Fréttatíminn - 22.12.2015, Blaðsíða 54
Úr heimsreisu í
Háskólabíó
Á síðustu jólatónleikum Baggalúts um
helgina fékk Brynjar Leifsson, gítarleikari
Of Monsters And Men, að stíga á stokk
með sveitinni. Hann kom til landsins
á laugardag eftir margra vikna reisu
með OMAM og fann sig knúinn til þess
að heimsækja drengina í Háskólabíó og
spilaði á gítar með sveitinni.
Húslestur í
Petersen svítunni
Í dag, þriðjudag, er komið að síðasta
húslestrinum í Petersen svítunni, í bili. Að
þessu sinni er áherslan á skáldsögur og
ævisögur og þar á meðal verður fjallað
um bók sem gæti stuðlað að betri ævisögu
kvenna, því bók Kristínar Tómasdóttur,
Stelpur-tíu skref að sterkari sjálfsmynd,
verður eitt af viðfangsefnum Húslesturs-
ins. Aðrir rithöfundar sem koma fram eru
Sigmundur Ernir, sem fjallar um bók sína
Munaðarleysinginn, Egill Ólafsson les úr
ævisögu sinni, Á meðan ég man og Guðni
Líndal segir frá Leyndardómum erfingjans
sem er
æsispenn-
andi saga,
framhald
af bókinni
Leitin af
Blóðey. Eins
og áður
hefst Hús-
lesturinn í
Petersen
svítunni í
Gamla bíói
klukkan 20.30 en rauðvínskynning hefst
klukkustund áður, svo mælt er með því að
mæta tímanlega og koma sér vel fyrir. Frítt
inn á meðan húsrúm leyfir.
Mikil aðsókn
á Star Wars
Nýja Star Wars myndin hefur vakið mikla
athygli og umtal hér á landi. Alls sáu
27.488 manns myndina fyrstu helgina og
væntanlega þarf ekki að bíða lengi eftir því
að hún slá við nýju James Bond myndinni,
Spectre, en rúmlega 50 þúsund manns
hafa séð hana.
Plötusala Varnarsigur hjá Braga Valdimar og félögum
Bragi Valdimar er konungur jólanna
Emmsjé Gauti útskrifaðist sem stúdent frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla um helgina. Samsett mynd/Hari
tónlist Emmsjé gauti Eignaðist Barn og gErði það gott í ár
Kórónaði frábært ár með
því að klára stúdentsprófið
Tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti fagnaði þeim áfanga um helgina að hafa lokið stúdents-
prófi frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Gauti sem er 26 ára gamall er feginn að vera laus við
þennan áfanga í lífinu og segir að hann hafi verið mun tilbúnari til þess að fara í skóla eftir að
hann komst yfir tvítugsaldurinn. Gauti hefur verið mjög vinsæll á árinu sem er að líða og í haust
eignaðist hann sitt fyrsta barn. Hann segist skulda sálinni að fara í eina sumarbústaðarferð til
þess að hvíla sig.
m ig langaði til að klára eitthvað,“ segir Emmsjé Gauti um stúdents-
prófið. „Gott að losna við hnútinn.
Þetta hefur samt ekkert legið yfir
mér en það er gott að klára það
sem maður byrjar á,“ segir hann.
„Ég fann mig ekkert þegar ég fór í
menntaskóla 15 eða 16 ára gamall.
Það var samt alltaf verið að hamra
á því að maður þyrfti að fara í
skóla. Pressan var ekki frá foreldr-
um mínum, heldur frekar bara frá
samfélaginu,“ segir Gauti.
„Mér finnst í rauninni algert
kjaftæði að pressa á mann að
klára þetta próf þegar maður er
ekkert tilbúinn í það. Ég fór bara
frekar að búa til músík og ferðast,“
segir hann. „Ég fann mig á öðrum
sviðum, en þegar ég fann hvað
mig langaði að læra, og var aðeins
búinn að róa hausinn á mér, þá
ákvað ég að vinda mér í þetta.
Þá var ég tvítugur eða 21 minnir
mig,“ segir Gauti. „Ég tók þetta
í dagskóla og dílaði bara við það.
Seinustu áfangana tók ég að vísu í
sumarskóla, en meirihluta náms-
ins var ég dagskóla bara,“ segir
hann.
„Ég er mjög sáttur. Ég hafði
farið í grafíska miðlun í Tækni-
skólanum og þá átti ég ár eftir
af stúdentsnáminu. Núna er ég
kominn í pásu frá skóla,“ segir
hann. „Ég hugsaði oft þegar ég
sat í dönsku og stærðfræðitímum,
Hvað í andskotanum er ég að gera
hérna?,“ segir Gauti. „Sérstaklega
í verkefnavinnu með 16 ára krökk-
um. Þau tóku mér bara mjög vel.
Fólk á Íslandi böggar mann ekki
nema það sé drukkið, það er svona
reglan. Svo ég slapp á morgnana.
Það var miklu meir kvíði í mér að
vera með þeim í bekk en þeim. Ef
maður stígur ekki út fyrir þæg-
indarammann þá kemst maður
ekki neitt,“ segir hann.
Emmsjé Gauti hefur verið einn
vinsælasti tónlistarmaður ársins
og á dögunum var hann ráðinn
sem kynnir í þættina Ísland Got
Talent sem byrja á Stöð 2 í janúar.
Í haust varð hann svo faðir í fyrsta
sinn. „Þetta er búið að vera gott
ár,“ segir hann. „Þetta er allt búið
að vera svo gaman, en ég held að
ég skuldi sálinni eina sumarbú-
staðarferð eða svo. Einhvern
tímann í góðu tómi.
Föðurhlutverkið er yndislegt í
alla staði,“ segir Gauti. „Ég held
að ég eigi eftir að fá almenni-
legan skell samt. Börn eru svo
háð mömmu sinni í byrjun að
ég held að ég eigi eftir að fá smá
sjokk þegar tíminn líður,“ segir
hann. „Þetta er samt alveg yndis-
legt. Nýja árið lítur vel út. Ég er
spenntur fyrir þáttunum og um
leið smá kvíðinn. Það er alltaf smá
kvíði að sjá sig í nýju hlutverki,
sem maður er ekki vanur. Þarna
er ég meira ég sjálfur. Öðru-
vísi en þegar maður er að „per-
forma“ í tónlistinni. Svo er planið
að koma með nýja plötu á árinu,“
segir hann. „Það er mikið um að
vera í rappinu. Gísli Pálmi gaf út
frábæra plötu, og Úlfur úlfur voru
með frábæra plötu líka. Svo það
er pressa á mér að koma með geð-
veika plötu,“ segir hann. „Rappið
er keppni. Þó við séum allir góðir
vinir þá langar mig samt að rústa
þeim, segir Emmsjé Gauti, tón-
listarmaður, sjónvarpsmaður, faðir
og nú stúdent.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Ég hugsaði oft þegar ég sat í
dönsku og stærðfræðitímum,
Hvað í andskotanum er ég
að gera hérna? Sérstaklega
í verkefnavinnu með 16 ára
krökkum. ... Það var miklu
meir kvíði í mér að vera
með þeim í bekk en þeim.
Ef maður stígur ekki út fyrir
þægindarammann þá kemst
maður ekki neitt.
Plötusala á Íslandi hefur oft verið með betra
móti en í ár. Á plötulistum undanfarinna vikna
hafa sölutölur verið mun lægri en áður og er
það merki um þá þróun sem á sér stað í tón-
listarlífinu um allan heim. Söluhæsta platan
þetta árið er Jólaland Bagglútsmanna sem
eru ókrýndir konungar jólanna. Um síðustu
helgi kláruðu þeir einnig 16 tónleika törn
í Háskólabíói sem seldust upp á mettíma á
haustdögum. Baggalútur á þrjár plötur á topp
30 listanum yfir söluhæstu plötur síðustu viku
því plöturnar þeirra Næstu jól og Jól og blíða
seljast vel um hver jól. Einnig á Bragi Valdi-
mar plötuna sem er í 5 .sæti, Karnivalía, sem
einnig er bók, sem og tónlistina á jólaplötu
Sigurðar Guðmundssonar sem vermir listann
eins og fyrri jól. Það má því segja að Bragi sé
konungur jólanna.
„Ég þarf að fara að hætta þessu og semja
um einhverja aðra árstíma,“ segir Bragi
Valdimar. „Þetta virkaði greinilega hjá okkur
í ár og í ljósi dræmrar plötusölu mætti kalla
þetta varnarsigur,“ segir hann. „Ég stefni á
hressa vorplötu eða hugljúfa haustplötu næst.
Ég er að vísu að semja tónlistina við leikritið
Djöfleyjuna. Þar eru ein jól, svo maður er ekki
alveg sloppinn,“ segir Bragi Valdimar Skúla-
son baggalútur. -hf
Erpur minnist Hemma
Tónlistarmaðurinn
Blaz Roca, eða Erpur
Eyvindarson, ætlar að
eyða jólum og áramótum
á Taílandi og ekki er
von á honum til Íslands
fyrr en í lok janúar. Á
Facebook síðu hans í gær
birtist mynd af honum
ásamt fríðu föruneyti,
hvar hann var staddur
á barnum hans Hemma
Gunn þar í landi. Sú
sem póstar myndinni er
greinilega starfsmaður
staðarins þar sem hún
kallar staðinn hreiður
konungsins Hemma.
Demantshringar
54 dægurmál Helgin 22.-27. desember 2015