Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.12.2015, Side 16

Fréttatíminn - 22.12.2015, Side 16
Miði fyrir tvo á ABBA söngleikinn sem enginn má missa af Mamma Mia 12.900 kr. Miði fyrir tvo á Njálu og eitt eintak af Brennu-Njáls sögu. Njála 12.200 kr. OPIÐ TIL 22 Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Gjafakort Borgarleikhússins Gjafakort fyrir tvo og ljúffeng leikhúsmáltíð Leikhúskvöld fyrir sælkera 12.500 kr. Sérstök jólatilboð G uðrún Helgadóttir tekur á móti blaða- manni á fallegu heimili sínu við Tún- götuna í Reykjavík og býður til sætis við borðstofuborðið þar sem smákökur og kaffi bíða okkar. Guðrún hefur greinilega setið við gjafainnpökkun en gjafir til fjölda barnabarna og langömmubarna liggja á víð og dreif um stofuna. Einn af okkar ástsælustu barnabókhöfundum er að sjálfsögðu hrifin af því að gefa börnum bækur í jólagjöf því sögur eru ekki bara sögur og að gefa bók er svo miklu meiri gjöf en við oft áttum okkur á. „Það er ekki bara mikilvægt að börn lesi sjálf heldur er alls ekki síður mikilvægt að það sé lesið fyrir börn því þannig læra þau að hugsa og tala. Það er svo yfir- gengilega mikilvægt og það er allt við það sem er svo gott. Það er nándin og samveran við foreldrana sem er svo ómótstæðilegt fyrir börn. Það var nú kannski það sem ég var alltaf að reyna að gera, að skrifa þessar bækur þannig að báðir aðilar hefðu gaman af, sá full- orðni og barnið. Því börn láta ekki plata sig og þau finna þegar mömmu og pabba leiðist en verða svo óskaplega hamingjusöm þegar mömmu og pabba finnst gaman. Ég held að þetta sé mjög mikilvægt og það hefur glatt mig óskaplega þegar ég hef fengið þakkir fyrir fallegu stundina á jóladagsmorgun þegar fjölskyldan lá saman og las nýju bókina.“ Það vantaði bók um sjómannsfjölskyldu Fáar íslenskar barnabækur hafa notið jafn mikilla vin- sælda og bækurnar þrjár um stóru barnafjölskylduna í litla húsinu sem sagðar eru af þremur ólíkum systrum. Sitji guðs engar, Saman í hring og Sænginni yfir minni hafa allar þrjár verið endurprentaðar ótal sinnum og nú síðast allar saman í einni bók. „Þetta er óskaplega falleg útgáfa og mér finnst gaman að þessar sögur séu komnar í eina sæng,“ segir Guðrún. „Ég hef alltaf verið óskaplega lengi að skíra bækurnar mínar en titilinn á þessari bók vissi ég áður en ég byrjaði að skrifa hana. Hver bók myndi bera þessar ljóðlínur og hver bók yrði sögð frá sjónarhóli hverrar systur. Ég hef samt aldrei skrifað bók fyrr en ég veit ná- Ákvað snemma að lifa ekki ljótu lífi Nýlega voru einar vinsælustu barnabækur okkar ástsælasta barnabókahöfundar endurútgefnar í einni bók. Sögurnar í Sitji Guðs englar, Saman í hring og Sænginni yfir minni, fjalla um þrjár systur sem alast upp í litlu húsi í stórum barnahópi við þröngan kost og segir Guðrún Helgadóttir þar margt minna á sína eigin æsku. Guðrún er sjálf sjómannsdóttir sem ólst upp í 60 fermetra húsi í Hafnarfirði með foreldrum sínum, ömmu og afa og níu systkinum. Hún brosir að fallegum minningum frá þeim tíma en segir þó ekkert rómantískt vera við fátækt. Fátt sé andstyggilegra en að börn búi við fátækt. Sjálf ákvað hún snemma að búa sér til fallegt líf og segist hafa reynt í sínum sögum að skapa börnum væntingar, því auk þess að kenna börnum að lesa og hugsa þá sé skáldskapurinn gluggi út í lífið. Framhald á næstu opnu Guðrún Helgadóttir er glöð yfir því að sjá sögurnar sínar, Sitji Guðs englar, Saman í hring og Sænginni yfir minni, vera komnar í eina sæng í nýrri útgáfu. Ljósmynd/Hari kvæmlega um hvað hún á að vera og kann ekki að gera það öðruvísi. Jón Oddur og Jón Bjarni voru til dæmis spegilmynd af minni eigin fjölskyldu. Pabbinn var kenn- ari og mamman var hjúkrunarfræðingur, sem ég er reyndar ekki, en þetta var svona venjulega íslensk fjöl- skylda í blokk í Reykjavík. Næsta bók, Í afahúsi, fjallaði um pabba sem vildi vera skáld og var ekkert voðalega sterkur til vinnu heldur vildi fá að vera í ró og næði að búa til kvæði. Tóta dóttir hans var nú ekkert voðalega ánægð með það og hún skildi ekki hvernig það kom heim og saman að í skólanum var talað af svo óskaplegri virðingu um skáldin en ekki annarsstaðar. Tóta komst fljótlega að því að svona vel talaði fólk bara um dáin skáld. En svo rann það upp fyrir mér, sjómannsbarninu, að það hafði verið skrifað óskaplega lítið um sjómanns- fjölskyldur fyrir börn. Á Íslandi, þar sem erfitt líf sjó- mannsins er undirstaða velferðar í landinu.“ Mikið af Guðrúnu sjálfri í bókunum Sögurnar um systurnar þrjár, Heiðu, Lóu Lóu og Öbbu hina, segja frá lífi stórrar fjölskyldu sem býr við þröngan kost og barnaskarinn á pabba sem sjaldnast er heima því hann er alltaf á sjó. Er eitthvað af sjómannsdóttur- inni Guðrúnu í þessum stelpum? „Auðvitað er maður alltaf að skrifa um eitthvað sem maður þekkir. Ég held að allir rithöfundar séu að skrifa um eitthvað sem þeir hafa reynt sjálfir, án þess að það séu einhverjar sjálfsævisögur. Í bókunum eru mörg systkini í heimili og hver saga er sögð frá sjónarhóli hverrar systurinnar fyrir sig. Elsta systirin, Heiða, segir fyrstu söguna og þegar hún kom út þá var ég alltaf spurð hvort að ég væri Heiða því hún er elsta systirin í stórum barnahópi, er dálítið dugleg, vill öllu ráða og stjórnar börnunum með harðri hendi. Ég sagðist nú ekki geta svarið allt af mér í henni og viðurkenndi að það væru einhverjir partar af mér í henni. Í annari bókinni segir miðsystirin, Lóa Lóa, söguna og þegar miðsystir mín frétti það þá varð hún mjög æst og sagðist alls ekkert kæra sig um að ég væri að skrifa bækur um hana. En ég gat nú róað hana því hún var óskaplega myndarleg í höndunum og fræg fyrir að prjóna en Lóa Lóa hataði að prjóna. Síðasta bókin er sögð af litlu listakonunni Öbbu hinni og hún er svo skemmtileg að enginn hefur sett sig upp á móti því að vera fyrirmynd hennar. En jú, ætli það megi ekki segja að allar systurnar séu hálfgert samansafn af mér.“ Fátækt er ekkert rómantísk Sögur Guðrúnar eiga það sameiginlegt að gefa skemmtilega sýn á þjóðfélagið og gefa fullorðna fólkinu 16 viðtal Helgin 22.-27. desember 2015

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.