Morgunblaðið - 17.12.2016, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2016
Jólagjöf VITA
SUMAR 2017
Veglegur bókunarafsláttur
af völdum dagsetningum.
Gildir til 30. desember.
Vinsælustu gististaðirnir bókast fyrst.
VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444 | VITA.IS
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Þegar kemur að því að endurhanna
Lækjargötu í Reykjavík ætti að
skoða þann möguleika að opna að
nýju Lækinn sem gatan er kennd
við. Þetta segir í umsögn skipulags-
fulltrúa Reykjavíkur um hugmynd
sem nýlega var til umfjöllunar á
samráðsvefnum Betri Reykjavík.
Lækurinn, sem liggur frá Tjörn-
inni til sjávar, var settur í stokk und-
ir götuna árið 1911. Að gera hann
aftur sýnilegan er hugmynd sem af
og til hefur skotið upp kollinum. Var
t.d. sett fram í deiliskipulagi Kvos-
arinnar en það byggðist m.a. á nið-
urstöðu úr samkeppni sem haldin
var í kjölfar bruna í Austurstræti
vorið 2007. Lækjargata er tengi-
braut skv. aðalskipulagi Reykjavík-
ur 2010-2030 og skilgreind sem
borgargata. Á þeim gildir að skapa
heildstæða götumynd og útbúa al-
menningsrými.
Umfangsmikil aðgerð
Í umsögn skipulagsfulltrúa segir
að verndun og endurreisn sögulegra
gatna og torga sé mikilvæg í vernd-
arstefnu aðalskipulags. Því sé til-
lagan um nýjan læk áhugaverð, en
aðgerðin verði umfangsmikil og dýr.
Þó megi benda á að upp hafi komið
hugmyndir um að þrengja Lækj-
argötu og auðvelda þar umferð
gangandi og hjólandi fólks svo og
strætisvagna.
Ekki megi þó flana að neinu og
gæta verði að kröfum um öryggi við
Lækinn og gera ráðstafanir vegna
stífluhættu sem forðum var vanda-
mál. sbs@mbl.is
Opnun Lækjarins í Reykja-
vík er áhugaverð hugmynd
Árbæjarsafn/Jón Helgason
Lækjargata Gamalt málverk frá
þeim tíma er lækurinn var opinn.
Skipulagsfulltrú-
inn er jákvæður
Ekkert bendir til þess að gögn um
verðbréfaviðskipti sem fjallað hefur
verið um í fjölmiðlum, komi frá Ís-
landsbanka eða starfsmönnum hans.
Það er niðurstaða rannsóknar innri
endurskoðunar bankans. Í tilkynn-
ingu frá bankanum segir að gögnin
sem hafi verið til umfjöllunar hafi öll
verið gömul og átt rót að rekja til
starfsemi Glitnis banka hf. fyrir
hrun.
Þá er bent á að gögnin sem um
ræðir séu háð þagnarskylduákvæði
58. gr. laga nr. 161/2002 um fjár-
málafyrirtæki. „Íslandsbanki lítur
málið alvarlegum augum og hyggst
bankinn óska eftir lögreglurannsókn
á því eftir hvaða leiðum gögnin kom-
ust í hendur óviðkomandi,“ segir í
tilkynningu.
Hagsmunatengsl dómara við
Hæstarétt voru í umræðunni fyrr í
mánuðinum í kjölfar umfjöllunar
fréttastofu Stöðvar 2, Kastljóss og
DV. Meðal annars var fjallað um
hlutabréfaeign nokkurra dómara í
íslensku bönkunum fyrir hrun.
Lögregla
rannsaki
lekann
Gögnin ekki frá
bankanum komin
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Fulltrúar frá Tólfunni, stuðnings-
mannasveit landsliðs karla í knatt-
spyrnu, munu verða viðstaddir kjör
á íþróttamanni
ársins í Bretlandi
á morgun þar
sem þeir munu
stjórna 12 þús-
und manns í því
sem nefnt hefur
verið víkinga-
klappið.
Jóhann Bi-
anco, sem alla
jafna er á trommunni hjá Tólfunni
á landsleikjum, segir að BBC hafi
sett sig í samband við stuðnings-
mannasveitina til að endurgera það
sem gert var á Arnarhóli við heim-
komu karlalandsliðsins í sumar eft-
ir að Evrópumótinu í knattspyrnu
lauk. „Ég komst ekki á Arnarhól á
sínum tíma og því má segja að ég
fái mitt tækifæri núna, sem ég
missti af þá,“ segir Jóhann.
Um er að ræða 12 þúsund manna
samkomu sem haldin er í Birming-
ham. Henni er sjónvarpað í beinni
útsendingu BBC og búast má við
því að milljónir manna muni sjá þá
Jóhann og Kristin Hall Jónsson,
einnig Tólfumann, stjórna vík-
ingaklappinu. „Þetta ár er búið að
vera ævintýri líkast og frábært að
fá að ljúka því með þessum hætti,“
segir Jóhann.
Knattspyrnumaðurinn Gary
Lineker er meðal kynna á samkom-
unni en meðal tilnefndra má nefna
knattspyrnumennina Gareth Bale
og Jamie Vardy, tenniskappann
Andy Murray, hlauparann Mo Farr-
ah auk fleira íþróttafólks. Þá mun
tónlistarmaðurinn Robbie Williams
flytja lag. „Eftir að við erum búnir
með okkar hluta eigum við bara að
skella okkur í jakkaföt og vera með
liðinu,“ segir Jóhann.
Stuðningur við íslenska lands-
liðið á EM í sumar hefur vakið
mikla athygli. Valdi knattspyrnu-
tímaritið 4-4-2 t.a.m. íslensku
stuðningsmennina þá bestu á árinu.
Þá nefndi UEFA íslensku stuðn-
ingsmennina meðal þeirra bestu
ásamt aðdáendum Norður-Írlands,
Írlands og Wales.
Að sögn Jóhanns hafa erlendir
blaðamenn reglulega sett sig í
samband við Tólfuna. „Þetta hefur
ekkert hætt síðan mótinu lauk,“
segir Jóhann. Einnig hefur fleira
komið upp. Um síðustu helgi var
sex Tólfumönnum t.a.m. boðið á
jólasamkomu hjá erlendu ráðgjaf-
arfyrirtæki. „Við tókum vík-
ingaklappið og sögðum nokkur vel
valin orð við starfsfólkið,“ segir
Jóhann.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
HÚH! Víkingaklappið fer víða.
Stjórna víkingaklappi á BBC
Tólfan á 12 þúsund manna samkomu þar sem Bretar velja íþróttamann ársins
Jóhann Bianco
Aldarafmæli Framsóknarflokksins var fagnað
með ýmsu móti í gær. Margir mættu til hátíðar-
samkomu sem haldin var í Þjóðleikhúsinu þar
sem þau Sigurður Ingi Jóhannsson formaður
flokksins og forsætisráðherra, Elsa Ingjalds-
dóttir eiginkona hans og Jón Björn Hákonarson
tóku á móti gestum. Norður á Akureyri tók svo
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fv. formaður á
móti fólki, en nyrðra eru rætur flokksins sterkar.
Í ræðu á afmælishátíðinni ræddi Sigurður Ingi
Jóhannsson stöðu flokksins í dag. Staðan væri
óvenjuleg um margt og ríkisstjórn hefði ekki
verið mynduð tveimur mánuðum eftir kosn-
ingar. „Úrslitin eru vísbending um að mynduð
verði ríkisstjórn með breiða skírskotun til hægri
og vinstri. Milli jaðranna vinstri og hægri í
stjórnmálum er þungamiðjan og þar erum við,“
sagði Sigurður Ingi. »34
Hátíð á 100 ára afmæli Framsóknarflokksins sem var í gær
Morgunblaðið/Golli
Ríkisstjórn með breiða skírskotun
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Akureyri Hjörleifur Hallgríms og Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson ræddu mál líðandi stundar.
Þriðjungur íbúa á höfuðborgar-
svæðinu varð fyrir afbroti á síð-
asta ári. Af þolendum varð um
fjórðungur fyrir eignaskemmdum
og 10% máttu þola þjófnað. Um
2% íbúa á höfuðborgarsvæði urðu
fyrir kynferðisbrotum og svipað
hlutfall fyrir ofbeldisbrotum. Þá
greindu 4% frá heimilisofbeldi.
Skv. niðurstöðum viðhorfskönn-
unar sem gerð var fyrir lögregl-
una verða karlar fremur en konur
fyrir afbrotum og helst yngra fólk,
18 til 35 ára. Þegar kom að kyn-
ferðisbrotum voru öll fórn-
arlömbin 35 ára eða yngri, hlut-
fallslega flestir 18-25 ára.
Þolendur ofbeldisbrota voru flestir
úr sama aldurshópi.
Aðeins 7% þeirra sem sögðust
hafa orðið fyrir kynferðisbroti í
fyrra tilkynntu það til lögreglu.
sbs@mbl.is
Ungir karl-
ar eru helst
þolendur