Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2015, Blaðsíða 62
54 Fólk Helgarblað 5.–8. júní 2015
Rafport ehf • Nýbýlavegur 14 • 200 Kópavogur • S: 554-4443 • rafport.is
Fækkaðu
hleðslu-
tækjum á
heimilinu
með því að
hlaða snjall-
símann og
stærri raftæki
á einum og
sama staðnum
Tengill með USB
Sniðug lausn fyrir hvert heimili og fyrirtæki
Hafðu
samband
við okkur
eða næsta
löggilda
rafverktaka
Safna fyrir bættu aðgengi
n Bíó Paradís biðlar til almennings á Karolina Fund n Brýnt að fatlað fólk komist leiðar sinnar
O
kkur hefur dauðlangað
mjög lengi að gera þessar
breytingar. Þetta er alveg
ferlegt ástand og persónu-
lega er ég miður mín yfir því
að hafa þurft að gera upp á milli fólks
sem kemur í bíóið. Það er hræði-
legt,“ segir Hrönn Sveinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Bíó Paradís, en nú
stendur yfir söfnun á Karolina Fund
til að bæta aðgengi fatlaðs fólks að
húsnæðinu. Þeir sem leggja söfnun-
inni lið fá bíókort í staðinn og allur
ágóði rennur óskipt í verkefnið. Nú er
komið að lokaspretti söfnunarinnar
og verður því fagnað með heljarinnar
uppákomu og kynningu á sumardag-
skrá Bíó Paradís í dag, föstudaginn 5.
júní, frá klukkan 17.00 til 18.00.
Þarf að breyta miklu
„Við höfum auðvitað vitað af því mjög
lengi að við yrðum að breyta hús-
næðinu. Við tókum við húsnæðinu
í því ásigkomulagi sem það var, árið
2010. En við erum bara sjálfseignar-
stofnun með ekkert fé á milli hand-
anna og öll okkar orka fyrstu árin fór
í að koma stoðum undir sjálfa starf-
semina, að sýna bíómyndir og redda
okkur sýningarbúnaði. En síðasta
árið hefur það verið efst á forgangs-
listanum hjá okkur að bæta úr að-
gengismálum.“
Hrönn segir þetta þó vera töluvert
dýrari aðgerð heldur en gert var ráð
fyrir í upphafi. „Við vorum að gæla
við það að við gætum leyst þetta á
ódýran hátt, en auðvitað vildum við
gera þetta á faglegan hátt og sam-
kvæmt öllum stöðlum. Við fengum
því verkfræðistofuna Mannvit til að
greina stöðuna fyrir okkur og þeir
komust að þeirri niðurstöðu að við
gætum ekki notað rampa. Við þyrft-
um lyftur. Svo þurfum við að búa til
salerni fyrir fatlaða.“
Fyrsti áfanginn 6,5 milljónir
Aðstandendur Bíó Paradís hafa
kannað hvort þau geti sótt um styrki
úr einhverjum sjóðum til að bæta úr
aðgenginu, án árangurs. „Við erum
mjög hissa. Framkvæmdasjóður fatl-
aðra hefur til dæmis verið lagður nið-
ur og styður því ekki svona breytingar
lengur. Það er hvergi hægt að finna
peninga í þetta verkefni. Auðvitað
geri ég mér grein fyrir því að við þurf-
um alltaf að leggja til einhvern pen-
ing. En þetta eru það margar millj-
ónir að svona félag sem er rekið í
sjálfboðavinnu, án hagnaðar, ræður
ekki við það eitt og sér,“ segir Hrönn
en áætlaður kostnaður við fyrsta
áfanga framkvæmdarinnar er rúmar
6,5 milljónir króna og eru tillögur að
úrbótum unnar í samvinnu við feril-
nefnd fatlaðra hjá Reykjavíkurborg.
Hrönn tekur skýrt fram að þetta
sé ekki óyfirstíganlegt vandamál
sem þau eru að glíma við, þau þurfi
bara smá aðstoð. Og þess vegna var
brugðið á það ráð að hefja söfnun á
Karolina Fund. n
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
Eina kvikmyndahúsið
sinnar tegundar hér á landi
Bíó Paradís er eina listræna kvikmyndamenningarhús
landsins sem er rekið undir hliðstæðum formerkjum
og „Art House Cinema“ sem finna má í borgum víða
um heim. Bíó Paradís hóf sýningar árið 2010 í húsnæði
sem var byggt árið 1977. Var það fyrsta kvikmyndahús
landsins með fleiri en einum sýningarsal og lengst af
rekið undir merkjum Regnbogans. Bíó Paradís er eina
kvikmyndahúsið sem eftir er í miðbæ Reykjavíkur.
G
uðjón Sigurðsson, formað-
ur MND félagsins, er bund-
inn við hjólastól og hefur því
ekki getað sótt uppákomur
á vegum Bíó Paradís. En það kom
virkilega illa við hann um daginn.
„Útskrift dóttur minnar úr Kvik-
myndaskólanum í maí var haldin
í Bíó Paradís. Og ég gat ekki verið
við útskriftina. Þannig það hindrar
mann á ýmsan hátt að komast ekki
inn í húsnæði. Ég reif mikinn kjaft við
allt og alla, en ég vildi ekki eyðileggja
daginn fyrir stelpunni og mæta
með mótmælaspjald við útskriftina
hjá henni,“ segir hann hlæjandi.
„En hún nefndi það í ræðunni sem
hún hélt að þetta væri til skamm-
ar.“ En þetta var svo sannarlega ekki
í fyrsta skipti sem hann hefur þurft
frá að hverfa vegna slæms aðgeng-
is. „Þegar ég er að fylgja börnum eða
öðrum á einhvern stað og það kem-
ur í ljós að staðurinn sem valinn var
er ekki með aðgengi, þá fer allt í bak-
lás. Þannig þetta snertir ekki bara
okkur sem eru í stólunum, heldur
kemur þetta líka niður á fjölskyldu
og vinum.
Guðjón var að sjálfsögðu miður
sín yfir því að geta ekki verið með
dóttur sinni á þessari stóru stund í
hennar lífi og fagnar því að til standi
að bæta úr aðgenginu. „Þau eru að
reyna sitt besta núna eftir ítrekaðar
árásir. Ég vona að það komi eitthvað
út úr þessari söfnun.“
Engir aumingjar
Guðjón bendir á að slæmt aðgengi
sé miklu stærra og alvarlegra vanda-
mál heldur en bara að fólk komist
ekki leiðar sinnar, heldur getur það
valdið því að fólk eingangrist. „Þetta
er mjög algengt, sérstaklega með
mænuskaðaða, að þeir einangrist
og detti í þunglyndi út af þessari
útilokun frá samfélaginu. Eins og
það sé ekki nóg að lenda í veikind-
um eða slysi þá þarf að glíma við
þetta líka. Við sem erum í hjólastól-
um erum ekki aumingjar með hor,
við erum vinnandi fólk með pening
sem þarf að eyða þeim eins og aðr-
ir,“ segir Guðjón sem bendir á að oft
sé hindrunin ekki stórvægileg. Oft
sé einfaldlega bara um þröskulda
að ræða sem hjólastólarnir komast
ekki yfir. „Í flestum tilvikum er þetta
athugunarleysi. Fólk stendur ekki
og híar á mig og vill mig ekki inn.
Það á bara að leysa þetta.“
Komst ekki í útskrift dóttur sinnar
Guðjón segir fólk geta eingangrast vegna slæms aðgengis
Þurfa aðstoð
Að bæta aðgengi
að Bíó Paradís
kostar mun meira
en aðstandendur
óraði fyrir.
„Okkur hefur
dauðlangað
mjög lengi að gera
þessar breytingar