Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2015, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2015, Blaðsíða 16
Helgarblað 7.–10. ágúst 201516 Umræða „Grein um glæpi í framtíðinni“ E ins og menn vita skrifa rit- höfundar töluvert um vanda þeirra eða vegsemd sem fást við ritstörf. Kannski er þetta ekki svo undarlegt: fólk úr sveitum skrifar gjarnan um lífið í sveitum, löggur og spæjar- ar sem fara að fást við ritstörf skrifa einmitt gjarnan um löggur og spæj- ara; menn svona leita í þann heim og þá tilveru sem þeir þekkja, og því ekki svo undarlegt að skrifandi fólk fjalli um sitt fag. En samt hef ég oft undrað mig á því hvað kollegar mín- ir úr ritstörfunum hafa farið fljótt út í það að skrifa um hvernig það sé að vera rithöfundur: ungir menn, sem hafa kannski skrifað tvær eða þrjár bækur, snúa sér næst að því að fjalla um erfitt líf rithöfundarins: baráttu hans við einsemd, hugmyndaþurrð, eirðarleysi. En sumar þannig bækur eru reyndar hrein snilld, það er ekki það. Ég hef semsé ekki farið út í þetta, á þeim rúma aldarþriðjungi sem ég hef verið í faginu, en nú hef ég skrif- að vikulega pistla í þetta ágæta blað, DV, í meira en hálft ár. En áður en ég gerðist svona reglulegur greina- höfundur hafði ég undrast andríki þeirra manna sem fást við þetta, vikulega, árum saman jafnvel, hafa þeir fengið nýja hugmynd, koma með sína útgáfu á atburðum líðandi stundar, geta kvittað á allt sem ger- ist. Sultur eftir Knut Hamsun Einhver furðulegasta lýsing á hugar- ástandi manns sem fæst við að skrifa dálka í blöð er úr snilldarverk- inu og tímamótabókinni „Sultur“ eftir Knut Hamsun, sem út kom árið 1890. „Húngurmeistarinn“, en svo kallar Halldór Laxness að- alpersónuna, segir um iðju sína, þegar svo er komið að hann á „ekki einu sinni eftir greiðu, hvað þá ann- að, eða bók til að lesa í, þegar verst lá á mér. Allt liðlangt sumarið hafði ég leitað athvarfs í kirkjugörðunum eða uppi í hallargarði, setið þar og samið greinar í blöðin, hvern dálk- inn af öðrum um hin fjarskyldustu efni, furðulegan samsetning, tiktúr- ur og tilfyndni eirðarlauss manns. Í örvæntingu minni hafði ég oft valið mér hin fjarstæðustu viðfangsefni, sem ég varði til óratíma og erfiðis- munum og blöðin vildu aldrei líta við. Þegar einni grein var lokið, byrj- aði ég á annarri, og ekki lét ég oft hugfallast, þó að ritstjórarnir segðu nei. Ég sagði alltaf við sjálfan mig, að einhvern tíma myndi þetta tak- ast. Og viti menn, stundum þegar ég var lánsamur og bærilega hafði tek- ist, hrutu til mín fimm krónur fyrir hálfs dags vinnu.“ Nákvæmlega svona er þetta hjá okkur pistlahöfundunum! Þótt ekki séum við allir jafn andríkir og að- alpersónan í Sulti, sem í einhverj- um hungursvimanum fær þá bráð- snjöllu hugmynd að skrifa langa grein eða úttekt um „Glæpi fram- tíðarinnar“. „Saðningarrósemi eins og þeir, sem hafa grátið lengi“ Honum tekst að skrapa saman fyr- ir ostbita og hveitibrauði, og fer með þetta nesti upp í hallargarð og hám ar það í sig. Það var mikil bless- un, langt síðan hann hafði fengið svona vel útilátna máltíð og hann „fann smám saman til sömu saðn- ingarrósemi eins og þeir, sem hafa grátið lengi“. Og hann bætir svo við: „Mér óx kjarkur óðfluga. Mér var ekki lengur nóg að semja grein um svo einfalt og óbrotið efni sem glæpi í framtíðinni, sem hver og einn gat auk þess getið sér til, beinlínis les- ið út úr sögunni. Ég treysti mér út í erfiðara efni, ég var í þeim ham að sigrast á örðugleikum, og ákvað að semja grein í þrem köflum um heimspekilega þekkingu. Auðvit- að myndi mér veitast tækifæri til að salla niður sumar villukenningar Kants.“ Matarleg auglýsing, og önnur með grönnu glottandi letri Þetta er algerlega göldrótt bók, Sultur Hamsuns, og athyglisvert væri að taka saman á lista alla þá rithöfunda sem hafa nefnt hana sem áhrifavald, eða hreinlega sagt að eftir að hafa lesið hana hafi þeir ákveðið að verða rithöfundar – þar á meðal eru frægir íslenskir sam- tímahöfundar. Nóbelsskáldið Isaac Bashevis Singer kallaði hana upp- haf vestrænna nútímabókmennta. Fyrstu síðu hennar mætti lesa sem kennsluefni í því hvernig á strax í byrjun að búa til stemningu og seið. Hinn svangi og fátæki maður vaknar þá í kalda og óvistlega her- berginu sínu uppi í kvisti og heyrir klukku fyrir neðan sig slá sex högg. Úti við dyr er herbergið hans fóðrað með gömlum dagblöðum og aug- un hvarfla að matarlegri auglýsingu „frá Fabian Olsen bakara um nýbak- að brauð“. Og hann heldur áfram: „Hjá mér hafði verið allþröngt í búi að undanförnu, munir mínir hver af öðrum farið til „frænda“, ég orðinn taugaveill og óeirinn og hafði leg- ið í rúminu nokkrum sinnum dag og dag í svima.“ Og þegar veruleik- inn rifjast upp fyrir honum hvarfla augun frá matarlegu auglýsingunni hans Fabians Olsen bakara að annarri „auglýsingu með grönnu og glottandi letri: „Líkklæði hjá jómfrú Andersen, hægra megin í portinu“. Isaac Bashevis Singer Sagði Sult vera upphaf vestrænna nútímabókmennta. „Þetta er alger- lega göldrótt bók, Sultur Hamsuns, og athyglisvert væri að taka saman á lista alla þá rithöfunda sem hafa nefnt hana sem áhrifa- vald, eða hreinlega sagt að eftir að hafa lesið hana hafi þeir ákveðið að verða rithöfundar. Knut Hamsun „Hann lagði á sig píslir, einangrun og fátækt í áratug til þess að geta æft sig við skriftir, orðið at- vinnumaður í faginu – maður til að semja bók eins og Sult.“ Einar Kárason rithöfundur skrifar Þér að segja H E I L S U R Ú M Útsalan hefst 4. ágúst!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.