Fréttatíminn - 22.12.2015, Page 14
V
Vetrarsólstöður eru í dag, þriðjudaginn 22.
desember, og sólargangur því stystur. Dag
tekur því að lengja á ný. Þótt skammdegið vari
enn um hríð er það fagnaðarefni í hvert eitt
sinn er sól tekur að hækka á lofti á ný, ekki
síst á norðlægum slóðum þar sem dagskíma
er stutt á þessum árstíma. Í vændum eigum
við hins vegar nóttlausa tíð þegar vorar.
Jólin eru fram undan, sú forna og nýja sól-
hvarfahátíð þegar endurkomu sólarinnar er
fagnað, miðsvetrarhátíð er síðar varð hátíð
kristinna manna. Ýmsum
þykir nóg um tilstandið vegna
jólanna – og vafalaust fara
einhverjir fram úr sér í tilefni
þeirra. Fyrir flesta er jólahá-
tíðin þó kærkomin hvíld eftir
talsvert at í aðdraganda þeirra,
ljósanna hátíð þegar myrkrið
er mest. Um jól gera menn sér
dagamun í mat og drykk, koma
saman og eiga góðar stundir.
Aðventan er einnig tími sam-
veru fjölskyldna og vina og
ekki síst tími barnanna. Það er gaman að
föndra eða baka með börnum. Ánægja þeirra
er einlæg sem og tilhlökkun til jólanna. Það
er spennandi að fá eitthvað fallegt í skóinn
frá jólasveininum og síðan pakka sem bíða
undir skreyttu jólatré. Sama má segja um
þann góða sið að senda vinum og ættingj-
um jólakort með hlýjum kveðjum. Maður er
manns gaman og fátt jafnast á við það að eiga
góða að.
Tími gefst oft um jól og áramót að staldra
við, líta yfir farinn veg og jafnframt fram á
veginn til þess nýja árs sem bíður með tæki-
færi sín og áskoranir. Fagna ber því sem vel
hefur gengið en um leið eiga margir um sárt
að binda, einkum þeir sem sjúkir eru eða
hafa misst einhvern sér nákominn. Jólin eru
ekki síst sá tími sem fólk hugsar til þeirra
sem gengnir eru. Það sést best á heimsókn-
um fólks að leiðum ástvina í kirkjugörðum
landsins yfir jólin. Kirkjugarðarnir eru fal-
lega skreyttir og ljósum prýddir. Þar er því
gott að eiga stund og hugsa hlýtt til þeirra
sem á undan fóru og ruddu brautina fyrir
okkur.
Rétt er einnig að minnast þess að í vel-
ferðarsamfélagi okkar standa ekki allir jafnt
að vígi. Margir eru þeir sem ekki ná endum
saman af ýmsum ástæðum, þótt atvinnuleysi
hafi sem betur fer minnkað mjög frá því er
verst lét í kjölfar hrunsins. Fátt er verra böl
vinnufúsum höndum en atvinnuleysi. Ýmsar
hjálparstofnanir liðsinna þeim sem verst eru
settir, en það er blettur á okkar ágæta samfé-
lagi að fólk sé í þeirri stöðu að þurfa að leita
á náðir góðgerðasamtaka með matar- eða
fataúthlutun um jól – eða á hvaða öðrum tíma
ársins sem er.
Þegar á heildina er litið er engu að síður
ástæða til bjartsýni. Árið sem er að líða hefur
að flestu leyti verið þjóðinni hagstætt. Við
höfum náð okkur upp úr öldudalnum og góð-
æri verið til lands og sjávar. Mest hefur mun-
að um áframhaldandi uppgang ferðaþjónust-
unnar sem skilar æ meira til þjóðarbúsins,
þótt vissulega beri að fara með gát í um-
gengni við viðkvæma íslenska náttúru. Ekki
verður annað séð en framhald verði á vin-
sældum Íslands meðal erlendra ferðamanna,
komi ekkert óvænt upp á. Kappsamlega er
einnig unnið að afnámi hafta sem mikilvægt
er fyrir hagsmuni einstaklinga, fyrirtækja og
þjóðar, þótt þar beri vissulega að fara með gát
til að forðast kollsteypu. Tekist hefur að halda
verðbólgu í skefjum þrátt fyrir umtalsverðar
launahækkanir á því ári sem er að líða.
Það er því full ástæða til að gleðjast og
halda hátíðleg jól, njóta samvistar við aðra
og hvíldar og endurnæringar í kjölfar undir-
búnings hátíðahaldanna, hvort heldur er við
bóklestur, hressandi útivist eða annað sem
nærir líkama og sál.
Fréttatíminn óskar landsmönnum gleði-
legra jóla.
Hátíð gengur í garð
Kærkominn tími
samveru og hvíldar
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR
Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri:
Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af
Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Opið mán. - föst. 8:30 - 19:00 og 10 - 18 um helgar
facebook.com/krumma.is krumma.is Gylfaflöt 7 112 Reykjavík
Jólagjöfin fæst í KRUMMA
Frá 16.800.-
Dúkkuvagnar
13.500.-
Gönguvagn
með kubbum
5.235.-
Lestarsett
Safari
frá
Krum
m
a
k r i n g l u n n i
Armbandið Flóra er skreytt með sjö
áhengdum gripum sem Eggert Pétursson
og Sif Jakobs hafa hannað fyrir Leonard á
undanförnum árum, til styrktar börnum.
Armband með einum grip: 12.500 kr.
Hver stakur gripur til viðbótar: 5.500 kr.
S I L F U R S K A R T L E O N A R D 2 0 1 5
Flóra
14 viðhorf Helgin 22.-27. desember 2015