Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Blaðsíða 41
Helgarblað 5.–8. júní 2015 Fólk Viðtal 33
Þær skila skömminni
„Ég var bara barn“
Erla Björg gerði sér ekki grein fyrir ofbeldinu
m
ig hafði langað til þess að
segja frá þessu lengi til að
reyna að gera eitthvað í
mínum málum og þegar
konurnar á Beauty Tips fóru að
deila sínum sögum ákvað ég að
vera með. Það var samt mjög erfitt
að koma fram og ég tók mér alla
helgina til að pæla hvort ég gæti
það. Það vissi nefnilega enginn
af þessu nema maðurinn minn
og besta vinkona mín,“ segir Erla
Björg Jensdóttir, sem sagði frá því á
Beauty Tips hvernig tvítugur „kær-
asti“ hennar hafði brotið ítrekað á
henni þegar hún var tólf ára.
Allt breyttist
Misnotkunin hafði mikil áhrif á
Erlu Björg. „Ég hætti að vera þessi
glaða, káta stelpa og breyttist í erf-
iðan ungling. Ég byrjaði snemma
að reykja og drekka og það er eig-
inlega kraftaverk að ég hafi ekki
leiðst út í meiri neyslu. Ég hef barist
við þunglyndi, kvíða og félagsfælni
og hef einkenni áfallastreiturösk-
unar og er bæði með vefjagigt og
slitgigt sem ég trúi að hafi komið í
kjölfarið á þessu áfalli.“
Sagði ekki frá
Brotin stóðu yfir í hálft ár en
Erla Björg lýsir því á Beauty Tips
hvernig hún hafi horft á klukk-
una í herbergi hans á meðan hún
beið eftir því að hann lyki sér af.
„Þetta var fyrsti strákurinn sem
sýndi mér áhuga. Ég gerði mér
ekki grein fyrir því fyrr en ég var
vel komin yfir tvítugt að ég hafði
ekki gert neitt rangt, ég var bara
barn,“ segir Erla sem sagði for-
eldrum sínum aldrei frá því sem
var að gerast. „Ég gerði mér ekki
grein fyrir því að þetta væri of-
beldi og datt ekki í hug að segja
frá. Mér fannst eins og ég væri að
stelast til þess að sofa hjá en datt
ekki í hug að þessi maður væri að
brjóta á mér. Núna eru tvö ár síð-
an ég fór að pæla í því hvað þetta
var í raun sjúkt. Að þessi maður
hafi haft áhuga á tólf ára barni.
Þegar ég horfi á stelpur á þess-
um aldri í dag sé ég hvað þær eru
mikil börn.“
Skilar skömminni
Erla segist lítið hugsa um gerand-
ann. „Ég vorkenni þessum manni
og held að hann líti ekki á það sem
svo að hann hafi brotið á mér. En
það breytir samt sem áður ekki
skömminni og sektarkenndinni sem
fylgir og hér með skila ég skömminni
þangað sem hún á heima.“
Erla Björg Jensdóttir Brotin hafa haft mikil áhrif á líf Erlu. Mynd Sigtryggur Ari
É
g ákvað að nýta tækifærið
og reyna að finna fólk til að
þrýsta eftir almennilegum
breytingum á kerfinu,“ seg-
ir Elísabet Ýr Atladóttir sem stofn-
aði Facebook-hópinn „Aktívismi
gegn nauðgunarmenningu“ í kjöl-
far byltingarinnar á Beauty Tips.
Elísabet Ýr var ein af þeim fyrstu
sem kom fram með kassamerk-
ið #þöggun, sem einkennt hef-
ur byltinguna. „Það var sett inn á
nokkrum stöðum í umræðu sem
var svo eytt, en þegar ég mótmælti
því bað ég aðrar konur um að nota
taggið til að mótmæla líka. Ég sá
og sagði að það væri ekki hægt að
þagga niður í okkur ef við værum
margar. Og það sprakk, eftir að
nokkrar hugrakkar konur sögðu
sögur sínar. Það var alveg magnað
að fylgjast með því.“
Þörfin er mikil
Elísabet segir byltinguna tæki-
færi sem ekki megi sleppa. „Þetta
gerðist svo ofboðslega hratt og
þróaðist út í eitthvað svo miklu
öflugra en ég hafði ímyndað mér.
Fjöldahreyfingar eiga samt til að
lifa stutt og hverfa hratt. Þetta má
ekki verða ein af þeim. Þetta hef-
ur möguleikann á að verða raun-
veruleg bylting til breytinga ef við
sleppum ekki takinu.“ Þrátt fyr-
ir kraftinn er hún ekkert endilega
bjartsýn á framtíðina. „En ég trúi
því samt sem áður að þessi bylting
gæti komið af stað breytingum, en
að þær muni gerast með hörku
og að það verði erfitt. Það verður
ekkert grín að fara gegn nauðg-
unarmenningu, sérstaklega þegar
fólk gerir mikið í því að vernda
gerendur. Hópurinn er aktív-
ur og mikill áhugi er á að gera
breytingar, enda er þörfin mikil.
Þetta er í startholunum, við erum
með hugmyndavinnuna í gangi og
að fikra okkur áfram í að finna út
úr hvernig væri best að gera þetta.
Þess vegna er svo frábært að hafa
margar konur sem hafa mikla
þekkingu á kerfinu, þolendur
sem hafa þurft að ganga í gegn-
um kerfið og allt þar á milli til að
setja saman aktívisma. Þetta er
grasrótaraktívismi, það eru kosn-
ingar eftir tvö ár og það er gott að
fara að þrýsta á réttu staðina til að
koma af stað breytingum.“
Tækifæri sem
ekki má sleppa
Elísabet Ýr stofnaði hópinn Aktívismi gegn
nauðgunarmenningu
Elísabet Ýr Atladóttir
Elísabet Ýr stofnaði hópinn Aktív
ismi gegn nauðgunarmenningu.
„Þetta hefur
möguleikann
á að verða raun-
veruleg bylting til
breytinga ef við
sleppum ekki takinu
„Mér fannst eins
og ég væri að
stelast til þess að sofa
hjá en datt ekki í hug
að þessi maður væri að
brjóta á mér.