Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2015, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2015, Page 4
Helgarblað 7.–10. ágúst 20154 Fréttir Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Þú finnur bílinn á bilo.is Skráðu bílinn á bilo.is VOLVO V70 D5 03/2004, ekinn 169 Þ.KM, DIESEL, sjálfskiptur. Verð 2.390.000. Raðnr.251428 HYUNDAI IX35 GLS 04/2011, ekinn 76 Þ.km, bensín, sjálfskiptur. Verð 2.990.000. Raðnr.285460 FORD MUSTANG COUPE Árg. 2007, ekinn 77 Þ.km, 6cyl, sjálfskiptur, leður. Verð 2.390.000. Raðnr.253791 VW GOLF PLUS 07/2005, ekinn 134 Þ.km, sjálfskiptur. Verð 880.000. Raðnr.253867 BMW 545i 10/2004, ekinn 180 Þ.km, sjálfskiptur. Verð 2.690.000. Raðnr.285338 Borgararnir stóðust prófið n Stikkprufur reyndust allar vera rétt mældar n Aðeins einn söluaðili merkti með kílóverði E ster Eir Magnúsdóttir tók eft- ir því í vikunni að 120 g ham- borgari sem hún hafði keypt í Krónunni var aðeins 90 g þegar heim var komið. Hún vakti athygli á þessu á samfélags- miðlum og í kjölfarið fór Krónan yfir alla hamborgara sem seldir eru undir þeirra merkjum til að kanna hvort fleiri hamborgarar væru vit- laust merktir. Blaðamenn DV ákváðu að gera sína eigin rannsókn og taka nokkrar stikkprufur í nokkrum versl- unum borgarinnar. Alls voru skoð- aðar sjö tegundir af hamborgurum og fór blaðamaður eftir þeim í fimm verslanir. Heimsóttar voru þrjár stórversl- anir, Hagkaup, Bónus og Krón- an, og svo tvær sérverslanir, Kjöt- höllin við Skipholt og Kjötbúðin Grensásvegi. Borgararnir voru aug- lýstir misþungir, eða á bilinu 120– 200 grömm. Hamborgarar sem keyptir voru í stórmörkuðum voru almennt tveir í pakka, en í sérversl- unum var keyptur einn. Það var einnig gert í Kjötborði Hagkaups. Hjá Kjöthöllinni fylgdi hamborgar- anum hamborgarabrauð og í pakkn- ingu frá Hamborgarafabrikkunni fylgdu tvö brauð, fabrikkusósa, salt og pipar. Fyrir vikið miðast öll verð við einn hamborgara, nema í tilfelli Hamborgarafabrikkunnar og Kjöt- hallarinnar. Hamborgararnir voru svo vigtað- ir á ritstjórnarskrifstofu DV og born- ar voru saman auglýstar þyngdir og svo vigtun blaðamanna. Borgararn- ir voru vigtaðir án umbúða og að- eins með bökunarpappír sem fylgdi þeim. Niðurstaðan var sú að allir borgararnir stóðust prófið. Þeir mældust allir innan marka og voru jafnvel nákvæmlega jafn þungir og þeir voru auglýstir. Nokkrir voru nokkrum grömmum þyngri (2–4 g). Það vakti athygli blaðamanna að aðeins einn framleiðandi merkti umbúðir eða kvittun með kílóverði, eða Kjötbúðin. Hafa ber í huga að þeir voru ekki steiktir eða grillaðir og ekki er horft til rýrnunar eftir eldun. Aðeins er verið að skoða hamborgarana óeld- aða, beint úr búðinni – jafnvel beint af nautinu. Bera við mannlegum mistökum „Okkur þykir yfirleitt mjög neikvætt þegar svona mál koma upp,“ seg- ir Hrannar Már Gunnarsson, starfs- maður Neytendasamtakanna. „Yfirleitt eru mál sem þessi var- in með því að verslunin segi að um mannleg mistök sé að ræða. Auðvit- að geta mistök komið upp en þetta er óþarflega algengt.“ Hann segir að Neytendasam- tökunum berist oft fyrirspurnir og ábendingar varðandi mál þar sem verslanir og aðrir verðmerki vör- ur ranglega eða þyngd sé vitlaust skráð, helst á lausavöru sem er pökk- uð í verslunum eða hjá framleiðanda þar sem farið er með vöruna beint í verslunina, eins og á oft við um ham- borgara og annað kjöt. „Þetta er mjög algengt yfir sumartímann en auðvit- að gerist þetta allt árið um kring.“ „Þegar okkur berast fyrirspurnir eða ábendingar höfum við samband við viðkomandi verslun og eru mis- tökin yfirleitt lagfærð. Þá fáum við yfirleitt þær skýringar að um mann- leg mistök sé að ræða. Þetta mál er klassískt dæmi um það.“ n Ásta Sigrún Magnúsdóttir Birna Guðmundsdóttir astasigrun@dv.is / birna@dv.is Kjötbúðin Merkt þyngd: 148 g Þyngd samkvæmt DV: 136 g Verð: 325 kr. Kílóverð: 2.198 kr. Borgarinn var vafinn inn í pappír þegar hann kom frá kaupmanninum. Hann var einnig vigtaður í pappírnum þegar hann var afgreiddur. Þegar blaðamenn vigtuðu hann reyndist hamborgarinn vera um 12 g léttari en þegar hann var vigtaður í umbúðunum. Hamborgarinn var keyptur stakur. Kjöthöllin var eina verslunin sem merkti umbúðir með kílóaverði. Krónan (Norðlenska) Merkt þyngd: 120 g Þyngd samkvæmt DV: 122 g Verð: 149,5 kr. Kílóverð: 2.496 kr. Tveir hamborgarar voru í pakkanum, en hamborgurunum hafði verið pakkað í Krónunni. Framleiðandi er Norðlenska. Heildarverðið var 599 kr. Goði Stór- borgari Merkt þyngd: 200 g Þyngd samkvæmt DV: 200 g Verð: 599 kr. Kílóverð: 2.995 kr. Hamborgararnir voru tveir í pakka og var heildarverðið 1.198 kr. Kjöthöllin Merkt þyngd: 140 g Þyngd samkvæmt DV: 146 g Verð: 383 kr. Kílóverð: 2.736 kr. Hamborgarinn var keyptur stakur og honum fylgdi eitt brauð sem er innifalið í verði. Hamborgarafabrikkan Merkt þyngd: 120 g Þyngd samkvæmt DV: 120 g Verð: 1.349 kr. Hamborgararnir voru keyptir í Hagkaup. Þeir eru fram­ leiddir fyrir Hamborgara­ fabrikkuna. Með þeim fylgdi bæði sósa, tvö hamborgara­ brauð, salt og pipar. Verðið endurspeglar því heildarverð, ekki á stökum hamborgara. Kjötborð Hagkaups Merkt þyngd: 120 g Þyngd samkvæmt DV: 120 g Verð: 279 kr. Kílóverð: 2.325 kr. Hamborgarinn var keyptur stakur í kjöt­ borði Hagkaups. Íslandsnaut Merkt þyngd: 140 g Þyngd sam- kvæmt DV: 144 g / 142 g Verð: 269 kr. Kílóverð: 1.925 kr. Hamborgararnir voru keyptir í Bónus. Tveir eru í pakkningunni og var heildar­ verð 539 kr. Myndir SiGtryGGur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.