Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2015, Side 32
4 Ferðaþjónusta - Kynningarblað Helgarblað 29. maí–1. júní 2015
D
rangeyjarferðir er fjöl
skyldufyrirtæki sem staðsett
er á Reykjum á Reykjaströnd
í Skagafirði. Það var stofn
að af Jóni Eiríkssyni þegar
hann hóf að sigla með ferðafólk út
í Drangey. Síðar byggði Jón upp
svæðið á Reykjum til ferðaþjónustu.
Viggó, sonur hans, og sonarsonur,
Helgi Rafn, hafa tekið við rekstrinum
ásamt fjölskyldum sínum og halda
áfram því starfi og uppbyggingu sem
Jón hóf á sínum tíma.
Sigling í Drangey
Drangeyjarferðir bjóða upp á sigl
ingu út í Drangey, sem er ein af nátt
úruperlum Skagafjarðar, og bað í
Grettislaug og Jarlslaug. Á Reykjum
er einnig Grettis Café, kaffihús og
bar, gistiheimili á tveimur hæðum
og stórt og gott tjaldsvæði. Afþreying
er í boði, skipulagðar gönguferðir og
sjóstangveiði.
„Drangey er frekar hrikaleg
ásýndum þegar þú kemur undir
bergið og mörgum finnst þeir verða
litlir við hliðina á náttúrunni. En
uppgangan er auðveld og flestum
fær,“ segir Viggó hjá Drangeyjarferð
um. „Í fyrra gekk sem dæmi 84 göm
ul kona upp og fór létt með það.“
Fjölbreytt afþreying á Reykjum
„Yfir sumarmánuðina bjóðum við
upp á daglegar ferðir út í Drangey,“
segir Viggó. Drangey er náttúruperla
í miðjum Skagafirði með flottu útsýni
yfir fjörðinn og fuglalífið er magnað.
Sjóstangveiði er skemmtileg af
þreying fyrir alla, en stutt er að sigla
á gjöful fiskimið.
„Nýtt í sumar hjá okkur eru göngu
ferðir yfir Tindastólinn með leiðsögn.
Hægt er að velja um tvær leiðir, styttri
ferðin er 4–5 klukkustundir en sú
lengri er 8–9 klukkustundir og lýkur
göngunni svo á Reykjum þar sem
hægt er að fá sér veitingar og slappa
af í Grettislauginni,“ segir Viggó.
Heitar laugar hafa
mikið aðdráttarafl
Grettislaug og Jarlslaug eru nátt
úrulaugar hlaðnar ofan á heitum
uppsprettum. Grettislaug er nefnd
eftir Gretti sterka, en Jarlslaug,
nýrri laugin, eftir Drangeyjarjarlin
um Jóni Eiríkssyni. Grettislaug var
valin önnur af bestu laugum lands
ins fyrir stuttu af erlendu tímariti og
hafa laugarnar báðar mikið aðdrátt
arafl fyrir ferðalanga á Íslandi, sem
finnst fátt jafnast á við að baða sig í
39 gráðu heitri laug á sjávarkamb
inum. Við laugarnar er útisturta og
skiptiaðstaða.
Grettis Café býður
upp á léttar veitingar
„Fyrir þremur árum opnuðum við
Grettis Café á Reykjum, kaffihús og
bar,“ segir Viggó. Ferðafólki hefur
þótt það frábær viðbót á svæðinu.
Grettis Café er opnað kl. 9 og er opið
fram eftir kvöldi.
Tjaldsvæði og gistiheimili
Á Reykjum er stórt og gott tjaldsvæði
með salernisaðstöðu, grillaðstöðu
og litlu leiksvæði fyrir börnin. Einnig
er þar notalegt gistiheimili og í boði
eru bæði svefnpokapláss eða uppá
búin rúm.
„Við tökum vel á móti hópum,
stórum sem smáum,“ segir Viggó.
Tilvalið er fyrir vinahópa, sauma
klúbba eða fyrirtæki að hafa sam
band og fá tilboð í afþreyingu fyrir
hópinn sinn. „Einnig bjóðum við
hópum upp á mat, léttar veitingar
eða kaffihlaðborð og hefur það verið
mjög vinsælt eftir ferðir,“ segir Viggó.
„Við höfum einnig fengið hingað fólk
í hestaferðum, sem nýtir sér laugina
og nærir sig svo á kaffihúsinu áður
en það heldur áfram ferðinni.“
Þann 27. júlí nk. verður tónlistar
hátíðin Drangey Music Festival – þar
sem vegurinn endar haldin á Reykj
um og er það í fyrsta sinn sem tón
listarhátíð er haldin á staðnum.
Jónas Sig og Ritvélar framtíðar
innar, Emilíana Torrini, Magni og
Contalgen Funeral.
„Miðasala á hátíðina gengur vel
og vanur maður í brúnni, Áskell
Heiðar sem hefur séð um Bræðsluna
en hann og ég erum hvatamenn að
Drangeyjar Music Festivalinu,“ segir
Viggó. Nánari upplýsingar má finna
á midi.is og heidar@fjolnet.is.
Drangeyjarferðir eru á Reykjum
í Skagafirði, síminn er 8210090 og
8210091, netfang drangey@fjol
net.is. Heimasíða er drangey.net og
Drangeyjarferðir eru einnig á Face
book. n
Drangeyjarferðir
Heitar laugar hafa mikið aðdráttarafl fyrir þreytta ferðalanga