Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2015, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2015, Page 22
Helgarblað 17.–20. júlí 201522 Fólk Viðtal Þegar Elsa Lára segir að þau hafi byggt húsið sjálf, þá virkilega mein- ar hún að þau hafi gert allt sjálf. Eða nánast allt. Það eina sem þau fengu iðnaðarmenn til að gera var að leggja pípulagnir. „Á lokasprettinum feng- um við reyndar aðstoð frá einum vini okkar og frænda sem er góð- ur í því að skera flísar, svo við gæt- um flutt inn fyrir jól, og við rétt náð- um því. Við fluttum inn kvöldið fyrir Þorláksmessu 2007 og ég bókstaflega sofnaði ofan í súpudiskinn á jólun- um,“ segir hún hlæjandi. En þeim tókst að halda jólin á nýja heimilinu, sem hafði verið markmiðið. Tæpu ári síðar gerðust hins vegar atburðir sem flestir þekkja og ekki leið á löngu þangað til róður fjölskyldunnar tók að þyngjast. Þingmennskan bjargaði húsinu Elsa Lára viðurkennir að hún hafi í raun dottið í lukkupottinn með því að komast inn á þing því laun henn- ar sem þingmaður eru töluvert hærri en kennaralaunin sem hún var á áður. „Ef ég hefði verið á þeim launum mik- ið lengur hefðum við misst húsið. Það hjálpaði auðvitað mikið þegar Rún- ar fór út að vinna, en staðan var mjög erfið og við vorum alveg á brúninni.“ Lánið sem í upphafi var 24 millj- ónir stendur í 39 milljónum í dag, þrátt fyrir að þau hafi fengið eitthvað niðurfellt. Þau hjónin fóru í gegn- um sértæka skuldaaðlögun, eða svo- kallaða 110 prósent leið. „Við lentum tveimur mánuðum eftir á með gjald- daga á meðan við fórum í gegnum það ferli, en við fengum niðurfelld- ar 5,8 milljónir. Samkvæmt skilmál- um og vegna þess að húsið hækk- aði í verði, mátti fella það á okkur aftur. Okkur tókst hins vegar að gera samkomulag við bankann um að við tækjum aðeins á okkur helminginn og fengum niðurfelldar 2,8 milljón- ir.“ Af því að hjónin fóru í gegnum sér- tæka skuldaaðlögun eiga þau ekki rétt á leiðréttingu verðtryggðra fasteigna- lána, líkt og fjöldi Íslendinga. Þau geta hins vegar nýtt séreignarsparnað sinn til lækkunar á láninu. Einhverfugreiningin var áfall „Svo notum við tímann núna, á með- an við erum á hærri launum, til að borga niður. Dæmið lítur allt öðruvísi út í dag en við reynum að vera skyn- söm. Okkur líður vel hérna og langar að búa hér áfram. Svo veit mað- ur ekki hve mikinn tíma maður fær, þannig að maður má ekki gleyma sér í áhyggjum. Maður verður að lifa líf- inu og njóta þess að vera til. Ekki velta sér of mikið upp úr framtíðinni,“ segir Elsa Lára auðmjúk. Það var nefnilega fleira en fjárhagserfiðleikar sem fjöl- skyldan þurfti að takast á við á þess- um tíma. Sem varð til þess að hún lærði að meta lífið betur. „Árið 2007 fékk dóttir mín ein- hverfugreiningu og það var rosalegt áfall. Hún er með dæmigerða ein- hverfu sem er þyngst á skalanum. Ég vissi í raun ekki hvað einhverfa var. Mér fannst ég vera að missa barnið mitt og fór í gegnum kvíða- og þung- lyndistímabil í kjölfar greiningarinn- ar. Mér fannst eins og hennar vonir og draumar væru horfnir. Þetta reyndi mikið á fjölskylduna í heild sinni. Þetta var svo erfiður tími. Ég kunni ekki á hana og var alltaf grátandi. Ég fór í gegnum mikið sorgarferli.“ Hefur náð miklum framförum Greiningarstöðin bauð upp á fjöl- skylduráðgjöf sem Elsa Lára nýtti sér og það hjálpaði henni mikið. „Ég man að á þessum tíma fór ég að hugsa að ég vissi ekki hver framtíð mín sem heilbrigð manneskja yrði. Og af hverju ætti ég að vera að velta mér upp úr einhverju sem gæti gerst í framtíðinni? Svo lærði ég að þakka fyrir að barnið mitt væri ekki lífs- hættulega veikt.“ Þórdís Eva, dóttir Elsu Láru, hefur fengið góða aðstoð fagaðila og stuðn- ing innan úr skólakerfinu sem hefur gert það að verkum að hún hefur náð ótrúlegum framförum. Um leið og hún fékk frumgreiningu, um þriggja ára aldur, brást leikskólinn á Skagan- um við og hún fékk þá þjónustu sem hún þurfti. „Ég sá fyrir mér að hún myndi aldrei eignast vini, gæti aldrei lært að lesa eða hjóla og allt það. Hún var líka greind með málþroskarösk- un, en þegar hún byrjaði í skóla fór hún í endurmat og málþroskaröskun- in var þurrkuð út. Þá var hún búin að læra að lesa og hjólaði út um allt. Í dag á hún sína vini og fúnkerar vel. Hún er algjör dugnaðarforkur og ég hef engar áhyggjur af henni. Framtíð hennar er björt,“ segir Elsa Lára og það fer ekki á milli mála að hún er stolt af dóttur sinni, sem dundar sér inni í herbergi á meðan við spjöllum saman. „Að ganga í gegnum þetta mótaði mig mikið og ég held að dóttir mín hafi verið send til mín til að kenna mér á lífið. Ég er afar þakklát fyrir það.“ Hljóp til að líða betur Þegar Elsu Láru leið sem verst ákvað hún að reyna að gera eitthvað í sín- um málum. Hún vissi að hreyfing hefði jákvæð áhrif á andlega heilsu og byrjaði að fara út að hlaupa, þó þolið væri ekki upp á marka fiska. „Ég þurfti fyrst á lyfjum að halda, en mig langaði að takast á við þetta öðruvísi. Ég byrjaði á því að skokka hérna á milli ljósastauranna,“ seg- ir hún og bendir á staurana úti um gluggann. Það eru varla meira en 20 metrar á milli þeirra, en Elsa Lára komst ekki mikið lengra í einu þegar hún byrjaði. „Hlaupin eru allra meina bót og það tók ekki mjög langan tíma fyrir mig að finna að þau voru að gera það sama fyrir mig og lyfin höfðu gert. Mér fór að líða bet- ur,“ segir hún einlæg. Og hlaupaæðið var ekki lengi að grípa Elsu Láru, en með hennar sögu um átröskun í kjölfar stífrar líkams- ræktar veit hún að hún verður að passa sig. „Ég finn ekki fyrir púkan- um þegar ég er í stífu prógrammi því þá er vellíðanin af hreyfingunni svo yfirgnæfandi. Og ég borða allt sem ég vil, enda verð ég að borða vel til að hafa orku í hlaupin.“ Eftir að hafa rofið tíu kílómetra múrinn skráði hún sig í hlaupahópinn Skagaskokk og í dag hleypur hún allt að 100 kíló- metra á viku og fer létt með það. Hún er að æfa fyrir Laugavegshlaupið sem fer fram um helgina. Um er að ræða 55 kílómetra utanvegahlaup, fyrsta utanvegahlaupið sem hún tekur þátt í. Lengsta hlaupið hennar hingað til eru 42 kílómetrar í Reykja- víkurmaraþoninu, svo þetta verður töluverð áskorun. Hljóp í matarhléum „Síðasta haust stakk vinkona mín upp á því að við færum í hlaup- ið, en mér fannst það alveg fárán- legt, enda um eitt erfiðasta hlaup á Íslandi að ræða.“ Þær ákváðu engu að síður að skrá sig og þá var ekki aftur snúið. Fyrir tólf vikum hófust svo skipulagðar hlaupaæfingar eft- ir excel-skjali, en það var stundum erfitt að koma þeim fyrir á milli þing- funda í sumar. „Ég var kannski að vakna klukkan hálf sex til að ná tólf kílómetrum fyrir vinnu, eða jafnvel fara í hádegis- eða kvöldmatarhlé- um í þinginu. Þetta var mikið púsl,“ segir hún hlæjandi. „Fólk hefur verið að segja að ég sé biluð, en ég fíla það bara. Þegar maður er að stefna á 55 kílómetra ut- anvegahlaup þá verður maður bara að æfa. Ég hefði líklega ekki farið út í þetta ef ég hefði vitað að þingið stæði fram í júní, enda var ég oft að því komin að gefast upp þegar dagarn- ir voru sem lengstir. Ég vona bara að heilsan haldi og ég nái að klára hlaupið,“ segir Elsa Lára sem hlakkar mikið til að takast á við Laugaveginn um helgina. Fjölskyldan tekur svo á móti henni í Þórsmörk, þar sem bú- ast má við mikilli gleðistund. „Ég hef aldrei farið þessa leið en ég er búin að ímynda mér hana í huganum. Ég er líka búin að sjá fjölskylduna fyrir mér þegar ég kem í mark. Ég er búin að koma mjög oft í mark í hugan- um og vona að það takist líka í raun- veruleikanum,“ segir Elsa Lára kímin að lokum. n „Mér fannst ég vera að missa barnið mitt og fór í gegn- um kvíða- og þung- lyndistímabil í kjölfar greiningarinnar. „Fólk hefur verið að segja að ég sé biluð, en ég fíla það bara. Glímir enn við eftirköst Elsa Lára þróaði með sér átröskunarsjúkdóma seint á unglingsárunum og segir að púkinn fylgi henni alltaf. Mynd ÞorMar ViGnir Gunnarsson Við elskum umslög - en prentum allt mögulegt • Nafnspjöld • Reikninga • Veggspjöld • Bréfsefni • Einblöðunga • Borðstanda • Bæklinga • Markpóst • Ársskýrslur Hagnýtar upplýsingar www.umslag.is Umslag | Lágmúli 5 | Reykjavík | Sími 533 5252 | umslag@umslag.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.