Morgunblaðið - 26.10.2016, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 26.10.2016, Blaðsíða 31
ÍSLENDINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2016 Þórsbergs ehf. 1994-97 og sinnti þá fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækisins, var framkvæmda- stjóri útgerðarfélagsins Sterks ehf., og síðan oddviti og sveitarstjóri Tálknafjarðarhrepps 2006-2013, oddviti Tálknafjarðarhrepps 2013- 14, var fjármálastjóri Hjallastefn- unnar 2015 og starfrækir eigið ráð- gjafafyrirtæki, Ráðrík ehf., ásamt fyrrv. sveitarstjórunum Svanfríði Jónasdóttur og Guðnýju Sverris- dóttur, frá 2016. „Þó að ég hafi hætt að eigin ósk sem sveitarstjóri á Tálknafirði var starfið gefandi og lærdómsríkt. Það gaf mér góða innsýn í íslenska stjórnsýslu og maður komst ekki hjá því að móta sér heildar- og framtíð- arsýn fyrir sveitarfélagið. Ég hlaut því að leiða stefnumótun í skóla- málum, umhverfismálum, sorp- málum og stofnun Félagsþjónustu í Vestur-Barðastrandarsýslu. Sá um og leiddi stefnumótun í hafnar- og skipulagsmálum, innleiddi skjala- stjórnunarkerfi og Tímon starfs- mannakerfi og sá um að gerður var samningur við Hjallastefnuna um rekstur leik-, grunn- og tónlistar- skóla í öllu sveitarfélaginu. Til þess þurfti ég að berjast fyrir breytingu á grunnskólalögum svo sveitarfélög gætu ráðið einkaaðila að grunnskól- unum. Það var ævintýri að fá að tak- ast á við öll þessi verkefni með frá- bæru samstarfsfólki.“ Eyrún sat í Fagráð um flugmál 2014-2016, var varaformaður stjórn- ar Lánasjóður íslenskra námsmanna 2013-2015, varaformaður stjórnar Hafnarsamband Íslands 2010-2014, er varaformaður stjórnar Orkubús Vestfjarða frá 2007 og Trygginga- stofnunar ríkisins frá 2013, var með- stjórnandi í stjórn Sparisjóðs Vest- firðinga 2007-2009, meðstjórnandi í Fjord Fishing ehf. 2006-2011 og í Hafnarráði 2001-2007, skipuð af samgönguráðherra. Hún hefur setið í Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða, Hafnarsambandi sveitarfélaga, í varastjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga og samgöngunefnd, í Vatnaráði og stjórn Rannsóknar- og nýsköpunarsjóðs Vestur-Barða- strandarsýslu. Eyrún sat í miðstjórn Sjálfstæðis- flokksins 2007-2009, hefur sinnt ýmsum öðrum trúnaðarstöfum fyrir flokkinn og var varaþingmaður 2009-2016. Gjaldkeri sóknarnefndar 1996-2004 og formaður Ungmenna- félags Tálknafjarðar 1998-2000. Eyrún æfði og keppti í handbolta á sínum yngri árum, leikur nú blak með Fylki í Árbæ, fylgist með íþróttaiðkun barnanna og hefur áhuga á fluguveiði og útivist al- mennt. Fjölskylda Eiginmaður Eyrúnar er Tryggvi Ársælsson, f. 14.8. 1965, skipstjóri og útgerðarmaður. Foreldrar hans eru Ársæll Egilsson, f. 2.9. 1931, skipstjóri, og Jóhanna Helga Guð- mundsdóttir, f. 12.2. 1932, húsfreyja og fiskverkakona. Börn Eyrúnar og Tryggva eru Birna Rán Tryggvadóttir, f. 26.11. 1982, búsett í Vogum á Vatnsleysu- strönd en maður hennar er Rúnar Pétur Þorgeirsson flugvirki; Sæþór Tryggvason, f. 24.6. 1987, nemi í iðn- aðarverkfræði við HÍ, búsettur í Reykjavík; Helga Kristín Tryggva- dóttir, f. 10.8. 1994, viðskipta- fræðinemi við HÍ, búsett í Kópavogi en maður hennar er Leif Halldór Arason leiðsögumaður; Hafrún Tryggvadóttir, f. 17.9. 1996, leik- skólakennari í Kópavogi en maður hennar er Ingiberg Ólafur Jónsson iðnaðarmaður; Rut Tryggvadóttir, f. 26.1. 2000, framhaldsskólanemi í FB, búsett í Kópavogi. Systkini Eyrúnar eru Erla Fanný Sigþórsdóttir, f. 13.6. 1949, launa- fulltrúi í Vestmannaeyjum; Anna Kristín Sigþórsdóttir, f. 30.5. 1950, sjálfstætt starfandi, búsett í Garða- bæ; Sigurbjörg Sigþórsdóttir, f. 6.1. 1953, ritari í Reykjavík; Sveinn Val- þór Sigþórsson, f. 3.3. 1956, húsa- smíðameistari í Hafnarfirði, og Ein- ar Sigþórsson, f. 22.3. 1962, stýri- maður í Vestmanneyjum. Foreldrar Eyrúnar: Sigþór Sig- urðsson, f. 8.11. 1924, d. 19.12. 2007, skipstjóri í Vestmannaeyjum, og Valgerður Kristín Kristjánsdóttir, f. 9.6. 1930, starfsmaður Póstsins í Vestmannaeyjum. Úr frændgarði Eyrúnar Ingibjargar Sigþórsdóttur Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir Þorbjörg Sæmundsdóttir húsfr. í Gíslakoti Sveinn Sveinsson b. í Gíslakoti undir Eyjafjöllum, frá Hraungerði í Flóa Sveinbjörg Sveinsdóttir saumakona í Vestmannaeyjum Sigurður Jónsson dó ungur í Vestmannaeyjum Sigþór Sigurðsson skipstjóri í Vestmannaeyjum Sigríður Þorsteinsdóttir húsfr. á Steig í V-Skaft., frá Neðri-Dal í V-Skaft. Jón Þorsteinsson b. á Steig í V-Skaft. Sveinn Valþór Sigþórsson fyrrv. knattspyrnum. með mfl. ÍBV og ÍBK Fanney Sigurðardóttir húsfr. á Selfossi (varð 101 árs) Kolbrún Kristjánsdóttir hestakona í Árnesi í Gnúpverjahr. Herdís Einarsdóttir hestakona í Grafarkoti á Vatnsnesi Aðalheiður Sveins Einarsd. hestakona á Hólmavík Helga Kristjánsdóttir húsfr. í Neðsta-Hvammi, frá Hróarsstöðum í S-Þing. Jón Þórarinsson b. á Neðsta-Hvammi í Dýrafirði, frá Sigluvík á Svalbarðsströnd Anna Jónsdóttir kjólameistari í Rvík Kristján Valgeir Einarsson b. í Hvammi í Dýrafirði og verkam. í Rvík Valgerður Kristín Kristjánsdóttir starfsm. Póstsins í Eyjum Rakel Þorbergsdóttir húsfr., frá Stað á Snæfjallaströnd Einar Einarsson b. í Gröf í Bitrufirði Guðmundur Már Hafbergfæddist í Reykjavík 26.10.1956. Foreldrar hans voru Ágúst S. Hafberg, forstjóri Land- leiða og Ísarn, og Árnheiður Guðný Guðmundsdóttir húsfreyja. Ágúst var sonur Friðriks Einars- sonar Hafberg, og Ágústu Mar- grétar Sigurðardóttur, en Árnheiður Guðný var dóttir Guðmundar Jó- hannesar Guðmundssonar og Maríu Árnadóttur. Eiginkona Guðmundar var Magn- ea Guðríður Sverrisdóttir og eign- uðust þau þrjú börn, Hörpu Guð- nýju, Hildi Ösp og Birki Má. Guðmundur æfði og keppti í knattspyrnu í meistaraflokki með Fram og FH til 1980. Hann var í Vogaskóla í Reykjavík, Mennta- skólann við Hamrahlíð og lauk meistaraprófi í mælingaverkfræði frá Konunglega tækniháskólanum í Stokkhólmi árið 1984. Guðmundur starfaði fyrst hjá verkfræðistofunni Fjarhitun og síð- ar Hniti hf. og var þar einn eigenda. Árið 1998 bauðst honum starf hjá bandaríska hugbúnaðarfyrirtækinu ESRI. Þá um haustið flutti fjöl- skyldan til Bandaríkjanna og settist að í bænum Redlands í útjaðri Los Angeles. Hjá ESRI starfaði Guð- mundur við gerð háþróaðs hugbún- aðar fyrir kortagerð og landupplýs- ingakerfi og leiddi mörg þróunar- verkefni á sínu sviði. Hann flutti enn fremur fjölda fyrirlestra og erinda bæði hérlendis og erlendis. Um Guðmund segir Ágúst, bróðir hans, í minningargrein: „Hann var vinnusamur með eindæmum og hafði mjög gaman af vinnu sinni. Í Bandaríkjunum starfaði hann við þróun hugbúnaðar en var einnig oft kallaður til ráðgjafar við viðskipta- vini þegar flókin vandamál komu upp. Slík verkefni hafði Guðmundur mjög gaman af að takast á við og sleppti því gjarnan að sofa ef hann taldi sig vera nærri því að leysa erfið mál.“ Guðmundur lést 4.8. 2007. Merkir Íslendingar Guðmundur Már Hafberg 90 ára Ása Snæbjörnsdóttir Hulda Þórarinsdóttir 85 ára Eggert Eggertsson Jarþrúður Guðný Pálsdóttir 80 ára Hjördís Emma Morthens Kristín H. Hansen Kristmann Gunnarsson 75 ára Álfheiður Alfreðsdóttir Dagvin B. Guðlaugsson Georg Haraldur Tryggvason Kjartan Leifur Sigurðsson Ragnheiður Björg Guðnadóttir Runólfur Haraldsson 70 ára Anna Bjarney Eyjólfsdóttir Ásdís Egilsdóttir Einar Ásgeirsson Gunnar Júlíusson Helgi Þorvaldsson Þórdís Kristjánsdóttir 60 ára Anna Ósk Ragnarsdóttir Dagrún Linda Garðarsdóttir Finnbogi Jónsson Guðný Harðardóttir Jerzy Antoni Kaczharek Jolanta Barbara Gorska Jón Guðmundsson Óli Guðjón Ólafsson Óskar Svavarsson Pálmi Bergmann Almarsson Soffía Gísladóttir 50 ára Aðalsteinn Heiðmann Hreinsson Einar Þórir Skaftason Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir Guðrún Olga Ólafsdóttir Konráð Kristjánsson Oddgeir Friðrik Garðarsson Óli Grétar Þorsteinsson Regína Hreinsdóttir Sigurður Einar Sigurðsson Soffía Guðrún Guðmundsdóttir Steinunn Huld Atladóttir Valdimar Bjarnason Þórunn Þórólfsdóttir 40 ára Ágúst Óli Hróðmarsson Bryndís Rut Jónsdóttir Guðni Reynir Guðmundsson Hallveig Ósk Fróðadóttir Íris Ösp Hreinsdóttir Janyarak Klaiprae Juntima Kongprakon Krzysztof Adam Wisniewski Mladen Tepavcevic Ólafur Tryggvason Ómar Daði Kristjánsson Renata Gliaubiciute Sigrún Stella Ólafsdóttir 30 ára Dariusz Suska Dawid Karol Golda Freyja Eilíf Logadóttir Inga Rut Ingadóttir Júlíana Einarsdóttir Kári Valsson Marta Zielinska Robert Kompiewski Særún Emma Stefánsdóttir Trazie Lou V. G Zorou Epse Kaba Vildís Björk Bjarkadóttir Til hamingju með daginn 30 ára Særún ólst upp á Siglufirði, býr þar, lauk stúdentsprófi frá VMA og IAK-prófi í einkaþjálfun og er nú heimavinnandi. Maki: Sigvaldi Páll Þor- leifsson, f. 1978, skip- stjóri. Synir: Þorleifur Rúnar, f. 2007, og Maron Páll, f. 2009. Foreldrar: Stefán Einars- son, f. 1948, og Emma Fanney Baldvinsdóttir, f. 1954. Særún Emma Stefánsdóttir 40 ára Íris ólst upp í Reykjavík, býr á Hellis- sandi og starfar í Sjávar- iðjunni á Rifi. Maki: Halldór Kristins- son, f. 1975, útgerðar- stjóri hjá Kristni Jóni Frið- þjófssyni. Börn: Guðbjörg Helga, f. 1999; Ísabella Una, f. 2001, og Hreinn Ingi, f. 2004. Foreldrar: Hreinn Vagns- son, f. 1953, og Guðrún Sverrisdóttir, f. 1955. Íris Ösp Hreinsdóttir 30 ára Freyja ólst upp í Reykjavík, býr þar, útskrif- aðist úr myndlist frá LHÍ og er myndlistarkona og starfrækir galleríið Ekki- sens á Bergstaðastræti 25B. Maki: Guðbjartur Þór Sævarsson, f. 1977, stál- smiður og verkstæðis- stjóri við LHÍ. Foreldrar: Helga Völund- ardóttir, f. 1967, og Logi Snævar Hreiðarsson, f. 1955. Freyja Eilíf Logadóttir www.smyrilline.is Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is Taktu bílinn með til Færeyja og Danmerkur 2016 Færeyjar 2 fullorðnir með fólksbíl Netverð á mann frá 34.500 Danmörk 2 fullorðnir með fólksbíl Netverð á mann frá 74.500

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.