Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2015, Side 33
Helgarblað 7.–10. ágúst 2015 Menning 33
Skútuvogi 11 104 Reykjavík Sími 553 4000 www.prentvorur.is
6.590 kr.
m.vsk.
HVAR KAUPIR ÞÚ TÓNER?
Kreppan í Grikk-landi
hefur nán-
ast lamað
listmarkað-
inn í landinu,
að því er fram
kemur í leiðara
listavefsíðunnar Artsy.net. Þar
kemur fram að fjölmörg gallerí í
einkaeigu í Aþenu hafi ýmist lok-
að eða séu að leggjast í dvala enda
nútímalist lúxusvara sem fáir hafa
efni á eða vilja nota peninga sína
í þegar ástandið er jafn óstöðugt
og núna. Listáhugi er þó ekki á
undanhaldi enda hefur aðsókn á
söfn og listviðburði í landinu auk-
ist um 30 til 35 prósent á undan-
förnum þremur árum.
Robert Downey Jr. er tekju-
hæsti leikari
heims með
10,7 milljarða
króna í árs-
laun samkvæmt
viðskiptatímaritinu Forbes – en
mestar tekjur fær hann fyrir leik
sinn sem ofurhetjan Tony Stark í
nokkrum kvikmyndum. Næst-
ir koma Jackie Chan (sem sló
í gegn í Kína með mynd sinni
Dragon Blade), Vin Diesel (sem
lék í Fast and the Furious 7),
Bradley Cooper (sem lék í Amer-
ican Sniper), grínleikarinn Adam
Sandler og indversku Bollywood-
leikararnir Amitabh Bachchan,
Salman Khan og Akshay Kumar.
Í lok síðasta mánað-ar var til-
kynnt hvaða
13 höfund-
ar komast á
langa tilnefn-
ingalista (e. long-
list) Man Booker-bókmenntaverð-
launanna árið 2015. Til ársins 2013
gátu aðeins rithöfundar frá breska
samveldinu hlotið verðlaunin en
nú geta allir sem skrifa bækur sín-
ar á ensku og gefa þær út í Bret-
landi hlotið verðlaunin. Meðal
tilnefndra eru kanónur á borð við
Anne Enright, Anne Tyler, Andrew
O’Hagan og Marilynne Robinson
en einnig eru þrír höfundar til-
nefndir fyrir sína fyrstu bók.
Úr listheiminum
Þ
að væri hægt að tala um
list mína fyrir og eftir Jap-
an,“ segir myndlistarkon-
an Mireya Samper, sem
sýnir verk unnin á jap-
anskan washi-pappír á sýningunni
Endurvarp í Lisasafninu á Akur-
eyri. „Dyrnar sem ég var að leita
að höfðu opnast,“ segir Mireya
og baðar út höndunum þar sem
hún situr með grænt te, umkringd
hundum og listaverkum á vinnu-
stofunni við höfnina í Kópavogi.
„Eins og ég væri komin heim“
Mireya fór fyrst til Japan í kring-
um aldamótin og segir þá upplif-
un hafa verið yfirþyrmandi en hún
hafi laðast að landinu og snúið aft-
ur nokkrum sinnum síðan þá. Hún
hafi fundið djúpstæða tengingu
við menningu og list Edo-tímans,
sem leið undir lok á seinni hluta
19. aldar.
Í fyrra varði hún um sjö mánuð-
um í Japan, sökkti sér í menn-
inguna og þróaði þá með sér list-
rænar aðferðir til að vinna með
efnivið landsins, sérstaklega
hinn einstaka washi-pappír. „Ég
hef alltaf verið ofsalega hrifin af
pappír og leitað að mismunandi
tegundum úti um allan heim. Ég
hef til dæmis unnið með indversk-
an, kínverskan og kóreskan papp-
ír,“ segir Mireya.
Japanski pappírinn, sem er
unninn úr berki kozo-jurtarinn-
ar, er næfurþunnur og ljóshleyp-
inn en gríðarlega sterkur. „Þegar
ég uppgötv aði pappírinn var eins
og ég hefði fundið eitthvað sem ég
var að leita að – án þess að ég vissi
að ég væri að leita. Eins og ég væri
komin heim.“
Á andlegu ferðalagi
Efniviður verkanna virðist líka tengj-
ast andlegu lífi Austurlanda: verkin
endurspegla óendanleika og eilífa
hringrás. „Já, þessi sýning er annars
vegar endurkast frá tímanum mín-
um í Japan í fyrra og hins vegar því
andlega sem ég hef verið að garfa í
og spá og spekúlera í mörg ár – mér
finnst svo hávísindalegt að nota
orðið rannsaka, en þetta er listræn
rannsókn,“ segir Mireya.
Í verkunum er óendanleikinn
tjáður með endurtekningunni og
náttúruöflin eru sterkt þema: tugir
örlítilla plastpoka fullir af lituðu vatni
hanga úr loftinu og mynda skugga-
myndir á vegginn, dropaformið og
gárur á vatni eru síendurteknar, mál-
aðar í einni hreyfingu eins og í jap-
anskri skrautskrift. „Í sumum mynd-
unum og innsetningunum er ég
að vinna með allt upp í sjö tegund-
ir af pappírum sem ég hef málað á
í lögum, pappír ofan á pappír ofan
á pappír. Þá myndast ákveðin þrí-
vídd og endurtekning.“ Sérstök áferð
pappírsins og aðferðir Mireyu gera
það að verkum að erfitt er að skynja
verkin án þess að upplifa þau í ná-
vígi.
Það hljómar nánast eins og papp-
írinn og efnin séu einfaldlega hliðar-
afurðir af þessu andlega ferðalagi?
„Já, nákvæmlega. Listin er sam-
tal og tjáningarform, þannig að ég
kem þessu andlega ferðalagi frá mér
á þennan hátt og er náttúrlega að
reyna að tengja við fólk,“ segir Mireya
og bendir til að mynda á innsetn-
inguna Uppspretta – úrkoma, einn
hugur, þar sem skapað er afmarkað
íhugunarrými með hangandi papp-
ír og níu mínútna tónverki. „Ég er að
reyna að fá fólk til að koma með mér.“
Mireya Samper verður með
listamannaspjall í Listasafninu á
Akureyri laugardaginn 15. ágúst
klukkan 15.00 en sýningunni lýkur
22. ágúst. n
Andlegt ferðalag
á japönskum pappír
Mireya Samper sýnir verk unnin á washi-pappír í Listasafninu á Akureyri
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Komdu með „Ég er
að reyna að fá fólk til að
koma með mér,“ segir
Mireya Samper um það
andlega ferðalag sem
hún tjáir í verkum sínum.
Mynd SiGtryGGur Ari
„Ég kem þessu
andlega ferðalagi
frá mér á þennan hátt og
er náttúrlega að reyna að
tengja við fólk.