Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2015, Blaðsíða 14
Helgarblað 17.–20. júlí 201514 Fréttir Erlent
Dæmd í fangelsi
vegna skopmynda
n Farghadani fékk langan fangelsisdóm n Mótmælti írönskum yfirvöldum
M
yndlistakonan Atena
Farghadani hefur verið
dæmd í 12 ára og níu
mánaða fangelsi fyrir að
gagnrýna írönsk stjórn
völd með friðsamlegum aðgerðum
sínum og skopteikningum.
Réttað var yfir Farghadani, sem
er 28 ára, þann 19. maí síðastliðinn
og henni gefið að sök að breiða út
áróður gegn yfirvöldum og móðga
íranska þingmenn með myndum
sínum.
Fyrir réttarhöldin söfnuðust
33.000 undirskriftir þar sem írönsk
um yfirvöldum var mótmælt og ósk
að eftir að Farghadani yrði sleppt úr
haldi. Ekki bar það árangur.
Handtekin fyrir list sína
Í ágúst í fyrra komu tólf lögreglu
menn að heimili Farghadani, gerðu
eigur hennar upptækar, bundu
fyrir augu hennar og stungu henni
í fangelsi í höfuðborg Íran, Teheran.
Átti að refsa Farghadani fyrir frið
samleg mótmæli hennar gegn yf
irvöldum með skopmynd sem hún
teiknaði, fyrir að hafa átt samskipti
við fjölskyldur pólitískra fanga og
að gagnrýna yfirvöld á samfélags
miðlum.
Til stendur að setja lög í Íran
sem takmarka aðgang að getnaðar
vörnum og gera áður valfrjálsar
ófrjósemisaðgerðir refsiverðar. Því
hefur Atena Farghadani mótmælt.
Á meðan Atena sat í fangelsi átti
hún til að fletja út drykkjarmál úr
pappa og nota sem yfirborð til að
mála á. Þegar fangaverðir áttuðu
sig á athæfi hennar eyðilögðu þeir
myndir hennar og meinuðu henni
að nota pappamál. Þegar hún fann
pappamál á klósettum fangelsisins
smyglaði hún þeim inn í klefa sinn.
Stuttu eftir að hún hóf þá iðju
var hún barin af fangavörðunum
þegar hún neitaði að afklæðast svo
hægt væri að framkvæma á henni
líkams leit. Að sögn Atenu vissu
fangaverðirnir að hún smyglaði
bollum í klefann því þeir höfðu
komið fyrir földum myndavélum
á salernis aðstöðu fanganna –
myndavélum sem áttu að hafa
verið teknar úr notkun.
Refsað fyrir að tala
Atenu var sleppt út haldi í nóvem
ber í fyrra og í kjölfarið talaði hún
opinberlega um hvernig fangaverð
ir hefðu yfirheyrt hana í níu klukku
stundir á hverjum degi í sex vikur og
oft neytt hana til að sæta niðurlægj
andi líkamsleit. Að auki birti Atena
myndbönd um málið á netinu og
var handtekin að nýju nokkrum vik
um eftir að henni var sleppt.
Hún fékk áður nefndan fang
elsisdóm fyrir að hafa staðið að því
að fólk kæmi saman og hafa sam
ráð um að ógna þjóðaröryggi í Íran,
stuðla að áróðri gegn yfirvöldum,
móðga þingmenn með málverkum
sínum sem og þá sem yfirheyrðu
hana.
Hungurverkfall í
mótmælaskyni
Í mótmælaskyni fór Farghadani í
hungurverkfall og var henni komið
fyrir í einangrun í tvær vikur í fang
elsinu í Teheran. Með hungurverk
falli sínu vildi hún meðal annars
mótmæla bágum aðstæðum í fang
elsinu.
Heilsu Atenu hrakaði töluvert í
hungurverkfallinu og fékk hún með
al annars hjartaáfall. Hún var flutt í
annað fangelsi til að afplána dóm
sinn og er hætt í hungurverkfalli.
Heilsu hennar er þó enn ábótavant.
Ákærð fyrir að taka í hönd
karlmanns
Nýlega var lögð fram ný kæra á
hendur Farghadani, nú fyrir að
hafa tekið í hönd á karlmanni. Karl
maðurinn sem um ræðir er lög
maður hennar og hafa þau verið
ákærð fyrir að eiga í ástarsam
bandi, standa í framhjáhaldi og að
haga sér ósæmilega. Handabandið
afdrifaríka átti sér stað fyrir um
rædd réttarhöld. n
Birna Guðmundsdóttir
birna@dv.is
Atena Farghadani Sætir 12 ára fangelsisrefsingu fyrir friðsamleg mótmæli. Mynd www.AMnesty.oRG.uk
umdeildar teikningar Skopmyndir Farghadani þar sem meðlimir þingsins eru teiknaðir upp sem dýr.
Hefndarklám
fer mjög
vaxandi
Ný bresk rannsókn leiðir í ljós að
svokallað hefndarklám fer mjög
vaxandi en sífellt fleiri atvik af
slíku tagi eru kærð til lögreglu. Vit
að er um þolendur í hefndarklámi
allt niður í ellefu ára aldur og
upp í fólk á eftirlaunaaldri. Flest
ir þolendur eru hins vegar undir
þrítugu og á móti hverjum einum
karlkynsþolanda eru átta kven
kynsþolendur.
Meðal tilvika er 39 gamall
maður sem kona ein fékk til að
haga sér á lostafullan hátt í vef
myndavél en beitti hann síðan
fjárkúgun. Annað atvik segir frá
19 ára gamalli stúlku sem fyrrver
andi kærasti tók myndir af er hún
kom úr baði og birti þær síðan á
netinu eftir að þau hættu saman.
Yngsti þolandinn í rannsókninni
er ellefu ára.
Hefndarklám var gert að refsi
verðu athæfi á Bretlandi í apríl
síðastliðnum og er nú loksins
tekið alvarlega í landinu. Samtök
sem berjast gegn hefndarklámi
fagna rannsókninni en telja að
tilvik um hefndarklám séu miklu
fleiri enda rannsaki lögreglan oft
ekki mál af þessu tagi.
Grikkir sam-
þykktu
Gríska þingið hefur samþykkt
samkomulag sem lánardrottnar
settu grískum stjórnvöldum á
mánudaginn svo að Grikkir fái
nýtt neyðarlán.
Þar með hafa Grikkir tryggt
að þeir muni fá 86 milljarða
evra neyðarlán frá Evrópusam
bandinu. Alls kusu 228 þing menn
með til lög unni en 64 gegn henni
og sex þing menn sátu hjá.
Óeirðir hafa geisað fyrir utan
þinghúsið þar sem mótmælendur
hafa meðal annars kastað bens
ínsprengjum og grjóti í átt að lög
reglu.
Tillagan af samkomulaginu
var umdeild á meðal Grikkja og
sögðu sumir hana niðurlægjandi
fyrir þjóðina en þar setja forsvars
menn ESB Grikkjum ströng efna
hagsleg skilyrði. Þar er þess meðal
annars krafist að grísk stjórnvöld
einkavæði ríkisfyrirtæki, hækki
skatta og einfaldi lífeyriskerfi
landsins.
SEPT O AID eru þurrfrystar örverur tilbúnar til
að brjóta niður allan lífrænan úrgang í rotþróm.
Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 415 4000
Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.
KOMDU ROTÞRÓNNI
Í LAG MEÐ
SEPT-O-AID
UMHVER
FISVÆN
VARA F
RÁ KEM
I
Samsetning 13 mismunandi örvera hjálpar til að vinna á og minnka fastan úrgang
og breyta í fljótandi form ásamt því að eyða allri ólykt frá rotþrónni. Einfalt í notkun;
sett í klósett skálina og beðið í 20 mínútur, því næst er efninu skolað niður.