Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Blaðsíða 50
42 Menning Helgarblað 5.–8. júní 2015
Mary Ellen fór
alla leið og sá
fegurðina í öllu
n Mary Ellen Mark var einn fremsti heimildaljósmyndari
veraldar n Safnaði Stórval n Hafði einstakt innsæi
H
ún var bara ótrúleg kona,“
segir fatahönnuðurinn
Steinunn Sigurðardóttir
um ljósmyndarann Mary
Ellen Mark. Hún lést úr
krabbameini fyrir skömmu en
Mark, sem er heimsfrægur ljós-
myndari, hafði einstök tengsl við
Ísland og má segja að hún sé á
ákveðinn hátt ábyrg fyrir bestu ljós-
myndurum okkar Íslendinga en
RAX, Páll Stefánsson og Einar Falur
Ingólfsson lærðu allir hjá þessum
fremsta heimildaljósmyndara ver-
aldar. Mary Ellen heillaðist svo
mikið af þessum íslensku ljós-
myndurum að úr varð áralöng og
einstök vinátta.
Varpaði ljósi á myrka kima
Mary Ellen Mark var 75 ára þegar
hún dó en hún á að baki einstak-
an feril sem heimildaljósmyndari.
Frægasta umfjöllun hennar er lík-
lega greinin Streets of the lost þar
sem hún fylgdi eftir götubörnum
í Seattle og birti í tímaritinu LIFE.
Eiginmaður hennar, Martin Bell,
gerði svo heimildamynd um börn-
in og nefndi myndina Streetwise.
Heimildamyndin var tilnefnd til
Óskarsverðlauna árið 1984.
Myndaþátturinn lýsir í raun vel
hugðarefni Mary Ellen sem kapp-
kostaði að varpa ljósi á myrkari
kima samfélagsins og hún hafði
einstakt lag á að manneskjuvæða
óhugnanlega heima.
Á milli þess tók hún myndir á
kvikmyndasettum, þar má nefna
magnaðar ljósmyndir við gerð
kvikmyndar Francis Ford Coppola,
Apocalypse Now, Satyricon eftir
Federico Fellini og Gaukshreiðrið
sem Milos Forman leikstýrði, svo
fátt eitt sé nefnt. Alls tók hún mynd-
ir fyrir um 100 kvikmyndir og síðast
tók hún myndir við gerð myndar-
innar Australia eftir Baz Lurhman.
Barðist fyrir Einar
Á níunda áratugnum urðu þrír
ungir ljósmyndarar heillaðir af
þessari áhugaverðu konu. Það voru
þeir Páll Stefánsson, Ragnar Axels-
son, eða RAX, og Einar Falur Ing-
ólfsson.
„Það var þannig að árið 1988,
þegar ég var 21 árs, fóru vinir mín-
ir, þeir RAX og Páll Stefánsson á
námskeið hjá henni í Flórída,“ segir
Einar Falur sem vann lengi vel sem
myndstjóri Morgunblaðsins.
„Þeir mynduðu gott samband
við hana og fyrir milligöngu þeirra
fór ég til Frakklands til þess að
sækja næsta námskeið hennar,“
segir Einar Falur en bætir við að
þegar þangað var komið hafi komið
í ljós að námskeiðið var fullbókað.
„Námskeiðið var alveg fullbókað og
þeir ætluðu ekki að hleypa mér inn.
Þá hitti ég Mary Ellen,“ segir Einar
Falur um þessi fyrstu samskipti sín
og Mary Ellen sem þá þegar var
orðin heimsfrægur ljósmyndari.
„Ég fylgdist svo með henni
hnakkrífast við skólastjórann þar
sem ég sat á stól inni á skrifstofu.
Að lokum hótaði hún að pakka
saman og fara ef ég fengi ekki að
fara á námskeiðið,“ segir Einar Fal-
ur og bætir við hlæjandi: „Þetta var
alveg skelfileg upplifun, að sitja
þarna og fylgjast með þessu rifrildi
sem snerist um mig.“
Mary Ellen fékk sínu framgengt
og lagði grunninn að menntun eins
af fremstu ljósmyndurum landsins.
Einar Falur segir að þessi hitafund-
ur hafi verið ágætis lýsing á helstu
persónueinkennum Mary, hún hafi
verið ótrúlega fylgin sér.
Örlagavaldurinn Mary
Einar Falur og Mary Ellen náðu vel
saman á námskeiðinu og urðu þau
miklir vinir þrátt fyrir að hún væri
nær þrjátíu árum eldri en hann.
„Árið eftir buðum við Martin Bell
og Mary Ellen til landsins fyrir til-
stilli Morgunblaðsins og þannig
þróaðist sambandið út í mikinn
vinskap,“ útskýrir Einar Falur en
Martin Bell hefur margoft komið
hingað til lands og fara hann og
Einar Falur saman að veiða.
Einar Falur segir að Mary Ellen
hafi svo aftur brugðið sér í gervi
örlagavalds í lífi hans árið 1992 en
þá var hann nýbúinn með bók-
menntafræði.
„Ég var þá búinn að tala eitthvað
um að mig langaði til þess að fara
í mastersnám. Mary Ellen hringdi í
mig og plantaði mér nánast í skóla
í New York þar sem hún kenndi
sjálf,“ segir Einar Falur en fyrir til-
stilli Mary Ellen og Martins fóru
Einar Falur og eiginkona hans til
New York í nám. Meðan á náminu
stóð og í eitt ár að því loknu vann
hann talsvert með þeim hjónum
í stúdíói þeirra, eða þar til hann
sneri heim aftur og varð myndstjóri
Morgunblaðsins.
Einar segir að Martin hafi síð-
ustu tuttugu ár nánast komið á
hverju einasta sumri hingað til
lands til þess að veiða, en Mary
Ellen var ólík manninum sínum
að því leytinu til að hún kunni ekki
vel við sig í náttúrunni. „Hún hafði
engan áhuga á fiskum og náttúru,
heldur vildi hún mannlíf. Fólk var
hennar ástríða,“ segir Einar Falur
Valur Grettisson
valur@dv.is
Átakanleg mynd Mary Ellen Mark var
óhrædd við að skyggnast inn í líf ógæfu-
fólks. Þar má sjá Damm-fjölskylduna sem
bjó í bíl árið 1987. Að lokum fengu þau inni
í neyðarskýli fyrir heimilislausa, en börnin
eru sögð hafa lagst niður í fósturstellingu
þegar þau fóru loksins í heita sturtu.
Mynd All RiGhts MARy EllEn MARk
Alexander og hrafn að leik Steinunn
Sigurðardóttir segir að myndir Mary Ellen
um Undrabörnin hafi breytt miklu í íslensku
samfélagi. Mynd All RiGhts MARy EllEn MARk
Götuvit Mary Ellen Mark fylgdist með götubörnum í Seattle og tók myndir af þeim.
Umfjöllunina birti hún í LIFE-tímaritinu en heimildamynd sem maður hennar gerði um börnin
hlaut Óskarsverðlaun fyrir bestu heimildamyndina.
Brúðkaups-
og útskriftargjafir
í miklu úrvali
Handverk í sérflokki
NONNI GULL
Strandgötu 37 • Hafnarfirði
Sími 565-4040 • www.nonnigull.is