Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2015, Síða 22
Helgarblað 7.–10. ágúst 201522 Fólk Viðtal
er ekki með fólk í vinnu að staðaldri.
Hún fær þó stundum aðstoð frá ætt-
ingjum og vinum á álagstímum.
„Fólk kemur til dæmis í sauðburð
og smölun af því það vill taka þátt og
hefur tengingu við svæðið. Ég þarf
bara að eiga til nóg af vinnufatnaði
og stígvélum.“
Hún hefur ekki verið að taka
börn í sveit á sumrin eins og foreldr-
ar hennar gerðu þegar hún var lítil.
„Þá vorum við með baggaheyskap
og það þurfti svo mikinn mannskap
í það. Baggarnir voru handtíndir á
vagna. En nú er maður á traktorn-
um dag og nótt og það er bara starf
fyrir einn. Þegar maður er með börn
í sveit þá þarf líka að sinna þeim.
Svo mega börn ekki vinna, þetta er
orðið svo rosalega strangt.“ En Heiða
var sjálf farin að keyra traktor 12 ára
gömul, sem þótti reyndar ekkert sér-
staklega ungt á þeim tíma. En vegna
þess að hún var yngst af systrum sín-
um þá kom síðast að henni. „Ég er
alin upp á bremsulausum Ferguson
og nota aldrei handbremsur á bílum
í dag,“ segir hún hlæjandi.
Vill ekki eiga börn
Heiða hefur sjálf aldrei stefnt að því
að eiga börn og gerir ekki ráð fyr-
ir því að það breytist úr þessu. Hún
er þó bara nýbyrjuð að þora að segja
það upphátt, enda hefur alltaf verið
ákveðinn þrýstingur á hana að stofna
fjölskyldu. „Ég þurfti alveg að herða
mig upp í að segja fólki að mig lang-
aði ekki að eiga börn. Það kom alltaf
gusa um að ég myndi sjá eftir því og
að ég gæti ekki orðið gömul ein. Það
eiga allir í samfélaginu að vera eins
og mér finnst það kjánalegt. Ég má
ekki brosa til barns þá er fólk farið
að segja að ég þurfi að æfa mig. Og
þegar ég var yngri og búin að vera
í erfiðustu verkefnunum hérna á
bænum í mörg ár, moka skítinn og
setja upp girðingar, þá biðu samt all-
ir spenntir eftir því að ég næði mér í
mann svo ég gæti farið að búa. Það
var lengi viðhorfið. Alltaf verið að
fylgjast með því hvað ég var að gera.“
Hún telur þó að fólk sé hætt að bíða í
dag. Enda flestir líklega búnir að gefa
upp vonina um að hún muni ein-
hvern tíma koma sér upp vísitölu-
fjölskyldu.
Ræður hvað hún verður skrýtin
Heiða sér ekkert endilega fyrir sér
að hún verði ellidauð á Ljótarstöð-
um, eins og hún orðar það sjálf, en
hún útilokar ekki neitt. „Það gæti al-
veg farið svo, en það er ekkert víst.
Ég verð hérna eitthvað áfram en
væri alveg til í að gera eitthvað ann-
að einhvern tíma, ef einhver annar
er tilbúinn að taka við og halda sömu
stefnu. Ég myndi aldrei stökkva frá
búinu og láta það leggjast í eyði,“
segir hún ákveðin. Henni þykir vænt
um jörðina sína og er stolt af því
sem hún er búin að gera fyrir hana
á síðustu árum. Og aðspurð segist
hún alls ekki upplifa sig einangraða
í sveitinni. „Maður getur alls staðar
einangrast ef maður vill það – líka í
stórborgum. Ég er ekkert einangraðri
hér en annars staðar. Maður ræð-
ur því eiginlega sjálfur hvað maður
verður skrýtinn. Og ef maður ætl-
ar sér það ekki þá er hægt að spyrna
gegn því allavega.“ Heiða bendir á að
heimurinn sé orðinn svo lítill, með
netinu og öllum samfélagsmiðlun-
um sem þar má finna.
Þótt hún stundi ekki mikið fé-
lagslíf í sveitinni núorðið hefur hún
þörf fyrir að komast reglu-
lega aðeins í burtu – í annað
umhverfi. „Það er eitt við að
vera á svona stað. Heimur-
inn minnkar og minnkar ef
maður fer aldrei neitt. Þegar
ég fer eitthvað í burtu þá er
ég allt önnur manneskja
þegar ég kem heim.
Ég er mjög ævintýragjörn
og með mikla útþrá. Ég verð
því stundum eirðarlaus. Mig
langar alveg að prófa eitt-
hvað annað,“ segir Heiða
hreinskilin. Hún viðurkenn-
ir að það fari ekkert endi-
lega vel saman að vera með
útþrá og vera bóndi. En út-
þráin og ævintýragirnin
varð til þess að hún fór bæði
út í rúning og fósturtaln-
ingar. Báðar greinarnar
gera henni kleift að ferðast
á milli bæja og hitta fólk.
Verkefnin eru árstíðabund-
in svo hún getur sinnt þeim með bú-
störfunum, með smá aðstoð. „Það
svalar ævintýraþránni að einhverju
leyti að ferðast um landið og sjá eitt-
hvað nýtt.“
Brautryðjandi í fósturtalningum
Heiða og Elín, vinkona hennar, eru í
raun brautryðjendur í fósturtalning-
um á Íslandi, ásamt hjónum í Öxar-
firði, en áður hafði Norðmaður einn
nokkrum sinnum komið til landsins
og framkvæmt fósturtalningar á fá-
einum bæjum. Þær fengu að fylgj-
ast með honum í tvo daga og hann
hjálpaði þeim að kaupa réttu tæk-
in. Heiða segir það geta skipt miklu
máli fyrir bændur að vita hve mörg
lömb eru væntanleg hjá hverri á.
Bæði upp á fóðrunina að gera og
sauðburðinn sjálfan.
En þrátt fyrir að Heiðu þyki gott
að komast í burtu af og til þá er ekki
alltaf auðvelt fyrir hana að stökkva frá
búinu. „Það er auðveldara á sumrin.
Þá er í raun lítið sem þarf nauðsyn-
lega að sinna á ákveðnum tímum.
Mér hefnist bara fyrir þegar ég kem
heim aftur. Það gerist svo sem ekk-
ert á meðan ég er í burtu. Grasið bara
sprettur og heyskapurinn bíður. En
á veturna þegar fénaðurinn er í húsi
þarf auðvitað að gefa og þegar ég fer í
fósturtalningarnar þá þarf ég að ráða
manneskju í afleysingar.“
Tók þátt í rúningskeppni
Heiða er dugleg að grípa spennandi
tækifæri sem henni bjóðast og til að
svala ævintýraþrá sinni enn frekar
skellti hún sér í rúningskeppni í Bret-
landi fyrr í sumar. Hún tók rúnings-
námskeið sem var hluti af náminu
á Hvanneyri og fór strax í kjölfarið
að klippa sínar eigin kindur. Fljót-
lega fór hún svo líka að klippa fyrir
aðra í atvinnuskyni. „Hér á landi fer
maður bara á tveggja daga námskeið
og byrjar að klippa. Það er viðtekin
venja. Allt snýst um að tæta ullina
af og vera sem fljótastur, en minna
um að gera það vel. Sumir leggja það
auðvitað á sig að vanda sig en aðrir
ekki, og ég var alveg í seinni hópn-
um. Ég þeytti þessu bara af eins hratt
og ég gat. Og gerði það mjög illa. Í
dag skammast ég mín fyrir það,“ seg-
ir hún og hlær. „En ég hef tekið þátt
í keppnum sem haldnar hafa verið á
Kex Hostel, sem eru reyndar meira í
anda sýninga. Ég vil halda því á lofti
að konur geti líka klippt.“
Nú í sumar bauðst henni svo
að fara til Bretlands með fríðum
flokki klippara sem hefur keppt
á heimsmeistaramóti í greininni.
„Við byrjuðum á að fara á nám-
skeið hjá yfirmanni breska ullarsam-
bandsins. Engin smá kanóna,“ seg-
ir Heiða kímin. „Svo horfðum við á
eina rúningskeppni og fórum í kjöl-
farið á The Great Yorkshire Show,
sem er stærsta landbúnaðarsýning
í Bretlandi. Rúningskeppnin var ein
greinin sem keppt var í. Það voru al-
veg þrjú hundruð manns að keppa
og það var ofboðslega gaman að
taka þátt. Og það var ekki síður gam-
an að fylgjast með besta flokknum.
Það var rosaleg stemning. Hraðinn
var svo mikill og þulurinn á háa C-
inu.“ Heiða sýnir blaðamanni og
ljósmyndara bæði myndir og mynd-
bönd frá keppninni og það fer ekki
á milli mála að stemningin er mikil.
Eiginlega eins og á stórum íþrótta-
viðburði.
„Þetta eru bara íþróttahetjur og
maður getur flett myndböndum af
þeim upp á Youtube. Ég er einmitt
búin að vera að skoða myndbönd af
rúningi frá því ég kom heim,“ segir
hún hlæjandi. „En það hefur verið í
umræðunni að taka þetta
inn sem ólympíugrein.
Þetta er fín íþrótt. Þetta
snýst um hraða, snerpu og
vinnulag. Og kindin þarf
að ganga óskemmd frá
rúningnum.“
Vill bæta kennsluna
Heiða segist lítið hafa spáð
í það í hvaða sæti hún
lenti. Hún veit þó að hún
lenti í níunda sæti af fjórt-
án í kvennaflokki og var
frekar neðarlega í almenn-
um flokki. „En þetta er bara
byrjunin. Ég lærði svo mik-
ið. Og reynslan af því að taka
þátt er alveg ómetanleg.“
Hún vonast til að kom-
ast aftur út í slíka keppni
en segist aðspurð þó ekki
stefna á frama í greininni.
Hún sé orðin alltof gömul
til þess. „Helsti tilgangur-
inn með því að fara út er að
koma með reynsluna heim
og auka kennsluna hérna heima.
Og leggja meiri áherslu á að rýja
vel. Kennslan á Hvanneyri er góðra
gjalda verð en það er nauðsynlegt að
auka hana. Ég væri sjálf mjög til í að
ná þeirri færni að geta kennt öðrum,
og halda jafnvel rúningsnámskeið
fyrir konur. Þær eru svolítið til baka
í þessari grein. Hika við að fara út í
þetta.“
Ólst ekki upp við neitt kjaftæði
Bóndinn á Ljótarstöðum gerir sér
grein fyrir því að hún fellur ekki al-
veg undir þá staðalímynd sem flest-
ir hafi af bændum. „Fólk hugsar um
bóndann sem karl. Skítugan karl í
samfestingi með húfu. En bænd-
ur eru aðeins fjölbreyttari heldur
en ímyndin gefur til kynna. Það eru
engin geimvísindi að vera bóndi. Ég
er reyndar mjög lélegur viðgerðar-
maður, en það er ekki kynbundið –
pabbi minn var ekkert skárri. Mér
finnst vélavinna frekar skemmtileg
og get unnið með hvaða tæki sem
er. Það er bara hræðsla að þora ekki í
vélar. Þetta er ekki flókið. En svo eru
karlar sem geta ekki kveikt á þvotta-
vél, eiga þeir erindi upp í trakt-
or? Þessar staðalímyndir eru frekar
óþolandi,“ segir Heiða sem upplifði
það aldrei þegar hún var lítil að hún
gæti ekki, eða ætti ekki að gera eitt-
hvað, af því hún væri stelpa.
„Við vorum bara stelpur á bæn-
um og gengum í öll störf og svo
var mikið af stelpum hérna í sveit.
Pabbi var alltaf með stelpnastóðið á
eftir sér. Mamma gekk líka í öll störf
úti en sá samt alveg um heimilið.
Pabbi var að því leytinu svolítil karl-
remba. En ef hún var ekki heima þá
eldaði hann alveg með pomp og
prakt. Þannig að ég ólst ekki upp við
neitt kjaftæði og stelpur og strákar
voru bara í eins fötum,“ segir Heiða
sem vill að lokum koma þeim skila-
boðum á framfæri að stelpur og
konur geti gert nákvæmlega það
sem þær vilja. Þær þurfi bara að
vera óhræddar við að takast á við
áskoranir. n
„Ég er reyndar mjög
lélegur viðgerðar-
maður en það er ekki
kynbundið – pabbi minn
var ekkert skárri.
Handlagin Heiða hefur unun af
því að vinna með höndunum og
sér um allt viðhald á bænum sjálf.
Mynd ÞoRMaR VigniR gunnaRsson
Rúningskeppni Heiða fór til Bretlands í sumar þar sem hún keppti í rúningi. Hún sótti líka námskeið og vill auka fagmennsku í greininni hér heima. Mynd úR einkasafni
Sími 568-5556 www.skeifan.is
Föst sölulaun
Sölulaun eigna
yfir 60 milljónum
aðeins 1% með vsk
upp að 60 milljónum
299.900.- með vsk
VantaR – VantaR
Vegna mikillar sölu vantar
allar stærðir eigna á skrá.
Eysteinn Sigurðsson
Löggiltur fasteignasali / Sími: 896-6000
eysteinn@skeifan.is / skeifan.is
Magnús Hilmarsson
Sölumaður / Sími: 896-6003
magnus@skeifan.is / skeifan.is
Sigurður Hjaltested
Löggiltur fasteignasali / Sími: 821-5400
sigurdur@skeifan.is / skeifan.is
Sími 568-
5556 www
.skeifan.is