Morgunblaðið - 26.10.2016, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 26.10.2016, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2016 Vef-þjóðviljinn bendir á að ekkier allt sem sýnist á kjördag:    Sjálfsagt halda margir að ráð-herraefni Samfylkingar, Bjartrar fram- tíðar, Viðreisnar og Pírata séu til dæmis Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, Óttar Proppé sjáv- arútvegsráðherra, Þorgerður K. Gunnarsdóttir fjármálaráðherra og Smári McCarthy menntamálaráðherra. Þetta er rétt, svo langt sem það nær.    Endanlegt markmið þessaraflokka er nefnilega að koma Íslandi inn í Evrópusambandið.    Í framkvæmdastjórn Evrópu-sambandsins eru völdin, þar eru æðstu yfirmenn hvers mála- flokks.Til dæmis Karmenu Vella sjávarútvegsstjóri. Vytenis And- riukaitis heilbrigðismálastjóri. Pierre Mascovici efnahags- málastjóri. Tibor Navracsics menntamálastjóri.    Allt er þetta vafalaust hið mæt-asta fólk en jafnvel þeir sem leiddu baráttuna fyrir því að Bretland yrði áfram í Evrópu- sambandinu þekktu aðspurðir hvorki haus né sporð á því. Eng- inn hefur kosið þetta fólk til starfa. Það hefur aldrei leitað lýðræðislegs umboðs.    En það gæti breyst á laug-ardaginn í alþingiskosn- ingum á Íslandi.    Ef ESB-flokkarnir hljóta næg-an stuðning gæti Karmenu Vella náð kjöri sem sjávarútvegs- stjóri Íslendinga.“ Karmenu Vella Mun Vella nýtast? STAKSTEINAR Veður víða um heim 25.10., kl. 18.00 Reykjavík 7 skúrir Akureyri 3 skýjað Nuuk -9 heiðskírt Þórshöfn 9 rigning Ósló 4 skýjað Kaupmannahöfn 7 heiðskírt Stokkhólmur 4 rigning Helsinki 5 rigning Lúxemborg 12 skýjað Brussel 10 alskýjað Dublin 13 rigning Glasgow 8 skýjað London 13 léttskýjað París 14 skýjað Amsterdam 10 skýjað Hamborg 9 léttskýjað Berlín 9 skýjað Vín 15 skýjað Moskva 0 heiðskírt Algarve 18 rigning Madríd 21 léttskýjað Barcelona 21 skýjað Mallorca 25 skýjað Róm 23 léttskýjað Aþena 19 heiðskírt Winnipeg 3 skýjað Montreal 5 skýjað New York 10 léttskýjað Chicago 10 alskýjað Orlando 22 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 26. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:54 17:30 ÍSAFJÖRÐUR 9:09 17:25 SIGLUFJÖRÐUR 8:53 17:07 DJÚPIVOGUR 8:26 16:57 Reikna má með að nálægt 300 fulltrúar komi saman á þriggja daga þingi Alþýðusambands Ís- lands sem sett verður á Hilton Nordica hótelinu kl. 10 í dag. Strax á fyrsta þingdeginum verður rætt um nýtt samninga- líkan að norrænni fyrirmynd sem stefnt er á að verði innleitt hér á landi í viðræðum launþegahreyf- ingarinnar og atvinnurekenda, en það er meðal stærstu mála þings- ins. Þingið hefst með setningarræðu forseta ASÍ en einnig munu for- maður BSRB, félags- og húsnæðis- málaráðherra og erlendir gestir ávarpa þingið fyrir hádegi í dag. Á þinginu verður málefnavinna unnin í hópum eftir þjóðfunda- fyrirkomulagi eins og tíðkast hef- ur á undanförnum þingum Al- þýðusambandsins með góðum árangri skv. upplýsingum ASÍ. Verður áherslan lögð á velferðar- og vinnumarkaðsmál. Á föstudag verður svo kosið í embætti til næstu tveggja ára, þar á meðal til forseta ASÍ, varaforseta og í mið- stjórn. Pallborðsumræður Á morgun kl. 14 verður efnt til pallborðsumræðna með leiðtogum þeirra sjö stjórnmálaflokka sem taldir eru líklegastir til að ná fólki inn á þing eftir kosningarnar, um samhengið á milli efnahagslegs- og félagslegs stöðugleika. Fram kemur í frétt frá Alþýðu- sambandinu að bæði þessi umræða og opnun þingsins í dag verði sýndar í beinni útsendingu á heimasíðu ASÍ. Ræða smíði nýs samningalíkans Morgunblaðið/Ómar ASÍ Frá síðasta þingi ASÍ, sem fór fram fyrir tveimur árum.  Um 300 fulltrúar munu sitja þing Alþýðusambands Íslands sem hefst í dag  Pallborðsumræður með leiðtogum sjö stjórnmálaflokka fara fram á morgun Viðsemjendur í sjómannadeilunni eru boðaðir til sáttafundar hjá ríkissáttasemjara á morgun og eru það fyrstu funda- höldin frá því að úrslit lágu fyrir í atkvæðagreiðslu sjómanna og vélstjóra á fiskiskipum um boðun verkfalls. Ótímabundið verkfall skellur að óbreyttu á að kvöldi 10. nóvember hafi samningar ekki náðst fyrir þann tíma. Nokkuð er um fundahöld vegna kjarasamningsgerðar í húsnæði ríkis- sáttasemjara þessa dagana. Í gær var fundað um endurnýjun samninga fyrir rafiðnaðarmenn sem starfa í Borgarleikhúsinu og eftir hádegi komu samninganefndir tónlistar- skólakennara og sveitarfélaganna saman til fundar hjá sáttasemjara. Engin formleg fundarhöld hafa farið fram um hríð í kjaradeilu grunn- skólakennara. Reyna sættir í sjómanna- deilunni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.