Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2015, Qupperneq 41
Helgarblað 29. maí–1. júní 2015 Fólk Viðtal 33
að fara í Versló en segist stundum
hafa upplifað harðan heim innan
veggja skólans. „Fólk talar oft um
menntaskólaárin sem sín allra bestu
ár, en það var alls ekki þannig hjá
mér. Ég var kominn í svolítið ann
an pakka. Ég var kominn í hljóm
sveit og byrjaður að vinna fyrir mér.
Var lagður af stað inn í bransann. Ég
gaf mér því kannski ekki nógan tíma
til að njóta lífsins með skólafélög
um mínum. Tíminn í Hagaskóla var
meira minn tími. Ég var kannski bara
svona bráðþroska,“ segir hann. Felix
tók engu að síður þátt í Nemenda
mótssýningum Versló, líkt og hug
ur stóð til. Og fékk töluverða þjálfun
þar, bæði í leik og söng.
Sveitaböllin hentuðu ekki
Hann var í fimmta bekk í Versló
þegar hann gekk til til liðs við hljóm
sveitina Greifana og var farinn að
syngja á böllum út um land allt 19
ára gamall. Felix var fenginn inn
í hljómsveitina í gegnum frænda
eins hljómsveitarmeðlims sem var í
Versló, sem vissi hve hæfileikaríkur
hann var. „Mánuði eftir að ég gekk
til liðs við hljómsveitina unnum við
Músíktilraunir og urðum í kjölfarið
heitasta bandið á Íslandi.“
Lagið Útihátíð með Greifunum
sló öll met í vinsældum sumarið eft
ir og Felix stimplaði sig rækilega inn í
íslenskt tónlistarlíf sem söngvari. En
hugur hans stefndi annað og sagði
hann því skilið við hljómsveitina eft
ir aðeins eitt og hálft ár. „Ég ætlaði
alltaf í leiklistarnám og fann fljót
lega að sveitaballabransinn átti ekki
við mig. Mig langaði meira inn í leik
listina og ákvað því að hætta. Þetta
voru mjög skýr skil en allt í góðu. Og
þeir héldu bara áfram án mín, sem
var hið besta mál.“ Felix ákvað um
leið og hann hætti í hljómsveitinni
að tíma hans með Greifunum væri
lokið. Hann kom þó fram með þeim
á 25. afmælisárinu, en hefur látið þar
við sitja.
Ekki spenntur fyrir Stundinni í
fyrstu
Felix fór til Skotlands í leiklistar
nám og bætti síðar við sig diplóma
gráðu sem hann tók í London. Þegar
hann kom heim úr náminu kom það
sér vel að vera þekktur út sveitaball
abransanum. Felix viðurkennir að
það hafi hjálpað honum við að koma
sér á framfæri. Hann fékk strax verk
efni hjá Leikfélagi Akureyrar og hef
ur í raun geta valið úr verkefnum síð
an. „Ég fann strax að það átti best við
mig að vera sjálfstætt starfandi og ég
hef haldið því þannig, fyrir utan eitt
ár sem ég var fastráðinn hjá Leik
félagi Reykjavíkur. Ég hef því getað
stjórnað mínum ferli sjálfur.“
Felix byrjaði fljótlega eftir út
skrift að vinna að efni fyrir börn, en
það hófst þegar hann tók við Stund
inni okkar á RÚV ásamt Gunnari
Helgasyni. Urðu þeir félagar fljót
lega þekktir sem tvíeykið Gunni og
Felix, sem flest börn tíunda áratugar
ins kannast eflaust við. „Ég var ekk
ert voðalega spenntur þegar ég fékk
boð um að taka við Stundinni okkar,
en ákvað að ég væri til í að gera þetta
með Gunna. Við áttum þá báðir ung
börn og höfðum sterkar skoðanir á
barnaefni. Þá fór þessi bolti að rúlla
og ég datt í kjölfarið inn í barnaleik
rit.“
25 ára þegar blaðran sprakk
Þó að Felix eigi líffræðilega bara eitt
barn, þá segist hann alltaf eiga tvö,
enda hefur hann alið upp dóttur eig
inmanns síns frá því hún var pínu
lítil og lítur á hana sem sína eigin.
Soninn Guðmund eignaðist Felix
rétt rúmlega tvítugur með þáverandi
eiginkonu sinni, en þau voru gift í
tvö ár. Felix vissi vel á þeim tíma að
hann væri samkynhneigður, en átti
erfitt með að sætta sig við þá stað
reynd. Hann var í mikilli afneitun
og streittist á móti tilfinningum sín
um. En það kom að því að hann varð
sættast við sjálfan sig, viðurkenna
samkynhneigðina fyrir sjálfum sér –
og fyrir öðrum í kjölfarið. „Ég var 25
ára þegar sú blaðra sprakk. Þá var ég
að stíga mín fyrstu skref inn í leiklist
arbransann þannig að þetta var mik
ill umrótatími í mínu lífi. Þetta hafði
lengi grasserað í mér en ég hafði
aldrei rætt það við nokkurn mann.“
Lokaði á tilfinningarnar
Felix segir það ferli að koma út úr
skápnum vera mjög merkilegt, en
jafnframt erfitt fyrir þá sem ganga í
gegnum þá lífsreynslu. „Það er erfitt
þegar maður áttar sig á því að þess
um hluta af manni sjálfum verður
ekki breytt. En því fyrr sem það ger
ist, því betra. Að koma út úr skápnum
þýðir að maður þarf að losa sig við
gagnkynhneigða sjálfsmynd. Losa
sig við brynjuna. En maður er algjör
kvika á meðan maður er að taka upp
nýja sjálfsmynd,“ segir Felix til að
reyna að útskýra hve varnarlausir og
viðkvæmir einstaklingar sem eru ný
komnir út úr skápnum geta verið.
„Í mínu tilfelli var það þannig að
ég hafði vitað þetta frá unglingsaldri,
en var ákveðinn í að ég ætlaði aldrei
að verða eins og þetta vesalings fólk,
eins og talað var um samkynhneigða
á þeim tíma. Ég fann það um leið og
ástartilfinningar fóru að kvikna, að
svona var þetta, en ég var ákveðinn
í að loka þær tilfinningar inni og að
enginn fengi að vita neitt. En þegar
ég og Ásdís, barnsmóðir mín, vorum
búin að gifta okkur og eignast Guð
mund þá fann ég að þetta gat ekki
gengið. Þá þurfti ég að horfast í augu
við hana hvað það varðaði. Þetta var
mjög erfitt og persónulegt ferli,“ segir
hann einlægur um uppgjörið við
sjálfan sig.
„En þegar öllu er á botninn hvolft
þá gekk ferlið mjög vel. Ég fékk strax
mikinn stuðning frá vinum og fjöl
skyldu. Og ég og Ásdís höfum átt
mjög gott samband. Við sameinuðu
mst um að það skipti mestu máli að
syni okkar liði vel.“ Áður en Felix steig
skrefið til fulls og sagði barnsmóður
sinni hvernig í pottinn var búið,
hafði hann rætt kynhneigð sína við
bróður sinn. „Það var stórt skref en
þegar ég var búinn að opna á þetta
við hann, þá var ferlið ekki stöðvað.
Boltinn fór að rúlla. Hann hafði ver
ið efst á fjallstindinum og það þurfti
bara aðeins að ýta við honum. Þá
rúllaði hann fram af.“
Enginn feluleikur
Felix segist aldrei hafa upplifað for
dóma að neinu ráði en honum hafi
þó verið gert ljóst af ákveðnum
einstaklingum að hann ætti ekki að
ræða mikið um kynhneigð sína opin
berlega. Það myndi eyðileggja fyrir
honum í leiklistinni. Hann hefur
hins vegar ekki orðið var við það. „Ég
er bara þannig gerður að eftir að ég
kom út þá hef ég viljað hafa hlutina á
hreinu. Við Baldur fundum það strax
gagnvart börnunum okkar, þegar
við byrjuðum saman, að við vildum
ekki neitt vesen. Það var allt uppi á
borðum og enginn feluleikur. Það
var alltaf á hreinu að á okkar heim
ili byggju tveir pabbar með börn
in sín. Það máttu allir vinir koma
í heimsókn og það var aldrei neitt
vandamál. Þegar viðhorfið er þannig
þá verður allt mjög eðlilegt.“
Felix og Baldur voru með börnin
til jafns við mæður þeirra, og gættu
þess að þau væru alltaf á heimilinu á
sama tíma svo þau upplifðu sig sem
systkini. Þá bjuggu fjölskyldurnar í
sama hverfinu og heimilin voru opin
börnunum hvenær sem var. „Ef við
vorum heima þá komu þau kannski
við og fengu kaffi eftir skóla, þó að
þau ættu ekki að vera hjá okkur. Það
voru alltaf opnar dyr og það var frá
bært að hafa það þannig.“ Börnin
tóku svo ákvörðun um það sjálf
þegar þau voru sextán ára að vilja
bara búa á einum stað og úr varð að
þau fluttu bæði inn á heimili Felix og
Baldurs. Þar var meira pláss og þau
voru nær skólanum.
Þykir of „straight“
Felix og Baldur hafa verið saman
í um tuttugu ár og voru báðir til
tölulega nýkomnir út úr skápnum
þegar þeir kynntust. „Við kynntu
mst á 22, þeim góða stað. Við byrj
uðum að tala saman við barinn á 22
og höfum verið að tala saman síðan,“
segir Felix sposkur á svip. „Við áttum
sameiginlega reynslu og höfum verið
sálufélagar frá því að við kynntumst.
Við höfum svipaða lífssýn og okk
ur gengur vel að láta lífið ganga upp
eins og við viljum hafa það.“
Felix er þeirrar skoðunar að for
dómar geti verið valkvæð upplifun.
Og að viðhorfið skipti miklu máli.
„Maður getur dvalið í því að mað
ur sé ekki að fá ákveðna hluti af því
einhverjir sjái mann á ákveðinn hátt.
Eða maður getur valið að gera það
sem mann langar, alveg sama þó að
einhverjir hafi einhverja skoðun á
manni. Viðhorf einstaklinga sem eru
aðeins eldri en ég, og tóku virkan þátt
í réttindabaráttu samkynhneigðra,
eru gjarnan þannig að allir séu for
dómafullir. En því virðist vera öfugt
farið hjá yngra fólki. Ég komst að
því þegar ég kynntist Félagi hinseg
in stúdenta í háskólanum. Þau gengu
bara út frá því að enginn væri for
dómafullur. Það gerir lífið svo miklu
auðveldara að hafa það viðhorf. Ég
hef alltaf fengið að gera það sem mig
hefur langað til að gera. Kannski af
því að ég hef bara tekið mitt pláss og
er ekkert að biðjast afsökunar, enda
alveg ástæðulaust að gera það.“ Felix
segir börnin sín heldur ekki hafa
upplifað fordóma eða teljandi erfið
leika yfir því að eiga tvo feður. Og er
hann mjög þakklátur fyrir það.
„Fólk hefur auðvitað skoðanir
á mér og því er frjálst að hafa þær
skoðanir. En ef ég hef einhvers stað
ar verið dæmdur hart þá er það í
samfélagi samkynhneigðra. Það
fer í taugarnar á sumum að ég tali
svona eða hinsegin. Ég hef til dæm
is fengið á mig þá gagnrýni að vera
of „straight,“ segir Felix og skellir
upp úr. Og blaðamaður gerir slíkt
hið sama, enda hljómar þessi gagn
rýni ansi kostulega. „Ég hef fengið að
heyra að ég gangi of mikið inn í hinn
gagnkynhneigða lífsstíl og að ég sé
ekki nógu uppreisnargjarn,“ bætir
hann við.
Skrýtið að segja sögu Sjonna
Líkt og áður sagði hefur Felix ekki
skort verkefni í gegnum tíðina og
hefur hann verið þeirrar gæfu að
njótandi að geta valið það sem hon
um líst best á. Árið 2011 bauðst hon
um að vera fjölmiðlafulltrúi íslenska
Eurovisionhópsins, þegar Vinir
Sjonna kepptu fyrir Íslands hönd. En
Felix og Sigurjón Brink, betur þekkt
ur sem Sjonni, voru vinir. „Það var
ákveðið að fara með hóp af stað til
að klára verkefnið sem hann byrjaði
á. Hóp vina. Það var ótrúlega skrýtið
og sérstakt. Og í rauninni magnað,“
segir Felix einlægur. En ein af hans
uppáhalds minningum í tengslum
við keppnina hingað til, er þegar
Vinir Sjonna komust upp úr undan
úrslitunum. „Það var rosalega stórt
móment. Ég var auðvitað búinn að
vera að selja þessa sögu þarna úti
og það var mjög sérkennilegt. Þetta
snýst alltaf um að segja einhverja
sögu. Og við vorum að segja söguna
af dauða Sjonna og hvers vegna við
vorum þarna,“ útskýrir Felix.
„Ég hafði fram að þessu aldrei
sýnt keppninni sérstakan áhuga. Það
kom reyndar einhvern tíma til greina
að ég syngi lag í keppninni, en það
gekk ekki upp.“ En eftir að hafa far
ið út sem fjölmiðlafulltrúi varð ekki
aftur snúið. Felix gjörsamlega sogað
ist inn í þennan ótrúlega heim sem
hefur orðið til í kringum Eurovision
keppnina. Árið 2013 fór hann í fyrsta
skipti út sem kynnir og hefur verið í
því hlutverki síðastliðin þrjú ár. „Ég
er búinn að kynnast ansi mörgum og
virkilega nýt þess að hitta fólk héðan
og þaðan úr heiminum. Eurovision
er stórmerkilegt fyrirbæri á svo
margan hátt. Þetta er auðvitað sjón
varpsþáttur og keppni í tónlist, sem
er mjög hlægilegt, en á sama tíma
er þetta stórmerkilegt friðarverk
efni, sem var sett af stað tíum árum
eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar.
Þetta hefur heilmikið að gera með
Evrópusamrunann og samvinnuna
og endurspeglar oftar en ekki þá
pólitík sem er í gangi í álfunni. Það
sem kemur held ég flestum á óvart
sem komast í kynni við keppnina, er
hvað það er margt hæfileikaríkt lista
fólk sem tekur þátt.“
Alltaf fengið sterk viðbrögð
Felix hefur tekið hlutverk sitt sem
kynnir mjög alvarlega og leggur sig
allan fram við að skila því af sér af
fagmennsku. Hann leggur mikið upp
úr góðu handriti sem hann vinnur
í fram á síðustu stundu. Allt svo Ís
lendingar heima í stofu fái allar
nauðsynlegar upplýsingar um kepp
endurna, en jafnframt áhugaverða
og skemmtilega fróðleiksmola. En
Felix hefur vissulega líka sætt gagn
rýni sem kynnir, enda Eurovision
Íslendingum mikið hitamál, þó að
fæstir vilji viðurkenna áhugann á
keppninni. Það má ekkert klikka.
En miðað við umræður á samfélags
miðlum í ár virðist fólk hafa verið
sammála um að Felix hafi staðið sig
vel. Hann gerði það besta úr stöð
unni þó að við kæmumst ekki upp
úr undankeppninni. Hélt gleðinni
gangandi, sem smitaðist yfir í
Eurovisionpartíin.
„Ég hef alltaf fengið mjög góð og
sterk viðbrögð. Sérstaklega í ár. En
það er kannski af því að við vorum
ekki með Íslendinga í úrslitum og ég
var eini Íslendingurinn í úrslitunum.
Fólk var því líklega meira að fylgjast
með því sem ég var að gera, en venju
lega. Fólk virðist hafa haft gaman af
húmornum og bröndurunum, og
auðvitað upplýsingunum líka,“ segir
Felix þakklátur. En hann tók meðvit
aða ákvörðun um að snúa vonbrigð
unum yfir því að komast ekki áfram
yfir í jákvæðni, að hætti Pollýönnu.
„Ég fékk einmitt mjög fallegar kveðj
ur frá fólki þar sem börn á heimilinu
voru gjörsamlega eyðilögð yfir því að
María komst ekki áfram. Mér tókst
að snúa viðhorfi þeirra, þeim leið
miklu betur og þau gátu notið þess
að eiga laugardagskvöldið með fjöl
skyldunni.“
Stundum sjálfsgagnrýninn
Þó Felix virðist alltaf vera glaður og
brosandi vill hann meina að hann sé
óttalegur tuðari sem eigi sínar nei
kvæðu stundir. Hvort sem fólk trúir
því eða ekki. Hann viðurkennir þó
fúslega að alltaf sé stutt í brosið. „Ég
get verið mjög sjálfsgagnrýninn og á
það til að rífa mig niður. Ég er samt
alltaf að vinna í því. En mín persóna
út á við er jákvæð og ég reyni að vera
jákvæður. Ég er lífsglaður og finnst
gaman að vera til. Það er alltaf eitt
hvað spennandi handan við horn
ið og þannig hefur það verið hjá
mér alla tíð,“ segir Felix að lokum og
brosir einlægt. n
„Ég er lífsglaður og
finnst gaman að
vera til.
„Það var alltaf
á hreinu að
á okkar heimili
byggju tveir pabbar
með börnin sín
Brosmildur Brosið og lífsgleðin einkennir
Felix. Hann segist þó geta verið óttalegur
tuðari sem eigi sínar neikvæðu stundir.