Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2015, Side 47

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2015, Side 47
Vikublað 10.–12. mars 2015 Hönnun - Kynningarblað 7 Íslensk hönnun í sinni litríkustu mynd Epal tekur þátt í Hönnunarmars og sýnir verk 30 hönnuða í verslun sinni Í slensk hönnun í sinni litríkustu mynd Epal tekur virkan þátt í Hönnunarmars eins og undan- farin ár með því að sýna verk hátt í 30 hönnuða í verslun sinni, Skeifunni 6, dagana 12.–17. mars. Frá stofnun fyrirtækisins árið 1975 hefur Epal haft að leiðarljósi að auka skilning og virðingu fyrir hönnun á Íslandi með því að velja góða hönnun og gæðavörur fyr- ir viðskiptavini sína. Hluti af því er þátttaka í Hönnunarmars. Á Hönnunarmars í Epal í ár má sjá áhugaverða hönnun eftir fjöl- breyttan hóp hönnuða, þekktra jafnt sem nýrra. Verkin eru allt frá fullmótuðum hlutum sem tilbún- ir eru til sölu til hugmynda á frum- stigi, þar getur að líta húsgögn, ker- amik, púða, skartgripi, ljós og aðra áhugaverða hluti. Íslenska/danska hönnunarteymið Welling/Ludvik sem samanstendur af þeim Guð- mundi Lúðvíkssyni og Hee Welling verður meðal sýnenda í ár en þeir hafa notið mikillar velgengni á er- lendri grundu og sýna þeir meðal annars sófann Lagoon sem fram- leiddur er af Erik Jorgensen. Ásamt þeim sýnir t.d. Ingibjörg Hanna, HAF hönnunartvíeykið, Chuck Mack, Guðrún Vald, Bybibi, Steinunn Vala, Þórunn Árnadóttir, Anna Þórunn og Ólöf Jakobína einnig nýjar og spennandi vörur ásamt mörgum öðrum hæfileika- ríkum hönnuðum. Sigurjón Pálsson húsgagna- hönnuður mun sýna í ár lunda en hann hefur slegið í gegn með vaðfugla sína sem kynntir voru á Hönnunarmars í fyrra og eru nú í framleiðslu hjá Normann Copen- hagen og rjúka þar út eins og heitar lummur. Það verður því spennandi að sjá hvort lundinn feti sömu slóð. Hönnunarmars í Epal er því mjög spennandi í ár og svo sannar- lega eitthvað fyrir alla. Hægt er að lesa nánar um hönnuðina sem sýna í Epal í ár á bloggsíðu verslunarinnar á www. epal.is Þátttakendur í ár eru: Ólöf Jakobína María Lovísa Hjalti Parelíus Hekla Guðmundsdóttir Guðmundur Lúðvík - Hee Welling Sigurjón Pálsson Guðrún Vald Þórunn H. Bybibi Inga Sól Chuck Mack Steinunn Vala Snæbjörn Julie Gasiglia Sigrún Jóna Norðdahl Guð- rún Eysteinsdóttir Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir Embla Sigurgeirsdóttir Ingibjörg Þorvaldsdóttir Hjalti Axels son Thelma Magnúsdóttir Erla Sólveig Steinunn Jónsdóttir Eygló Benediktsdóttir Sigríður Hjaltdal Pálsdóttir Anna Þórunn Hafsteinn Júlíusson HAF Þórunn Árnadóttir EPAL HARPA: Ágústa Hera Harðardóttir Hildur Petersen Gerð- ur Steinars. n Íslensk hönnun Eygló Benediktsdóttir. Íslensk hönnun Inga Sól Ingibjargardóttir. Íslensk hönnun Guðrún Valdimarsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.