Morgunblaðið - 17.12.2016, Blaðsíða 12
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Áþeim fjórtán árum semég hef sungið með kórn-um hef ég tvisvar þurftað sleppa því að syngja
með á jólakonsert, og það var
ómögulegt,“ segir Vigfús M. Vig-
fússon, einn af meðlimum Karla-
kórs Reykjavíkur, en söngurinn á
aðventunni er stór hluti af hans
jólastemningu.
„Það er vissulega sérstakt að
byrja að syngja í september á kór-
æfingum lög sem tengjast jól-
unum, en stemningin magnast eft-
ir því sem nær dregur jólum.
Aðventutónleikarnir eru mjög
sterk hefð hjá okkur kórfélögum
og ég finn hvað þetta er mikill
hluti jólanna hjá okkur flestum, ef
ekki öllum. Jólatónleikar Karla-
kórs Reykjavíkur eru hefð sem fór
af stað árið 1993, fyrir tuttugu og
þremur árum. Þá var miklu minna
um tónleikahald fyrir jólin, ekkert
í líkingu við það sem núna er, svo
okkar tónleikar eru mjög rót-
grónir í hugum margra borgarbúa.
Við fáum alltaf marga sem koma á
tónleikana okkar til að njóta, ár
eftir ár.“
Uppáhaldsárstíminn
hjá jóladrengnum
Vigfús segist vera fæddur í
desember og fyrir vikið er
desembermánuður og aðventan
uppáhaldsárstími hans.
„Mér finnst þetta rosalega
góður tími, þrátt fyrir myrkrið
sem fylgir þessari árstíð þá er
eitthvað sem heillar mig við þenn-
an tíma. Ætli sé ekki óhætt að
segja að ég sé jóladrengur.“
Vigfús segir að það að vera í
Karlakór Reykjavíkur snúist ekki
aðeins um að syngja, heldur ekki
síður um frábæran félagsskap.
„Í mörgum tilvikum snýst það
líka um afar góða vináttu. Þetta er
sterkur hópur sem heldur vel utan
um sína félaga þegar eitthvað
bjátar á hjá þeim. Menn standa
þétt saman og veita hver öðrum
góðan stuðning.“
Vigfús segir að jólatónleik-
arnir séu hluti af rótgróinni að-
ventuhefð hjá hans fjölskyldu.
„Þau reyna alltaf að koma á
kvöldtónleika, því þeim finnst
Þetta snýst líka um
frábæran félagsskap
Að vera í kór snýst ekki einvörðungu um að syngja, í mörgum tilvikum snýst
það líka um afar góða vináttu. „Þetta er sterkur hópur sem heldur vel utan um
sína félaga þegar eitthvað bjátar á hjá þeim. Menn standa þétt saman og veita
hver öðrum góðan stuðning,“ segir Vigfús M. Vigfússon, meðlimur í Karlakór
Reykjavíkur, en þeir félagarnir ætla að syngja ferna jólatónleika um helgina.
Morgunblaðið/Golli
Allt að smella Vigfús með Friðriki, stjórnanda kórsins, á lokaæfingunni.
Fjölbreyttur hópur Karlar á öllum aldri skipa Karlakór Reykjavíkur.
Góðir félagar Þrír kátir úr kórnum og Friðrik stjórnandi fyrir framan
á góðri stundu og hátíðlegri á kóramóti í Hörpu fyrr á þessu ári.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2016
Skákfélagið Hrókurinn starfar í anda
einkunnarorða skákhreyfingarinnar:
Við erum ein fjölskylda. Á vefsíðu
Hróksins kemur fram að í anda þess-
ara kjörorða heimsæki Hrókurinn
Barnaspítala Hringsins vikulega,
haldi uppi skáklífi í Vin, athvarfi
Rauða krossins, og sinni skák-
landnámi á Grænlandi. Hrókurinn
gerir margt fleira, m.a. hefur hann
heimsótt öll sveitarfélög og alla skóla
á Íslandi. Á heimasíðu Hróksins má
fræðast um þetta skákfélag og þar
kemur einnig fram að jólahátíð fé-
lagsins verður í dag, laugardag, milli
kl. 14 og 17 í Pakkhúsi Hróksins, sem
er við Geirsgötu 11 við Reykjavíkur-
höfn. Pakkhúsið gegnir einnig hlut-
verki miðstöðvar fyrir fatasöfnun í
þágu grænlenskra barna og ung-
menna. En í dag verður þar fjölbreytt
dagskrá í boði fyrir gesti og gangandi
í tilefni jólahátíðarinnar. Meðal þeirra
sem koma fram eru Bjartmar Guð-
laugsson, rithöfundur og tónlistar-
maður, Jóhannes Kristjánsson eftir-
herma og Linda Guðmundsdóttir
harmónikkuleikari frá Finnboga-
stöðum. Tveir jólasveinar hafa lofað
að líta inn, bræðurnir Gáttaþefur og
Stekkjastaur sem ætla að tefla við
gesti. Einnig verður hægt að njóta
myndasýningar frá starfi Hróksins á
Íslandi og Grænlandi, og ýmislegt
verður á boðstólum á bóka- og flóa-
markaði í þágu starfs Hróksins. Að
ógleymdum veitingum, vöfflum, kök-
um og kakó sem konur úr prjónahópi
Gerðubergs munu reiða fram, en þær
hafa tekið virkan þátt í starfi Hróks-
ins. Þær útbjuggu m.a. jólapakka til
allra barna í Kulusuk.
Allir eru hjartanlega velkomnir og
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís-
lands, verður heiðursgestur, en hann
tók þátt í skákmaraþoni félagsins á
árinu í þágu sýrlenskra flóttabarna.
Vefsíðan www.hrokurinn.is
Ljósmynd/Róbert Lagerman
Geislandi bros Hrókurinn fer reglulega til Grænlands að kenna börnum skák.
Stekkjastaur teflir við gesti
á jólahátíð Hróksins í dag
Í dag hefur fólk tækifæri til að hitta
nokkra fremstu myndasöguhöfunda
Íslands kaupa séríslenskar mynda-
sögur á myndasögumarkaðinum
KOMMIK KON 2016 á Hlemmi Square.
Markaðurinn stendur frá kl. 14-18 og
rætt verður um verkin þeirra og
listina. Eftirtaldir höfundar ætla að
mæta með myndasögur: Andri Kjart-
an Andersen, Bjarni Hinriksson,
Björn Heimir Önundarson, Halldór
Baldursson, Héðinn Finnsson, Hlíf
Una Bárudóttir, Hugleikur Dagsson,
Karítas Gunnarsdóttir, Lóa Hjálmtýs-
dóttir, Pétur Atli Antonsson, Sandra
Rós Björnsdóttir, Sunna Sigurðar-
Hlemmur Square
Myndasögu-
markaður
Morgunblaðið/Golli
Mætir í dag Hugleikur Dagsson.
dóttir, Þórey Mjallhvít H. Ómars-
dóttir. Hlemmur Square er við Lauga-
veg 105, gott er að hafa með seðla
því ekki hafa allir listamenn posa.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Vistvænna prentumhverfi
og hagkvæmni í rekstri
Með Prent+ fæst yfirsýn, aðhald í rekstri
og fyrsta flokks þjónusta.
www.kjaran.is | sími 510 5520