Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2015, Blaðsíða 6
Helgarblað 19.–22. júní 20156 Fréttir
Smart föt
fyrir smart konur
Sjáðu
úrvalið á
tiskuhus.is
Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur S: 571-5464
Stærðir 38-54
Fyrirlestrar um mannabein
Fræðimenn í Þjóðminjasafni Íslands
F
élag fornleifafræðinga,
Mannfræðifélag Íslands og
Þjóðminjasafn Íslands standa
fyrir tveimur fyrirlestrum um
mannabeinafræði laugar-
daginn 20. júní klukkan 14 í fyrirlestra-
sal Þjóðminjasafns Íslands.
Báðir fyrirlesararnir eru leiðandi
á sínu sviði. Tim Thompson, prófess-
or við Teesside-háskólann á Englandi,
fjallar um hvernig fornleifafræði og
mannfræði eru notuð við rannsóknir á
morðmálum.
Dr. Rebecca Gowland frá Durham-
háskólanum á Englandi mun fjalla í
hinum fyrirlestrinum um rannsókn-
ir á mannabeinum barna í tengsl-
um við heilsufar þeirra meðan á iðn-
byltingunni stóð í Bretlandi á 19. og 20.
öld. Hún hefur meðal annars leiðbeint
doktorsnemum við Háskóla Íslands.
Fyrirlestrarnir fara fram á ensku og er
aðgangur ókeypis. n freyr@dv.is
Þrír stjórnendur hættir
í Tækniskóla Íslands
n Tveimur var sagt upp og sá þriðji sagði starfi sínu lausu n Skólum fækkað
T
veimur stjórnendum hefur
verið sagt upp störfum í
Tækniskóla Íslands í hag-
ræðingarskyni og einn til
viðbótar hefur sagt starfi
sínu lausu.
Að sögn Jóns B. Stefánssonar,
skólameistara Tækniskólans, tengj-
ast þessar breytingar ekki fyrirhug-
aðri sameiningu Tækniskólans og
Iðnskóla Hafnarfjarðar, heldur er
um að ræða breytingar á stjórn-
endateyminu sem voru ákveðnar í
vetur vegna sameiningar skóla inn-
an Tækniskólans.
Hönnunar- og handverksskólinn
mun sameinast Hársnyrtiskólanum
og var Sigríði Ágústsdóttur, skóla-
stjóra fyrrnefnda skólans, sagt upp.
Auk þess renna Fjölmenningar- og
Tæknimenntaskólinn saman. Ás-
laug Maack Pétursdóttur, skóla-
stjóri Endurmenntunarskólans,
missti starfið í þeirri hagræðingu og
Guðmundur Hreinsson, skólastjóri
Byggingatækniskólans, sagði starfi
sínu lausu.
Nemendum fækkar
„Þetta hefur verið í umræðunni
innan stjórnar frá því um áramótin
og tengist ekki Hafnarfirði,“ segir
Jón. „Nemendum í framhaldsskóla-
kerfinu er að fækka því árgangarnir
sem koma upp eru minni en áður.
Ráðuneytið [mennta- og menn-
ingarmála] hefur fækkað þeim
heimildum sem við höfum og við
þurfum að bregðast við því og mæta
þeirri fækkun sem hefur orðið í
nemendaígildum,“ segir hann en á
síðustu tveimur árum hefur nem-
endaígildum fækkað um í kringum
150 við skólann.
Sameinast 1. ágúst
DV greindi fyrst frá því í lok mars að
vinnuhópur á vegum menntamála-
ráðuneytisins væri að vinna svo-
kallaða fýsileikaathugun á því hvort
sameina ætti Tækniskóla Íslands og
Iðnskólann í Hafnarfirði. Hópurinn
skilaði af sér greinargerð um málið
þar sem lagt var til að sameiningin
yrði að veruleika.
Athugunin fór fram að frum-
kvæði stjórnar Tækniskólans.
Stefnt er að því að sameinaður
skóli undir merkjum Tækniskólans
hefji störf 1. ágúst og bendir ekk-
ert til annars en að sú verði raunin,
þrátt fyrir að skólarnir hafi ekki enn
verið sameinaðir á formlegan hátt.
Bíður eftir framhaldslífi
Ársæll Guðmundsson, sem hefur
starfað sem skólastjóri Iðnskólans
í Hafnarfirði en var „lánaður“ í eitt
ár í mennta- og menningarmála-
ráðuneytið, mun missa vinnuna.
Kennarar við skólann munu aftur á
móti allir starfa áfram við nýja skól-
ann.
Undanfarin ár hefur verið fækk-
að um sjö til átta stöðugildi við skól-
ann og nemendum hefur fækkað
um á annað hundrað.
„Það kemur bara í ljós þegar
sameiningin verður gengin í garð
hvaða framhaldslíf ég fæ,“ segir Ár-
sæll, sem var hluti af hópi mennta-
og menningarmálaráðuneytisins
sem gerði fýsileikakönnunina á
sameiningu Tækniskólans og Iðn-
skólans. n
„Þetta hefur ver-
ið í umræðunni
innan stjórnar frá því um
áramótin og tengist ekki
Hafnarfirði.
Jón B. Stefánsson,
skólameistari Tækniskólans
Tíu vinsælustu skólarnir í heildina
1 Tækniskóli Íslands
2 Verslunarskóli Íslands
3 Menntaskólinn í Kópavogi
4 Verkmenntaskólinn á Akureyri
5 Verkmenntaskólinn á Akureyri
6 Borgarholts- skóli
7 Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
8 Fjölbrautaskólinn í Ármúla
9 Fjölbrautaskóli Suðurnesja
10 Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Freyr Bjarnason
freyr@dv.is
Tækniskóli Íslands eftirsóttastur
Tækniskóli Íslands er eftirsóttasti skóli
landsins þegar allir aldurshópar nemenda
eru teknir með í reikninginn. Alls sóttu
865 nemendur um skólann sem fyrsta val
næsta haust en 558 sóttu um Verslunar-
skólann sem fyrsta val.
Tækniskólinn er ekki á meðal tíu vinsæl-
ustu skólanna ef eingöngu er skoðaður
fjöldi nýnema sem sækir þar um, eða
170 nemendur. Þar er Verslunarskólinn
vinsælastur með 554 nemendur. En
þegar skoðaður er fjöldi eldri nemenda
sem sækir um skólann sem fyrsta val er
Tækniskólinn langvinsælastur með 695
nemendur.
Þriðji vinsælasti skólinn í heildina er
Menntaskólinn í Kópavogi. Alls sóttu
498 nemendur um að komast inn í skól-
ann í haust. Þar af voru 299 þeirra eldri
nemendur og 199 nýnemar.
Menntaskólinn í Hamrahlíð er í fjórða
sæti með 465 umsækjendur. Næstflestir
nýnemar sóttu um skólann sem fyrsta
val, eða 336, á meðan 139 eldri nemendur
sóttu um hann sem fyrsta val.
Fimmti eftirsóttasti skólinn er Verk-
menntaskólinn á Akureyri. Samtals
sóttu 432 nemendur um skólann sem
fyrsta val. Þar af voru 232 eldri nemendur
og 200 nýnemar.
Jón B. Stefánsson Skólameistari Tækni-
skóla Íslands segir að nemendaígildum hafi
fækkað um 150 undanfarin tvö ár.
Ársæll Guðmundsson Mun missa starf
sitt sem skólastjóri Iðnskólans í Hafnarfirði.
Tim Thompson Prófessorinn fjallar um
tengsl fornleifa- og mannfræði við rann-
sóknir á morðmálum.
Slátrun geng-
ur eðlilega
Verkfalli starfsmanna hjá Mat-
vælastofnun lauk með lagasetn-
ingu síðustu helgi. Með endur-
komu starfsmanna færist eftirlit
með matvælaöryggi og dýravel-
ferð, kjötframleiðsla og inn- og
útflutningur matvæla, plantna,
fóðurs, áburðar og annarra afurða
í samt horf. Mikið mun mæða á
inn- og útflutningsskrifstofu stofn-
unarinnar, starfsfók hefur verið
fært til í störfum og mannafli auk-
inn við skrifstofuna til að flýta
fyrir afgreiðslu sendinga til og frá
landinu. Þeir innflytjendur sem
bíða afgreiðslu með viðkvæma
vöru eru beðnir um að ítreka er-
indi sín og hafa samband við Mat-
vælastofnun. Dýralæknar Mat-
vælastofnunar mættu í sláturhús á
mánudag og hefur slátrun gengið
eðlilega frá þeim tíma. Reglu-
bundið eftirlit með matvæla-
öryggi, áburði, fóðri, plöntuheil-
brigði og öðru, færist nú í eðlilegt
horf. Farið er með mál samkvæmt
forgangsröðun stofnunarinnar en
óhjákvæmilegt er að töf verði á af-
greiðslu mála.
900 manns
með Norrænu
Um það bil 900 manns komu
til Seyðisfjarðar með Norrænu
í vikunni en ferjan er komin á
sumar tíma sinn á fimmtudögum.
Rúmlega 450 ökutæki fóru í
land. Kom ferjan í land um
hálf níu í morgunsárið og var
farin klukkan ellefu, nokkrum
tímum síðar. Annasamt var við
Seyðisfjarðarhöfn en skemmti-
ferðaskipin Ocean Diamond og
Azores voru þar einnig. Toll-
afgreiðsla gekk afar vel þótt ferðin
væri fjölmenn. Lögregluþjónar
fylgdu eftir átaki til að sporna við
utanvegaakstri og fræddu einkum
ferðamenn sem ferðuðust á bílum.