Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Qupperneq 21
Fréttir Erlent 21Helgarblað 5.–8. júní 2015 Stofnaði StuðningShóp fyrir þýSka flaSSara n alfred Esser vill afglæpavæða flass n Vorkennir fórnarlömbum sínum en ræður ekki við sig h ann vorkennir fórnarlömb- um sínum en telur að hann hafi hreinlega enga stjórn á því sem hann gerir. Þjóðverj- inn Alfred Esser er flassari sem fullnægir þörf sinni fyrir að bera sig fyrir framan ókunnuga á almanna- færi reglulega og hefur nú stofnað fyrsta og eina stuðningshópinn fyrir fólk með þessa sýniþörf. Það má segja að flass, þar sem einstaklingar bera á sér kynfærin op- inberlega og fá eitthvað kynferðislegt út úr því að brjóta þannig gegn blygð- unarsemi grunlausra þolenda, sé tals- vert vandamál í Þýskalandi. Í fyrra bárust lögreglunni þar í landi 7.722 tilkynningar um stripl og ósæmilega hegðun einstaklinga sem gerendur geta átt yfir höfði sér allt að árs fang- elsi og umtalsverða sekt fyrir að fram- kvæma. Vefsíða tímaritsins og frétta- skýringaþáttarins Vice ræddi við Esser á dögunum. Þörfin yfirsterkari afleiðingunum Esser segir í samtali við Vice að það séu ekki aðeins karlmenn sem haldn- ir séu strípihneigð og leggur hann það þannig upp að margar konur full- nægi sinni þörf með ögrandi klæðn- aði. Eitt er þó alveg ljóst, sama hvaða réttlætingar menn kunna að hafa fyr- ir framferði sínu, þá geta þolendur flassara upplifað mikið áfall. Því þó að oft sé í daglegu tali grínast með slík uppátæki þá er um kynferðisbrot að ræða sem fær mikið á þá sem fyrir því verða. Samkvæmt rannsókn afbrota- fræðistofnunarinnar Niedersachsen hafa flassarar ekki áhuga á að skaða konur, eða aðra þolendur sína. En þeir taka frekar áhættuna á að þolend- ur þeirra fái áfall en að bæla þarfir sín- ar. Þá sýndu rannsóknir að flassarar eru nær undantekningarlaust síbrota- menn. Flass eins og fyllerí Esser segir að hann hafi fyrst berað sig fyrir framan ókunnuga konu fyr- ir fimmtán árum. „Ég gyrti niður um mig og tilfinningin var hressandi – sérstaklega vegna þess að henni var ekki brugðið. Hún var ekki hrædd og henni bauð ekki við því sem hún sá. Ég held að það sé ekki einn einasti sérfræðingur þarna úti sem geti út- skýrt hvers vegna ég geri þetta. En ég ímynda mér að þetta hafi eitthvað að gera með erfðir, hormóna, uppeldi og kynlífsreynslu í æsku.“ Aðspurður hvort hann geti ekki fengið útrás fyrir þetta blæti sitt á þar til gerðum nekt- arströndum eða nýlendum segir Ess- er að hann skilji ekki af hverju hann fái ekki það sama út úr því. „Að flassa er eins og að vera drukkinn og mað- ur missir bara stjórn. Þetta hlýtur að orsaka eitthvert efnasamband í heil- anum. Ég kann ekki að útskýra það.“ Margdæmdur glæpamaður Þegar Esser er spurður út í konurnar sem hann flassi og hvort hann vor- kenni þeim ekki segir hann að því fylgi ákveðin vanlíðan þegar konur verði hræddar. „Það hefur aldrei verið ásetningur minn að hræða nokkurn. Fólki er velkomið að sleppa því að kíkja ef það vill ekki sjá. En sem bet- ur fer eru til konur sem njóta þess líka. Þær eru sannkölluð guðsgjöf fyrir fólk með sýniþörf.“ Blaðamaður Vice spyr: En jafnvel þó að konur gætu bara litið undan, þá hefur þú þegar þvingað þær til að sjá typpið á þér. Það er ansi ólöglegt. „Já, ég veit. Ég hef raunar fengið rúmlega 20 dóma fyrir slíkt. Það eru ekki ýkjur. Það er ekki staðreynd sem ég er stoltur af. Ég hef eytt svo miklum peningum í dómsmál að ég hefði get- að ferðast um heiminn og keypt mér Porsche-bifreið.“ Eiginkonan styður hann Það sem kann að vekja athygli margra er að Esser er kvæntur og segir hann að eiginkonan styðji við bakið á hon- um. „Konan mín veit allt um þetta. Án hennar hefði ég aldrei getað helgað mig þessu umdeilda málefni.“ Þar sem Esser hefur þurft að svara til saka fyrir glæpi sína þá hefur hon- um einnig verið gert að leita sér að- stoðar og gangast undir meðferð. „Ég gæti líklega skrifað bók um þá upplifun. Margir virtir geðlæknar hafa margoft sagt að sýniþörf sem þessi eigi rætur sínar að rekja í heilann. Í bæði konum og körlum. Persónulega held ég að það væri til gagns ef við gætum kennt samfélaginu að takast á við málið í staðinn. En til að það gerist þarf að afglæpavæða athæfið.“ Engin stjórn á blætinu Blaðamaður Vice spyr: Svo þú telur að fólk þurfi að læra að sætta sig við hvatir þínar í staðinn fyrir að þú hald- ir limnum í buxunum? Er það þess vegna sem þú hefur stofnað þennan stuðningshóp fyrir flassara? „Já. Stærsta áhyggjuefni flestra sem haldnir eru sýniþörf er að ættingjar og vinir komist að því hvað þeir geri og þeir missi starfið eða þaðan af verra. Eftir svo mikla meðferð hef ég komist að því að það er mikið sem geðlækn- ar geta ekki útskýrt. Ég vildi rannsaka málið sjálfur og tala við annað fólk. Markmið mitt er að skapa vettvang þar sem fólk getur rætt opinskátt um málefnið. Vettvang þar sem fólk lítur ekki bara á þetta sem glæpsamlegt athæfi. Við viljum auka þekkingu okk- ar á fyrirbærinu.“ Esser segir að stuðningshópurinn stundi líka hagsmunagæslu fyrir fé- lagsmenn og mæli með lögmönnum sem sérhæfi sig í svona málum. „Við erum líka að berjast fyrir endurskoðun á úreltri löggjöf í þess- um málaflokki enda er ljóst að hún brýtur gegn jafnrétti kynjanna,“ seg- ir Esser án þess að útskýra það nánar. En þar sem ljóst er að hann mun ekki láta af þeirri iðju að bera sig í nánustu framtíð liggur beinast við að spyrja hvort hann vorkenni ekki fórn- arlömbum sínum og annarra flassara. „Auðvitað, en á sumu hefur maður enga stjórn.“ n Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Ekki nóg Esser segir að það sé ekki það sama að fara á nektarströnd og að flassa ókunnuga til að fá sýniþörfinni fullnægt. Hann hefur stofnað stuðningshóp fyrir þýska flassara sem vill að flass verði afglæpavætt. (Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.) Mynd REutERS Kr in gl an Kr in gl um ýr ar br au t Miklabraut Miklabraut Við erum hér! Tilb oð 17 10 bitar fyrir 4-5 5 Stórir bitar og 5 minni. Stórt hrásalat og kokteilsósa. Stór af frönskum og 2l. Pepsi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.