Morgunblaðið - 26.10.2016, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 26.10.2016, Blaðsíða 22
22 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2016 MARC O’POLO STORE Kringlan Shopping Center Kringlan 4–12 Reykjavik 17 ára 17% afsláttur 24.-31. október Nýlega átti ég leið framhjá biðskýli strætó. Á endavegg skýlisins, eins og á þeim mörgum, var auglýsing: Ekki ólag- leg ung kona og fyrir neðan hana stóð stórum stöfum: Hverjum treystir þú? Konan er formaður Vinstri grænna, nú í kosningaátaki – eða atkvæðasmöl- un. Textinn er auðvitað pen aðferð til að segja: „Þú getur treyst mér í komandi kosningum – kjóstu mig.“ Sporin hræða Skömmu eftir að „Hrunið“ skall á árið 2008 í stjórnartíð Samfylkingar og sjálfstæðismanna sprengdi Sam- fylkingin það samstarf og bauð Vinstri grænum að skríða upp í til sín. Meðal stefnumála Samfylking- arinnar var að koma Íslandi í Evr- ópusambandið. VG höfðu hinsvegar mjög ákveðnar skoðanir gegn því: Aldregi skyldi það verða. Báðir voru þessir flokkar sam- mála um að íslenskur almenningur yrði ekki látinn greiða skuldir ís- lensku bankanna – enda væru þeir einkafyrirtæki. Sérstök áhersla skyldi lögð á að halda hjólum at- vinnulífsins gangandi og að slá skjaldborg um heimilin. Kosningar fóru svo að Samfylk- ingin og VG fögnuðu sigri og mynd- uðu ríkisstjórn. Kjósendur önduðu léttar um stund og töldu sig hafa gert það besta í stöðunni; fengið ríkistjórn sem gengi ekki erinda ríkisbubba og erlendra kröfuhafa heldur legðu áherslu á réttlæti, jöfnuð, heiðarleika og gegnsæja stjórnarhætti. Þá fór það orð af VG að þeir væru verndarar þeirra sem minna mættu sín, auk þess að þeir mundu að sjálfsögðu koma í veg fyrir að ESB hrifsaði okkur til sín – en sum Evrópuríki fóru fljótt að láta dólgslega – t.d. með kröfum um að þjóðin greiddi, eða að minnsta kosti ábyrgðist, umdeildar Icesave- kröfur. Forsætisráðherra var Jó- hanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar. Helstu ábyrgðarstöður Konan á strætóskýlinu sem áður er nefnd, Katrín Jakobsdóttir, var í stjórnarþingflokki VG frá upphafi. M.a. sem ráðherra. Formaður VG var Steingrímur J. Sigfússon og var hann fjár- málaráðherra hinnar nýju rík- isstjórnar. ESB er einhver mesta hætta sem steðjar að Íslendingum um langa framtíð. Fyrirheit og framkvæmdir Eins og fyrr er getið batt fólk vonir við hina nýju stjórn landsins, vonir byggðar á kosningaloforðum og fyrirheitum stjórnvalda. Fljót- lega komu þó brestir í traust þjóð- arinnar. Steingrímur, formaður VG, var strax lagstur í tíð ferðalög til ESB í Brüssel. Össur Skarphéðinsson ut- anríkisráðherra sömuleiðis. Stefnan hafði augljóslega verið tekin á ESB. – hvað sem það mundi kosta. Svo mjög sóttu ráða- menn það að hraða inn- göngunni að sumar Evrópuþjóðir töldu lag á að neyða okkur til að greiða eða ábyrgjast greiðslu á Icesave- kröfunum – og þeir höfðu rétt fyrir sér. Nefnd eftir nefnd fór utan til að reyna að semja og erlend lögfræðiaðstoð var keypt dýru verði. Hvert nýtt upp- kast var lofað í hástert sem ein- staklega gott, gullgæs sem rétt væri að grípa, svo vitnað sé í utan- ríkisráðherrann. Svo mikil var harðneskjan innan flokkanna að komast í ESB að nokkrir stjórnarþingmenn hrökkl- uðust af þingi, einhverjir með tár á hvarmi. Forsætisráðherra fékk Al- þingi til að samþykkja samninga óséða og þeir máttu ekki koma fyrir almannasjónir. Loks greip almenn- ingur til ákvæðis í stjórnarskránni og skoraði á forseta Íslands að neita að samþykkja lög um greiðslu Icesave svo þau færu í þjóð- aratkvæðagreiðslu. Fullyrða má að þetta hafi komið í veg fyrir gjald- þrot Íslands. Framgöngu stjórnvalda, Sam- fylkingar og Vinstri grænna er ekki hægt að kalla neitt annað en land- ráð. Hjörleifur Guttormsson, einn af stofnendum VG og virtur fræðimað- ur, sagði sig úr flokknum. Kveðju- bréf hans til flokkssystkina sinna – og fleiri samtíma upplýsingar má lesa í greinasafni á vefsíðunni – landsmenn.is Undirrituðum er ljóst að sumt er í minni margra kjósenda en þarna er efni til upprifjunar og fræðsla fyrir ungt fólk sem hefur e.t.v. ekki fylgst mikið með þjóðmálum frá hruni – eða lengur. Fyrir þau ykkar er líka upplagt að leita skýringa og upplýsinga hjá eldri vinum og ætt- ingjum. Hverjum treystir þú? Mér finnst að lokum sjálfsagt að svara konunni á strætóskýlinu. Hún, Katrín Jakobsdóttir, var á þingi og ráðherra í ríkisstjórn Jó- hönnu Sigurðardóttur, fyrir Vinstri græna, með Samfylkingunni 2009- 2013. Hún er því meðábyrg öðrum alþingismönnum í þáverandi stjórn- armeirihluta. Sú ríkisstjórn hafði vinnulag sem ég leyfi mér að kalla landráð. Þá var misfarið með fjár- muni ríkisins á sama tíma og inn- viðir þjóðfélagsins liðu. Alþýða fólks var beitt órétti sem beint og óbeint flæmdi þúsundir úr landi. Nú stígur þessi þingmaður í ræðustól Alþingis eins og hvítþveg- inn engill, veitist að núverandi stjórnarmeirihluta og ber hann sök- um fyrir langt um smærri afglöp en þau sem voru viljaverk í hennar stjórnartíð, sem stórglæpir væru. Ekki er að sjá að hún telji nokkuð hafa verið athugunarvert í stjórn- artíð hennar sjálfrar. Nú er hún í framboði sem for- maður VG og því e.t.v. forsætisráðherraefni. Svar a Ég treysti ekki Katrínu Jakobsdóttur. b Ég treysti ekki Samfylking- unni. c Ég treysti ekki Vinstri græn- um. Hverjum treystir þú? Eftir Baldur Ágústsson Baldur Ágústsson » Landráð og tár á hvarmi. Höf. er fv. forstjóri, flugumferð- arstjóri og forsetaframbjóðandi / baldur@landsmenn.is og vefsíða www.landsmenn.is. Sannfærandi rök hafa verið færð fyrir því að ferðamenn skili meira en nægum tekjum til að kosta nauðsynlega upp- byggingu hins opin- bera í þágu ferða- þjónustunnar. Samtök ferðaþjónustunnar hafa reiknað út að skattar og gjöld til ríkisins af erlendum ferðamönnum nemi 70 milljörðum króna á þessu ári og gjaldeyristekjur verði 370 milljarðar króna. Engu að síður hafa þær raddir verið háværar sem telja ástæðu til að ferðamenn greiði sérstakt gjald til að vega á móti því álagi sem þeir valda á ferðamannastöðum og úti í nátt- úrunni. Því miður hefur umræðan um gjaldtökuna tafið fyrir að ráðist yrði í aðgerðir til að mæta álagi vegna ferðamanna. En eitt þarf ekki að útiloka annað. Fyrir ligg- ur hvað þarf að gera og ekki eftir neinu að bíða í þeim efnum. Skattarnir ekki merktir ferðaþjónustunni Þó svo að erlendir ferðamenn skili miklum tekjum í ríkissjóð gegnum skatta og gjöld, þá eru þær ekki eyrnamerktar aðgerðum til að treysta innviði ferðaþjónust- unnar. Þessar tekjur fara heldur ekki til að mæta útgjöldum sveitarfélaga vegna ferðamanna. Til að þeir geti lagt sitt beint af mörkum er því rökrétt að lagt verði sérstakt gjald á ferðamenn. Það er síður en svo einsdæmi. Nánast um allan heim er innheimt sérstakt gjald af ferðamönnum til að mæta kostnaði hins opinbera vegna þeirra. Slíkt gjald mundi seint nálgast þær fjárhæðir sem ferðamenn skila til ríkissjóðs gegnum skatt- kerfið. En með því að eyrna- merkja tekjurnar ferðamanna- stöðum, náttúruperlum og sveitarfélögum fást öruggir fjármunir til að ráðast í uppbygg- ingu, viðhald, rekstur og endurbætur. Náttúru- verndargjald er réttnefni Ég kýs að kalla þetta náttúruvernd- argjald, enda er því fyrst og fremst ætlað að vernda okkar dýrmætu ís- lensku náttúru, sem er megin- ástæðan fyrir komu flestra er- lendra ferðamanna. En þá kemur að því sem hefur tröllriðið umræðunni um gjald- töku af ferðamönnum. Hvar á að innheimta gjaldið, hvernig á að gera það, hver á að innheimta? Ótal hugmyndir hafa komið fram í þeim efnum. Aðeins ein þeirra stenst allar prófraunir og það er að innheimta gjaldið í tengslum við dvalarlengd ferðamanna þar sem þeir gista hverju sinni. Hægt er að slá margar flugur í einu höggi með því að hafa nátt- úruverndargjaldið tengt því hversu lengi ferðamaðurinn dvel- ur hér á landi. Ferðamaður sem stoppar í þrjá daga hefur minni áhrif á landið en sá sem dvelur í þrjár vikur. Gistimáti ferða- mannsins skiptir heldur ekki máli. Einstaklingur sem gistir á hóteli markar sömu spor í nátt- úrunni og einstaklingur sem kem- ur með eða leigir húsbíl og/eða er um borð í skemmtiferðaskipi. Hver og einn greiðir því sama gjald. Algengasta innheimtuaðferðin Við værum ekkert að finna upp hjólið. Álagning gjalda af ferða- mönnum í tengslum við gistingu þeirra er algengasta innheimtu- aðferð hins opinbera um allan heim. Aðferðin er praktísk og réttlát. Aukabónus þessarar inn- heimtu yrði svo að draga óskráða gististarfsemi fram í dagsljósið og tryggja að hún skili þjóðfélaginu réttmætum sköttum og skyldum. Gistináttagjald er rangnefni á þessari innheimtuaðferð. Aðeins er verið að fela þeim sem selja gistingu að sjá um innheimtu náttúruverndargjalds til viðbótar við aðra innheimtu í þágu hins opinbera. Núverandi fyrirkomulag gistináttagjalds skilar litlum tekjum og er ósanngjarnt. Það leggst aðallega á hótel og stærri gistihús, meðan fjöldi annarra aðila, sem bjóða gistingu, sleppur. Hvers vegna ætti t.d. skemmti- ferðaskip með þúsundir farþega ekki að greiða náttúruverndar- gjald í samræmi við það hversu lengi farþegar þess ferðast hér á landi? Eða íbúðareigandi sem leigir ferðamönnum húsnæðið yfir hásumarið? Skapar sátt í þjóðfélaginu En það sem kannski skiptir mestu máli um náttúruverndar- gjald af dvöl ferðamanna er að það skapar um leið æskilega sátt í þjóðfélaginu. Íslendingar eru al- mennt á þeirri skoðun að ferða- menn taki beint á sig ýmiskonar kostnað sem hlýst af dvöl þeirra hér, til viðbótar við þær góðu tekjur sem ríkissjóður fær. Ég skynja ekki síður góðan skilning víðast hvar innan ferðaþjónust- unnar á slíkri gjaldtöku. Náttúruverndargjald af gistingu er góð lending Eftir Jón Gunnarsson »Ég kalla þetta náttúruverndar- gjald, enda er því ætlað að vernda okkar dýr- mætu íslensku náttúru, sem er ástæðan fyrir komu flestra erlendra ferðamanna. Jón Gunnarsson Höfundur er alþingismaður Sjálf- stæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. —með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.