Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.2017, Blaðsíða 7

Ægir - 01.02.2017, Blaðsíða 7
• Inn á skjávegginn má tengja upplýsingar frá öðurm kerfum skipsins eins og myndavélakerfi, vélgæslukerfi, brunaviðvörunarkerfi o.fl. • Skjáveggurinn gerir hefðbundna skjái sem tengjast siglinga- og fiskleitartækjum óþarfa. • Notendur, skipstjóri og stýrimenn geta búið til sínar eigin skjámynda samsetningar og vistað í kerfið, t.d. Siglingu, Flottroll, Botntroll, Nótaveiði o.s.frv. Þessar samsetningar er svo hægt að kalla fram eftir þörfum. Fyrirfram vistaðar skjámynda samsetningar geta verið eins margar og hentar hverjum og einum. • Valið er á milli vistaðra skjámynda samsetninga með snertiskjá eða lyklaborði á mjög einfaldan hátt. • Skjáveggur tekur minna pláss í skipsbrúnni en hefðbundin uppsetning á skjáum við allan þann fjölda af tækjum sem hann tengist. Með því að klæðskerasníða skjámyndirnar þá hámarkast nýtingin á skjásvæðinu. Þannig er hægt að setja saman skjámyndir sem eingöngu innihalda þær upplýsingar sem verið er að vinna með hverju sinni. Sjónsvið notandans verður mun þrengra og þægilegra þar sem minna skjásvæði er fyrir framan hann og með meiri upplýsingum. • Skjáveggjalausnin byggir á því að öll merki frá öllum tækjum eru yfirfærð á tölvutækt form (ip-straum). Þar með er í raun engin takmörk fyrir því hvað settar eru upp margar vinnustöðvar eða eftirlitsskjáir. Hægt er að vera með vinnustöðvar í vélarúmi, við spil- stjórnun o.fl. Með góðu netsambandi til sjós býður þessi lausn upp á möguleika á að vera með tengingu inn á eftirlitskerfi í landi og þegar skipin eru í höfn. Skjáveggur

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.