Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Blaðsíða 28
Helgarblað 5.–8. júní 201528 Fólk Viðtal Á Bráðræðisholtinu í Vest­ urbæ Reykjavíkur stendur fallegt, svartmálað og vel við haldið timburhús sem byggt var snemma á síðustu öld. Húsið stendur efst á holtinu og þrátt fyrir að vera ekki stórt, teygir það sig yfir húsin í kring. Bráðræðisholtið var um tíma kall­ að Litla Hollywood, enda bjuggu þar margir leikarar. Þeim hefur þó fækkað með árunum. Í svartmál­ aða húsinu býr Jón Ársæll ásamt eiginkonu sinni, Steinunni Þórar­ insdóttur myndlistarmanni, en þarna hafa þau búið öll sín búskap­ arár. Það er ekki laust við að blaða­ maður finni örla fyrir kvíðahnút í maganum þegar hann leggur bíl sínum fyrir utan heimili hins eina sanna viðtalskóngs Íslands. Það eru ekki margir sem leika það eft­ ir að rekja garnirnar úr viðmælend­ um sínum líkt og hann gerir, á blíð­ an og föðurlegan hátt. Við mælum okkur mót fyrir hádegi, enda er Jón Ársæll mikill morgunmaður. Hann býður blaðamanni að ganga í bæ­ inn – slotið sitt – og við komum okkur fyrir í eldhúsinu, sem er að hluta til upprunalegt. Naut þess að pissa í garðinn „Ég keypti þetta hús þegar ég var 25 ára, áður en ég kynntist Steinunni. Það stendur á svokallaðri eignarlóð og mér þótti mjög gaman að fara út í garð og pissa á eigin torfu. Ég gerði töluvert af því,“ segir Jón Ársæll kíminn. Hann segir það hafa vak­ ið hjá sér mikla frelsistilfinningu að geta gert það sem hann vildi, við eitthvað sem hann átti. „Þetta er minn staður,“ bætir hann við. Hann var svo lánsamur að fjölskylda hans hjálpaði honum við að eignast litla húsið á holtinu, enda hafði hann ekki mikið fé á milli handanna á þeim tíma. Húsið var þá nánast helmingi minna en það er í dag. En þegar eldri sonur þeirra hjóna var vænt­ anlegur í heiminn ákváðu þau að stækka húsið í stað þess að flytja á brott. Fjögurra manna fjölskylda hefði tæplega komist fyrir í húsinu eins og það var áður. „Það þurfti að bakka inn á klósettið,“ segir Jón Ár­ sæll til að gefa blaðamanni örlitla tilfinningu fyrir því hver þröngt þau bjuggu fyrstu árin. Gott að breyta til Hann stendur nú á tímamótum. Eftir að hafa starfað hjá Stöð 2 í um aldarfjórðung og séð um þátt­ inn Sjálfstætt fólk í fjórtán ár, er komið að leiðarlokum. Samning­ ur hans við Stöð 2 rann út um ára­ mótin og síðasti þátturinn af Sjálf­ stæðu fólki var sýndur síðastliðinn sunnudag. „Það er ekkert í heim­ inum óbreytanlegt og það er ekki hægt að stoppa tímann. Þetta eru tímamót og allt í lagi með það. Ég tek tímamótunum brosandi. Það er kominn tími til að breyta til.“ Hann er dulur varðandi hvað taki við, enda ekkert fast hendi. Hann getur þó sagt blaðamanni að samninga­ umleitanir séu í gangi á ákveðnum vígstöðvum. „Það er gott að staldra við og grípa andann. Það er meira en að segja það að búa til hálftíma heimildamynd í hverri viku í hátt á annan áratug.“ Ætlaði að bregða fæti fyrir fólk En hvernig líður honum með þess­ ar breytingar? Að vera skyndilega hættur vikulegum yfirheyrslum sínum. „Það eru margar tilfinn­ ingar sem blunda. Þegar fólk eld­ ist kemur auðvitað alltaf að þeim tímamótum þar sem fólk þarf að taka ákvörðun um það hvort það ætlar að halda áfram að vinna eða setjast í helgan stein. En mér finnst ég bara vera frjáls. Það er sterkasta tilfinningin. Það er mjög góð til­ finning að vakna að morgni og hugsa: hvað langar mig mest til að gera í dag? Á ég að vera í rúminu eða fara í ferðalag, eða eitthvað allt annað?“ Jón Ársæll segist margoft hafa velt því fyrir sér hvort ekki væri komið nóg af Sjálfstæðu fólki. Sér­ staklega fljótlega eftir að þátturinn Afríka breytti mér Fjölmiðlamaðurinn Jón Ársæll Þórðarson stendur nú á tímamótum, en síðasti þátturinn af Sjálfstæðu fólki var sýndur um liðna helgi, eftir fjórtán ár í loftinu. Samningur Jóns við Stöð 2 var laus um áramótin og hann horfir nú til nýrra verkefna. Jóni Ársæli finnst hann vera frjáls og segir það góða tilfinningu. Hann hefur marga fjöruna sopið á viðburðaríkri ævi og upplifað sorgir og sigra. Blaðamaður settist niður með þessum helsta viðtalskóngi landsins og ræddi um tímamótin og tilfinningarnar, æskuárin og erfið veikindi móður, rannsóknir í Afríku og eiginkonuna sem veit alltaf hvar hann er. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrun@dv.is Heimsmyndin breyttist Jón Ársæll stundaði rann- sóknir á Mandinka-fólkinu í Gambíu og Senegal, en lokaverkefni hans í sálfræði fjallaði um andatrú og yfirskilvitleg fyrirbæri. MyNd SiGtRyGGuR ARi „Einu sinni missti ég úr saltsýruglasi yfir félaga minn og fína úlp- an hans brann, en hann slapp. „Mér þótti mjög gaman að fara út í garð og pissa á eigin torfu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.