Morgunblaðið - 09.12.2016, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2016
Ármúla 15, 108 Reykjavík Sími 515 0500 fasteignakaup@fasteignakaup.is fasteignakaup.is
Fasteignasalinn þinn
fylgir þér alla leið í söluferlinu, frá upphafi til enda
Sirrý
lögg. fasteignasali
Erna Vals
lögg. fasteignasali
Íris Hall
lögg. fasteignasali
Páll Vilhjálmsson bendir á að ávef BBC sé „spurt hvort Evr-
ópusambandið sé á síðasta snún-
ingi. Einn þekktasti sagnfræðingur
Bretlands, Niall Ferguson, sem var
andstæðingur brotthvarfs Bret-
lands úr ESB,
segir núna að
hann hafi haft
rangt fyrir sér
og styður út-
göngu Bret-
lands.
Evrópusam-
bandið er misheppnað segir Fergu-
son og telur að Brexit sé bæði rök-
rétt og skynsamleg ákvörðun.“
Páll bætir við að„hér heima ræði fimm smá-
flokkar með ríkisstjórnarþrá að
endurvekja ESB-umsókn Samfylk-
ingar frá 16. júlí 2009, segi og
skrifa 2009. Íslenskum ESB-sinnum
er ekki sjálfrátt.
Og Heimsýn vekur athygli á að„andstæðingar Brexit vonuðu
sumir að breska þingið myndi
stöðva útgönguferli Breta - og
lögðu því fram kæru til dómstóla.
Undirréttur úrskurðaði að breska
þingið yrði að taka málið fyrir.
Hæstiréttur ætlar að taka málið
fyrir. Nú hefur breska þingið sam-
þykkt með 461 atkvæði gegn 89 að
virkja grein 50 í Lissabon-sáttmála
ESB þannig að hægt verði að hefja
útgöngu Breta.
Með þessu hefur Theresa May,forsætisráðherra Breta, sigr-
að andstæðinga Brexit á tæknilegu
rothöggi.“
Þótt þessi afgreiðsla sé í formiþingsályktunar er líklegt að
Hæstiréttur Breta muni horfa til
þess í dómi sínum að þjóðarvilji og
yfirgnæfandi þingvilji fari saman.
Og BBC efast. Hvað segir RÚV?
Tvær fínar fréttir
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 8.12., kl. 18.00
Reykjavík 6 súld
Bolungarvík 2 alskýjað
Akureyri 2 rigning
Nuuk 1 rigning
Þórshöfn 9 skúrir
Ósló 7 alskýjað
Kaupmannahöfn 9 skýjað
Stokkhólmur 6 léttskýjað
Helsinki 1 þoka
Lúxemborg 0 þoka
Brussel 7 léttskýjað
Dublin 10 skýjað
Glasgow 10 skýjað
London 12 þoka
París 8 heiðskírt
Amsterdam 8 skúrir
Hamborg 7 súld
Berlín 8 heiðskírt
Vín -1 þoka
Moskva -6 snjókoma
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 11 skýjað
Barcelona 16 heiðskírt
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 14 heiðskírt
Aþena 8 léttskýjað
Winnipeg -10 snjókoma
Montreal 0 snjóél
New York 3 alskýjað
Chicago -7 snjókoma
Orlando 17 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
9. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:07 15:35
ÍSAFJÖRÐUR 11:49 15:03
SIGLUFJÖRÐUR 11:33 14:44
DJÚPIVOGUR 10:45 14:56
Hæstiréttur hefur staðfest dóm hér-
aðsdóms þar sem hafnað er kröfu
Ómars Ragnarssonar sjónvarps-
manns og átta annarra um bætur úr
ríkissjóði vegna handtöku þeirra í
vegstæði nýs Álftanesvegar í októ-
ber 2013. Þeim var í staðinn gert að
greiða íslenska ríkinu 100 þúsund
kr. í málskostnað.
Hvert hinna handteknu krafðist 2
milljóna króna í bætur vegna ólög-
mætrar handtöku í Gálgahrauni þar
sem þau reyndu að hindra vinnu við
lagningu umdeilds vegar um hraun-
ið. Í dómi Hæstaréttar kemur fram
að fólkið sinnti ekki ítrekuðum fyrir-
mælum lögreglu um að víkja af
vinnusvæðinu. Lögreglu hefði því
verið heimilt að handtaka þau og
færa á lögreglustöð til að halda uppi
lögum og reglu.
Hæstiréttur vísar einnig í dóma
frá síðasta ári þar sem níu manns
voru sakfelldir fyrir brot gegn lög-
reglulögum með því að neita að
hlýða ítrekuðum fyrirmælum lög-
reglu um að flytja sig um set á
vinnusvæðinu í Gálgahrauni. Þar
hafi því verið slegið föstu að vega-
framkvæmdirnar hafi átt sér laga-
stoð þegar í þær var ráðist.
Kröfu um
bætur var
hafnað
Handtaka í Gálga-
hrauni lögmæt
Þrjú sveitarfélög á höfuðborgar-
svæðinu; Kópavogur, Garðabær og
Hafnarfjörður, hækka gjaldskrár
sínar að jafnaði um hærra hlutfall en
Reykjavíkurborg. Seltjarnarnesbær
hyggst ekki breyta sínum gjald-
skrám um áramótin og Mosfellsbær
gerir slíkt hið sama, að því undan-
skildu að sorphirðugjöld hækka þar
um 1.000 krónur.
Garðabær og Hafnarfjörður
hækka sínar gjaldskrár almennt um
3,9%. Útsvarið í Garðabæ helst
óbreytt, 13,7%, en Hafnfirðingar
lækka sitt útsvar í 14,48% og verða í
fyrsta sinn frá árinu 1998 ekki með
hámarksútsvar. Þá verða leik-
skólagjöld í Hafnarfirði óbreytt.
Kópavogur hækkar sínar gjald-
skrár að jafnaði um 4%, en 2%
hækkun verður á leikskólagjöldum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Reykjavíkurborg stóð til að hækka
gjaldskrár um áramótin um 3,9%, til
samræmis við verðlagsþróun og
-spá, en hætt var við það þegar ný
Þjóðhagsspá Hagstofunnar leit
dagsins ljós í byrjun nóvember sl.
Þar hafði verðbólguspáin lækkað frá
fyrri spá. Borgin tók mið af þessu og
dró úr gjaldskrárhækkunum í 2,4%,
sem er til jafns við verðbólguspá
Hagstofunnar fyrir árið 2017. Svo
virðist sem stærstu sveitarfélögin
þar á eftir hafi ekki fylgt fordæmi
borgarinnar. bjb@mbl.is
Hækka gjaldskrár meira en borgin
Kópavogur, Garðabær og Hafnarfjörður hækka gjaldskrár um 3,9-4%
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Seltjarnarnes Engar hækkanir þar.