Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Blaðsíða 40
Helgarblað 5.–8. júní 201532 Fólk Viðtal
Þær skila skömminni
Sannkölluð bylting hefur átt sér stað síðustu daga í Facebook-hópnum Beauty Tips þar sem konur hafa deilt reynslusögum af
kynbundnu ofbeldi. Upphaf byltingarinnar má rekja til færslu í hópnum þar sem ein stúlkan óskaði eftir að komast í samband við stúlk-
ur sem höfðu orðið fyrir barðinu á þekktum lögfræðingi. Í kjölfarið spunnust miklar umræður um kynbundið ofbeldi og konur á öllum
aldri fóru að deila sinni lífsreynslu undir merkjunum #þöggun og #konurtala. DV ræddi við þrjár konur sem stíga nú fram með sína sögu
og skila þannig af sér skömminni til þeirra sem eiga hana skilið, gerendanna. Enn fremur er rætt við Elísabetu Ýr Atladóttur sem segir
byltinguna á Beauty Tips tækifæri sem ekki megi sleppa til að knýja fram alvöru breytingar á kerfinu.
É
g ákvað að stíga fram fyrir
börnin mín og önnur ung-
menni því mér finnst allt of
inngróið í íslenska menn-
ingu að strákar megi gera hvað
sem er við konur og að stelpur
eigi bara að passa sig,“ segir Sig-
ríður Hjördís Jörundsdóttir, ein
þeirra kvenna sem deildi reynslu
sinni af kynferðisbroti í Facebook-
hópnum Beauty Tips á dögunum.
Nauðgað í partíi
Sigríði var nauðgað árið 1989 í
partíi af ókunnugum manni. „Ég
tók þessu broti eins og ég sjálf væri
sökudólgurinn. Ég var of full og
ákvað að fara ekki heim með vin-
konu minni þegar hún vildi fara
heim. Ég vaknaði svo við að það
var maður að athafna sig ofan á
mér,“ segir Sigríður sem lokaði á
atburðinn í fjölmörg ár. „Ég leit
ekki á þetta sem nauðgun. Ég hafði
verið á vitlausum stað á vitlaus-
um tíma og pakkaði þessari lífs-
reynslu pent inn og hugsaði ekkert
um þetta í 20 ár. Svo, árið 2009, sat
ég í hugleiðsluhópi á meðvirkni-
námskeiði þegar þessi pakki opn-
ast með þvílíku offorsi. Ég sat bara
með tárin lekandi niður kinnarn-
ar og gat ekki beðið eftir að hug-
leiðslan kláraðist svo ég gæti grátið
ein í friði. Þar áttaði ég mig á því að
þetta hafði verið nauðgun.“
Sýran lak
Sigríður Hjördís ræddi við fagað-
ila á námskeiðinu sem hvatti hana
til að hafa samband við Stíga-
mót. „Mér fannst það mjög erfitt
og þurfti að berjast við sjálfa mig.
Mér fannst ég ekki eiga erindi
þangað. Af hverju ætti ég að fara
til Stígamóta út af einhverju sem
gerðist fyrir 20 árum og var mér
að kenna? Það væri svo ómerki-
legt, tæki því varla að nefna það
og hvað þá að fá aðstoð. Með þá
hugsun fór ég þangað. Eftir nokk-
ur skipti þar sem ég hitti yndis-
lega konu tókst mér að losa um.
Stígamót björguðu mér. Ég hafði
haft þennan pakka svo lengi innra
með mér en þrátt fyrir það var
hann ekki þéttpakkaður. Það var
alltaf eins og einhver sýra læki úr
honum. Ég hef verið að berjast við
ýmislegt, eins og þunglyndi og
skort á sjálfsvirðingu, sem ég átt-
aði mig ekki á hvaðan væri komið.
Manni fannst maður lengi vel ekki
merkilegur pappír.“
Aldrei of seint
Sigríður, sem er menntaður sagn-
fræðingur, segir kynbundið of-
beldi alltaf hafa verið við lýði. „Í
mínu grúski er algengt að ég rek-
ist á sögur af til að mynda prest-
um sem þóttu heldur stórtækir
til kvenna eða voru taldir miklir
kvennamenn. Orðræðan var alltaf
einhvern veginn þannig; menn
voru töffarar frekar en ógeðfelld-
ir. Ég hef lesið sögu af manni á 19.
öld sem sat fyrir konum eins og
tófa og hjólaði í þær ef þær dirfð-
ust að ganga fram hjá honum.
Þetta er ekkert nýtt,“ segir Sig-
ríður sem hvetur fólk til að leita
sér hjálpar. „Ég var lengi að velta
fyrir mér hvort ég ætti að taka
þátt í þessari byltingu á Beauty
Tips enda miklu eldri en flestar
þessara kvenna. Hvað ætti ég að
vera að skutla mér upp á dekk
með þeim en svo ákvað ég að gera
það nú samt. Ég held að það séu
til margar eldri konur sem þegja
um sína reynslu og hafa þagað í
marga áratugi. Ég ákvað að taka
slaginn fyrir þær. Og við þær vil
ég segja: Það er aldrei of seint að
leita sér hjálpar.“
Þ
etta hefur haft áhrif á allt
líf mitt. Ég er öryrki vegna
þunglyndis og kvíða og
hef oft reynt að stytta mér
aldur. Ég læt ekki þagga niður í
mér lengur,“ segir Helga Garðars-
dóttir, sem var misnotuð af fjöl-
skyldumeðlimi um árabil og
sagði sína sögu á Beauty Tips
á dögunum. Helga segist hafa
misst fjölskyldu sína þar sem
þau hafi ákveðið að standa með
gerandanum. „Ég tók fyrir að ég
myndi umgangast hann en það
vildu þau. Þar af leiðandi hef ég
misst bæði mömmu og pabba.
Það særir mig óendanlega að
sjá myndir af þessum aðila inni
á Facebook-síðunni hennar
mömmu.“
Þöggun skemmir líf
Aðspurð segir hún erfitt að koma
fram með sína sögu. „En ég hef
bara fengið jákvæð viðbrögð.
Það vissu þetta margir í kring-
um mig en kannski ekki í kring-
um hann. Eins erfitt og það var að
koma fram þá hefur það líka ver-
ið frelsandi; að finna að ég hafi
rétt til að tjá mig um þetta skipt-
ir mig mjög miklu máli. Mér hef-
ur svo lengi verið hótað málsókn
en ég neita að þegja lengur um
æsku mína og mína upplifun.
Það er nefnilega ekki bara mis-
notkunin sem eyðileggur líf held-
ur þöggunin sem fylgir í kjölfar-
ið. Að hafa ekki mátt tala um það
hvernig mér leið. Alltaf þegar ég
rétti út höndina eftir aðstoð var
slegið á hana. Það er ekkert grín
að vera misnotaður frá átta ára
aldri til 14 ára aldurs.“
Kerfi fyrir gerendur
Helga vonast til þess að umræð-
an hafi jákvæð áhrif á kynbund-
ið ofbeldi. „Ég leyfi mér að vona
að þetta skili einhverju enda
bjartsýnismanneskja, en ég leyfi
mér líka að efast miðað við það
hvernig réttarkerfið sér þessi brot
og hvernig þetta kerfi er byggt í
kringum þöggun til hjálpar ger-
endum. Þeir sem flytja inn fíkni-
efni fá hærri dóm en þeir sem
nauðga börnum. Það sér það hver
maður hversu fáránlegt það er.“
neitar að þegja lengur
Helga missti fjölskylduna
„stígamót björguðu mér“
Sigríður Hjördís lokaði á brotið í 20 ár „Alltaf þegar
ég rétti út
höndina eftir aðstoð
var slegið á hana.
„Ég held að
það séu til
margar eldri konur
sem þegja um sína
reynslu og hafa þag-
að í marga áratugi
Sigríður Hjördís
Sigríður stígur fram til
að sýna eldri konum að
það er aldrei of seint að
leita sér hjálpar.
MyNd Sigtryggur Ari
Helga garðarsdóttir
Helga er öryrki vegna þung-
lyndis og kvíða og hefur oft
reynt að stytta sér aldur.