Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2015, Page 15
Fréttir 15
É
g var langt niðri á þess-
um tíma og glímdi við
miklar geðraskanir,“ seg-
ir Hlín Einarsdóttir, sem var
lögð inn á lokaða geðdeild
daginn eftir að hún var handtekin
úti í hrauni í Hafnarfirði eftir mis-
heppnaða fjárkúgunartilraun á
hendur forsætisráðherra landsins.
Hlín dvaldi á deildinni í rúma
viku þar sem hún fékk þá með-
höndlun sem hún segist hafa þurft
á að halda.
Blaðamaður DV hitti Hlín og
ræddi við hana um erfiða æsku,
geðsjúkdóminn persónuleikarösk-
un, köstin sem hún tók, nauðgun
sem hún segir hafa ýtt undir erfið-
leika hennar, hlut Malínar Brand,
systur hennar, í öllum málunum,
sundraða fjölskyldu og nú lífið
sem bíður hennar.
Systir mín er ekki
svona saklaus
En áður en við byrjum á byrjuninni
er gott að fá nokkur atriði á hreint.
Var þetta allt Hlín að kenna? Stóð
hún ein í þessu öllu saman og var
systir hennar, Malín Brand, sem
handtekin var ásamt Hlín, óvart
dregin inn í þessa atburðarás
sem hún „… hvorki skipulagði né
tengdist á nokkurn hátt nema fjöl-
skylduböndum,“ eins og fram kom
í yfirlýsingu hennar til fjölmiðla?
„Nei, það er ekki satt. Hún kom
að báðum þessum málum alveg
jafn mikið og ég. Það eru hrein
ósannindi af hennar hálfu að ég
hafi ein staðið í þessu og að hún
hafi einhvern veginn dregist inn í
þetta út af mér. Það segir sig bara
sjálft þegar hún kemur með mér
í Hafnarfjörð að sækja töskuna,“
segir Hlín og bætir við að hug-
myndin hafi kviknað eina kvöld-
stund í maí þegar Malín gisti hjá
henni.
„Malín átti í miklum fjárhags-
erfiðleikum og ég líka. Þessi hug-
mynd kom út frá þessari stöðu
sem við vorum í. Malín gisti hjá
mér eitt kvöldið og þessi hugmynd
kviknaði,“ segir Hlín um upphaf-
ið að hótunarbréfinu sem sent var
eiginkonu forsætisráðherra.
Ekki útklipptir stafir
En hótunarbréfið var ekki, eins
og greint hafði verið frá í fjölmiðl-
um, búið til úr útklipptum bók-
stöfum úr gömlum fréttablöð-
um heldur var það skrifað í tölvu,
af þeim báðum, stílað á Sigmund
Davíð Gunnlaugsson og að lokum
prentað út á skrifstofum Morgun-
blaðsins þar sem Malín starfar.
Þær keyptu síðan frímerki og um-
slag og sendu bréfið.
„Systir mín tók þátt í þessu öllu
og því var mér brugðið þegar hún
kom fram í fjölmiðlum og skellti
skuldinni á mig og minn sjúkdóm,“
segir Hlín sem hefur ekki náð sam-
bandi við systur sína síðan þær
voru handteknar föstudaginn 29.
maí. Hlín segist standa óhrædd við
þær fullyrðingar að systir hennar
hafi tekið alveg jafn mikinn þátt í
þessu og hún og að sannanir fyr-
ir því sé að finna í gögnum sem
lögreglan haldlagði í húsleit eftir
handtökuna í Hafnarfirði auk fleiri
sönnunargagna.
Segir Malín hafa
tekið helming miskabótanna
„Það eru hljóðupptökur til í sím-
anum mínum sem sanna að hún
tók alveg jafn mikinn þátt í þessu
og ég. Hún sá til dæmis um allt
sem viðkom þessum miskabót-
um. Mér var nauðgað og Malín
hjálpaði mér að komast í gegnum
það og stóð í öllum samskiptum
við manninn sem braut á mér. Ég
lét hana meira að segja fá helm-
inginn af miskabótunum, 375 þús-
und, því ég vildi sýna henni að ég
væri þakklát fyrir hennar aðkomu
að málinu, fyrir að vera þessi milli-
göngumaður.“
DV hefur ítrekað reynt að ná
sambandi við Malín til að spyrja út
í yfirlýsingar hennar í fjölmiðlum,
þátttöku hennar í fjárkúguninni og
eftirmálum hinnar meintu nauð-
gunar en ekki gengið sem skyldi.
Samkvæmt heimildum DV er
Malín stödd erlendis hjá kærasta
sínum. Þau kynntust hér á landi
í apríl, skömmu áður en þessi
reyfarakennda atburðarás hófst.
Helgarblað 19.–22. júní 2015
Er skipulagið í lagi...?
Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki
Brettarekkar
Gey
mslu
- og
dekk
jahi
llur
Mikil burðargeta
Einfalt í uppsetningu
KÍKTU VIÐ Á WWW.ISOLD.IS OPIÐ 08:00 - 17:00
Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík
Sími 53 53 600 - Fax 567 3609
Atli Már Gylfason
atli@dv.is
„Ég vildi að ég gæti tekið
til baka það sem ég gerði“
n Hlín Einarsdóttir reyndi að kúga fé út úr forsætisráðherra n Hún stígur fram og greinir frá geðröskunum
Framhald á næstu síðu
Glímir við erfiðleika
Hlín greinir frá alvarlegum
veikindum sem hún segir
hafa hrjáð sig lengi.
Mynd SiGtryGGur Ari
„ Það er alveg
skelfilegt og í
raun næstum óyfir-
stíganlegt að vera
kölluð lygari