Morgunblaðið - 17.12.2016, Blaðsíða 42
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2016
DEILDARSTJÓRI STOÐÞJÓNUSTU
Laus er til umsóknar staða deildarstjóra á skrifstofu Fjölskylduþjónustu
Hafnarfjarðar. 100% starf stjórnanda í stoðþjónustu.
Starfið felur í sér stjórnun og rekstur deildar. Viðkomandi leiðir starf
vegna öldrunarþjónustu, heima- og ferðaþjónustu, liðveislu,
stuðningsþjónustu og stuðningsfjölskyldna. Lögð er áhersla á
metnaðarfullt og faglegt starf í þágu bæjarbúa.
Umsóknarfrestur er til ogmeð 23. desember nk.
Upplýsingar og umsóknarform á hafnarfjordur.is
Nánari upplýsingar veitir Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri
Fjölskylduþjónustu Hafnarfjarðar: rannveig@hafnarfjordur.is
585 5500
hafnarfjordur.is
Menntunar- og hæfniskröfur:
· Háskólamenntun sem nýtist í starfi
· Meistarapróf sem nýtist í starfi æskilegt
· Reynslu af stjórnun og rekstri
· Þekking á öldrunarmálum,málefnum fatlaðs
fólks og félagsþjónustu sveitarfélaga
· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
· Lipurð í mannlegum samskiptum
· Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
· Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
HAFNARFJARÐARBÆR
RÁÐHÚS HAFNARFJARÐAR
STRANDGÖTU 6
ÞJÓNUSTUVER
OPIÐ FRÁ KL. 8.00 – 16.00
ALLA VIRKA DAGA
SKÓLASTJÓRI - SKARÐSHLÍÐ
Staða skólastjóra við nýjan grunnskóla í Skarðshlíð í Hafnarfirði er
laus til umsóknar. Starfið felur í sér að stýra nýjum 450 nemenda
grunnskóla semmun rísa í Skarðshlíð inn af Völlunum í Hafnarfirði.
Umsókn um starfið þarf að fylgja greinargóð starfsferilsskrá og
kynningarbréf sem varpað getur ljósi á færni umsækjanda til að
sinna skólastjórastarfi.
Umsóknarfrestur er til ogmeð 26. desember nk.
Upplýsingar og umsóknarform á hafnarfjordur.is
Nánari upplýsingar veitir Fanney Dóróthe Halldórsdóttir sviðsstjóri
Fræðslu- og frístundaþjónustu: fanney@hafnarfjordur.is
585 5500
hafnarfjordur.is
Menntunar- og hæfniskröfur:
· Leyfisbréf í grunnskólakennarafræðum
· Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða uppeldis-
eða kennslufræða
· Kennslu- og stjórnunarreynsla
· Leiðtogahæfni
· Hæfni í mannlegum samskiptum og samstarfshæfileikar
· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
· Skipulagshæfileikar
· Góð íslenskukunnátta og geta til að tjá sig í ræðu og riti
· Góð tölvukunnátta
HAFNARFJARÐARBÆR
RÁÐHÚS HAFNARFJARÐAR
STRANDGÖTU 6
ÞJÓNUSTUVER
OPIÐ FRÁ KL. 8.00 – 16.00
ALLA VIRKA DAGA
Sérfræðingur til rannsókna
á vistfræði fjarða
Hafrannsóknastofnun óskar eftir sérfræðingi til rannsókna á
vistfræði fjarða í tengslum við uppbyggingu fiskeldis. Starfið felst
m.a. í framkvæmd rannsókna á eðlis- og efnafræði fjarða og vöktun
á áhrifum fiskeldis á vistkerfi fjarðanna. Starfið er fjölbreytt og
krefjandi framtíðarstarf.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Meistarapróf eða doktorspróf æskileg.
• Menntun á sviði haffræði, umhverfisfræði eða samsvarandi með
áherslu á efnafræði æskileg.
• Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymisvinnu.
Um er að ræða fullt starf með starfsstöð á Ísafirði. Laun eru sam-
kvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og viðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 1. febrúar n.k. Umsóknir með ítarlegum
upplýsingum um menntun, starfsreynslu og nöfnum tveggja meðmælenda
skulu sendar á póstfangið umsokn@hafogvatn.is eða á skrifstofu Hafrann-
sóknastofnunar, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Helgadóttir, mannauðsstjóri (kristin.
helgadottir@hafogvatn.is) og Héðinn Valdimarsson, sviðsstjóri
umhverfissviðs (hedinn.valdimarsson@hafogvatn.is)
Jafnt karlar sem konur, eru hvött til að sækja um starfið.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna er stærsta rannsóknastofnun landsins
á sviði haf- og vatnarannsókna og gegnir auk þess ráðgjafarhlutverki varðandi skynsamlega nýtingu
og verndun auðlinda hafs og vatna. Mikill hluti starfseminnar tengist alþjóðlegu samstarfi við erlendar
hafrannsóknastofnanir og háskóla. Stofnunin rekur auk aðalstöðva í Reykjavík starfsstöðvar vítt og breytt
um landið, tilraunaeldisstöð, tvö rannsóknaskip og hefur að jafnaði um 170 starfsmenn í þjónustu sinni.
Sérfræðingur við
rannsóknir á veiðarfærum
Hafrannsóknastofnun leitar eftir sérfræðingi til starfa við rannsóknir
á veiðarfærum. Starfið felst í þátttöku og skipulagningu á rann-
sóknar- og þróunarvinnu í veiðitækni, auk úrvinnslu gagna. Starfið
er fjölbreytt og krefjandi framtíðarstarf.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Meistarapróf eða hærri menntun úr rannsóknarmiðuðu
háskólanámi æskileg.
• Reynsla af sjómennsku eða góð þekking á fiskveiðum æskileg.
• Góð tölfræðiþekking nauðsynleg.
• Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymisvinnu.
Um er að ræða fullt starf með starfsstöð á Ísafirði. Laun eru sam-
kvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og viðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 1. febrúar n.k. Umsóknir með ítarlegum
upplýsingum um menntun, starfsreynslu og nöfnum tveggja meðmælenda
skulu sendar á póstfangið umsokn@hafogvatn.is eða á skrifstofu Haf-
rannsóknastofnunar, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík. Konur, jafnt sem karlar
eru hvattar til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Helgadóttir, mannauðsstjóri (kristin.
helgadottir@hafogvatn.is).
Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna er stærsta rann-
sóknastofnun landsins á sviði haf- og vatnarannsókna og gegnir auk þess ráðgjafarhlutverki
varðandi skynsamlega nýtingu og verndun auðlinda hafs og vatna. Mikill hluti starfseminnar
tengist alþjóðlegu samstarfi við erlendar hafrannsóknastofnanir og háskóla. Stofnunin rekur
auk aðalstöðva í Reykjavík starfsstöðvar vítt og breytt um landið, tilraunaeldisstöð, tvö
rannsóknaskip og hefur að jafnaði um 170 starfsmenn í þjónustu sinni.
Vilt þú koma í liðið okkar?
Laxar fiskeldi ehf leitar eftir öflugu starfsfólki til fjölbreyttra starfa á nýrri eldisstöð
fyrirtækisins í Reyðarfirði.
Laxar fiskeldi ehf er að hefja uppbygginu á öflugu eldi á laxi í sjókvíum á Austfjörðum.
Með tilkomu starfseminnar mun skapast fjölbreyttara atvinnulíf með hærra
atvinnustigi. Fyrirtækið hefur skýra umhverfisstefnu sem staðfestir vilja
fyrirtækisins til að stunda ábyrga og sjálfbæra starfsemi.
Laxar Fiskeldi ehf starfrækir þrjár seiðaeldisstöðvar í Ölfusi og seiði verða sett í
sjókvíar í Reyðarfirði í maí. Við starfsemina verður notaður besti búnaður sem völ
er á til fiskeldis í heiminum í dag auk þess sem starfsfólki fyrirtækisins er boðið upp
á góða þjálfun og samkeppnishæf laun.
Reynsla af fiskeldi, fiskeldismenntun, skipstjórnarréttindi, líffræðimenntun og
fleira eru kostir sem geta komið umsækjendum til góða.
Upplýsingar gefa Kristján í síma 852 8211 og Gunnar í síma 00 47 992 03 622
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á starf@laxar.is fyrir 3. janúar 2017.
Karlar jafnt sem konur
eru hvött til að sækja um
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á