Morgunblaðið - 26.10.2016, Blaðsíða 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2016
✝ Halldór Bern-ódusson fædd-
ist í Bolungarvík
28. september
1939. Halldór lést
á Hjúkrunarheim-
ilinu Eir 16. októ-
ber 2016.
Hann var sonur
hjónanna Bernód-
usar Halldórsson-
ar, f. 26. júlí 1910,
d. 13. maí 2004,
skipstjóra og verslunarmanns í
Bolungarvík, og Dómhildar
Klemensdóttur, f.4. desember
1912, d. 5. febrúar 1994, frá
Hvassafelli í Norðurárdal,
Borgarfirði. Systkini Halldórs
voru: Erla Bernódusdóttir, f.
5. október 1933, d. 9. janúar
2007, Lilja Bernódusdóttir, f.
11. júní 1941, d. 24. apríl 2004,
Sigurður Viggó Bernódusson,
f. 17. september 1944, d. 20.
hannssyni, þau eiga Brynjar
Óla, Signýju Rut og Kristjönu,
sambýlismaður Hilmar Már
Einarsson og þeirra börn Þór-
hildur Malín og Ragnar Mar-
inó. Gissur Óli, f. 7. júlí 1970,
og Elín Kristrún, f. 12. októ-
ber 1976, gift Elísi J. Róberts-
syni, þau eiga Björgu Evu.
Halldór og Kristín bjuggu á
Suðureyri, lengst af á Sætúni
9, þangað til þau fluttu í Kópa-
vog árið 1988. Halldór starfaði
á skrifstofu Fiskiðjunnar
Freyju á Suðureyri, einnig rak
hann verslunina Suðurver með
Guðmundi Elíassyni og Jóni
Kristjánssyni frá 1962. Halldór
var virkur í félagsmálum, m.a.
í hreppsnefnd Suðureyrar og
lionsklúbbnum á staðnum.
Eftir að þau fluttu í Kópa-
voginn starfaði Halldór á
skrifstofu Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna í Reykjavík
og Grimsby á Englandi frá
1991 til 1998. Halldór og
Kristín bjuggu í Flétturima 4
frá 2004.
Útför hans fer fram frá
Grafarvogskirkju í dag, 26.
október 2016, kl. 15.
september 1993,
Guðmundur Bern-
ódusson, f. 9. júlí
1948, og Svanur
Bernódusson, f. 4.
mars 1952, d.17.
janúar 1956.
Halldór ólst upp
í Bolungarvík,
hann lauk gagn-
fræðaprófi frá
Héraðsskólanum
að Núpi í Dýra-
firði og verslunarprófi frá
Verzlunarskóla Íslands.
Halldór kvæntist Kristínu
Gissurardóttir frá Súganda-
firði hinn 15. júni 1963, börn
þeirra eru Hafdís, f. 10. febr-
úar 1963, gift Atla Þór Þor-
valdssyni, þau eiga Erlu Þór-
dísi, Daníel og Halldór,
unnusta Halldórs er Emilía Jó-
hannsdóttir. Svanhildur, f. 18.
júlí 1966, gift Kristjáni V. Jó-
Elskulegur faðir minn er látinn
og við tekur nýtt og spennandi
ferðalag hjá honum. Þegar ég
hugsa til hans koma sterkt upp í
huga mér öll ferðalögin sem við
fórum í þegar ég var að alast upp
og hvað hann var mikill útivistar-
maður. Á hverju sumri var bíllinn
hlaðinn, en það var nákvæmnis-
verk því koma þurfti öllum far-
angrinum inn í bíl og upp á topp og
engin tengdamömmubox voru til á
þeim tíma. Farið var í tjaldútileg-
ur, veiðiferðir og sumarbústaða-
ferðir og einna best þótti honum
að fara í Borgarfjörðinn þar sem
hans rætur lágu.
Sumarið 1978 fórum við í helj-
armikið ferðalag, en þá sigldum
við til Færeyja og Noregs með
Smyrli og keyrðum um landið með
tjaldvagn. Þar upplifðum við stór-
brotna náttúru Noregs og fórum á
marga ógleymanlega staði.
Önnur ógleymanleg ferð var
þegar ég og fjölskylda mín heim-
sóttum hann til Grimsby og við
fórum í dagsferð til London. Þetta
var þaulskipulögð ferð þar sem
pabbi sýndi okkur alla markverð-
ustu staði London. Hann var bú-
inn að fara í nokkrar slíkar ferðir
áður með gesti sem höfðu heim-
sótt hann og nutum við góðs af því
að pabbi var farinn að þekkja
London betur. Oft er búið að grín-
ast með viðkvæðið sem var „að
taka myndir og skoða seinna“.
Fyrir Elínu systur er þetta líka
ógleymanlegur dagur því hún var
að koma úr næturflugi frá Íslandi
og beið okkar eldsnemma morg-
uns á lestarstöð í London.
Á hverju hausti fórum við ófáar
ferðir til berja, oft inn í Djúp og
eitt haustið var farið í Vatnsfjörð.
Þá átti pabbi það iðulega til að
arka hátt upp í fjall því þar fann
hann gjarnan bestu berin. Hann
var ótrúlega viljugur að fara með
okkur systkinin á skíði og einnig
man ég eftir því að hann fór yfir á
Ísafjörð á skíðum til að sækja þar
fundi. Hann fékk einhvern til að
skutla sér á vélsleða upp á Búrfell
og renndi sér þaðan yfir á Ísafjörð.
Á heimleiðinni tók hann svo skíða-
lyftuna upp á topp á Ísafirði og
renndi sér niður í Botn í Súganda-
firði.
Síðustu árin dvaldi hann á
hjúkrunarheimilinu Eir og þar
náði hann að segja mér nokkrar
skemmtilegar sögur af fjallgöng-
um sem hann fór í sem ungur mað-
ur og frá ferðum sem hann fór sem
skátaforingi í Bolungarvík m.a. á
Hornstrandir. Þetta hafa allt verið
miklar ævintýraferðir.
Takk, elsku pabbi, fyrir allt sem
þú gafst mér, það hefur alltaf verið
stór þáttur í mínu lífi að fara t.d. í
útilegur, á skíði og í berja- og
gönguferðir. Að vera úti í nátt-
úrunni sem þú svo sannarlega
gerðir allt þitt líf og kenndir mér
að meta.
Ó, blessuð vertu, sumarsól,
er sveipar gulli dal og hól
og gyllir fjöllin himinhá
og heiðarvötnin blá.
Nú fossar, lækir, unnir, ár
sér una við þitt gyllta hár,
nú fellur heitur haddur þinn
á hvíta jökulkinn.
(Páll Ólafsson.)
Svanhildur.
Pabbi er farinn, þannig orðaði
systir mín það í símanum til mín
þar síðasta sunnudagsmorgunn.
Hann hafði fengið lungnabólgu
nokkrum dögum fyrr og hjartað
gaf sig. Heilsan var líka farin
nokkru fyrr, fyrir 20 árum greind-
ist pabbi með parkinsonsjúkdóm-
inn, síðan kom stórt hjartaáfall og
fleiri heilsubrestir. Við bjuggumst
samt ekki við þessu, hvenær er
maður viðbúinn. Það er skrýtið að
hafa ekki lengur einhvern að sem
maður kallar pabba, skrýtið að
geta ekki lengur flett upp í honum
fyrri tíð og skrýtið að eiga ekki
lengur einhvern að sem hefur allt-
af þótt svona vænt um mann og
verið til staðar, boðinn og búinn að
leggja manni lið.
Pabbi kenndi mér margt um líf-
ið, erfiðleikar voru til að takast á
við, börn voru til að leika við og
hugsa vel um, náttúran var til að
njóta og fjölskyldan var framar
öllu.
Lífið verður ekki samt án pabba
en við sættum okkur við lífsins
gang og höldum okkar göngu
áfram.
Blessuð sé minning þín, elsku
pabbi.
Hafdís.
Tengdapabbi minn, hann
Haddi, er látinn 77 ára að aldri. Ég
kynntist honum fyrir rúmum 30
árum þegar við Hafdís dóttir hans
fórum að vera saman. Þá bjuggu
Haddi og Stína enn á Suðureyri,
en þau fluttu á höfuðborgarsvæðið
1988. Þá kynntist ég honum fyrst
að ráði. Hann var röskur og dríf-
andi og gerði ekkert með hangandi
hendi. Þetta einkenndi hann,
meira að segja þegar heilsu hans
tók að hraka. Nokkrum árum eftir
að þau hjónin fluttu í Kópavoginn
bauðst Hadda starf í Grimsby og
þangað fluttu þau Stína og bjuggu
í nokkur ár. Á þeim árum tók
Haddi upp golfiðkun og tók það
föstum tökum eins og annað. Þeg-
ar ég sagði honum að ég væri að
hugsa um að byrja í golfi var hann
fljótur að finna fyrir mig notað
golfsett í golfklúbbnum í Grimsby,
sem ég svo keypti. Í kjölfarið byrj-
aði ég í golfklúbbi um sumarið en
þetta var árið 1998. Golfið er orðin
mikil ástríða hjá mér og var sam-
eiginlegt áhugamál hjá okkur.
Haddi greindist með parkison-
sjúkdóminn meðan hann bjó í
Grimsby og stuttu eftir að hann
flutti heim eða haustið 1999 fékk
hann hjartaáfall. Þegar það dró úr
starfsþrekinu nýtti hann sér golf-
áhugann, þekkingu á reglunum og
siðum í golfinu og starfaði í nokkur
ár sem ræsir og vallarvörður hjá
nokkrum golfklúbbum, svo sem á
Urriðavelli, Vífilsstaðavelli (nú
Mýrin og Leirdalur), Bakkakoti og
Vatnsleysuströnd. Haddi glímdi
við parkisonsjúkdóminn og eitt af
því sem hann tók sér fyrir hendur
til þess að viðhalda færni var að
skera út í tré. Það var gert með
kunnuglegri atorku.
Hann náði góðum tökum á út-
skurðinum og stórfjölskyldan og
vinir eiga nú klukkur, hillur, platta
og ýmislegt annað sem hann skar
út af hagleik. Hann var virkur hjá
Félagi eldri borgara í Grafarvogi,
Kveldúlfum, og leiðbeindi fólki
með útskurð þar um nokkurn tíma.
Það kom þó að því að heilsan leyfði
það ekki lengur og síðustu tvö árin
bjó Haddi á hjúkrunarheimilinu
Eir. Þrekið og orkan sem ein-
kenndi hann var ekki lengur til
staðar. Ég minnist orkuboltans
Hadda sem reyndist börnum sín-
um vel í uppvextinum sem og
barnabörnunum. Blessuð sé minn-
ing hans.
Atli Þór Þorvaldsson.
Svo leggur þú á höfin blá og breið
á burt frá mér og óskalöndum þínum,
og stjarna hver, sem lýsir þína leið
er lítill gneisti er hrökk af strengjum mín-
um.
Þú skilur eftir minningar hjá mér
um marga gleðistund frá liðnum árum,
og alltaf mun ég fagna og þjást með
þér,
og þú skalt vera minn í söng og tárum.
Elsku afi, kærar þakkir fyrir
allt sem þú gafst okkur. Við minn-
umst þín og þú munt alltaf eiga
stað í hjarta okkar.
Þín
Erla Þórdís,
Halldór og Daníel.
Halldór
Bernódusson
✝ RagnheiðurPálsdóttir
fæddist í Hlíð í
Gnúpverjahreppi 4.
maí 1921. Hún lést á
Fossheimum á Sel-
fossi 17. október
2016. Foreldrar
hennar voru Páll
Lýðsson hrepp-
stjóri í Hlíð, f. 23.
janúar 1869, d. 15.
mars 1943, og kona
hans, Ragnhildur Einarsdóttir
frá Hæli, f. 10. janúar 1879, d. 7.
júní 1954. Ragnheiður var yngst í
röð sex systkina en þau eru: Ein-
ar, bankaútibússtjóri á Selfossi, f.
1903, d. 1980, Aldís, bóndi í Litlu
kona hans var Þórunn Bjarna-
dóttir frá Öndverðarnesi í
Grímsnesi. Börn þeirra eru Þor-
finnur, f. 1935, d. 2011, kvæntur
Margréti Lúðvígsdóttur, d. 2016,
Bjarni, f. 1937, d. 2006, var
kvæntur Guðrúnu Jónsdóttur,
Kristín, f. 1939, gift Herði Guð-
mundssyni, Valdimar, f. 1942,
kvæntur Guðrúnu Halldórs-
dóttur, og Ragnhildur, f. 1944,
gift Kára Jónassyni.
Ragnheiður stundaði nám við
Kvennaskólann í Reykjavík. Hún
flutti á Selfoss um þrítugt og
vann hjá Kaupfélagi Árnesinga á
Selfossi til starfsloka, með hléi
þegar hún var heimavinnandi á
heimili þeirra Valdimars.
Frá 2011 bjó hún á hjúkrunar-
heimilinu Fossheimum á Selfossi.
Útför Ragnheiðar fer fram frá
Selfosskirkju í dag, 26. október
2016, og hefst athöfnin klukkan
15.
Sandvík, f. 1905, d.
2002, Lýður bóndi í
Hlíð, f. 1906, d.
1997, Steinar bóndi
í Hlíð, f. 1910, d.
1997, og Bjarni,
skólastjóri Iðnskól-
ans á Selfossi, f.
1912, d. 1987. Fóst-
ursystir þeirra var
Hulda Runólfs-
dóttir, kennari í
Hafnarfirði, f. 1915,
d. 2013. Ragnheiður giftist 22.
ágúst 1953 Valdimar Pálssyni frá
Spóastöðum í Biskupstungum.
Sonur þeirra er Páll, f. 1954,
kvæntur Björk Pálsdóttur.
Valdimar var tvíkvæntur. Fyrri
Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý
og hógvær göfgi svipnum í.
Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt
og hugardjúpið bjart og stillt.
(Jóhannes úr Kötlum.)
Margs er að minnast þessa
dagana þegar tengdamóður mín
er kvödd. Ég minnist hennar með
hlýju og þakklæti þegar hún tók á
móti mér inn í fjölskylduna fyrir
rétt rúmlega fjörutíu árum. Dáð-
ist að umhyggjusemi hennar
gagnvart sínum og sínu, áhuga
hennar á blómum, plöntum, ljóð-
um og krossgátum. Ég minnist
hve oft við sátum í hvamminum í
Laufvallargili og hún fræddi mig
um plöntur, gamla daga og ör-
nefni í sveitinni hennar sem ég
hef reynt að halda til haga og lif-
andi. Ég minnist hve gaman var á
ferðalögum okkar um Alpana og
Norðurlöndin þegar hún og
Valdimar heimsóttu okkur Palla
til Þýskalands og Danmerkur og
öðrum ferðum eftir það. Sérstak-
lega var ferðin til Edinborgar
skemmtileg, hún þá 83 ára og að
rifja upp vinkvennaferð hennar
þangað 1951. Alltaf og allt fram
að síðustu stundu var hún hóg-
vær, brosmild og þakklát. Já,
tengdamóðir mín var mikil sóma-
kona.
Gott er að staldra við góðar
minningar og eiga nóg af þeim
þegar ástvinir kveðja.
Takk fyrir allt og allt. Hvíl í
friði.
Þín tengdadóttir,
Björk.
Ragnheiður
Pálsdóttir
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir,
tengdafaðir og afi,
DR. JÓNAS BJARNASON
efnaverkfræðingur,
lést á líknardeild Landspítalans föstudaginn
21. október. Útför hans fer fram frá
Dómkirkjunni þriðjudaginn 1. nóvember klukkan 15.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast
hins látna er bent á Hollvinasamtök Grensásdeildar.
.
Kristín G. Hjartardóttir
Jónas Örn Jónasson Kristín Lórey Guðlaugsdóttir
Kristófer Már Jónasson Óliver Örn Jónasson
Kristian Þór Jónasson
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
GUÐMUNDUR HALLDÓRSSON,
verkfræðingur,
Neðstaleiti 12, Reykjavík,
lést að heimili sínu 19. október.
Hann verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 31. október klukkan 11.
.
Dómhildur Gottliebsdóttir,
Ingibjörg Guðmundsdóttir,
Hólmfríður Guðmundsdóttir, Hannes Árnason,
Dóra Guðmundsdóttir, Robert Andrews
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug vegna andláts og útfarar
ÁSTÞÓRS ANTONSSONAR,
Glæsistöðum,
Vestur-Landeyjum.
.
Aðstandendur.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og
tengdamóðir,
JÓNA KRISTÍN ÁGÚSTSDÓTTIR,
Áshamri 6, Vestmannaeyjum,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans við
Hringbraut þriðjudaginn 18. október.
Hún verður jarðsungin frá Landakirkju í Vestmannaeyjum
laugardaginn 29. október og hefst athöfnin klukkan 14.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbavörn í
Vestmannaeyjum.
.
Magnús Birgir Guðjónsson
Guðjón Magnússon
Anna Kristín Magnúsd. Toke Ploug Henriksen
Ólafur Vignir Magnússon Halla Kristín Kristinsd.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
SALVÖR GUÐMUNDSDÓTTIR
(Lóló),
Hlíðarhúsum 3,
sem lést á Hjúkrunarheimilinu Eiri 19.10.
2016, verður jarðsungin föstudaginn 28.10. 2016 klukkan 13 frá
Fríkirkjunni í Reykjavík.
.
Davíð Jónsson Margrét Oddsdóttir
Jóna Ó. Jónsdóttir Helgi Helgason
Guðmundur J. Jónsson Katrín Kjartansdóttir
Sveinn Gaukur Jónsson Gréta Boða
og fjölskyldur.