Morgunblaðið - 13.09.2016, Qupperneq 27
1980 og umsjónarlæknir starfs-
mannaheilsuverndar í Járnblendi-
verksmiðjunni í 20 ár og í Álverinu í
Grundartanga í 10 ár. Þá var Reyn-
ir læknir Dvalarheimilis aldraðra á
Akranesi frá upphafi til starfsloka.
„Vinnan hefur verið mínar ær og
kýr og því tímafrek.“
Reynir sat í stjórn Rauðakross-
deildarinnar um tíma og í stjórn
FÍH, hefur sinnt félagsstörfum við
Golfklúbbinn Leyni, sat þar í stjórn
árum saman, var formaður klúbbs-
ins í sex ár og sat síðan í ýmsum
nefndum hans: „Fyrir þessi fé-
lagsstörf hef ég verið heiðraður
með gullmerki GSÍ og ÍA og var
gerður að heiðursfélaga golfklúbbs-
ins 2015. Golfið hefur veitt mér
mikla ánægju enda hef ég stundað
golfíþróttina af nokkru kappi í ára-
tugi. Ég komst lægst í 8 í forgjöf en
hún er nú á uppleið. Fyrir nokkrum
árum gekk ég í skógræktarfélag og
fæ mikið út úr því að taka þátt í
fjölbreyttum störfum þar. Auk þess
er ég í ljósmyndaklúbbi hér á
Akranesi.
Konunni minni kynntist ég fyrst
12 ára í dansskóla Hermanns.
Rakst síðan á hana á Garðsballi á
háskólaárunum og hef ekki getað
litið af henni síðan.
Áhugamálin felast í útivist sem
ég fæ nóg af í golfinu og í göngu-
ferðum, einkum innanlands, sem við
hjónin höfum farið í með ferða-
félögum og í góðra vinahópi. Ferða-
lög erlendis höfum við farið í ófá og
haft mikla ánægju af. Eftir að ég
hætti að vinna sinni ég áhugamál-
unum og yngstu barnabörnunum.“
Fjölskylda
Eiginkona Reynis er Guðbjörg
Sæunn Árnadóttir, f. 7.8. 1945,
kennari. Foreldrar hennar voru
Árni Guðmundsson, f. 2.11. 1916, d.
3.11. 1976, bakari, og Karólína Stef-
ánsdóttir, f. 31.7. 1917, d. 17.11.
1998, gangastúlka. Þau voru búsett
í Reykjavík.
Börn Reynis og Guðbjargar eru
1) Árni Pétur, f. 21.11. 1970, kenn-
ari, búsettur í Mosfellsbæ, en fyrr-
verandi kona hans er Erla Sigurð-
ardóttir kennari og eru börn þeirra
Reynir Ími, f. 1999, Sæunn Erla, f.
2001, og Karólína Björg, f. 2008; 2)
Kári Steinn, f. 12.3. 1974, viðskipta-
fræðingur á Akranesi, en kona hans
er Elín Davíðsdóttir kennari og eru
börn þeirra Alexander Örn, f. 1998,
og Arnar Már, f. 2002; 3) Elín
Theódóra, 30.7. 1980, félagsráðgjafi
á Akranesi, en sambýlismaður
hennar er Árni E. Gíslason smiður
og eru börn þeirra: Ísólfur Keran, f.
13.7. 2012, og Iðunn Ísis, f. 22.9.
2013.
Bróðir Reynis er Þorsteinn, f.
13.4. 1952, verslunarmaður í
Reykjavík.
Foreldrar Reynis voru Þorsteinn
Collin Guðmundsson, f. 20.9. 1916,
d. 25.6. 1980, bílstjóri í Reykjavík,
og Elín Theódóra Björnsdóttir, f.
24.7. 1928; d. 6.11. 2013, vefari.
Úr frændgarði Reynis Þorsteinssonar
Reynir
Þorsteinsson
Guðrún Runólfsdóttir
útg.m. og fl. í Vestmannaeyjum
Sveinn Jónsson
húsasm. í RvíkSigurveig Sveinsdóttir
matreiðsluk., kenndi
matreiðslu á Hótel Íslandi
Björn Sæmundsson
verkam. í Rvík
Elín Björnsdóttir
vefari í Rvík Kristín
Guðbrandsdóttir
verkakona á
Skálum
Sæmundur Illugason
b. á Skálum á Langanesi
Jóhanna Guðmundsd.
húsfr. í Rvík
Kristjón
Ásmundsson
b. og búfr. á
Minna-Mosfelli og
í Útey í Laugardal
Sesselja
Þorsteinsd.
húsfr. í
Rvík
Baldur Johnsen
læknir
Sveinn Björnsson
listmálari
Knútur Björnsson
lýtalæknir
Sæmundur Björnsson
flugumsjónarmaður
Júlíana Sveinsdóttir
listmálari
Sveinn M. Sveinsson
forstj. Völundar
Sveinn Kjartan
Sveinsson
forstj. Völundar
Haraldur Sveinsson
fyrrv. framkv.stj. Árvakurs
Sigurður
Sveinsson
handboltakappi
Karl Laxdal
Snorrason
verkfr.
Bergsteinn Kristjónsson
kennari, oddviti og hótelstj. á Laugarv.
Örn
Clausen
hrl.
Skúli Johnsen
læknir
Sveinn Sveinsson læknir
Kári Knútsson
læknir
Eyjólfur Sæmundsson
forstöðum.Vinnueftirlitsins
Jóhanna Vigdís
Arnardóttir
leik- og söngkona
Kristjón
Kristjónsson
framkv.stj. í
Rvík
Haukur Clausen
tannlæknir
Björn Johnsen
læknir
Erlendur Sveinsson
forst.m. Kvikmyndasafns Íslands
Ragnheiður
Elín Clausen
fyrrv. þulur
og fréttam.
Snorri
Laxdal
læknir
Hörður
Bergsteinsson
læknir
Bragi
Kristjónsson
bóksali
Jóhanna
Kristjónsd.
rithöfundur
Hrafn Jökulsson
rithöfundur
Illugi Jökulsson
rithöfundur
Elísabet Jökulsdóttir
rithöfundur
Arnheiður Magnúsdóttir
húsfr. í Eyvindartungu
Þorsteinn Jónsson
b. í Eyvindartungu í Laugardal
Jónína Þorsteinsdóttir
húsfr. á Apavatni
Guðmundur Ásmundsson
b. á Efra-Apavatni í Laugardal
Þorsteinn Guðmundsson
bílstj. í Rvík
Guðrún Jónsdóttir
húsfr. á Neðra-Apavatni
Ásmundur Eiríksson
b. á Neðra-Apavatni
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2016
Jón Þórarinsson tónskáld fædd-ist í Gilsárteigi í Eiðaþinghá13.9. 1917. Foreldrar hans voru
Þórarinn Benediktsson, hreppstjóri
og alþingismaður í Gilsárteigi og k.h.,
Anna María Jónsdóttir húsfreyja.
Fyrri kona Jóns var Þórdís Edda
Kvaran og eignuðust þau þrjú börn
en seinni kona hans var Sigurjóna
Jakobsdóttir og eignuðust þau fjögur
börn.
Jón varð stúdent frá MA 1937,
stundaði nám í Tónlistarskólanum í
Reykjavík, var í einkatímum hjá dr.
Victor Urbancic, stundaði nám við
Yaleháskóla, lauk Mus.B.-prófi í tón-
fræði 1946, og Mus.M.-prófi í tón-
smíði 1947 en kennari hans var Paul
Hindemith, sótti námskeið við Juilli-
ard-skóla í New York og fór námsför
til Austurríkis og Þýskalands og
dvaldi þá lengst af í Vínarborg.
Jón var yfirkennari í tónfræði og
tónsmíði við Tónlistarskólann í
Reykjavík og kennari þar með hléum
eftir 1979, og við Söngskólann í
Reykjavík, og starfsmaður RÚV á
stríðsárunum og fulltrúi í tónlistar-
deild 1947-56.
Jón hefur verið talinn helsti for-
göngumaður að stofnun Sinfóniu-
hljómsveitar Íslands, var fyrsti
stjórnarformaður hennar, fram-
kvæmdastjóri og stjórnarmaður í 20
ár, var dagskrárstjóri lista- og
skemmtideildar Sjónvarpsins 1968-
79, sat í útvarpsráði, stjórn og úthlut-
unarnefnd Kvikmyndasjóðs og
Menningarsjóðs útvarpsstöðva, var
tónlistargagnrýnandi dagblaða og
söngstjóri Karlakórsins Fóstbræðra,
Stúdentakórsins og Gamalla Fóst-
bræðra. Þá var hann forseti Banda-
lags islenskra listamanna í tvígang
og stjórnarformaður Listahátíðar í
Reykjavík.
Jón starfaði að rannsóknum og rit-
un íslenskrar tónlistarsögu um árabil
og sinnti tónsmíðum en meðal stærri
verka hans má nefna Völuspá og
Minni Ingólfs, bæði samin fyrir
hljómsveit og kór, auk sönglaga,
kammerverka og kórverka.
Jón lést 12.2. 2012.
Merkir Íslendingar
Jón
Þórarinsson
90 ára
Elín Árnadóttir
Haukur Aðalgeirsson
Kristinn A. Guðjónsson
Svandís Matthíasdóttir
85 ára
Helga Kristrún Jónsdóttir
Magnús Andrésson
80 ára
Aðalbjörg Hafsteinsdóttir
Einar Sverrisson
Guðrún Jensdóttir
75 ára
Auður Pétursdóttir
Eysteinn Jónsson
Sigrún Jónína Jensdóttir
Sigurður B. Viggósson
70 ára
Arndís Gísladóttir
Birna Geirmundsdóttir
Erla Elva Möller
Guðmundur Skúli Bragason
Gunnsteinn Gíslason
Ingi Sigurðsson
Margrét Jóhannsdóttir
Reynir Þorsteinsson
Sigríður J.W. Kristinsdóttir
60 ára
Aðalheiður Guðjónsdóttir
Dóróthea H. Jóhannsdóttir
Friðrik Snorrason
Guðmundur Á. Geirsson
Hafdís Jónsdóttir
Jadwiga Lempicka
Jónas Bjarnason
Kristján Gunnlaugsson
Lúdmíla Pála Ermolinskaja
Sveinbjörn Ö.
Sigurbjörnsson
Vilhjálmur Sigurðsson
50 ára
Erlendur Pálsson
Gunnhildur Grétarsdóttir
Haraldur Sæmundsson
Hólmfríður Guðbjörnsdóttir
Ingi Jóhannes Erlingsson
Jón Einar Eysteinsson
Kolbrún Markúsdóttir
Sigurbjörn Þorkelsson
Stefán P. Pálsson
Stígur Andri Herlufsen
Þuríður Ketilsdóttir
40 ára
Arnar Jónasson
Ásgrímur Guðbjartsson
Bjarni Jakob Gíslason
Dagbjört Edda Barðadóttir
Gestur Benediktsson
Guðmundur Reynir
Georgsson
Guðrún E. Þorvarðardóttir
Guðrún M. Vilbergsdóttir
Hilmar Hilmarsson
Hrannar Már Pétursson
Ionel Imbrea
Jenný Erla Jónsdóttir
Jónína Björk Erlingsdóttir
Karen Hilmarsdóttir
Katarzyna Zaorska
Kristján Guðbjartsson
Magnús Jónsson
Magnús Ómarsson
Marcin Karol Kmiecik
Tadeusz Grzegorz Gruca
Valgerður G. Guðnadóttir
30 ára
Björn Orri Sveinsson
Giedre Maseikina
Hilmir Berg Ragnarsson
Jóhann Gísli Jóhannesson
Kristinn Guðmundsson
Margrét S. Kristjánsdóttir
Marteinn Ingi Smárason
Sara Pálsdóttir
Vala Sigrún Valþórsdóttir
Þórður Hafliðason
Til hamingju með daginn
30 ára Þórður ólst upp á
Siglufirði, býr í Kópavogi,
lauk prófum í vefþróun í
Danmörku og starfar hjá
TM Software hjá Nýherja.
Dóttir: Bríet Lovísa, f.
2015.
Foreldrar: Hafliði Hafliða-
son, f. 1957, verslunar-
maður hjá BYKO, og
Helga Magnea Harðar-
dóttir, f. 1953, starfs-
maður við Boðaþing í
Kópavogi. Þau búa í
Kópavogi.
Þórður
Hafliðason
30 ára Vala Sigrún býr í
Kópavogi, lauk ML-prófi í
lögfræði frá HR og er
rekstrar- og sölustjóri hjá
66°Norður.
Maki: Rúnar Bridde, f.
1979, sviðsstjóri hjá Regin
fasteignafélagi.
Stjúpbörn: Ísey, f. 2001;
Hrafnkell, f. 2003, og Val-
ur, f. 2007.
Foreldrar: Baldvina
Sverrisdóttir, f. 1957, og
Valþór Sigþórsson, f.
1956.
Vala Sigrún
Valþórsdóttir
30 ára Sara ólst upp í
Reykjavík, býr þar, lauk
ML-prófi í lögfræði frá Há-
skólanum í Amsterdam
og er lögmaður hjá
Lausnum lögmannsstofu.
Maki: Hallur Örn Krist-
ínarson, f. 1981, nemi.
Sonur: Hilmar Páll, f.
2016.
Foreldrar: Guðrún Er-
lingsdóttir, f. 1961, fjár-
málastjóri, og Páll Sig-
urður Jónsson, f. 1960,
kaupmaður.
Sara
Pálsdóttir
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Ljós ímiklu úrvali
Höfuðljós, hjólaljós,
húfuljós og yfir 40 gerðir
af vasaljósum
Led kastarar
ímiklu úrvali
frá 5.995
7.999
Halogen
kastarar
2x500W
á fæti
frá 285