið fer eftir hámarksþyngd bílsins. Ferjan Smyrilline Með ferjunni koma hingað þús- undir bíla á hverju ári af öllum gerð- um og stærðum. Þeir eru hérna frá tveimur vikum upp í þrjá mánuði og svo koma rútur, sem keyra hring eftir hring með far- þega frá Keflavík. Ég veit ekki til þess að þeir borgi vegatoll. Er þetta í lagi, góðir alþingismenn? Á síðastliðnu ári hófu heimamenn í Námaskarði í Mývatnssveit og Geysi að innheimta aðgangseyri til að afla sér fjármagns til framkvæmda. Hvað gerðist? Ögmundur mikli tók víkinga í Íslendingasögunum sér til fyr- irmyndar og skundaði á Geysi með sverð og skjöld að vopni – og auðvit- að með fjölmiðlamenn í bandi á eftir sér – og rak innheimtumennina heim. Þar drýgði Ögmundur dáð mikla „að eigin mati“. Ég varð ekki var við að svo mikið sem einn þing- maður tæki upp hanskann fyrir Geysismenn. Hvað hefur gerst á Geysi síðan? Ekkert! Frægasti og fjölmennasti staður landsins skal halda áfram að vera þjóðinni til skammar. Alþingismenn: því miður hafið þið sýnt algjört getuleysi í þessum mál- um og eruð með allt niðrum ykkur hvað uppbyggingu ferðamála varðar. Ég skora á ykkur að gyrða ykkur í brók, bretta upp ermar og koma ykk- ur að verki. Þið eruð búnir að halda svo til öllum ferðamannastöðum í gíslingu síðan vöxtur hljóp í þennan iðnað og nú er mál að linni. Takið Bláa lónið ykkur til fyrirmyndar. Þar hefur Grímur Sæmundsen unnið þrekvirki og á heiður skilið, ferða- mennirnir bíða í biðröðum eftir að komast inn og borga aðgangseyri með glöðu geði. Við ykkur, ágætu sveitarstjórn- armenn og landeigendur, vil ég segja þetta: Takið málin í ykkar hendur. Ef þið ætlið að treysta á peninga úr ríkissjóði þá mun allt gerast á hraða snigilsins. Þið þurfið að gera svæðin boðleg fyrir gesti og innheimta sann- gjarnan aðgangseyri eins og erlend- ar þjóðir gera. Látið reyna á þetta, Ögmundur mikli er að hætta á þingi og ég trúi því ekki að það leynist ann- ar Ögmundur í þingsalnum. Ef það verður sett lögbann á ykkur er ekki nema eitt í stöðunni. Þið girðið svæð- ið af, setjið upp stórt skilti sem á stendur: Allur aðgangur bannaður. Þá mun þjóðin losna við allan átroðn- ing ferðamanna og náttúran fær að vera í friði. Eftir að hafa lent í óhappinu á göngustígnum Skarfabryggja – Lækjatorg fór ég að hugsa um hring- veginn, 1.500 km leið, hvergi á þess- um hring er boðið upp á salern- isaðstöðu. Ferðamenn verða að treysta á verslunareigendur en kl. 11.30 loka allar verslanir og skella í lás. Nú er flogið til landsins allan sól- arhringinn og fjöldinn allur akandi um þjóðvegi landsins að næturlagi. Hvar eiga menn að athafna sig? Að lokum þetta: Þjóðin er komin upp að vegg. Ætlum við að drukkna í skít, eða skafa flórinn? Menningarslys á Menningarnótt Eftir Anton Bjarnason »Ætlum við að drukkna í skít, eða skafa flórinn? Anton Bjarnason Höfundur er farfugl og lífeyrisþegi. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| brids@mbl.is Gott skor hjá feðgunum í Gullsmáranum Spilað var á 10 borðum í Gull- smára mánudaginn 5. september. Úrslit í N/S: Þórður Jörundss. - Jörundur Þórðarson 227 Heiður Gestsd. - Gunnar M. Hansson 192 Pétur Antonsson - Guðlaugur Nielsen 189 Samúel Guðmss. - Jón Hannesson 177 A/V Rut Árnadóttir - Ása Jónsdóttir 193 Sigurður Gíslason - Reynir Bjarnason 187 Haukur Bjarnason - Hinrik Lárusson 185 Sigurður Njálsson - Pétur Jónsson 173 Spilað var á 11 borðum (22 pör) fimmtudaginn 8. september. Úrslit í N/S: Guðrún Hinriksd. - Haukur Hanness. 200 Kristín Óskarsd. - Unnar Guðmss. 197 Ragnh. Gunnarsd. - Sveinn Sigurjónss. 182 Guðrún Gestsd. - Ragnar Ásmundss. 179 A/V Gunnar Alexanderss. - Elís Helgason 213 Sigurður Njálsson - Óskar Karlsson 192 Óskar Ólason - Ágúst Vilhelmsson 177 Sigurður Gíslason - Reynir Bjarnason 173 Félag eldri borgara í Reykjavík Fimmtudaginn 8. september var spilað á 11 borðum hjá bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík. Efstu pör í N/S Jón Sigvaldason – Ragnar Haraldsson 258 Tómas Sigurjs. – Jóhannes Guðmannss. 239 Trausti Friðfinnss. – Guðl. Bessason 238 Helgi Hallgrss. – Ægir Ferdinandss. 234 A/V Kristján Guðmss. – Björn Pétursson 261 Jón Þ. Karlsson – Bautouin Totin 260 Helgi Samúelss. – Sigurjón Helgason 245 Elín Guðmanns. – Friðgerður Benedikts. 243 Osta fondue-veisla Komdu þínum á óvart 4.990,-ámann bóka þarffyrirfram Opið 09-23 | Laugavegi 12 | 101 Rvk. | Sími 551 5979 | lebistro.is Upplifðu haustið á hálendi Íslands Gistihúsið Hrauneyjar og Hótel Háland eru aðeins í 150km fjarlægð frá Reykjavík 50% afsláttur af gistingu allar helgar í september

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.