Morgunblaðið - 17.12.2016, Page 26
26 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2016
Svalaskjól
-sælureitur innan seilingar
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 30 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Frábært skjól gegn vindi og regni
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
198
4 - 2016
ÍS
LEN
SK FRAML
EI
ÐS
LA32
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Einræðisstjórnin í Sýrlandi stöðvaði
í gær flutninga á uppreisnarmönnum
og borgarbúum frá austurhluta
Aleppo-borgar og óvissa var um ör-
lög þúsunda manna sem hafa ekki
komist þaðan.
Einræðisstjórnin sakaði upp-
reisnarmenn um að hafa brotið sam-
komulag um flutningana. „Flutning-
arnir hafa verið stöðvaðir vegna þess
að hryðjuverkahóparnir brutu sam-
komulagið, reyndu að smygla vopn-
um og gíslum frá austurhluta
Aleppo,“ sagði ríkissjónvarp Sýr-
lands sem hefur lýst öllum upp-
reisnarhreyfingunum sem hryðju-
verkahópum.
Stjórnvöld í Moskvu, sem höfðu
milligöngu um samkomulagið ásamt
Tyrkjum, sögðu að flutningunum
væri lokið og öllum konum og börn-
um hefði verið forðað úr borgarhlut-
anum. Stjórnvöld í Tyrklandi og tals-
menn stjórnarhersins í Sýrlandi
sögðu hins vegar að gert hefði verið
hlé á flutningunum en þeim væri
ekki lokið.
Hjálparstofnanir sögðu að flytja
þyrfti þúsundir manna til viðbótar
frá Austur-Aleppo og hvöttu til þess
að flutningarnir yrðu hafnir að nýju.
Embættismaður Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunarinnar sagði að í
Austur-Aleppo væru enn mörg börn
undir fimm ára aldri og konur sem
þyrftu að komast þaðan sem fyrst.
Að sögn sýrlenskrar mannrétt-
indahreyfingar höfðu um 8.500
manns, þar af 3.000 uppreisnar-
menn, verið flutt frá austurhluta
Aleppo þegar flutningarnir voru
stöðvaðir.
Óttast fjöldamorð
Um 250.000 manns bjuggu í
Austur-Aleppo áður en átökin um
borgina hófust fyrir fjórum árum en
margir hafa flúið þaðan. Þúsundir
manna létu lífið í árásum á borgar-
hlutann, sjúkrahús voru lögð í rúst
og mikill matvæla- og lyfjaskortur er
þar vegna umsáturs stjórnarhersins.
Embættismenn Sameinuðu þjóð-
anna segja að talið sé að um 50.000
manns séu enn í Austur-Aleppo, þar
af um 40.000 óbreyttir borgarar, að
sögn fréttavefjar BBC.
Eftir að flutningarnir voru stöðv-
aðir heyrðust sprengingar og byssu-
hvellir í hverfinu Ramusa, sem er á
valdi stjórnarhersins, að sögn frétta-
manns AFP á staðnum. Rútur sem
fluttu fólkið frá austurhluta Aleppo-
borgar fóru um hverfið á leiðinni á
yfirráðasvæði uppreisnarmanna í
vestanverðu Aleppo-héraði.
Mannréttindahreyfingin Syrian
Observatory for Human Rights, sem
fylgist með stríðinu í Sýrlandi, taldi
að flutningarnir hefðu verið stöðv-
aðir til að knýja uppreisnamennina
til að heimila flutninga á fólki úr
tveimur þorpum, Fuaa og Kafraya,
sem þeir hafa setið um frá því í sept-
ember á síðasta ári. Þorpin eru í
Idlib-héraði.
Alþjóðaráð Rauða krossins telur
að um 20.000 manns séu í Fuaa og
Kafraya og flestir þeirra eru sjía-
múslimar. Stjórn Sýrlands og
klerkastjórnin í Íran hafa krafist
þess að flutningar verði hafnir á íbú-
um þorpanna, eins og íbúum Austur-
Aleppo, en hermt er að uppreisnar-
mennirnir hafi hafnað því.
Stjórnvöld í Bandaríkjunum,
Bretlandi og fleiri löndum hafa
gagnrýnt Rússa og Írana fyrir þátt
þeirra í blóðsúthellingunum í Sýr-
landi. John Kerry, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sakaði einræðis-
stjórnina í Sýrlandi og rússneska og
íranska bandamenn þeirra um „villi-
mannsleg grimmdarverk gegn
óbreyttum borgurum“. Hann sagði
að flytja þyrfti íbúana og upp-
reisnarmennina í Austur-Aleppo á
brott og kvaðst óttast fjöldamorð í
borgarhlutanum, líkt og í Srebrenica
í Bosníu árið 1995 þegar hersveitir
Bosníu-Serba drápu meira en 7.000
karlmenn úr röðum múslima.
Flutt í stríðshrjáð hérað
Gert er ráð fyrir því að flestir
þeirra sem fluttir hafa verið frá
Austur-Aleppo dvelji í Idlib, stríðs-
hrjáðu héraði sem er að mestu á
valdi uppreisnarmanna, m.a. liðs-
manna íslömsku hreyfingarinnar
Jabhat Fateh al-Sham, sem hét áður
al-Nusra og tengdist hryðjuverka-
netinu al-Qaeda.
Hjálparstofnanir hafa miklar
áhyggjur af örlögum flóttafólksins
frá Austur-Aleppo í Idlib vegna
árása stjórnarhersins og rússneskra
herflugvéla á héraðið. Líklegt er að
eftir sigurinn í Austur-Aleppo leggi
stjórnarherinn áherslu á að ná Idlib
á sitt vald og herði árásirnar á hér-
aðið. „Ef ekki næst samkomulag um
vopnahlé verður Idlib næsta
Aleppo,“ hefur fréttavefur BBC eftir
Staffan de Mistura, sendimanni
Sameinuðu þjóðanna í Sýrlandi.
Í Idlib eru nú þegar um 230.000
flóttamenn í um 250 bráðabirgða-
búðum. Á mörgum staðanna eru að-
stæðurnar óviðunandi, fjölskyldur
dvelja í troðfullum og hálfköruðum
byggingum, án kyndingar, salernis
eða rennandi vatns, að sögn Alþjóða-
ráðs Rauða krossins.
1
2
3
4
5
6
2
1
4
6
5
3
Yfirráðasvæði uppreisnarmanna í Sýrlandi
Heimildir: ISW, OSDH, fréttaveitan AFP
Uppreisnarmenn
Hersveitir
stjórnarinnar
Ríki íslams
Kúrdar
Yfirráðasvæði
Í gær
Héruðin Daraa og Quneitra
Lúta að mestu yfirráðum uppreisnarmanna,
að frátalinni borginni Daraa.
Homs-hérað
Þrír bæir í norðanverðu héraðinu eru á valdi
uppreisnarmanna: Rastan, Talbisseh, Houla
Austur-Ghouta
Um 40-50% svæðisins lúta yfirráðum upp-
reisnarmanna. Stjórnarherinn situr um
suma bæjanna,.
Latakíu-hérað
Uppreisnarmenn halda hluta fjalla fjall-
lendis við landamærin að Tyrklandi.
Idlib-hérað
Nær allt héraðið er á valdi uppreisnarmanna
fyrir utan tvö þorp sjía, Fuaa og Kafraya.
Aleppo-hérað
Uppreisnarmenn halda enn svæði vestan
við Aleppo-borg og fjórum bæjum í
norðanverðu héraðinu.
Hassakeh
JÓRDANÍA
ÍRAK
100 km
LÍ
BA
N
O
N
DAMASKUS
Aleppo
Latakía
Idlib
Kobane
Raqqa
Deir
Ezzor
Palmyra
Homs
Daraa
„Idlib-hérað verður
næsta Aleppo“
Flutningar á fólki frá austurhluta Aleppo-borgar stöðvaðir
AFP
Komið undir læknishendur Særð kona í sýrlenskum landamærabæ á leið á
sjúkrahús í Tyrklandi eftir að hafa verið flutt frá austurhluta Aleppo.
Pútín boðar viðræður
» Vladimír Pútín Rússlands-
forseti sagði í gær að Rússar
og Tyrkir beittu sér fyrir við-
ræðum milli stjórnar Sýrlands
og uppreisnarmanna til að
koma á vopnahléi í öllu land-
inu.
» Avigdor Lieberman, varnar-
málaráðherra Ísraels, sagði að
Bashar al-Assad, einræðis-
herra Sýrlands, væri „morð-
vargur“ sem flæma þyrfti úr
landinu ásamt hermönnum Ír-
ana og liðsmönnum Hizbollah-
samtakanna.
Forseti Filippseyja, Rodrigo Du-
terte, skaut þrjá karlmenn til bana
þegar hann var borgarstjóri Davao.
Þetta hefur hann staðfest í samtali
við breska ríkisútvarpið, BBC. Lög-
reglumenn og dauðasveitir hafa
drepið nær 6.000 manns, sem grun-
aðir eru um sölu eða neyslu fíkni-
efna, frá því að Duterte tók við for-
setaembættinu í júní.
„Ég drap um það bil þrjá. Ég veit
ekki hversu mörgum skotum ég
skaut í líkama þeirra. Þetta gerðist
og ég get ekki sagt ósatt um það,“
sagði Duterte. Mennirnir munu
hafa verið grunaðir um mannrán
og nauðgun.
Nokkrum klukkustundum áður
hafði aðstoðarmaður forsetans
þvertekið fyrir að Duterte hefði
drepið einhvern með eigin hendi og
sagt að ekki ætti að taka orð hans
bókstaflega. Áður hafði forsetinn
sagt í ræðu á fundi með frammá-
mönnum í atvinnulífinu að hann
hefði drepið menn sjálfur til þess að
senda lögreglumönnum þau skila-
boð að fyrst hann gæti það gætu
þeir það líka.
FILIPPSEYJAR
Forsetinn segist hafa drepið þrjá menn
AFP
Manndrápari Rodrigo Duterte, forseti
Filippseyja, hefur viðurkennt manndráp.
Vegna skorts á
gjaldeyri hafa
stjórnvöld á
Kúbu boðist til
að greiða skuld
landsins við
Tékkland með
varningi sem
Kúbumenn eiga
aflögu, m.a.
rommi. Stærsta
dagblað Tékklands, Dnes, hefur
eftir aðstoðarfjármálaráðherra
landsins að greiðsla í rommi sé
„áhugaverður kostur“.
Blaðið segir að Tékkar hafi flutt
inn kúbverskt romm fyrir 53 millj-
ónir tékkneskra króna, jafnvirði
um 240 milljóna íslenskra, á síðasta
ári. Yrði öll skuldin greidd í rommi
ættu birgðirnar sem Tékkar fengju
að duga þeim í 130 ár, miðað við
drykkju þeirra nú. Fjármálaráðu-
neytið segir það of mikið af því
góða og vill að hluti skuldarinnar
verði greiddur í peningum.
KÚBA
Vilja borga skuldina í kúbversku rommi
Romm skoðað í
verslun í Havana.