Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2015, Qupperneq 54

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2015, Qupperneq 54
46 Menning Helgarblað 29. maí–1. júní 2015 Xprent ehf - Sundaborg 1 - 104 Reykjavík - Sími 777-2700 - email:xprent@xprent.is Harmleikur á torgi Vorlík er glæpasaga eftir Svíann Mons Kallentoft. Sprenging verður á torgi í Linköping með tilheyrandi harmleik. Lögreglukonan Malin Fors rannsakar málið. Bækur Kallentoft um Malin hafa selst í rúmlega einni milljón eintaka og verið þýddar á 24 tungumál. Fjöll við byggð Þorsteinn Jakobsson er höfundur útivistarbókarinnar Íslensk bæjar- fjöll. Eins og titill bókarinnar gef- ur til kynna er í henni fjallað um fjöll á Íslandi við byggð. Sagt er frá hverju fjalli fyrir sig, gönguleiðum og helstu einkennum. Nokkur hundruð ljósmyndir eru í bók- inni. Höfundarlaun Þorsteins fyrir bókina renna til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. Lömbin fagna n Kvikmyndin Hrútar var frumsýnd í vikunni L íklega hefur fárra íslenskra bíómynda verið beðið með jafn mikilli eftirvæntingu og þessarar síðan í árdaga kvik- myndavorsins. Meira að segja fúli hollenski gagnrýnandinn á Stockfish-hátíðinni átti ekki til orð af hrifningu eftir að hafa séð brot úr myndinni, og síðan hefur hún feng- ið það sem samsvarar páfablessun á kvikmyndahátíðinni í Cannes. En það er meira hér sem minnir á sauðburðinn sem hófst með Landi og sonum árið 1979. Siggi Sigurjóns er kominn aftur í sveitina, en í stað þess að skjóta hross er hann hér að skjóta kindur með tárin í augun- um. Þar var sagt frá bændum sem neyddust til að flykkjast á mölina í kreppunni, en hér segir frá þeim fáu eftirlegukindum sem enn hanga í sveitinni. Í millitíðinni hefur allt breyst, og ekkert. Íslensk kvikmyndagerð fór ágæt- lega af stað á 9. áratugnum, en eftir því sem tæknileg þekking jókst á þeim 10. var eins og hún lenti á villigötum. Þær bestu voru sveita- myndir (Börn náttúrunnar) eða al- íslenskar grínmyndir (Sódóma, Ís- lenski draumurinn) en þær verstu (Blossi, Nei er ekkert svar) reyndu að leika eftir Hollywood eins og hljómsveitin Change að leika Bay City Rollers. Nói albínói kom með nauðsynlega leiðréttingu, en samt var eins og menn væru oftast að stæla erlendar myndir eða gera póstkortamyndir (djamm í Reykja- vík í bland við náttúrulýsingar) sem svo augljóslega voru ætlaðar til út- flutnings að það gat ekki tekist. Og Björk, bara … Það er kannski fyrst á þessum ára- tug að tækni og saga eru farin að vinna saman. Hross í oss og Hrútar hefðu hvorki getað gerst eða verið gerðar annars staðar, og það sama gildir reyndar um stórborgarsöguna Fúsa. Og kannski eins og íslensk popptónlist hefði fyrst þurft að stæla aðra áður en hún fann sinn eigin hljóm sem gat sigrað heiminn með Björk og öllum hinum, þá er nú röðin kominn að íslenskum kvik- myndum. Hrútar varast hinar hefðbundnu gryfjur íslenskrar kvikmyndagerðar sem felast í að ofkeyra dramatíkina eða ofútskýra hlutina. Með því að spila á dýpri strengi verða til kostu- leg atriði á borð við lögfræðinginn sem fær ekkert kaffi án þess að vera boðið eða biðja um, en áhorfendur hlæja samt. Hrútar talar annars sínu máli sjálf og óþarfi er að þylja upp hinar mörgu góðu senur, þó að sérstaklega megi nefna jóla- veislu bóndans. Og líklega verður nógu lofi hlaðið annars staðar á lág- stemmdan en um leið tjáningarfull- an leik Sigurðar eða þá leikstjórn Gríms, og eru þeir vel að því komnir. Við skulum því frekar eyða plássinu í sögulegan samanburð á tímamót- um sem þessum. Já, og Laxness og Njála líka Og fyrst við erum að þessu er alveg eins gott að draga Laxness fram, því enn er samband manns og sauð- kindar það sem best táknar lífsbar- áttuna í þessu harðbýla landi okk- ar, og hvernig í fjandanum myndi Bjartur bregðast við riðu í fénu? Lík- lega einhvern veginn svona. Ekki er hér verið að lýsa Íslandi í dag heldur Íslandi alltaf, góðæri og hrun koma sveitinni lítið við, baráttan hér er eilífari en það. Og hvers vegna ekki bara að slengja Njálu inn í þetta líka? Hrútur deilir við bróður sinn um móðurarf- inn og ber er hver að baki nema sér bróður eigi, eins og segir þar af öðru tilefni. Tveir bræður deila hér líka, við fáum ekki að vita ástæðuna enda liggur það í hlutarins eðli að hún er í engu samræmi við heiftina, en arfur kemur eitthvað við sögu. Ástarsaga úr fjöllunum Ást milli karls og konu er „so '90s.“ Disney-myndin Frozen, ein vin- sælasta mynd síðasta árs, fjallaði ekki um prins og prinsessu held- ur tvær systur, og jafnvel í Mad Max verður enginn ástfanginn. Það sama á við um íslenskar kvikmyndir þessa dagana, í Fúsa segir frá sambandi sem verður að vináttu, í Hross í oss frá sambandi manna og hrossa, og voru þau ekki bara vinir í Vonar- stræti líka? Í Hrútum segir vissulega frá nokkurs konar ástarþríhyrning, annars vegar er um að ræða ástar- og haturssamband bræðranna tveggja og hins vegar samband hvors um sig við sauðféð sem öllu máli skiptir. Líkamlegur losti er að- eins til í réttunum. Og þó verður samband þeirra líkamlegt á sinn hátt áður en yfir lýkur, gott ef þeir skríða ekki aftur inn í móðurkviðinn og liggja naktir hlið við hlið eins og ófæddir tvíburar. Endar myndin því ekki á jarðarför eins og til stóð held- ur öfugri fæðingu. Það sem Hrútar kennir okkur þó fyrst og fremst er nauðsyn þess að byrja með góða hugmynd, einstaka hugmynd sem fæst ekki með því að herma eftir heldur með því að hugsa það í gegn sem verið er að gera. Að öðrum ólöstuðum er það því fyrst og fremst handritshöfundurinn Grím- ur Hákonarson sem á hrós skilið, því án góðs handrits fer öll sú mikla vinna sem annars er lögð í að gera kvikmyndir fyrir lítið. n „Hrútar varast hin- ar hefðbundnu gryfjur íslenskrar kvik- myndagerðar sem felast í að ofkeyra dramatíkina eða ofútskýra hlutina. Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Kvikmyndir Hrútar IMDb 8,4 Metacritic 83 Handrit og leikstjórn: Grímur Hákonarson Aðalhlutverk: Sigurður Sigurjónsson og Theodór Júlíusson 93 mínútur Sigurður Sigurjónsson Siggi Sigurjóns leikur eitt af aðalhlutverkum myndarinnar. L jósmyndarinn Spessi Hall- björnsson opnar á morgun, laugardag, ljósmyndasýningu í Gallerí Listamenn Skúlagötu 32 í Reykjavík. Sýningin samastend- ur af portrettmyndum Spessa en í tilkynningu segir að á sýningunni sé engu líkara en viðfangsefnið, umhverfið og væntingar ljós- myndarans renni saman í eina órofa heild. Myndirnar eru tekn- ar á Fogo Island við Nýfundnaland á austur strönd Kanada. Á eyjunni eru ellefu fiskimannasamfélög inn- flytjenda frá Bretlandseyjum sem settust þarna að til að veiða fisk þar til þorskstofninn hrundi fyrir um þremur áratugum. Punktar voru málaðir á hurðir fiskiskúranna til að hjálpa sjómönnum að rata rétta leið í morgunmuggunni, ólæsi var algengt og sjómennirnir lögðu öll mið og leiðarlýsingar á minnið. Nú hrærist fólkið í minningum um horfna tíma. Spessi lagði stund á ljósmyndun við AKI – Akademie voor Beeldende Kunst – í Hollandi og útskrifaðist þaðan 1994. Verk hans hafa verið sýnd á fjölmörgum einka- og samsýningum hér á landi og erlendis. n valur@dv.is Myndar íbúa eyjunnar Fogo Myndirnar eru teknar á Fogo Island við Nýfundnaland Frá Fogo Hér má sjá eina mynd sem Spessi tók af íbúum eyjunnar Fogo. MyND SpeSSI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.