Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2015, Blaðsíða 46
46 Fólk
H
ljómsveitin Reykjavíkur
dætur hefur vakið athygli
og umtal síðan sveitin
spratt fram í byrjun síð
asta árs. Þær hafa mátt
þola gagnrýni fyrir textagerð og
framkomu en að sama skapi fagn
að fyrir að ryðja brautina fyrir
ungar konur sem vilja rappa.
Hljómsveitin gefur nú út lagið
„Ógeðsleg“ ásamt metnaðarfullu
myndbandi sem verður frumsýnt
á dv.is þann 19. júní. Í tilefni af
því settust þær Salka Valsdóttir og
Þórdís Björk Þorfinnsdóttir niður í
létt spjall:
Konur með kjaft
Um hvað er lagið og tengist útgáf-
an 19. júní?
Þórdís: „Lagið er ekki um neitt
sérstakt, bara hvað við erum nett
ar. Það að lagið sé gefið út á þess
um degi er tilviljun. Svo ég tali fyrir
sjálfa mig þá er ég ekkert sérstak
lega „peppuð“ fyrir þessum degi,
ég ætla ekki að vera auðmjúk af
þakklæti yfir einhverjum sjálf
sögðum réttindum. Fengu ekki
fátækir karlar og vinnumenn líka
kosningarétt þennan dag? Ég sé þá
ekki vera að tryllast úr tilhlökkun.“
Salka:„Okkur langaði bara til
að gefa út nýtt hóplag. Við erum
að fara að spila á nokkrum tón
listarhátíðum í sumar, til dæmis
Secret Solstice, og vildum fagna
sumrinu. Það að lagið sé ekki um
neitt sérstakt má kannski rekja til
hugarfarsbreytingar innan hóps
ins sem átti sér stað í byrjun ársins.
Þá urðu smávægilegar deilur inn
an hópsins sem endaði með því
að ein dóttirin, Kolfinna Nikulás
dóttir, betur þekkt sem Kylfan,
sagði sig úr hópnum og það rataði
í fjölmiðla. Fram að því höfðum
við oft verið settar í þann ramma
að þurfa að vera pólitískt réttar, að
vera fyrirmyndir. Um leið og við
fórum út fyrir þá braut fengum við
yfir okkur skæðadrífu frá hneyksl
uðum mæðrum. Við vorum svo
lítið farnar að fylgja því, að hafa
áhyggjur af því hvort við værum
góðar fyrirmyndir og þá ábyrgð
sem því fylgir. Þetta uppátæki
Kylfunnar gerði það hins vegar að
verkum að við frelsuðumst eigin
lega undan þessu oki. Við vorum
ekki lengur pólitískt rétt afl og þar
með getum við gert það sem við
viljum. Þetta lag er í raun og veru
uppskeruhátíð þess. Við erum
konur með kjaft og viljum okkar
pláss í samfélaginu fyrir það.“
Strákar komast upp með
meira
Þær ítreka báðar að boðskapur
lagsins sé enginn.
Salka: „Það er stærsta yfirlýs
ingin. Að þurfa ekki að vera með
neinn boðskap. Við erum eigin
lega komnar hringinn. Þegar ég
byrjaði að rappa hafði ég ekki einu
sinni vit á því að vera með boð
skap, heldur sagði ég bara eitthvert
rugl. Um leið og athyglin og gagn
rýnin jókst vildi maður helst koma
öllum skoðunum sínum og tilfinn
ingum á framfæri. En að lokum er
síðan ekkert áhrifameira heldur
en kona sem þorir að standa sterk
uppi á sviði og talar ekki um neitt
sem skiptir máli og þorir að standa
með því. Við erum bara ógeðslega
nettar.“
En hverjar hafa viðtökurnar við
þessu nýfengna frelsi verið?
Salka: „Við spiluðum kl. 20 á
hátíðarhöldunum við Arnarhvol í
tilefni af 17. júní. Reykjavíkurborg
bókaði okkur á uppákomuna og
við spiluðum auðvitað okkar lög.
Eftir atriðið okkar komu að okk
ur mæðgur, alveg brjálaðar, sem
sögðu að allt sem við hefðum sagt
væri óviðeigandi. Þær gátu ekki
sagt hvað það var nákvæmlega
sem fór fyrir brjóstið á þeim, bara
allt. Það sýnir að við eigum enn
verk að vinna því ég held að það
sé ólíklegt að karlkynsrapparar
hefðu lent í þessu, strákarnir kom
ast upp með meira í textum sínum
og framkomu. Við fáum síður rými
til þess að vera óþekkar. En við ætl
um ekki að staldra við það. Ef ein
hverjum finnst við óviðeigandi þá
er það bara þannig.“
Þórdís: „Það er voðalega lítið
spáð í boðskap karlkyns rappara.
Þeir eru einfaldlega að reyna að
koma því á framfæri að þeir séu
töff. Við erum það líka. Þetta lag
fjallar bara um fíling, stemningu
og það að vera nettar.“
Markmiðið ekki að fá spilun
Myndbandinu er leikstýrt af Sól
veigu Pálsdóttur, sem er einn af
meðlimum Reykjavíkurdætra.
Antonía Lárusdóttir var hennar
hægri hönd varðandi listrænt út
lit og hún tók myndbandið upp,
klippti og vann alla myndvinnslu.
Athygli vekur að lagið er yfir sjö
mínútur að lengd.
Salka: Við vildum að mynd
bandið yrði einfalt, hrátt og gríp
andi eins og vonandi lagið. Allar
fengu að velja sína ramma og sitt
útlit sjálfar. Við erum 15 talsins
í laginu og það skýrir lengd lags
ins. Við fáum því seint spilun í út
varpi með þetta lag enda er það
svo sem ekki markmið í sjálfu sér.
Það kemur berlega í ljós í þessu
lagi hvað við erum ólíkar. Bæði
í rappi en líka sem persónur. Við
stöndum í raun fyrir að allar séu
bara eins og þær eru, við fögnum
fjölbreytileika.
En hvernig gengur að skipuleggja
svona fjölmenna hljómsveit?
Þórdís: „Við skilgreinum okkur
ekkert endilega sem hljómsveit,
við erum frekar fjöllistahópur. Og
í þessum hópi er lítið drama okkar
á milli, sem er í raun sérstakt því
að við erum svo rosalega ólíkar.
Við leysum það hins vegar alltaf
í mesta bróðerni, eða öllu heldur
systraerni! Það gneistaði aðeins
í kringum Kylfuna í byrjun árs en
við höfum grafið stríðsöxina og
hún mun ekki finnast aftur. Kylfan
leikur til dæmis lykil hlutverk í
nýja laginu. En fyrst og fremst
þá stöndum við saman og það
er ótrúlega lærdómsríkt að hafa
kynnst þessum hópi. Við erum
drullunettar.“ n
Helgarblað 19.–22. júní 2015
Rafport ehf • Nýbýlavegur 14 • 200 Kópavogur • S: 554-4443 • rafport.is
Við bjóðum uppá allar
gerðir merkivéla og
prentara sem henta inná
hvert heimili og fyrirtæki
Komdu við og kíktu
á þetta frábæra úrval
sem við höfum upp
á að bjóða
„Við erum drullunettar“
n Reykjavíkurdætur gefa út lagið Ógeðsleg n Dagsetningin tilviljun n Boðskapurinn enginn
„Ég ætla ekki að
vera auðmjúk af
þakklæti yfir einhverjum
sjálfsögðum réttindum
Kjaftforar konur Salka og Þórdís
vilja að það sé pláss í samfélaginu
fyrir konur með kjaft, án þess að þær
þurfi að vera fyrirmyndir.
Salka Valsdóttir og Þórdís Björk
Þorfinnsdóttir Vildi gefa út lag til að
fagna sumrinu. Tilviljun að lagið er gefið út
19. júní.