Morgunblaðið - 09.12.2016, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2016
KRÓKHÁLSI 4 SÍÐUMÚLA 8
vÖðLuPaKkAr
í mIkLu úRvAlI
ÁkOnUr, kAlLa oG vEiÐi
KrAkKa
CrOsSwaTeR
VöÐlUr oG
sKóR sAmA
n
29.995kR.
PaLiX
VöÐlUr oG
sKóR sAmA
n
36.995kR.
WiLlOw RiV
eR
KvEnVöÐl
Ur
VöÐlUr oG
sKóR sAm
An
39.995kR.
CrOsSwaTeR
YoUtH
VöÐlUr oG
sKóR sAmAn
25.995kR.
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Reykjavíkurborg hefur auglýst til-
lögu að breytingu á deiliskipulagi
Byko-reits í Vesturbænum, en reit-
urinn afmarkast af Hringbraut,
Framnesvegi og Sólvallagötu. Um-
ræddur reitur er gegnt JL-húsinu.
Umhverfis- og skipulagsráð og
borgarráð höfðu áður samþykkt að
auglýsa tillöguna.
Samkvæmt deiliskipulagstillög-
unni verður heildarbyggingamagn
15.700 fermetrar. Þar af verða íbúðir
70 talsins á 3.250 fermetrum, 2-4
hæðir. Gististaður er tilgreindur
4.300 fermetrar, 1-5 hæðir, og versl-
un og þjónusta 450 fermetrar. Svalir
og þakgarðar verða 3.450 fermetrar.
Þá er gert ráð fyrir bílakjallara.
Á norðurhluta Byko-reitsins
standa stórar verslunarbyggingar á
einni hæð með mikilli lofthæð. Þar
eru bílastæði með aðkomu frá
Hringbraut og götustæði/kantstæði
meðfram húshlið á Sólvallagötu.
Byggingar við Framnesveg standa
utan skipulagssvæðisins.
Fram kemur í lýsingu að markmið
með deiliskipulaginu sé að móta
ramma um byggð sem styrki
heildarmynd borgarhlutans, fylli í
hálfkláraðar götumyndir og verði
eftirsóknarverð til íbúðar. Áhersla
sé lögð á að nýbyggingar aðlagi sig
eldri byggð og staðháttum.
Samkvæmt Aðalskipulagi Reykja-
víkur 2010-2030 er gert ráð fyrir
þéttingu íbúðarbyggðar á Byko-
reitnum. Enn fremur er gert ráð
fyrir fjölbreyttri starfsemi við
Hringbraut og Ánanaust. Hér er
einkum um að ræða starfsemi sem
fellur undir flokkana verslun og
þjónusta og samfélagsþjónusta.
Samfélagsþjónusta er heimiluð í
skilgreindum kjarna við Sól-
vallagötu, þar sem rúmast getur
studd búseta fyrir fatlaða.
Á lóðinni verður heimilt nýtingar-
hlutfall allt að 2,0. Aðkoma bíla verð-
ur frá Hringbraut en útkeyrsla við
Sólvallagötu. Inngangar verða með-
fram gangstéttum. Aðkoma að hóteli
skal vera frá Hringbraut og ekki
verður heimilt að nota Sólvallagötu
sem aðkomuleið að hóteli, segir í
skipulagstillögunni.
Byggingarnar mega vera 1-5
hæða. Tvær hæðir syðst á lóðinni að
húsaþyrpingu við Framnesveg og að
gangstéttarbrún meðfram Sólvalla-
götu. Allt að fimm hæðir við Hring-
braut en lækki sig að hornum beggja
vegna, niður í eina hæð við Sól-
vallagötu en tvær í átt að Framnes-
vegi.
Fyrra deiliskipulag frá 2006
Í desember 2006 samþykkti
borgarráð deiliskipulag fyrir reitinn.
Þar var gert ráð fyrir að 70 íbúðir
yrðu byggðar á lóðinni. Ekkert varð
úr að byggt yrði á reitnum sam-
kvæmt skipulaginu frá 2006, sem nú
á að breyta.
Í deiluskipulaginu frá 2006 hét
umrædd lóð Steindórslóð við Hring-
braut. Í nýja skipulaginu er hins
vegar talað um Byko-reit. Er hér
væntanlega vísað til þess að í versl-
unarhúsinu á lóðinni var Byko um
árabil með verslun.
Hægt er að kynna sér hina nýju
deiliskipulagstillögu á vef Reykja-
víkurborgar. Hún liggur einnig
frammi í þjónustuveri Reykjavíkur-
borgar að Borgartúni 12-14. At-
hugasemdafrestur er til 23. janúar
2017.
Teikning/Plúsarkitektar
Byko-reiturinn Myndin sýnir umfang hinnar nýju byggðar. Hæstu húsin verða næst Hringbrautinni. Til hægri má sjá staðsetningu Byko-reitsins í Vesturbænum, nálægt Ánanaustum.
Hótel og íbúðir á Byko-reitnum
Reykjavíkurborg auglýsir nýtt deiliskipulag Heimilt verður að reisa 15.700 fermetra byggingar
á reitnum 70 nýjar íbúðir Áhersla lögð á að nýbyggingar aðlagi sig eldri byggð og staðháttum
Breytingar á skipulagi
» Mörk deiliskipulags eru
breytt og byggingar við Fram-
nesveg standa því utan skipu-
lagssvæðis.
» Fjöldi íbúða endurskil-
greindur í samræmi við Aðal-
skipulag 2010-30.
» Landnotkun endurskilgreind
í samræmi við stefnu Aðal-
skipulags 2010-30 um starf-
semi við aðalgötur.
» Hæð bygginga aukin með
tilliti til aukinna krafna um
salarhæðir og hljóðdeyfingu.
» Fallið er frá bundinni bygg-
ingarlínu við Hringbraut.
„Ekki er gerð krafa um varðveislu
neins húss á skipulagsreitnum,“
segir í deiliskipulagstillögunni.
Samþykkt tillögunnar mun þó ekki
þýða að niðurrif húsa sé heimilað.
Ákvörðun um slíkt yrði tekin á
seinni stigum.
Á lóðinni, nánar tiltekið á
Sólvallagötu 79, stendur versl-
unarhús sem margir kannast við,
alls 1.483 fermetrar að stærð.
Húsið reisti Steindór Einarsson
undir starfsemi sína. Hann rak Bif-
reiðastöð Steindórs, sem var þekkt
fyrirtæki á sinni tíð.
Á jólaföstu árið 1939 stóð Tón-
listafélagið í Reykjavík fyrir mikl-
um menningarviðburði í húsinu.
Flutt var „Sköpunin“ eftir Joseph
Haydn og stjórnandi var Páll Ísólfs-
son. Var þetta fyrsta óratórían sem
flutt var hér á landi. Ekkert annað
hús í bænum rúmaði bæði kór og
hljómsveit, sem voru um 100
manns. Utan á húsinu er skjöldur til
minningar um þennan viðburð.
Byko rak um árabil verslun í hús-
inu. Nú er þar verslunin Víðir auk
þess sem Pósturinn er þar með
starfsemi.
Morgunblaðið/Ómar
Byko-reiturinn Steindór Einarsson reisti húsið að Sólvallagötu 79.
Ekki er gerð krafa
um varðveislu húsa