Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2015, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2015, Síða 6
Helgarblað 29. maí–1. júní 20156 Fréttir V A R M A D Æ L U R 19 dBA *Við ábyrgjumst lægsta eða sama verð og sambærileg varmadæla frá öðrum söluaðilum. Smiðjuvegur 70 - gulgata - 200 Kópavogur Gæði, þjónusta og gott verð. Hámarks orkusparnaður. sen dum frÍ tt Út Á l and * Ígræðslan rannsökuð Birgir Jakobsson landlæknir var forstjóri Karolínska-sjúkrahússins í Stokkhólmi þegar barkaígræðsla var framkvæmd þar. Lögreglan í Svíþjóð er að rannsaka umrædda barkaígræðslu, en helmingur þeirra sem fóru í slíka ígræðslu er nú látinn. Fjallað var um málið í þættin- um Uppdrag granskning sem sýndur er í sænska ríkissjón- varpinu. Birgir var forstjóri sjúkrahússins þegar ígræðsla var framkvæmd árið 2011 en hann var forstjóri sjúkrahússins frá 2007 til 2014, eða þar til hann var skipað- ur landlæknir í nóvember í fyrra. Fyrstur til að fá umrædda barkaígræðslu var Andemariam Teklesenbet Beyene en hann var í námi við Háskóla Íslands þegar hann greindist með alvarlegt krabbamein í barka. Hann hlaut læknismeðferð hér á landi og síðar í Svíþjóð þar sem græddur var í hann plastbarki og var þar með brotið blað í sögu læknavísindanna. Það var læknirinn Paolo Macchiarini sem þróaði aðferðina. Í fyrra kom þó í ljós að Macchiarini hafði aldrei sótt um leyfi hjá siðanefnd lækna í Svíþjóð. Í kjölfar þess var hann kærður. Uppdrag granskning segir að grein sem skrifuð var um barka- ígræðsluna sé einhver mesta lygi læknasögunnar en þeir Tómas Guðbjartsson og Óskar Einarsson, læknar, eru titlaðir meðhöfund- ar þeirrar greinar. Þeir segja að þeir hafi ekki komið að meðferð annarra en Beyene og að hlut- verk þeirra hafi verið að lýsa líð- an sjúklingsins fyrir aðgerðina í greininni. Kröfu um íbúakosningu vegna kísilvers hafnað U mhverfis- og skipulags- ráð Reykjanesbæjar sam- þykkti síðasta miðvikudag breytingu á deiliskipulagi iðnaðarsvæðisins í Helguvík sem heimilar sameiningu lóða svo Thorsil ehf. geti byggt þar kísilmálm- verksmiðju. Daginn eftir hafnaði bæjar ráð kröfu um bindandi íbúa- kosningu en 287 athugasemdir bárust frá einstaklingum sem í langflestum tilvikum lýstu áhyggjum vegna loft- mengunar sem mun fylgja starfsemi kísilversins. Árni Þór Sigfús son, odd- viti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanes- bæ og fyrrverandi bæjarstjóri, og Böðvar Jónsson, bæjarfulltrúi flokks- ins, segja óeðlilegt og óþarft að halda íbúakosningu um málið auk þess sem afturköllun samninga við Thorsil muni án efa leiða til skaðabótaskyldu fyrir bæjarsjóð. Eysteinn Eyjólfsson, formaður umhverfis- og skipulagsráðsins, lagði fram bókun á fundi þess þar sem hann sagði það skoðun sína að um- deild meiriháttar skipulagsmál ætti að setja í íbúakosningu. „Þetta er mín bókun og skoðun en það er bæjarstjórnar að taka ákvörðun um hvort farið verði í íbúakosningu. Breytingin á deiliskipulaginu fer fyr- ir bæjarstjórn næsta þriðjudag og þá samþykkir hún hana eða ekki,“ segir Eysteinn. Hótuðu að skerast í leikinn Á fundi bæjarráðsins kom fram að sveitarfélagið ætli sér að standa við gerða samninga við Thorsil. Hins vegar sé samkvæmt lögum ekki hægt að hafna ósk íbúa um undir- skriftasöfnun. Niðurstaða hennar geti þó ekki stöðvað „það ferli sem þegar er hafið“ og Reykjanesbær muni því fyrir sitt leyti standa við gerða samninga. Bæjarfulltrúar sjálfstæðis- manna höfðu áður gagnrýnt frestun umhverfis- og skipulagsráðsins á af- greiðslu breytingatillögunnar og sögðu hana hafa tafist „óeðlilega“ í meðförum ráðsins. Þá var einnig tekið fram að þeir íhuguðu að leggja fram sjálfstæða tillögu um málið í bæjarstjórn og freista þess að nýr meirihluti myndi styðja hana. Árni og Böðvar lögðu síðan fram bókun á fundi bæj- arráðs í gær þar sem varað er við mögu- legri skaðabóta- skyldu sveitar- félagsins ef fallið verði frá samningum sem bæj- arstjórn hafi þegar samþykkt. „Það er búið að fjalla ítrekað um þetta mál og það var samþykkt að fara í þessa uppbyggingu með Thorsil og þar með breyta deiliskipulagi. Nú er skipulagsráð samhljóða um að afgreiða það og því hljót- um við að spyrja til hvers eru slíkar íbúakosningar þegar málið er komið svona langt,“ segir Árni í samtali við DV. 28 milljarða verkefni Fjölmennur íbúafundur var haldinn í Reykjanes- bæ vegna stóriðjuupp- byggingarinnar í Helgu- vík og kröfuganga og hópreið farin þriðjudaginn 12. maí síðastliðinn. Tilgangur göngunnar var að skora á bæjarstjórnina að efna til bindandi íbúakosningar um kísilmálmverk- smiðju Thorsil. Á fundinum var farið yfir deiliskipulagstillöguna, vöktun á mengandi iðnaði í Helguvík og fyrir- spurnum svarað. Tillagan var auglýst frá 19. mars til 8. maí og bárust eins og áður segir 287 athugasemdir. Forsvarsmenn Thorsil sömdu í febrúar síðastliðnum um sölu á kísil- málmi fyrir 75 milljarða króna næstu tíu árin. Þeir stefna að því að hefja framkvæmdir við verksmiðjuna nú í sumar en hún á að rísa við hlið kísil- vers Sameinaðs sílikons hf. (e. United Silicon). Fyrirtækið undirritaði fjár- festingarsamning við íslenska ríkið í maí í fyrra, þar sem samið var um af- slætti af ýmsum opinberum gjöldum og sköttum. Heildarfjárfesting verk- smiðjunnar nemur um 28 milljörðum króna en hún á að framleiða allt að 54 þúsund tonn af kísilmálmi, dufti og gjalli á ári. n Skipulagsráð Reykjanesbæjar samþykkti umdeilda breytingu á lóðum Thorsil í Helguvík Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Mótmælt Hátt í þrjú hundruð íbúar tóku þátt í kröfugöngu í Reykjanesbæ þar sem þess var krafist að íbúakosning um frekari stóriðjuupp- byggingu í Helguvík yrði haldin. Mynd Gunnar Már Óttast skaðabótaskyldu Árni Sigfússon segir ótækt að ganga á bak samninga sem bæjarstjórn hafi áður gert. iRobot Verslun - Helluhrauni 22 220 Hafnarfjörður - S:555-2585 Veldu þessa sem hentar þér best Líttu við hjá okkur og gerðu verð- og gæðasamanburð. Nánari upplýsingar færðu hjá okkur. Láttu mig um að ryksuga og notaðu tímann í annað. iRobot Verslun - Helluhrauni 22 220 Hafnarfjörður - S:555-2585 Veldu þessa sem hentar þér best Líttu við hjá okkur og gerðu verð- og gæðasamanburð. Nánari upplýsingar færðu hjá okkur. Láttu mig um að ryksuga og notaðu tímann í annað. iRobot Verslun - Helluhrauni 22 220 Hafnarfjörður - S:555-2585 Veldu þessa sem hentar þér best Líttu við hjá okkur og gerðu verð- og gæðasamanburð. Nánari upplýsingar færðu hjá okkur. Láttu mig um að ryksuga og notaðu tímann í annað. Veldu þessa sem hentar þér best iRobot Verslun - Helluhrauni 22 220 Hafnarfjörður - S:555-2585 Veldu þessa sem hentar þér best Líttu við hjá okkur og gerðu verð- og gæðasamanburð. Nánari upplýsingar færðu hjá okkur. Láttu mig um að ryksuga og notaðu tímann í annað. iRobot Verslun - Helluhrauni 22 220 Hafnarfjörður - S:555-2585 Veldu þessa sem hentar þér best Líttu við hjá okkur og gerðu verð- og gæðasamanburð. Nánari upplýsingar færðu hjá okkur. Láttu mig um að ryksuga og notaðu tímann í annað. iRobot Verslun - Helluhrau i 22 220 Hafnarfjörður - S:555-2585 Veldu þessa sem hentar þér best Líttu við hjá okkur og gerðu verð- og gæðasamanburð. Nánari upplýsingar færðu hjá okkur. Láttu mig um að ryksuga og notaðu tímann í annað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.