Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2015, Page 51

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2015, Page 51
Helgarblað 29. maí–1. júní 2015 Opið virka daga 10 - 18, laugard. 11 - 16, sunnud. 14 - 16 Rauðarárstígur 12 - 14 sími 551-0400 www.myndlist.is Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið virka daga 10–18, laugard. 11–14, sunnud. lokað Við leitum að listaverkum erum að taka á móti verkum á næsta listmunauppboð sem fer fram í mars Við leitum að verkum eftir frumherjana í íslenskri myndlist. Sérstaklega eftir Ásgrím Jónsson, Jóhannes S. Kjarval, Kristínu Jónssdóttur, Louisu Matthíasdóttur, Þórarinn B. Þorláksson, Svavar Guðnason og Nínu Tryggvadóttur. Ennfremur er mikil eftirspurn eftir verkum Georgs Guðna, Kristjáns Davíðssonar, Gunnlaugs Blöndal og Gunnlaugs Scheving. Áhugasamir geta haft samband í síma 551-0400 vefuppboð nr. 105 myndlist lýkur 11. mars Við leitum að verkum eftir frumherjana í íslenskri myndlist. Sérstaklega eftir Ásgrím Jónsson, Jóhannes S. Kjarval, Kristínu Jónssdóttur, Louisu Matthíasdóttur, Þórarinn B. Þorláksson, Svav r Guðnason og Nínu Tryggvadóttur. Ennfremur er mikil eftirspurn eftir verkum Georgs Guðna, Kristjáns Davíðssonar, Gunnlaugs Blöndal og Gunnlaugs Scheving. Áhugasamir geta haft samband í síma 551-0400 Erum að t ka á móti verkum á næsta listmunauppboð VEFUPPBOÐ Þrívíð verk og textílar Vefuppboð nr. 167 á þrívíðum verkum og textílverkum stendur til 3. júní Finnbogi Pétursson Alfreð Flóki Guðmundur Einarsson Guðjón Ketilsson Menning 43 tónlistinni er sprottinn af sömu rót; þrá eftir fegurð. Því meira sem mað­ ur skoðar lífið, því fallegra finnst manni það. Ekkert er fallegra en líf­ ið. Og þegar heimurinn sem birt­ ist manni í smásjá er skoðaður, þá áttar maður sig enn betur á mikil­ fengleikanum,“ segir Kristinn sem er augljóslega maður sem leitar að fegurðinni í lífinu, ef ekki í gegnum tónlistina, þá í gegnum lífveruna, manneskjuna og tilfinninguna sem henni fylgir. „Það mætti segja að ég sé dekadent fagurkeri,“ bætir Kristinn við og hlær. Hann segir að söngur­ inn hafi þó fljótt yfirtekið líf hans. „Ég var í söngnámi hjá öðlingnum Guðmundi Jónssyni samhliða námi og vinnu,“ segir hann. „Ég ætlaði að starfa sem söngvari á Íslandi, en konan mín sagði mér að það myndi enginn taka mig alvarlega nema ég færi til útlanda í nám.“ Krist­ inn hlýddi því. Í fyrstu fór hann til Austur ríkis og síðar Bandaríkjanna. „Og síðan hef ég verið í harkinu,“ segir Kristinn sposkur á svip. Vill helst ekki hætta Kristinn hefur sungið í helstu óperu­ húsum heims og má þar nefna Metropolitan­óperuna í New York, Staatsoper í Vínarborg, La Scala í Mílanó, Covent Garden í London, Opéra National í París, Deutsche Oper og Staatsoper í Berlín, Royal Albert Hall í London og Concert­ gebouw í Amsterdam. „Ég hef verið heppinn,“ segir hann um feril sinn í tónlistinni. „Ég er sennilega með þeim elstu sem ganga á fjölum óperuhúsanna.“ Hann er þakklátur fyrir að geta enn starfað við það sem hann hefur unun af og áréttar að hann líti ekki á sig sem gamlan. Hann segir þó lífsbar­ áttuna í óperuhúsunum erfiða fyr­ ir roskna menn, enda sé samkeppn­ in hörð. „Það er til bíómynd sem heitir No country for old men. Um óperu heiminn má segja: This is no profess ion for old men,“ segir Krist­ inn og hlær. Hann segir þó að bass­ ar endist lengur en aðrir söngvar­ ar vegna þess hve bassaröddin sé nálægt talröddinni. Auk þess túlka bassar oft eldri og ráðsettari menn. En hvað með heilsuna? „Hún er góð,“ svarar Kristinn sem telur sig eiga nóg inni. „Ég vil helst ekki hætta að syngja á meðan heilsan leyfir.“ Vill syngja nútímatónlist „Það er svo margt sem ég á eftir,“ segir Kristinn. Aðspurður hvað hon­ um finnist hann eiga eftir, er Kristinn fljótur að svara: „Meiri nútímatón­ list, til dæmis.“ Hann nefnir einnig stærri óperu­ verk sem hann eigi eftir að kynnast. Það er þó erfitt að ímynda sér að þau séu mörg hlutverkin sem Kristinn eigi eftir að syngja, en hann hefur starfað sem óperusöngvari í rúmlega 30 ár. Og hann hefur verið gífurlega afkastamikill, aðdáendum hans til mikillar gleði. „Síðast þegar ég taldi þetta saman þá reiknaðist mér til að ég væri búin að syngja um 80 óperu­ hlutverk.“ Rótleysið mínus Kristinn syngur að mestu leyti úti í löndum og hefur gert síðustu ára­ tugina. Líf hans hefur því verið mik­ ið í ferðatöskunni þó að hann sé bú­ settur hér á landi. „Á tímabili var ég um þrjá mánuði á ári hér á landi,“ segir hann en árétt­ ar að stundunum hér heima fari fjölgandi. Þetta er lýjandi lífsstíll að sögn Kristins. „En ekki misskilja mig, ég er ekki að kvarta,“ segir hann og heldur áfram: „Þetta venst þó aldrei alveg. Bara það að geta ekki sofið í eigin rúmi er þreytandi. Þetta rót­ leysi er eini mínusinn.“ Kristinn segist enn búa yfir sterkri þörf til þess að syngja ný verk. Það drífi hann áfram. „Þetta er drauma­ starf. Ég get ekki sagt annað en að ég sé ofdekraður,“ segir hann. Endurnærir sig í veiðinni Hvað tekur þá við? „Sumarfrí,“ segir Kristinn. Svo man hann skyndilega eftir því að áður en hann kemst í langþráð frí ætlar hann að syngja á heiðurstón­ leikum Jóns Hlöðvers Áskelssonar á Akureyri. Þar ætlar hann að syngja tólf ljóð eftir Böðvar Guðmundsson, eitt ljóð fyrir hvern mánuð. „Svo fer ég í sumarfrí,“ segir Krist­ inn. Spurður hvort hann hyggist veiða, en Kristinn er forfallinn stangveiðimaður, svarar hann ját­ andi. „Mér finnst afskaplega róandi að vera úti í náttúrunni með stöng. Þannig næ ég að endurnæra mig,“ segir söngvarinn sem finnur frið í líf­ inu. Í vetur taka erlendu óperuhús­ in við. Þá mun hann meðal annars syngja hlutverk yfirdómara rann­ sóknarréttarins í Don Carlo eftir Giuseppe Verdi í óperunni í Ham­ borg. Forsetakosningar eru nærri en nafn Kristins hefur verið nefnt í því samhengi oftar en einu sinni. Blaða­ maður stenst ekki mátið og spyr hann hvort það sé eitthvað sem hann hafi áhuga á að gera. Kristinn hlær og segir að lokum: „Ég verð að gefa sama svar og síðast þegar ég var spurður, ég hef ekki tíma til þess.“ Tónleikarnir, sem bera yfirskrift­ ina „Og þökk sé margri morgunbjartri svipstund“ verða haldnir sunnu­ daginn 31. maí næstkomandi. n „ Í raun er lífið það fallegasta sem til er. Og þegar heimurinn sem birtist manni í smá- sjá er skoðaður, þá átt- ar maður sig enn betur á mikilfengleikanum. Kristinn Sigmundsson Kristinn segist hafa verið heppinn sem tónlistar- maður. Fyrir það sé hann þakklátur. mynd SigtRygguR aRi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.