Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2015, Síða 13
Fréttir 13Helgarblað 17.–20. júlí 2015
Hvað elda ferðamennirnir?
n Pasta og bollasúpur
Döðlur í forrétt
Anne ætlaði að elda
pasta eins og svo
margir aðrir sem við
hittum.
MynD EggErt SkúlaSon
kvöldmatur!
Gjöriði svo vel!
Franskar og
skömmustulegar
Marie Claire og
Dany með taílenska
bollasúpu. Frekar rýrt
í roðinu.
„Þetta svæði var í gamla daga mjög lifandi“
Nánast allt er orðið klárt fyrir opnun kaffihúss
Þ
etta svæði var í gamla daga
mjög lifandi, það var fata-
verslun, bakarí og banki, til
dæmis,“ segir Unnur Anna
Sigurðardóttir, einn eigenda Gamla
kaffihússins, sem verður opnað í
Breiðholti á næstunni. Kaffihúsið
verður í Drafnarfelli, við hliðina á
pólsku búðinni sem þar er. Nánast
allt er orðið klárt fyrir opnun, að-
eins er beðið eftir að fá leyfi sam-
þykkt sem hefur tafist vegna verk-
falls BHM og sumarleyfa í kjölfarið.
Unnur, eiginmaður hennar, Karl
Víkingur Stefánsson, og þrír aðr-
ir aðilar eru eigendur kaffihússins.
Unnur segist ekki efast um að því
verði vel tekið og þörf sé fyrir kaffi-
hús í hverfinu:
„Við teljum að það sé vöntun á
svona stað í Breiðholtinu. Þetta er
orðið rótgróið hverfi og orðið nokk-
uð margt gamalt fólk hér sem vill
kannski ekki þurfa að fara langt til
að fá sér góðan kaffisopa. Einnig
erum við sannfærð um að ungar
mæður vilja svona stað þar sem
þær geta hist með börnin sín. Þetta
er líka mjög stórt hverfi með fjöl-
breyttri flóru íbúa.“
Unnur segir að sótt hafi verið um
leyfi fyrir stað sem tekur 50 manns
og einnig um léttvínsleyfi. Unnur
segir að staðurinn verði opnaður
um leið og leyfi fáist. n agustb@dv.is
Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera skemmtilegur,
jákvæður, harðduglegur, góður sölumaður, samviskusamur,
heiðarlegur, ábyrgur, úrlausnamiðaður og hafa áhuga á
markaðsmálum og sölumennsku.
Laun eru árangurstengd. Góð laun í boði fyrir
góðan og duglegan sölumann.
Umsóknir sendist á Steinn@dv.is
Atvinna í boði á einum
skemmtilegasta
vinnustað landsins
Á markaðsdeild DV er í boði starf fyrir
góðan og harðduglegan sölumann.
Fæst í öllum helstu apótekum og Heilsuhúsinu.www.provision.is
Viteyes AREDS2 er andoxunarvítamín með
sinki, lúteins og zeaxantíns og er ætlað
við aldursbundinni augnbotnahrörnun.
Nú er vítamínið með endurbættri formúlu
sem gerir það enn betra en áður.
Viteyes í nýju umbúðunum er komið í
dreifingu og er fáanlegt á sömu stöðum
og áður, um allt land.
NÝTT OG ENDURBÆTT
AUGNVÍTAMÍN
Í NÝJUM UMBÚÐUM!
Nýjar
umbúðir
Augnheilbrigði