Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2015, Blaðsíða 2
Helgarblað 19.–22. júní 20152 Fréttir
BURT MEÐ MÚSARÚLNLIÐ
Ei algengasta vandamálið meðal tölvunotenda – bæði barna og fullorðinna
Léir álagi af viðkvæmum
sinaskeiðum úlnliðsins
Minnkar og fyrirbyggir spennu í hendi,
handlegg, öxlum og hálsi
duopad.is
Náúruleg staða með DuoPadSlæm staða handleggs
Meðmæli sjúkraþjálfara
léur og þægilegur
ÚLNLIÐSPÚÐI
aðeins 4 gr.
Fæst á www.duopad.is – árfesting gegn músararmi
DuoPad fylgir hreyfingum
handleggsins í staðinn fyrir að
allur líkaminn þurfi að aðlagast
stuðningi sem liggur á borðinu.
1
2
3
4
EINKENNI MÚSARÚLNLIÐS
Aukinn stirðleiki í hálsi og axlasvæði,
síðar seiðingur út í handlegg.
Verkur upp handlegg að olnboga með
vanlíðan og sársauka.
Verkurinn verður ólíðandi og stöðugur
í olnboga, úlnliðum og öxlum. Stífleiki í
hálsi getur verið viðvarandi.
Fólk getur orðið ófært um að nota
tölvumús og jafnvel óvinnufært.
Lónið rakar inn 10
milljónum á dag
n Tekjur tvöfölduðust á þremur árum n Laun stjórnendanna hækkuðu
G
estir Bláa lónsins borguðu
tæpa 3,7 milljarða króna
í aðgangseyri í fyrra eða
rúmar tíu milljónir króna
á dag. Tekjur af sölu í lón-
ið jukust um 700 milljónir króna
en gestunum fjölgaði um 119 þús-
und eða 18 prósent á síðasta ári.
Þessi tekjuliður fyrirtækisins hefur
meira en tvöfaldast á síðustu þrem-
ur árum en veitinga- og vörusala
þess einnig tekið stór stökk.
Veitingar fyrir 1,2 milljarða
Samkvæmt ársreikningi Bláa lóns-
ins hf. fyrir síðasta ár, sem var
kynntur á aðalfundi fyrirtækis-
ins síðasta þriðjudag og DV hefur
undir höndum, var vöxtur í öllum
stóru tekjuliðum baðlónsins í fyrra.
Veitingasalan skilaði um átta millj-
ónum evra, jafnvirði 1,2 milljarða
króna miðað við meðalgengi 2014,
og jókst um 1,8 milljónir evra milli
ára. Sala á húðvörum sem Bláa lón-
ið framleiðir, sem og öðrum vörum
fyrirtækisins, nam rúmum millj-
arði króna og jókst um 755 þúsund
evrur. Heildartekjur fyrirtækisins
námu 6,2 milljörðum króna í fyrra.
Ódýrasti aðgöngumiðinn fyr-
ir fullorðna kostar 5.300 krónur
en Bláa lónið rukkar 6.800 krón-
ur yfir háannatímann á sumrin.
Í júní 2013 var ákveðið að rukka
gesti sem heimsækja fyrirtækið,
án þess að fara í lónið sjálft, um tíu
evrur, tæpar 1.500 krónur. Tíu pró-
sent heimsóknargjaldsins renna
til umhverfisverkefna í nágrenni
Bláa lónsins og á Reykjanesi en í
ársreikningnum er ekki tekið fram
hversu miklu gjaldið skilaði í fyrra.
Tveir milljarðar í arð
Bláa lónið sendi frá sér afkomu-
tilkynningu síðasta þriðjudag en
ársreikningi fyrirtækisins hefur
ekki enn verið skilað til ársreikn-
ingaskrár Ríkisskattstjóra. Í til-
kynningunni kom fram að fyrir-
tækið var rekið með 1,8 milljarða
króna hagnaði eftir skatta á síðasta
ári. Aðalfundur fyrirtækisins hafi
einnig samþykkt að greiða hluthöf-
um þess tæpa 1,2 milljarða króna í
arð vegna rekstursins í fyrra. Arð-
greiðsla upp á 930 milljónir króna
var samþykkt á aðalfundi Bláa
lónsins í fyrra og nema greiðslurn-
ar vegna áranna 2013 og 2014 því
rúmum tveimur milljörðum króna.
Ekki var lögð fram tillaga um
hækkun stjórnarlauna á fundinum.
Launin voru aftur á móti hækkuð í
fyrra og Helgi Magnússon, stjórn-
arformaður Bláa lónsins, fær nú
700 þúsund krónur á mánuði fyr-
ir störf sín eða 8,4 milljónir á ári.
Aðrir stjórnarmenn fá 525 þúsund
krónur á mánuði og varamenn fá
350 þúsund krónur. Samkvæmt
ársreikningnum námu laun stjórn-
ar og forstjóra samtals 588 þúsund
evrum, rúmri 91 milljón króna mið-
að við meðalgengi 2014, og hækk-
uðu um samtals 18 þúsund evrur,
2,8 milljónir króna, milli ára. n
170 milljónir í
Laugardalnum
Gestir Laugardalslaugar voru um 800
þúsund talsins í fyrra og skilaði sala
aðgangseyris vegna stakra sundferða
og korthafa um 170 milljónum króna.
Taka ber fram að fullt verð fyrir staka
sundferð er 650 krónur, sem er einn
tíundi af því sem Bláa lónið rukkar yfir
háannatímann, eða 6.800 krónur.
Peningavél Nýtt met var sett í fjölda
heimsókna í Bláa Lónið árið 2014. Það ár voru
gestirnir 766 þúsund talsins. Mynd RóbeRT Reynisson
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Bréfin á lýta-
lausri íslensku
Lævísir svikalómar herja enn á
Íslendinga með tölvubréfum sem
ætlað er að blekkja þá og hafa að
féþúfu. Stjórnendum Microsoft á
Íslandi hefur borist fjöldi tilkynn-
inga um slíkt athæfi síðustu daga
en bréfin eru látin líta út fyrir að
koma frá fyrirtækinu. „Þetta er
hvimleitt. Því er ekki að neita,“
segir Heimir Fannar Gunnlaugs-
son, framkvæmdastjóri fyrirtæk-
isins. „Ég vil biðja fólk að smella
ekki á tengla í þessum pósti því
með því gæti það verið að hleypa
inn tölvuormum og vírusum sem
gefa þessum óprúttnu aðilum að-
gang að tölvu viðkomandi.“ Virð-
ist pósturinn vera í víðri dreifingu
hér á landi. Útlit er fyrir að ís-
lenskur þýðandi hafi yfirfarið
texta bréfsins fyrir svindlarana en
það er á lýtalausri íslensku.
CCP í Vatnsmýrina
Reisa nýbyggingu á svæði Vísindagarða Háskóla Íslands
Í
slenski tölvuleikjaframleiðandinn
CCP hyggst flytja höfuðstöðvar
sínar í nýbyggingu sem mun rísa
á svæði Vísindagarða Háskóla Ís-
lands í Vatnsmýri. Nýbyggingin rís við
Sturlugötu og auk nýrrar aðstöðu CCP
verður að finna aðstöðu fyrir fleiri ný-
sköpunarfyrirtæki í hinu nýja húsi.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefj-
ist í kringum næstu áramót.
Samningur um flutning
starfsemi CCP var undirritaður í
Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla
Íslands, í gær, fimmtudag. Undir
samninginn rituðu Hilmar Veigar
Pétursson, framkvæmdastjóri CCP,
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla
Íslands, og Hilmar Bragi Janusson,
stjórnarformaður Vísindagarða
Háskóla Íslands.„Með þessum
áformum er að hefjast nýr kafli í
starfsemi CCP á Íslandi þar sem við
sjáum fram á að efla enn frekar farsælt
samstarf okkar við háskólasamfélagið
og skapandi greinar hérlendis.
Fram undan eru spennandi tímar
hjá fyrirtækinu og ég er sannfærður
um að miklir möguleikar eru
fólgnir í þeirri samvinnu og
uppbyggingaráformum sem
fyrirhuguð eru í Vísindagörðunum í
Vatnsmýrinni á sviði tækniþróunar,
rannsókna og nýsköpunar,“ er haft eftir
Hilmari Veigari, framkvæmdastjóra
CCP, í fréttatilkynningu. n
samkomulag Dagur B. Eggertsson, Hilm-
ar Veigar Pétursson, Hilmar Bragi Janusson
og Illugi Gunnarsson. Mynd KRisTinn inGVaRsson
Svarar ekki
fyrirspurn DV
Sigríður Hallgrímsdóttir, að-
stoðarmaður Illuga Gunnars-
sonar mennta- og menn-
ingarmálaráðherra, hefur ekki
svarað fyrirspurn DV um það
hvort ráðherrann vilji veita
viðtal um tengsl hans við Arct-
ic Green Energy, áður Orka
Energy. Rúm vika er síðan DV
sendi Sigríði nýjustu fyrir-
spurnina. Samskipti Illuga og
Orku Energy komust í hámæli
í apríl síðastliðnum eftir að
fjölmiðlar greindu frá þátttöku
nokkurra fulltrúa fyrirtækisins
í opinberri heimsókn mennta-
málaráðherrans til Kína. Síðar
kom í ljós að Illugi seldi Hauki
Harðarsyni, stjórnarformanni
fyrirtækisins, íbúð sína sem
hann leigir nú af Hauki.