Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Qupperneq 12
12 Fréttir T akist slitabúum föllnu bank- anna ekki að ljúka uppgjöri sínu með nauðasamning- um sem ógna ekki greiðslu- jöfnuði þjóðarbúsins til lengri tíma litið og áætlun um losun hafta munu þau þurfa að inna af hendi skatt sem nemur 40% af eign- um þeirra samkvæmt frumvarpi um stöðugleikaskatt. Slitabúin hafa fáar vikur til stefnu til að ljúka slíkum nauðasamningum vilji þau forðast að greiða stöðugleikaskattinn áður en hann tekur gildi, samkvæmt örugg- um heimildum DV. Bjarni Benedikts- son, fjármála- og efnahagsráðherra, mun gera grein fyrir frumvörpum rík- isstjórnar vegna áætlunar um losun hafta á fundi ríkisstjórnarinnar í dag. Á þessari stundu er ekki hægt að slá því föstu hversu stóran hluta eigna erlendir kröfuhafar föllnu bankanna – Glitnis, Kaupþings og gamla Lands- bankans (LBI) – munu þurfa að gefa eftir við mögulega nauðasamning- um. Samkvæmt heimildum DV er hins vegar ljóst að miðað við hafta- áætlun stjórnvalda þarf sú fjárhæð að líkindum að vera samtals yfir 500 milljarðar króna, sé miðað við núver- andi bókfært virði eigna þeirra, en heildareignir slitabúanna námu um 2.200 milljörðum króna í árslok 2014. Erlendir aðilar eiga um 94% allra samþykktra krafna á hendur gömlu bönkunum. Fjölmiðlakynning eftir helgi Ríkisstjórnin hyggst leggja fram fimm eða sex frumvörp í tengsl- um við áætlun um losun fjár- magnshafta sem nú verður hrund- ið í framkvæmd – tveimur árum eftir að núverandi ríkisstjórn tók til starfa. Frumvörpin verða þó ekki öll lögð fram samtímis heldur mun hluti þeirra líta dagsins ljós á næst- komandi haustþingi. Fram hefur komið í máli fjármálaráðherra að stöðugleikaskatturinn sé ein af lykil- aðgerðum stjórnvalda til þess að skapa forsendur fyrir því að hægt sé að stíga skref við losun hafta. Þá stendur til að halda kynn- ingu fyrir fjölmiðla um haftaá- ætlunina næstkomandi mánu- dag og mun Halldór Benjamín Þorbergsson, hagfræðingur og framkvæmdastjóri viðskiptaþróun- ar hjá Icelandair, hafa umsjón með þeirri kynningu. Hann kynnti einnig niðurstöður skuldaleiðréttingar ríkisstjórnar innar í nóvember á síð- asta ári. Áður en sú kynning fer fram verða oddvitar stjórnarandstöðu- flokkanna upplýstir um helstu at- riði áætlunar stjórnvalda um losun hafta. Þá hafa stjórnvöld einnig ráðið almannatengslafyrirtækið Burson- Marsteller í Bretlandi til að vinna ýmsa greiningar- og ráðgjafarvinnu og veita aðstoð við að halda á lofti málstað Íslands í erlendum fjöl- miðlum. Fyrirtækið hóf þá vinnu fyrir stjórnvöld fyrir nokkru síðan en það sinnti einnig sambærilegri ráðgjöf fyrir síðustu stjórnvöld í Ice- save-deilunni. Ljóst er að aðgerðir íslenskra stjórnvalda við losun hafta, sem verða um margt fordæmalaus- ar í alþjóðlegu samhengi, eiga eftir að vekja athygli langt út fyrir land- steinana enda eru gríðarlegir hags- munir í húfi fyrir marga þekkta er- lenda vogunarsjóði. Markmiðið ekki tekjuöflun Skattprósentan í frumvarpi fjár- málaráðherra um stöðugleikaskatt er í samræmi við það sem áður hef- ur verið upplýst um á síðum DV. Þannig sagði í frétt DV þann 24. febr- úar síðastliðinn að sérstakur skattur á útgreiðslur til erlendra kröfuhafa – sem þá gekk undir nafninu útgöngu- skattur – þyrfti að að lágmarki að vera tæplega 40%. Þannig væri hægt að tryggja að uppgjör gömlu bank- anna gæti samrýmst heildstæðri áætlun um losun hafta og ógnaði ekki greiðslujöfnuði þjóðarbúsins. Óvíst er hvort skatturinn muni jafn- framt ná til eigna – um 210 millj arðar króna – sem enn á eftir að greiða út til forgangskröfuhafa LBI. Slitabú Kaupþings og Glitnis hafa nú þegar greitt út forgangskröfur að fullu. Um tveir mánuðir eru síðan Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson for- sætisráðherra lýsti því yfir á flokks- þingi Framsóknarflokksins að áætlun um losun hafta yrði hrint í framkvæmd fyrir þinglok. Sérstakur stöðugleikaskattur myndi þá skila hundruðum milljarða króna og ásamt öðrum aðgerðum gera stjórn- völdum kleift að losa um höft án þess að ógna stöðugleika. Þrátt fyrir að forsætisráðherra hafi nefnt í ræðu sinni að stöðug- leikaskattur ætti að skila „hundruð- um milljarða króna“ – hann nefndi hins vegar ekki að þeir fjármun- ir ættu að renna inn í ríkissjóð – þá er tilgangurinn með slíkri skattlagn- ingu alls ekki að vera tekjuöflunar- leið fyrir ríkissjóð. Að sögn þeirra sem þekkja vel til hefur í allri vinnu ráðgjafa stjórnvalda við útfærslu á skattinum verið lögð á það rík áhersla að hann sé hannaður með þeim hætti að einungis sé verið að tryggja að hægt sé að stíga skref við losun fjármagnshafta án þess að greiðslujöfnuði þjóðarbúsins verði ógnað í náinni framtíð. Að höggva á hnútinn Sú ítarlega greining sem hefur verið unnin af Seðlabankanum og Helgarblað 5.–8. júní 2015 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Þú finnur bílinn á bilo.is Skráðu bílinn á bilo.is M.BENZ CLS 500 Árg. 2005, ekinn 126 Þ.km, 304hö, sjálfskiptur. Verð 3.990.000. Raðnr.253093 BMW M5 E60 Nýskr 08/2005, ekinn aðeins 28 Þ.km, 509 hö, sjálfskiptur. Mjög eigulegur sportari! Verð 7.900.000. Raðnr.285936 FORD MUSTANG GT PREMIUM Árg. 2005, ekinn 93 Þ.km, 8 cyl, sjálfskiptur. Supercharged, ca. 500 hö! Verð 3.980.000. Raðnr.253617 PONTIAC FIREBIRD TRANS AM blæju Árg. 2001, ekinn 51 Þ.km, 5,7L sjálfskiptur. Verð 3.590.000. Raðnr.283147 BMW M3 Árg. 2003, ekinn 178 Þ.km. Verulega flottur! Verð 3.990.000. Raðnr.252703 Höggva á Hnútinn með 40 prósenta skatti Fjármagn sem gæti yfirgefið hagkerfið Innlendar eignir fjármálafyrirtækja í slitameðferð 900 milljarðar Mögulegt útflæði Íslendinga 475 milljarðar Aflands- krónueigendur 295 milljarðar *Greinargerð fjármálaráðherra um framgang áætlunar um losun fjármagnshafta frá 18. mars 2015. n Haftaáætlun kynnt á ríkisstjórnarfundi í dag n 40 prósenta stöðugleikaskattur á slitabúin n Leggja fram fimm eða sex frumvörp n Þurfa að gefa eftir meira en 500 milljarða Hörður Ægisson hordur@dv.is Herra Ísland Jeremy Lowe fer fyrir vogunarsjóðnum Davidson Kempner sem á mestra hags- muna að gæta á meðal erlendra kröfuhafa föllnu bankanna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.