Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2015, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2015, Page 31
Helgarblað 17.–20. júlí 2015 Menning 31 Er skipulagið í lagi...? Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki Brettarekkar Gey mslu - og dekk jahi llur Mikil burðargeta Einfalt í uppsetningu KÍKTU VIÐ Á WWW.ISOLD.IS OPIÐ 08:00 - 17:00 Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík Sími 53 53 600 - Fax 567 3609 Alþjóðleg rithöfunda- ráðstefna á Íslandi n Haldin í þriðja sinn n Stór nöfn í bókaheiminum n Ísland tilvalið I celand Writers Retreat er ráð- stefna fyrir rithöfunda og áhuga- fólk um skrif í hvívetna, sem haldin verður í þriðja sinn í apr- íl 2016. Það eru vinkonurnar Eliza Reid og Erica Green sem fengu hugmyndina að ráðstefnunni kvöld eitt þegar þær sátu saman og sötruðu vín. „Er- ica var nýkomin af námskeiði í USA sem var á svipuðum nótum. Svona námskeið hafa verið mjög vinsæl í enskumælandi löndum, en á þeim hittist alls konar fólk sem finnst gam- an að skrifa og læra um skrif. Erica var svo innblásin og hress eftir þetta að á þriðja glasi vorum við búnar að ákveða að gera þetta hér.“ Glöggt er gests augað Eliza hefur búið á Íslandi síðustu 12 árin og á 4 börn með manni sín- um, sagnfræðingnum Guðna Th. Jó- hannessyni. „Það hafði sína kosti að vera nýr Íslendingur og fara út í svona verkefni. Íslendingar hafa mjög afslappað viðhorf gagnvart svona löguðu og enginn spurði til dæmis um það hvort við hefðum einhverja reynslu af svona skipulagi. Hér hlustar fólk á hugmyndir og hef- ur kjark til að taka ákvarðanir hratt og vel.“ Erica bjó um skeið á Íslandi, á meðan maður hennar starfaði fyrir bandaríska sendiráðið, en er nú aft- ur flutt til Bandaríkjanna og starfar sem ritstjóri barnaefnis hjá National Geographic. Hún er þó enn hluti af IWR-teyminu og kemur til Íslands þegar ráðstefnan er haldin. Eliza segist lengi hafa spáð í að Ís- land, þetta mikla bókmenntaland, væri ekki nógu vel þekkt á heims- vísu sem slíkt. „Okkur fannst svo undarlegt að engir ritlistarviðburð- ir væru haldnir hér. Hér er þessi ríka bókmenntamenning og frábær að- staða fyrir svona viðburð. Þetta er nýr markhópur í menningartengdri ferðaþjónustu, fólkið fer út að borða, kaupir minjagrip og svo framvegis og nú þegar eru gestir okkar að fara í fleiri ferðir til Íslands jafnvel með heilu fjölskyldurnar.“ Skipulag og skýrleiki Fljótlega réðust þær Eliza og Erica í gerð viðskiptaáætlunar og settu sér skýr markmið. Þær nýttu tengslanet sín vel og fengu ráð frá rithöfundum og fólki með reynslu af svipuðum verkefnum. „Þetta var líka frábær af- sökun til að hittast yfir hádegismat ítrekað. Við fundum strax nokkra vel þekkta höfunda sem voru til í að vinna með okkur og fljótlega urðu Icelandair og Icelandair hotels okk- ar aðal styrktaraðili. Hugmynd okk- ar var vel skipulögð, viðskiptaáætl- unin skotheld og við fengum strax góðan hljómgrunn. Við erum mjög þakklátar fyrir þennan rausnarlega stuðning.“ Samstarf við bókmennta- borgina Reykjavík hefur einnig ver- ið gjöfult og gott en að sögn Elizu er mikilvægt að hafa slík samtök sem bakhjarl. „Fólk greiðir háar fjár- hæðir fyrir að koma og það er mjög mikilvægt fyrir okkur að hafa alvöru bakland.“ Alþjóðlegt yfirbragð Ráðstefnan er haldin á Hótel Natura, en þar eru ákveðnar skírskotanir til menningar og bókmennta í hönnun herbergjanna. Fyrsta ráðstefnan var haldin í apríl 2014, en á hana komu 52 gestir. Í ár komu yfir 100 gestir frá 12 löndum. Það má því segja með sanni að vöxturinn hafi verið hrað- ur. „Það kom okkur á óvart að strax annað árið komu 10 prósent gest- anna frá fyrsta árinu á sína aðra ráð- stefnu. Við komumst líka að því að 85 prósent gesta okkar geta hugs- að sér að koma aftur og allir mundu mæla með ráðstefnunni fyrir vini sína.“ Dagskrá ráðstefnunnar inniheld- ur meðal annars námskeið og fyr- irlestra. „Við erum aldrei með fleiri en 15 þátttakendur í hverri smiðju, þannig fær fólk mjög mikið út úr þeim og þátttaka hvers og eins er mikil. Við gerum líka heilmikið fé- lagslegt, til dæmis förum við í bók- menntagönguferð um Reykjavík, tökum heilan dag í gullna hringinn þar sem leiðsögumaður er íslenskur rithöfundur og við stoppum í Skál- holti og á Gljúfrasteini, og svo höf- um við þegið boð bæði í ráðhúsið og á Bessastaði.“ Vekur athygli erlendis Iceland Writers Retreat hefur nú þegar fengið talsverða umfjöllun í erlendum fjölmiðlum á borð við Huffington Post og The New York er. „Fólkið sem kemur gerir auðvit- að lítið annað en að skrifa og eft- ir þessa upplifun hafa mjög margir skrifað blogg og greinar fyrir smærri og stærri miðla. Eitt gott dæmi um þetta er að Ruth Reichl, sem er virtur matargagnrýnandi, skrifaði þrjár greinar á blogg sitt um Ísland, ráð- stefnuna og matarmenninguna. Þar sagði hún að Ísland væri algjör matarparadís. Þessi kona er með yfir 100 þúsund fylgjendur á blogginu sínu og það er augljóst að svona skrif skipta máli fyrir okkur.“ Mikilvæg áhrif Áhrifin fyrir íslenska rithöfunda eru líka mikilvæg að sögn Elizu. „Það er auðvitað einstakt tækifæri fyrir okk- ar höfunda að taka þátt og kynna verk sín, og ekki síður vegna tengsl- anna sem myndast við alls konar fólk úti í heimi.“ Eitt af því sem til- heyrir ráðstefnunni er höfunda- kvöld þar sem allir rithöfundar sem kenna námskeið mæta og lesa úr verkum sínum. Það er haldið í Nor- ræna húsinu og aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Undirbúningur fyrir næstu ráð- stefnu, sem verður haldin dagana 13.–17. apríl 2016, er í fullum gangi en skráningin opnar mánudaginn 20. júlí. Íslendingar eru að sjálf- sögðu velkomnir á ráðstefnuna, þó að mest áhersla sé lögð á að kynna hana erlendis. Nú þegar hafa 5 af 10 leiðbeinendum og fyrirlesurum ver- ið kynntir til sögunnar en það eru Steven Galloway, Gerður Kristný, Miriam Toews, Adelle Waldman og Cheryl Strayed, en sú síðastnefnda hlaut heimsfrægð þegar kvikmyndin Wild, sem gerð var eftir bók hennar og Reese Witherspoon lék í, var til- nefnd til Óskarsverðlauna. Nýjasta skrautfjöðrin er svo kanadíski verð- launahöfundurinn Vincent Lam. Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu verkefnisins http:// www.icelandwritersretreat.com. n Ragnheiður Eiríksdóttir ragga@dv.is „Okkur fannst svo undarlegt að engir ritlistarviðburðir væru haldnir hér. Hér er þessi ríka bókmenntamenning og frábær aðstaða fyrir svona viðburð. Eliza Reid og bækurnar Þótti tilvalið að setja á stofn stóran bók- menntaviðburð á Íslandi. Mynd ÞoRMAR ViGniR Íslenskar bækur 1 Konan í lestinniPaula Hawkins 2 DavíðsstjörnurKristina Ohlsson 3 Hamingjuvegur Liza Marklund 4 Einn plús einnJojo Moyes 5 Blóð í snjónumJo Nesbø 6 Iceland Small World- lítil Sigurgeir Sigurjónsson 7 Niceland Kristján Ingi Einarsson 8 Tapað fundið Árelía Eydís Guðmundsdóttir 9 Skutlubók Villa Vilhelm Anton Jónsson 10 Risasyrpa - Á ferða-lagi Walt Disney Metsölulisti Eymundsson 6. júlí–12. júlí 2015 Paula Hawkins

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.