Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2015, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2015, Síða 15
Vikublað 10.–12. mars 2015 Fréttir Erlent 15 Lakkað smeLLuparket • 30 ára ábyrgð Parket & gólf • Ármúla 32, 108 Reykjavík • S: 5681888 • parketoggolf.is Verð: 9.060 kr. m² Nú á tilboðsverði: 6.342 kr. m² Hágæða PlankaParket - eik Sauvage einstakt tilboð -30% afsláttur ATH TAkmArkAð mAgn Parket og gólf Stjórnmálamenn í handalögmálum Það ætlaði allt um koll að keyra í tyrkneska þinginu í síðustu viku þegar þingmenn meirihlutans og minni- hlutans lentu í handalög- málum. Mikill styr hefur staðið um frumvarp sem er til umræðu í þinginu sem myndi veita lögreglu aukin völd í landinu. Þingmönnum lenti saman í þrígang á aðeins einni viku, slíkur var hit- inn í umræðunni. Slags- mál stjórnmálamanna eru ekki ný af nálinni. Reuters tók saman athyglisverðan mynda- pakka, en þar má finna myndir af handalögmál- um stjórnmálamanna.  Fjall af þingmönnum Það varð bókstaflega allt brjálað í þinghúsinu í Taipei í Taívan þann 8. júlí 2010. Þá deildu stjórnarandstaða og stjórnar- meirihluti um viðskiptasamning við nágrannaríkið Kína. Öllu lauslegu var kastað í þinghús- inu og tæmdu þingmenn vatnskönnur hver yfir annan. Tveir þingmenn voru fluttir á spítala eftir átökin en enginn slasaðist þó alvarlega, sem betur fer.  Tekinn hálstaki Hér sjást tveir þingmenn í úkraínska þinginu, Adam Martynyuk og Oleg Lyashko, í handa- lögmálum. Þegar pólitík er annars vegar getur mönnum orðið ansi heitt í hamsi en á myndinni sést Adam taka Oleg þéttu háls- taki. Örfáum andartökum eftir að myndin var tekin sneri Adam Oleg niður í gólfið.  Beint á kjammann Það er oft heitt í kolunum á tyrkneska þinginu eins og þessi mynd ber með sér. Hér sést Muhyettin Aksak, þingmaður AK-flokksins sem er í meirihluta á tyrkneska þinginu, gefa Sinan Ogan, þingmanni stjórnarandstöð- unnar, kjaftshögg. Myndin var tekin í Ankara 4. ágúst í fyrra og slösuðust þrír þingmenn í átökunum, þar á meðal Ogan.  Mamma mia! Claudio Berbato, þingmaður FLI- flokksins í minnihluta ítalska þings- ins, sést hér ráðast á Fabio Ranieri, þingmann meirihlutans, í Róm þann 26. október 2011. Átök hafa nokkrum sinnum brotist út á ítalska þinginu í gegnum árin. Slagsmálin blossuðu upp í kjölfar deilna um niðurskurð hjá hinu opinbera í kjölfar efnahagsniðursveiflunnar árið 2008. Erfiðar ákvarðanir biðu þingmanna og virtust sumir ráða illa við álagið.  Skó kastað Hér sést Leung Kwok-hung, þingmaður minnihlutans í Hong Kong, gera heiðarlega til- raun til að kasta skó í fjármála- ráðherrann John Tsang sem sést ekki á myndinni. Kollegar hans náðu að stöðva Leung eins og myndin, sem var tekin í síðustu viku, ber með sér.  Spilling? Þingmenn stjórnarand- stöðunnar í Úkraínu sjást hér kasta bókhveiti í átt að Viktori Pylypyshyn þegar hann sór eið í úkraínska þinginu í Kænugarði þann 15. janúar í fyrra. Þingmenn Svoboda-flokksins sökuðu Pylypyshyn um kosningasvindl og sögðu hann hafa stundað mútur í aðdraganda kosninganna. Af þeim sökum var bókhveiti kastað í hann sem þykir býsna niðurlægjandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.