Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2015, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2015, Qupperneq 11
Fréttir 11Helgarblað 17.–20. júlí 2015 Birna Guðmundsdóttir birna@dv.is S trætóskýli borgarinnar ættu nú að vera vel þakin plakötum,“ segir Hjalti Vig­ fússon, einn aðstandenda Druslugöngunnar sem fram fer 25. júlí næstkomandi. Myndir af þjóðþekktum einstak­ lingum prýða strætóskýli borgar­ innar í tilefni af henni en auk þess má finna plaköt á víða um höfuð­ borgarsvæðið með áletruninni „ég er drusla.“ Meðal þeirra sem taka þátt í herferðinni eru Dagur B. Eggerts­ son borgarstjóri, Magga Stína tónlistarkona, Hilmar Hildarson Magnúsarson, formaður samtak­ anna '78, og Alda Villiljós listamað­ ur. Skipuleggjendur Druslugöng­ unnar vilja með þessu hvetja fólk til að mæta í gönguna og taka af­ stöðu gegn kynferðisofbeldi. Í til­ kynningu þeirra segir að fólkið sem mæti í gönguna sé þverskurður ís­ lensks samfélags og það sé boð­ skapur plakata Druslugöngunn­ ar í ár. Í hana mæti fólk af báðum kynjum, á öllum aldri, með ólík­ ar stjórnmálaskoðanir og sýna í verki samstöðu með þolendum kynferðis ofbeldis. Allir sem leggja málefninu lið eru druslur „Allir eru druslur því það er ekki hægt að segja að með því að klæða sig á einhvern tiltekinn hátt sé sá hinn sami orðinn drusla,“ segir Hjalti. Enginn, sama hvernig hann klæði sig eða hegði sér, beri ábyrgð á ofbeldi sem hann verði fyrir. „Við eigum okkur sjálf og erum að taka orðið úr höndum þeirra sem nota það til að orsaka skömm og vanlíðan. Með því að láta þetta fólk prýða plakötin okkar erum við að reyna afbaka orðið. Dagur er drusla, Magga Stína er drusla, ég er drusla – allir sem leggja málefninu lið eru druslur. Það er hefð fyrir því í aktívisma og réttindabaráttu að þegar maður er kallaður eitthvað þá ber maður þann titil með stolti – það er það sem við erum að gera hér.“ Hann bætir því við að umræðan sé mikilvæg, sérstaklega þegar litið sé til atburða síðustu mánaða þar sem fleiri og fleiri hafa opn­ að sig og tjáð sig um kynferðis­ ofbeldi: „Það eru margir bún­ ir að deila sögum sínum á Beauty Tips og öðrum samfélagsmiðlum, í Druslugöngum síðustu ára og öðru. Það er mikilvæg að við opn­ um umræðuna svo fleiri getið tjáð sig, eins og strákar og eldri kynslóð­ ir fólks. Því rétt eins og druslurnar á plakötunum eru alls konar þá eru þolendur kynferðisbrota alls kon­ ar.“ Því séu einkunnarorð göngunn­ ar í ár: „Ég mun standa með þér“ og „Ég mun ekki þegja“.“ Þessar setningar muni síðan prýða boli og annan varning göngunnar sem frumsýndur verður á næstu dögum. Gleði á Húrra Miðvikudaginn næstkomandi, 22. júlí, mun kynningarpartí fyrir Druslugönguna verða haldið á skemmtistaðnum Húrra í miðbæ Reykjavíkur, klukkan 20. „Það verður hægt að versla alls konar drusludót fyrir gönguna, hlusta á góða tónlist, og gíra sig upp fyrir gönguna sem verður síð­ an næstu helgi,“ segir Hjalti glaður í bragði. Hann hvetur alla til að mæta og ganga fyrir breyttu samfélagi sem laust er við ofbeldi og skömm. „Tökum afstöðu – verum druslur,“ segir hann að lokum. n „Ég mun ekki þegja“ Samstaða með þolendum kynferðisofbeldis Magga Stína Margir taka þátt í herferðinni. Hjalti Vigfússon Einn aðstandenda viðburðarins. Fjölmennt á Druslugöngunni Gengið verður niður Skólavörðustíg næstu helgi. MynD SiGtryGGur Ari „Allir eru með litaæði“ n Litabókin vinsæla Leynigarður er uppseld n Í tengslum við núvitund B ókin er uppseld hjá útgefanda og kláraðist samstundis hjá okkur. Hún er ekki fáanleg aft­ ur fyrr en eftir viku,“ segir Anna Lea Friðriksdóttir, starfsmaður bóka­ búðar Máls og menningar. Um er að ræða hina geysivinsælu litabók fyrir fullorðna, Leynigarð, sem trónir í efstu sætum metsölulista bókabúða landsins og raunar víða um heim. Bókin er fyrsta sinnar tegund­ ar í heiminum og er talað um að hún hafi afar róandi áhrif á fólk enda tengd hugmyndinni um núvitund. „Ég held að ástæða vinsældanna sé sú að bókin er bara afskaplega fal­ leg, þetta er nýtt æði og í tengslum við núvitund,“ segir Anna. Litir fylgja ekki með bókinni en þeir seldust í massavís samhliða sölu bókarinnar: „Við höfum aldrei selt jafn mikið af litum.“ „Allir eru með litaæði,“ segir Hrönn Ómarsdóttir myndlistar­ kennari, en hún stofnaði nýverið hóp á Facebook fyrir áhugafólk um Leynigarð og litaæði. Hugmyndin um stofnun Face­ book­síðu hefur undið upp á sig enda segist Hrönn varla hafa tíma til að svara þar fyrirspurnum en stuttu eftir stofnun síðunnar bárust henni beiðnir um að halda litanámskeið. „Ég hélt að ég væri að fara í sumar­ frí en nú er ég eiginlega bara komin í skrifstofuvinnu og námskeiðahald,“ segir Hrönn kát. n birna@dv.is Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • jsb@jsb.is • www.jsb.isEF LI R a lm an na te ng s l / H N O T S K Ó G U R g ra f í sk h ön nu n Staðurinn - Ræktin Hringdu í síma 581 3730 Nánari upplýsingar á jsb.is Sumarkort 9.900 kr! Æfðu með okkur í sumar, frábærir tímar í opna kerfinu buxur, vesti, brók og skór Opið laugardaga og sunnudaga frá 11-17 ATH næg bílastæði við Hörpu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.