Morgunblaðið - 26.10.2016, Side 16

Morgunblaðið - 26.10.2016, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2016 SMYRJA SÍMJÚK Á BRAUÐIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Deilum Hornfirðinga um hvar nýr vegur á að liggja um Hornafjarðar- fljót er ekki lokið. Ákvörðun bæjar- stjórnar um að draga til baka ákvörðun sína um að veita Vegagerð- inni framkvæmdaleyfi, í þeim til- gangi að skoða betur áhrif dóma og úrskurða í öðrum héruðum á ákvörð- unina gefur gagnrýnendum byr und- ir vængi. Verði gefið út nýtt fram- kvæmdaleyfi fyrir vegi á sama stað munu þeir kæra ákvörðunina og fara með málið fyrir dómstóla og landeig- endur eru ekki til samninga um að láta land undir veginn á þessum stað. Allir eru sammála um að þörf er á að byggja nýja brú yfir Hornafjarð- arfljót. Núverandi brú er gömul og illa farin og hún er einbreið. Ekki er vitað hvað hægt er að notast við hana lengi enn. Styttir hringveginn um 11 km Vegagerðin lét gera mat á um- hverfisáhrifum nýs vegar beint yfir fljótið og til Hafnar og sleppti krókn- um inn með fljótinu. Metnar voru þrjár veglínur sem eru á svipuðum slóðum og fyrir valinu varð útfærsla á einni leiðinni, svokölluð 3b, sem út- færð var í samvinnu við bæjaryfir- völd sem sett hafa þessa veglínu inn á skipulag. Þáverandi bæjarstjórn taldi þá leið besta kostinn með tilliti til bætts umferðaröryggis og stytt- ingar leiða innan sveitarfélagsins. Framkvæmdin styttir Hringveg um 11-12 kílómetra. Hafnaði Vegagerðin öllum kröfum Skipulagsstofnunar og landeigenda um að láta meta fleiri leiðir og var sú niðurstaða staðfest af úrskurðarnefnd umhverfis- og auð- lindamála, af ráðherra og fyrir dóm- stólum. Nýr vegur, um 17 km langur, verð- ur byggður samkvæmt nútíma kröf- um en gamli vegurinn á að þjóna áfram sem innansveitarvegur. Skipulagsstofnun gagnrýnin Skipulagsstofnun taldi að fram- kvæmdir við leiðir 2, 3 og 3b hefðu mikil áhrif á umhverfið og meiri en af leið 1 sem samrýmdist best mark- miðum laga um mat á umhverfis- áhrifum. Lagði stofnunin til að það skilyrði yrði sett við veitingu fram- kvæmdaleyfis að Vegagerðin mynd- aði formlegan samráðshóp fagaðila um endurheimt votlendis vegna framkvæmdarinnar. Bæjarstjórn samþykkti að gefa út framkvæmdaleyfi til handa Vega- gerðinni á fundi sínum í byrjun sept- ember sl., að undangenginni umfjöll- un í skipulagsnefnd þar sem tekið var undir skilyrði Skipulagsstofn- unar og jafnframt óskað eftir að dregið yrði sem kostur er úr efnis- töku úr ákveðinni námu. Bæjar- stjórn samþykkti jafnframt að heim- ila Vegagerðinni afnot af landi sínu til lagningar vegarins. Framkvæmdin er komin inn í samgönguáætlun og er ætlunin að hefjast handa á næsta ári. Áhrif úr Þingeyjarsýslum Vegna umfjöllunar um ný náttúru- verndarlög í úrskurðum úrskurðar- nefndar umhverfis- og auðlindamála um Kröflulínu 4 og Þeistareykjalínu 1, þar sem framkvæmdaleyfi Skútu- staðahrepps vegna lagningar Kröflulínu var afturkallað ákvað bæjarstjórn á síðasta fundi sínum að afturkalla fyrri ákvörðun um útgáfu framkvæmdaleyfis og vísa umsókn Vegagerðarinnar til nefnda sveitar- félagsins til nánari skoðunar. Björn Ingi bæjarstjóri segir að litið hafi verið til nýju náttúruverndarlag- anna við umfjöllun um fram- kvæmdaleyfið en þess hafi ekki verið getið í bókun skipulagsnefndar og bæjarstjórnar. Úrskurðarnefndin hafi gert athugasemdir við það í Þingeyjarsýslu. Ekki hafi verið búið að gefa leyfið út og úr því að það hafi ekki áhrif á framkvæmdina gagn- vart framkvæmdaraðila hafi verið ákveðið að afturkalla ákvörðunina og fara betur yfir málið með hliðsjón af úrskurðunum. Hann tekur fram að ekki hafi orð- ið stefnubreyting hjá bæjarstjórn í þessu máli. Leyfið verður kært Andstæðingar veglínu Vegagerð- arinnar lýsa því beint yfir að þeir muni kæra framkvæmdaleyfið, verði það gefið út óbreytt. Ari Jónsson, formaður Hollvina Hornafjarðar, segir að landeigendur muni einnig kæra og þeir séu ekki til samninga um að láta af hendi land undir fyrir- hugaðan veg. Tíminn mun leiða í ljós hvaða áhrif það hefur. Björn Ingi bendir á að þetta leiða- val hafi verið lengi á döfinni. Það hafi verið dregið fram við sameiningu sveitarfélaganna árið 1996 og farið inn á skipulag 2008. Ekki hafi verið minnst á þetta mál í síðustu sveitar- stjórnarkosningum. Hann metur stöðuna þannig að mikill meirihluti íbúa sé ánægður með þá leið sem varð fyrir valinu. Það birtist honum meðal annars í óánægju íbúa með að ákvörðun um framkvæmdaleyfi hafi verið dregin til baka enda hafi marg- ir talið að með því væri bæjarstjórn að gefa eftir í málinu. Morgunblaðið/RAX Hornafjarðarfljót Brúin yfir Hornafjarðarfljót er gömul og úr sér gengin. Auk þess er hún einbreið. Hún verður þó áfram notuð sem tenging innan sveitar. Gamalt þrætuepli í Hornafirði  Hópur Hornfirðinga leggst þvert gegn áformum Vegagerðarinnar um þverun Hornafjarðarfljóts um Skógey  Veglínan ákveðin í samráði við bæjarstjórn  Stefnir í málaferli og eignarnám Heimild: Vegagerðin Tjörn Einholt Skógey Bjarnanes HORNAFJÖRÐUR HORNAFJARÐARFLJÓT Seljavellir Árnanes Nesjahverfi HÖFN Hagi Nýr vegur um Hornafjarðarfljót Leið 1 Leið 3 Leið 3b Leið 2 Loftmyndir ehf. „Það er verulegur ágreiningur um þessa framkvæmd. Samfélagið skiptist, fólk hefur mismunandi skoðanir. Það er ekki gott. Í svona litlu samfélagi er æskilegt að finna málamiðlanir til að ná betri sam- stöðu,“ segir Ari Jónsson, formaður Hollvina Hornafjarðar, sem barist hafa gegn áformum Vegagerð- arinnar. Samtökin fögnuðu ákvörð- un bæjarstjórnar um að draga til baka ákvörðun um framkvæmda- leyfi og lýsa yfir vilja sínum til að taka þátt í að leita nýrra lausna. Ari segir nauðsynlegt að skoða fleiri leiðir. Hann nefnir sér- staklega veg á svipuðum slóðum og gamla þjóðleiðin lá um en þá var farið um Hornafjarðarfljót hjá Bjarnarnesi. Með þeirri leið væri ekki farið um eins viðkvæma nátt- úru og gert er ráð fyrir í áformum Vegagerðarinnar. Leið 3b fari yfir mikið af sjávarfitjum og þar sem þar gæti flóðs og fjöru hefði þverun áhrif á allt landið norðan vegarins með tilheyrandi flóðahættu. Ari segir að sú leið stytti einnig Hring- veginn og veginn innan sveitar, litlu minna en veglína Vegagerð- arinnar. Þá sé það mun ódýrari lausn og Ari segir að hægt væri að fækka einbreiðum brúm og vinna að ýmsum umbótum fyrir þann mun. Morgunblaðið/Ómar Höfnin Þéttbýlið á Höfn kemst í betra samband við kjördæmið. Vilja kanna betur gömlu þjóðleiðina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.