Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2015, Page 24
Helgarblað 17.–20. júlí 201524 Sport
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Þú finnur bílinn á bilo.is Skráðu bílinn á bilo.is
BMW 320D F30
Nýskr. 07/2012, ekinn aðeins 8 Þ.km, diesel,
sjálfskiptur, leður, lúga og mjög mikið af flottum
aukabúnaði! Tilboðsverð 6.990.000. Raðnr.253805
BMW 520D XDRIVE F10
nýskr. 04/2014, ekinn 31 Þ.km, diesel, sjálf-
skiptur mjög vel útbúinn stórglæsilegur bíll!
Tilboðsverð 8.990.000 kr. Raðnr.230069
Þessar eru bestar
Þ
á er mótið hálfnað í
Pepsi-deild kvenna og
hjá flestum liðum einni
umferð betur. Línur eru
heldur betur farnar að
skýrast. Íslandsmeistaratitillinn
í ár fer annað hvort í Kópavog-
inn eða í Garðabæinn. Þá bendir
flest til að Afturelding og Þróttur
leiki í 1. deild að ári. Í liði með
sérfræðingum DV sem allir fylgj-
ast vel með í Pepsi-deild kvenna
valdi ég lið ársins, besta leik-
mann, besta þjálfarann og mestu
vonbrigðin. n
Hjörvars Hafliðasonar
Hápressa
besti leikmaðurinn
Fanndís Friðriksdóttir Breiðablik
14 mörk í tíu leikjum segja töluverða sögu
en Fanndís hefur ekki bara verið að skora
einhver mörk. Hún kláraði leikina gegn
Stjörnunni og Selfoss fyrir liðið sitt. Þá
hefur hún einnig lagt upp fjölda marka.
Ásta Eir
Árnadóttir
Breiðablik
Vesna
Smilljkovic
Valur
Málfríður Erna
Sigurðardóttir
Breiðablik
Mckenzie Sauwerin
Þróttur
Berglind
Þorvaldsdóttir
Fylkir
Rakel
Hönnudóttir
Breiðablik
Donna Key
Selfoss
Anna Björk
Kristjánsdóttir
Stjarnan
Fanndís
Friðriksdóttir
Breiðablik
Ásgerður Stefanía
Baldursdóttir
Stjarnan
Hallbera Guðný
Gísladóttir
Breiðablik
besti
Þjálfari
Þorsteinn
Halldórsson
Breiðablik
Steini er á sínu fyrsta
ári með liðið og hefur
tekist að búa til gott lið á
stuttum tíma. Hann hefur
aðeins notað 15 leikmenn
í fyrstu 10 umferðunum
og er lítið fyrir breytingar.
Það er slík íhaldssemi sem
oftar en ekki hefur fleytt
þjálfurum langt. Gerði vel
þegar hann sótti þrjá lykil-
leikmenn frá Val, Málfríði,
Hallberu og Svövu.
Vonbrigðin
Dagný Brynjarsdóttir Selfoss
Það verður að segjast alveg eins og er
að flestir áttu von á meiru frá Dagnýju
sem gekk til liðs við Selfoss fyrir leik-
tíðina frá þýsku meisturunum Bayern
München. Hún greindi frá því á dögun-
um að hún hafi nánast fengið leið á fót-
bolta á meðan veru sinni í Þýskalandi
stóð. Vonandi er hún búin að hrista þau
leiðindi af sér og sýnir okkur sitt rétta
andlit í seinni umferðinni.
Harpa Þorsteinsdóttir Stjarnan
Hún hefur sett markið svo hátt að áhangendur
Stjörnunnar gera ráð fyrir þrennu í hverjum leik.
Harpa hefur gert 7 mörk í deildinni í ár en á sama
tíma í fyrra voru þau orðin 15. Harpa er væntan-
lega að bíða eftir því að leikar æsist og fer þá að
raða inn mörkunum.
Elín Metta Jensen
Valur
Hún er vissulega sú þriðja
markahæsta með sjö mörk.
En Elín hefur valdið ákveðnum vonbrigðum í deildinni.
Hún var slök í leikjunum gegn bestu liðunum, Selfoss,
Breiðablik og Stjörnunni. Öll mörkin hennar nema eitt
hafa komið gegn þessum svokölluðu lélegu liðum
deildarinnar, Þrótti, Aftureldingu og KR.
Enginn leikmaður
Þróttar hefur skorað
Eftir 10 leiki (900 mínútur) hefur
Þróttur aðeins skorað eitt mark.
Það var sjálfsmark. Vonandi skorar
leikmaður Þróttar áður en mótinu
lýkur. Þetta er vandræðalegt.
M
y
n
D
a
ð
sE
n
D
u
M
Fs
Staðan í
Pepsi- deild
kvenna
1 Breiðablik 28
2 Stjarnan 24
3 Valur 18
4 Selfoss 17
5 ÍBV 16
6 Fylkir 16
7 Þór/KA 12
8 KR 6
9 Þróttur R. 2
10 Afturelding 1