Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Page 13
Fréttir 13Helgarblað 5.–8. júní 2015 Hæ sæti hvað færð þú að borða? Smáralind • Kringlunni • Reykjanesbæ • sími 511 2022 • www.dyrabaer.is Höggva á Hnútinn með 40 prósenta skatti n Haftaáætlun kynnt á ríkisstjórnarfundi í dag n 40 prósenta stöðugleikaskattur á slitabúin n Leggja fram fimm eða sex frumvörp n Þurfa að gefa eftir meira en 500 milljarða ráðgjöfum stjórnvalda á greiðslu­ jöfnuði þjóðarbúsins ef innlendum eignum kröfuhafa yrði hleypt út fyrir höft er lykilplagg við áætlun stjórn­ valda um afnám hafta. Ljóst er að sú greining skiptir sköpum fyrir stjórn­ völd til að sýna fram á nauðsyn þess að ráðast í aðgerðir sem færa má rök fyrir að grundvallist á neyðarrétti Ís­ lands. Þekkt er að stærsta hindrunin við losun hafta lýtur að uppgjöri á slita­ búum föllnu bankanna en um 40% heildareigna þeirra – um 900 millj­ arðar króna – eru íslenskar eign­ ir, hvort tveggja krónueignir og inn­ lendar eignir í gjaldeyri, sem munu að óbreyttu verða greiddar að langstærstum hluta út til erlendra kröfuhafa. Fram hefur komið í máli fjármálaráðherra að það séu gríðar­ leg vonbrigði að slitastjórnir búanna hafi ekki enn komið með raunhæf­ ar tillögur að nauðasamningum sem hægt væri að fallast á og veita undan­ þágu frá höftum. Ekki sé hægt að búa við slíkt ástand mikið lengur og því hljóti stjórnvöld að reyna að koma með leiðir til að höggva á hnútinn. Ríkið vill ekki bankana Samkvæmt heimildum DV hefur vinna framkvæmdahóps stjórn­ valda að losun hafta miðast að því að ríkið sé ekki að fara að eignast hluti slitabúanna í nýjum viðskipta­ bönkunum – Arion banka og Ís­ landsbanka. Stærstu einstöku inn­ lendu eignir búanna eru bankarnir en miðað við bókfært eigið fé þeirra eru eignarhlutir Kaupþings og Glitn­ is metnir á yfir 300 milljarða króna. Fyrir á ríkið 98% hlut í Landsbank­ anum, stærsta banka landsins, og ef eignarhlutur slitabúanna í Arion banka og Íslandsbanki myndi einnig færast í hendur ríkisins þá er ljóst að nánast allt fjármálakerfið væri kom­ ið í eigu ríkissjóðs. Losun hafta snýr öðrum þræði að því að leysa þann fortíðarvanda sem snýr að slitabúum föllnu bank­ anna og hefur haft verulega íþyngj­ andi áhrif á íslenska þjóðarbúið á umliðnum árum. Líkt og áður hefur verið rakið á síðum DV þá á aðlögun íslensks efnahagslífs – gríðarlegur samdráttur í fjárfestingu í innlendri eftirspurn samhliða þungri endur­ greiðslubyrði erlendra lána – sér nánast engin fordæmi hjá öðru ríki í kjölfar fjármálakreppu. Á árunum 2009 til 2013 nam uppsafnaður undirliggjandi viðskiptaafgangur Íslands 380 milljörðum. Slíkur við­ skiptaafgangur er fordæmalaus í hagsögu Íslands. Hefur þetta gerst í umhverfi þar sem innflutningur hef­ ur verið í lágmarki og raungengið haldist 20–30% undir sögulegu með­ altali. Þrátt fyrir þessar óvenjulegu aðstæður tókst Seðlabankanum ekki að byggja upp neinn óskuldsettan gjaldeyrisforða að ráði. Rann gjald­ eyrissköpun þjóðarbúsins að mestu til afborgana og vaxtagreiðslna slita­ búa föllnu bankanna. Forðinn stækkaður Sú haftaáætlun sem verður kynnt al­ menningi eftir helgi mun óhjákvæmi­ lega taka mið af þessu. Ekki verður gengið lengra í að ráðstafa afgangi á viðskiptajöfnuði til erlendra kröf­ uhafa. Þess í stað verði gjaldeyris­ sköpunin nýtt til að skapa svigrúm til erlendra fjárfestinga innlendra að­ ila – sem hafa verið fastir undir höft­ um í meira en sex ár – og treysta um­ gjörðina um gengi krónunnar með því að gera Seðlabankanum mögulegt að byggja upp umtalsverðan óskuld­ settan gjaldeyrisforða. Þar er horft til þess, samkvæmt upplýsingum DV, að Seðlabankinn geti komið sér upp óskuldsettum forða sem nem­ ur um þremur milljörðum evra, jafn­ virði um 450 milljarða króna. Í dag er forðinn hins vegar aðeins um 110 milljarðar króna. n Þ egar áætlun stjórnvalda um losun fjármagnshafta verður kynnt næstkomandi mánu­ dag eru meira en átján mánuð­ ir liðnir síðan að núverandi stjórn­ völd hófu vinnu sem miðaði að því að uppfæra núgildandi haftaáætl­ un frá árinu 2011. Fjármálaráðherra hefur sagt að ríkisstjórnin hafi komið að nánast „tómu borði í haftamálum“ þegar hún tók við í maí 2013. Sú vinna hófst fyrir alvöru þegar Benedikt Gíslason, sem þá var fram­ kvæmdastjóri fjárfestingabankasviðs MP banka, var fenginn í nóvember 2013 sem ráðgjafi fjármálaráðherra í haftamálum. Í sama mánuði var skipaður sex manna ráðgjafahópur, undir forystu Sigurbjörns Þorkels­ sonar, fjárfestis og fyrrverandi fram­ kvæmdastjóra alþjóðlega fjárfestinga­ bankans Lehman Brothers, sem hafði það hlutverk að útbúa tillögur til ráð­ herranefndar um efnahagsmál um áætlun um losun hafta. Sá hópur skil­ aði tillögum sínum til leiðtoga ríkis­ stjórnarinnar í mars 2014. Þremur mánuðum síðar var tek­ in ákvörðun að ráða í fullt starf fjóra sérfræðinga í framkvæmdastjórn um losun hafta. Ásamt Benedikt var hópurinn skipaður þeim Frey Her­ mannssyni, forstöðumanni fjárstýr­ ingar Seðlabanka Íslands, Eiríki Svav­ arssyni, hæstaréttarlögmanni, og Glenn Victor Kim, fjármálaráðgjafa hjá LJ Capital, en hann starfaði áður meðal annars hjá bandaríska fjár­ festingabankanum Lehman Brothers í meira en tuttugu ár. Á sama tíma var einnig gert meðal annars samkomu­ lag við bandaríska lögmanninn Lee Buchheit, sem stýrði samninganefnd Íslands í viðræðum við bresk og hol­ lensk stjórnvöld í Icesave­deilunni og Anne Krueger, hagfræðiprófess­ or og fyrrverandi aðstoðarfram­ kvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyris­ sjóðsins. Líkt og áður hefur verið sagt frá í DV þá skilaði framkvæmdastjórnin tillögum sínum í desember á liðnu ári og gerðu þær meðal annars ráð fyrir 35% útgöngugjaldi á útgreiðslur slitabúa föllnu bankanna til erlendra kröfuhafa. Þá voru einnig settar fram tillögur til að leysa þann vanda sem lýtur að aflandskrónueigendum – um 300 milljarðar í ríkisverðbréfum og innstæðum – en þær fólust í því að þeir yrðu knúnir til að skipta á krónu­ eignum sínum á afslætti í skuldabréf í erlendri mynt til meira en 30 ára. Í upphafi þessa árs urðu frekari breytingar á ráðgjafahópi stjórn­ valda þegar Freyr og Eiríkur fóru úr hópnum og inn komu þeir Sigurður Hannes son, framkvæmdastjóri eignastýringar MP banka og einn nánasti vinur og ráðgjafi forsætis­ ráðherra, og Ásgeir Helgi Reyk­ fjörð Gylfason, yfir lögfræðingur MP banka. Þá bættust við Ingibjörg Guð­ bjartsdóttir, framkvæmdastjóri gjald­ eyriseftirlits Seðlabankans, og Jón Þ. Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri al­ þjóðasamskipta og skrifstofu seðla­ bankastjóra. Stjórnvöld leituðu einnig til Davíðs Þór Björgvinssonar, prófess­ ors við lagadeild Háskóla Íslands og Kaupmannahafnarháskóla og fyrr­ verandi dómara við Mannréttinda­ dómstól Evrópu í Strassborg, sem var fenginn til að útbúa lögfræði álit um stöðugleikaskattinn. Þá hefur Ása Ólafsdóttir, dósent við lagadeild Há­ skóla Íslands og sérfræðingur í fjár­ muna­ og gjaldþrotaskiptarétti, veitt framkvæmdahópi stjórnvalda ráðgjöf auk þess sem Jóhannes Karl Sveins­ son, hæstaréttarlögmaður hjá Lands­ lögum, hefur aðstoðað fjármálaráðu­ neytið á síðustu vikum. Jóhannes Karl var meðal annars í málflutningsteymi Íslands í Icesave­málinu. Átján mánaða haftavinna Benedikt Gíslason Sigurður Hannesson Ágeir Helgi Reykfjörð Gylfason 40% skattur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.