Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2015, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2015, Qupperneq 2
Helgarblað 7.–10. ágúst 20152 Fréttir Sársauki minnkar strax • Kaldur gelsvampur & gel • Lækkar hita í brunasárum um 6-7 °C • Gelsvampur helst vel á, dettur ekki af • Tea Tree & Lavender - sótthreinsar, róar & deyfir • Sterílar umbúðir Virkar á sviða og sársauka af: sólbruna - skordýrabiti brenninettlum - húðflúrum laser og núningsbruna Fæst í apótekum. Celsus ehf. www.celsus.is AbsorBurn® Kælir brunasár, hratt og lengi Frjáls eins og fuglinn í 3.000 metra hæð Rafvirkinn Ágústa Ýr Sveinsdóttir hefur náð góðum árangri í svifvængjaflugi upp á síðkastið Þ etta er svipuð tilfinning og maður hafði þegar maður var að róla sem barn, alveg frjáls og æðislega gaman að vera hátt uppi,“ segir Ágústa Ýr Sveinsdóttir, sem hefur náð góð- um árangri í svifvængjaflugi upp á síðkastið á mótum erlendis. Hún segir að mikil friðsæld og rólegheit einkenni svifvængjaflug. „Þetta er eins og að vera í rólu í tvö til þrjú þúsund metra hæð. Þetta er aftenging á öllu sem er að gerast í kringum mann og maður er frjáls eins og fuglinn.“ Slasaðist og kastaði út varafallhlíf Ágústa Ýr lenti í þriðja sæti í byrj- endaflokki og fimmta sæti í kvennaflokki á móti sem var haldið í Makedóníu um síðustu helgi. „Þetta kom mér mjög mikið á óvart. Þetta voru frekar erfiðar að- stæður og flugmannahópurinn var sterkur,“ segir hún. Á Norður- landamóti sem var haldið á Ítal- íu skömmu áður náði hún einnig góðum árangri, eða öðru sætinu í kvennaflokki. Þar lenti reyndar for- ystusauður íslenska liðsins, Hans Kristján Guðmundsson, í hremm- ingum og slasaði sig lítillega eftir að hafa þurft að kasta út varafallhlíf. Ekkert brjálæðislega hættulegt Ágústa er 26 ára rafvirki úr Reyk- hólahreppi á Vestfjörðum. Hún byrjaði í sportinu fyrir um þremur árum eftir að hafa fengið forsmekk- inn af því í Nepal og ákvað að taka það föstum tökum í fyrra. Hún segir flugið vissulega vera hættulegt, eins og margt annað sport, en hópurinn sem stundar það hér á landi er ávallt vel útbúinn. „Ef allt fer til fjandans getur mað- ur kastað út varafallhlífinni. Þetta er ekkert brjálæðislega hættulegt. Þetta er líklega hættulegast þegar maður er að taka af stað eða lenda því þá getur maður misstigið sig.“ Vík í Mýrdal heitasti staðurinn Um eitt hundrað manns eru með réttindi til að stunda svifvængjaflug hér á landi og um helmingur þeirra stundar sportið reglulega. Konur eru um 40 prósent flugmanna, sem er óvenjuhátt hlutfall miðað við mörg önnur lönd. Erfitt getur verið að finna réttu staðina til að taka á loft vegna hins rysjótta íslenska veðurfars. „En hópurinn er stór og fólk er duglegt að hoppa upp í bíl og keyra af stað,“ segir hún. Á höfuðborgarsvæð- inu er oft flogið í Hafrafelli, Her- dísarvík, Kömbunum og á Úlfars- felli. Heitasti flugstaðurinn í dag er aftur á móti Vík í Mýrdal. „Þar eru mjög skemmtilegar aðstæður og fallegt að fljúga.“ Vinna bug á lofthræðslu Aðspurð segir hún marga loft- hrædda einstaklinga stunda svif- vængjaflug og sumir prófa það til að vinna bug á lofthræðslunni, oft- ast með góðum árangri. „Ég þekki nokkra sem segjast vera mjög loft- hræddir en það skiptir engu máli þegar þeir eru að fljúga,“ útskýrir Ágústa Ýr en bætir við að það sé dá- lítil kúnst að verða góður í sportinu. „Það geta allir lært að fljúga og njóta þess að vera í loftinu en það eru kannski ekki allir sem verða keppn- isflugmenn. Það fallega við þetta sport er að þú getur verið sáttur við að fljúga í smá stund og njóta þín á meðan aðrir vilja fljúga lengra og stefna að öðrum markmiðum,“ segir hún og nefnir að til dæmis hafi hún hitt 75 ára gamalt fólk sem njóti eft- irlaunanna með því að fljúga um heiminn, frjálst eins og fuglar. n Freyr Bjarnason freyr@dv.is „Ég þekki nokkra sem segjast vera mjög lofthræddir en það skiptir engu máli þegar þeir eru að fljúga. Í háloftunum Ágústa Ýr upplifir mikla friðsæld í háloftunum. Árétting Í vikublaði DV var að finna ítarlega umfjöllun um Reykjavíkurmaraþonið og hlaupara sem ætla sér að hlaupa fyrir gott málefni. Fyrir mistök víxluðust myndatextar bæði á forsíðu blaðsins og í greininni og fyrir vikið misritaðist nafn Ólafar Jónu Ævarsdóttur, sem hleypur fyrir MND-samtökin. Hún er beðin velvirðingar á þessu, sem og Ósk Jóhannesdóttir, sem hleypur fyrir Hringinn en nafn hennar birtist við mynd af Ólöfu á forsíðunni. Ólöf Jóna hyggst hlaupa 10 kílómetra og gerir það til að vekja athygli á MND-sjúkdómnum, en faðir hennar greindist nýverið með hann. Ólöf er ófrísk og þegar hún mun hlaupa maraþonið verður hún komin 20 vikur á leið. „Ég er bara spennt fyrir hlaup- inu. Það má alveg segja að ég sé byrjuð að æfa en ég hef verið að hlaupa smá síðustu mánuði. Maður er ekkert að fara að spretta þetta heldur gerir þetta bara ró- lega,“ sagði hún í viðtali við DV. Mynd StinatErrazaS Gripnir við ut- anvegaakstur Tveir vél hjóla menn, sem voru á leið í burtu frá landinu með Norrænu á fimmtudag, voru sektaðir fyrir utanvegaakstur rétt áður en þeir fóru um borð. Mennirnir voru gripnir við ut an vega akst ur í Vatna jök- ulsþjóðgarði af landvörðum. „Maður er búinn að gefast upp á þessu“ Lánið hækkaði úr 18 milljónum í 29 S taðan er alveg eins og hún var í fyrra,“ segir Agla Þyri Kristjáns- dóttir en í fyrrasumar birti Agla mynd af greiðsluseðli á Facebook-síðu sinni vegna íbúða- láns frá árinu 2006. Agla hafði tekið lán upp á 18 millj- ónir króna það árið en 1. september 2014 barst henni greiðsluseðill þar sem skuldin hafði uppreiknast í 29 milljónir króna og voru eftirstöðvar greiðslunnar rúmar 26 milljónir. Var Agla ósátt við að ekkert hefði bólað á aðgerðum ríkisstjórnarinnar varð- andi leiðréttingu skulda húsnæðis- lána. Samkvæmt greiðsluseðli frá 1. ágúst 2015 hefur upprunalega láns- upphæðin hækkað í 29,5 milljónir en Agla skuldar nú rúmum tveim- ur milljónum minna en áður vegna skuldaniðufellingaraðgerða ríkis- stjórnarinnar, eða rúmar 24 milljón- ir. „Það eina sem hefur gerst á síð- astliðnum ellefu mánuðum er að ég fékk skuldaniðurfellingu upp á rúm- ar tvær milljónir króna og eftirstöðv- ar lánsins eru vissulega lægri. Það breytir hins vegar engu um skuldina þótt ég hafi greitt af láninu ellefu sinnum síðan í ágúst í fyrra, það lækkar ekki neitt,“ segir Agla. „Maður er bara búinn að gefast upp á þessu. Þetta lán bara vex og vex og maður borgar bara og þeg- ir. Þegar ég verð orðin sextug og þarf að greiða lokagreiðsluna verður hún ábyggilega orðin þó nokkrir tugir milljóna,“ segir hún að lokum. n birna@dv.is agla Þyrí Segist vera búin að gefast upp þrátt fyrir skuldaleiðréttinguna. Mynd FacEBook.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.