Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2015, Page 46

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2015, Page 46
38 Lífsstíll Helgarblað 29. maí–1. júní 2015 Sími 568-5556 www.skeifan.is Föst sölulaun Sölulaun eigna yfir 60 milljónum aðeins 1% með vsk upp að 60 milljónum 299.900.- með vsk VantaR – VantaR Vegna mikillar sölu vantar allar stærðir eigna á skrá. Eysteinn Sigurðsson Löggiltur fasteignasali / Sími: 896-6000 eysteinn@skeifan.is / skeifan.is Magnús Hilmarsson Sölumaður / Sími: 896-6003 magnus@skeifan.is / skeifan.is Sigurður Hjaltested Löggiltur fasteignasali / Sími: 821-5400 sigurdur@skeifan.is / skeifan.is Sími 568- 5556 www .skeifan.is A lma Ágústsdóttir er 20 ára gömul. Hún var að leggja lokahönd á stúdentspróf frá Menntaskólanum við Hamrahlíð en gerði sér lítið fyrir og tók samtímis þátt í al- þjóðlegri ræðukeppni í London. Ræðukeppnin var frumraun Ölmu á þessu sviði en stúdínan frá litlu eyjunni lét það ekki stoppa sig heldur sigraði hún í keppninni með stæl. ESU (English Speaking Union) eru samtök með aðsetur víða um heim. Þau lönd sem eru með ESU- stöðvar geta tekið þátt í alþjóð- legri ræðukeppninni á vegum samtakanna sem nefnist IPSC (International Public Speaking Competition). Í janúar kynnti enskukennari Ölmu í MH keppnina fyrir nem- endum sínum en þann 21. febrúar var fyrirhuguð keppni hér á landi. Sigurvegari hérlendis hlaut í verð- laun ferð og þátttöku í alþjóðlegu keppninni í London. Það var þó ekki fyrir tilstilli Ölmu að hún tók þátt heldur var það vinkona henn- ar sem sá þar leik á borði og benti kennaranum á Ölmu sem mögu- legan keppanda. „Vinkona mín talaði við kennar- ann og sagði að hún héldi að ég yrði góð í þessu. Kennarinn kom svo til mín eftir tímann og spurði hvort ég vildi taka þátt. Mér fannst verð- launin eftirsóknarverð og ákvað því að slá til. Ég var mjög stressuð þegar ég flutti lokaræðuna hérna heima og man eiginlega ekki eftir að hafa flutt hana. Þar af leiðandi fannst mér eins og hún hafi ekki gengið vel. Allt kom þó fyrir ekki og ég vann keppnina, mér til mik- illar ánægju.“ Umkringd frábæru fólki Keppnin úti í London fór svo fram um svipað leyti og Alma skilaði lokaverkefnum sínum til stúdents prófs þ.e. 11.–15. maí. 50 keppendur frá 48 löndum tóku þátt í keppninni og lýsir Alma ver- unni úti sem eintómri skemmtun. „Þetta er það skemmtilegasta sem ég hef gert hingað til. Ég var umkringd frábæru fólki sem ég kynntist afar vel enda vorum við öll að upplifa svipaða hluti. Mér fannst ótrúlega gaman að koma til London fyrir utan hvað þetta form þ.e. að flytja ræður á ensku hentaði mér vel.“ Móðir Ölmu er leikkona og faðir hennar er enskukennari. Alma hefur því fengið uppeldi sem hún segir að hafi svo sannarlega nýst henni á þessu sviði. „Ég hef aldrei tekið þátt í Morfís eða innanskólaræðukeppninni í MH en ég er vön að koma fram, bara ekki undir þessum kringum- stæðum. Ég hef sem sagt aldrei keppt í ræðukeppni fyrr. Aftur á móti er ég þjálfuð í klassískum söng og hélt lengi vel að mig lang- aði til þess að verða leikkona. Ég hef þess vegna tekið þátt í nokkrum leikhúsuppsetningum og er umkringd leikurum. Mamma mín er leikkona og hefur í gegn- um tíðina þjálfað mig í framkomu við ýmsar aðstæður. Svo er pabbi minn enskukennari og við byrjuð- um snemma að lesa saman bækur á ensku,“ segir Alma aðspurð um reynslu sína af ræðuhöldum sem blaðamaður hélt að væri nauðsyn- legur grunnur fyrir sigurvegara í ræðukeppni á borð við þá sem Alma vann fyrr í mánuðinum. Alma bætir við að henni hafi oft verið hugsað til upplestrarkeppn- innar sem hún vann í 7. bekk og segir þá reynslu hafa hjálpað sér enda keppnirnar ekki alls ósvip- aðar. Munurinn var þó helst sá að í 7. bekk las hún upp texta eftir aðra en í ræðukeppninni las hún upp ræður sem hún skrifaði sjálf. Stressið erfiðast „Skemmtilegast þykir mér að finna nálgun á umræðuefnið sem mér finnst sjálfri áhugavert. Ég get ekki ætlast til þess að öðrum þyki ræðan mín góð ef mér finnst það ekki sjálfri. Þess vegna eyddi ég löngum stundum í þennan þátt þegar ég var að skrifa textana mína og fannst það rosalega gaman.“ Og þó að Alma beri það ekki með sér þá getur hún stressast upp eins og flestir aðrir myndu gera í tengslum við ræður og rök í alþjóðlegu umhverfi. „Mér finnst erfiðast að halda ró og leyfa stressinu ekki að koma. Annað- hvort verð ég rosalega stressuð eða alls ekki neitt. Ef ég er dugleg að anda þá neyði ég líkamann til þess að slaka á en þetta er eigin- lega svona annaðhvort eða. Þegar ég flutti lokaræðuna mína úti í London náði ég að bægja frá mér stressinu og þess vegna veit ég að hún gekk rosalega vel.“ Og það er ekki annað hægt en að taka undir með nýstúdentinum því hún kom, sá og sigraði í London. En hvað tekur nú við og hvert stefnir Alma á komandi misserum? „Þetta er svo stórt og ég átti ekki von á þessu. Keppnin hefur haft víðtæk áhrif á mig og nú langar mig ekki að verða leik- kona heldur er ég að vona að þessi keppni geti hjálpað mér að fá skólastyrki því mig langar að læra meiri ensku í skóla í Bretlandi. London er efst á listanum eftir þessa reynslu.“ Það verður án efa forvitnilegt að fylgjast með þessari duglegu stelpu takast á við komandi verk- efni, óháð því á hvaða leiksviði þau verða. n Út fyrir kassann Kristín Tómasdóttir skrifar „Skemmtilegast þykir mér að finna nálgun á umræðuefnið sem mér finnst sjálfri áhugavert. „Það skemmti- legasta sem ég hef gert“ n Alma sigraði í alþjóðlegri ræðukeppni í London n Aldrei áður tekið þátt í slíkri keppni Með verðlaunagripinn Alma gerði sér lítið fyrir og sigraði í keppninni, þrátt fyrir að hafa nóg að gera í stúdentsprófunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.