Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2015, Qupperneq 30
Helgarblað 17.–20. júlí 201530 Lífsstíll
ATN Zebra 16
Z-spjótlyfta • Fjórhjóladrifin
• Diesel
• Vinnuhæð: 16,4m
• Pallhæð: 14,4m
• Lágrétt útskot: 9,3m
• Lyftigeta: 230kg
• Aukabúnaður: Rafmagns-
og lofttenglar í körfu.
• Til afgreiðslu strax
Ýmsar aðrar ATN spjót- og
skæralyftur til afgreiðslu
með stuttum fyrirvara.
Blessað sértu Breiðholtið
Miðlunarfræðingur hannar hverfisskilti
Þ
röstur Bragason er fertugur
áhugahönnuður sem
hefur undanfarin ár þróað
skemmtilegt hliðarverk-
efni. Fyrir tveimur árum
sat hann við sjónvarpið og horfði á
Hljómskálann. Þar var verið að fjalla
um rapptónlist og sýnd skjámynd af
Breiðholti þegar Þröstur tók eftir ein-
földum útlínum Breiðholtsblokk-
anna.
Frasinn „Blessað sértu Breiðholtið“
kom skýrt upp í huga hans. Og til varð
sú skemmtilega hugmynd að búa til
hverfisskilti og hann lét drauminn
verða að veruleika.
Hönnuður í frítíma
Þröstur, sem er nýorðinn fertugur, seg-
ist ekki vera starfandi hönnuður. Hann
er miðlunarfræðingur að mennt en
hefur komið að ýmsu tengdu hönnun
á ferli sínum, meðal annars vefsíðu-
gerð. Hann segir skiltagerðina frekar
vera skemmtilegt hliðarverkefni sem
honum finnst gaman að grípa í.
Þröstur fór upp í Breiðholt og tók
sjálfur mynd af blokkunum. Hann
teiknaði svo útlínurnar og sá strax að
útkoman gæti orðið ansi skemmti-
leg. Faðir Þrastar hefur sjálfur hann-
að jólaskraut síðastliðin ár fyrir Hjart-
ans list og því var fljótlegt og auðvelt
að búa til skapalón. Feðgarnir not-
uðu MDF-efni og skópu útlínur á mis-
munandi lög sem þeir skáru svo með
leysigeisla og límdu saman. Í lok-
in er komið nokkurra laga skilti þar
sem form mismunandi bæjarhluta
sést ásamt frasa sem ber tilheyrandi
hverfissál í sér.
Frasarnir koma héðan og þaðan
Aðspurður hvaðan frasarnir koma
segist hann mestmegnis rifja þá sjálf-
ur upp héðan og þaðan, en af og til er
leitað til hans með sérstakar óskir.
Skiltin seljast vel, miðað við að um
hálfgert áhugamál er að ræða. Þröstur
heldur úti heimasíðu og Facebook-
síðu til að auglýsa og leitar fólk hann
þannig uppi. Hann segir hvítu skiltin
vinsælust og að nú sé einnig hægt
að fá LED-upplýst skilti. Hægt er að
skoða skiltin betur á Facebook-síð-
unni Throstur Bragason Design. n
Hönn-
unar-
Horn
Kolfinna Von Arnardóttir
kolfinna@artikolo.is
Áhugahönnuður Þröstur Bragason
býr til skemmtileg skilti sem geyma sterka
hverfissál í sér. Árbær Þennan frasa kannast Árbæingar við.
Skilti fyrir vesturbæinn
Reykjavíkurborg
Sniðugt Skiltin eru búin til úr nokkrum
lögum sem límd eru saman.
Eyjólfur PALsson í 40 ár
Efnt til sýningar í tilefni 40 ára afmælis Epal
Á
fimmtudaginn síðastliðinn
voru 40 ár liðin frá því að
verslunin Epal varð til og var
formlega skráð inn í Hagstofu
Íslands. Af því tilefni var efnt
til opnunar á plakatasýningu tólf
hönnuða og lista-
manna sem fengu
það verkefni að
sýna hvernig þeir
sjá Epal fyrir sér í
framtíðinni. Eru
þessir hönnuðir
kallaðir af eigand-
anum Postularnir
12 og eru þeir all-
ir listamenn sem
tengjast Epal vina-
böndum á einn
eða annan hátt.
Ásamt plakatasýn-
ingunni var sérstök
afmælis útgáfa af
Vaðfugli eftir Sigur-
jón Pálsson kynnt,
en að þessu sinni
er fuglinn alrauður.
Á opnuninni árit-
aði hönnuður seld
eintök.
Eyjólfur Pálsson,
eigandi og stofn-
andi Epal, segir við
Hönnunarhornið
að þessi opnun
hafi einungis ver-
ið fyrsti viðburður
heils árs af hátíðarfögnuði og megi
búast við áframhaldandi hátíðar-
höldum og viðburðum í október.
Hönnunarhornið óskar Eyjólfi og
Epal innilega til hamingju með
stórafmælið! n kolfinna@artikolo.is
Ámundi Sigurðsson Jón Ari Helgason
Stefán Einarsson
Veggspjöldin
bjuggu til:
n Hjalti Karlsson
n Ámundi Sigurðsson
n Jón Ari Helgason
n Stefán Einarsson
n Björn Valdimarsson
n Snæfríður og Hildigunnur
n Goddur
n Ísak Winther
n Ingibjörg Hanna
n Sigrún Sigvaldadóttir
n Hallgrímur Helgason
n Halldór Baldursson